Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1986, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1986, Síða 11
DV. LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR1986 55 í Moskvu . Hreingerning Ef nýi borgarstjórirm í Moskvu fær vilja sínum framgengt geta íbúar borgarinnar búist við skárri húsakosti í framtíðinni, hreinni verslunum og betri almenningssamgöngum. Reyndar er Boris Yeltsin ekki ne&idur borgarstjóri heldur er hann formaður kommúnistaflokksins í Á borgarmálafúndinum varð hann að láta sér lynda að sitja undir skammadembu Yeltsins um svindi og spillingu á húsnæðissviðinu, slæmar samgöngur í Moskvu, ruddalega framkomu verslunarfólks og óstand í sjúkrahúsmálum. „Það hiaut að koma að því,“ sagði kennara sagði að skólar borgarinnar væru sóðalegir og öldum á eftir tíman- um. -Þar verða nemendur að skrifa á töflur sem eru eins og þær séu minjar frá steinöld, sagði kennarinn. Og fúll- trúi lækna tók í sama streng, sagði sjúkrahúsin sóðaleg og stjómað af dónalegu og spilltu fólki. myndaðist byggð þar á bökkum Moskvuár á 13. öld. Það var Vladimir Lenin sem endur- reisti Moskvu sem höfúðborg ríkisins árið 1918 en þá hafði Pétursborg (Len- ingrad núna), fyrir botni Eystrasalts, verið höfúðborg Rússlands og stjóm- arsetur um tveggja alda skeið. í ræðu sinni varaði Yeltsin aðalrit- ari við því að borginni yrði vart stjóm- að ef íþúafjöldanum yrði ekki haldið í skefjum. biýr borgarstjóri I haust sem leið var hneykshsmál gert heyrinkunnugt í sambandi við húsnæðismáf í Moskvu. Þegar það mál var komið i fjölmiðla var öllum ljóst að Grishin hefði runnið sitt skeið á enda - og sömuleiðis borgarstjórinn, Vladimir Promyslov. Eftir áramótin var Promyslov látinn fjúka og í staðinn kom Valery Saikin sem áður var framkvæmdastjóri Zil- -bflaverksmiðjanna. Hneykslismáhð sem um ræðir sner- ist um það sem margir Moskvubúar töldu sig hafe vitað: að margar af þeim nýju íbúðum, sem stöðugt var sagt að væru í byggingu, voru hvergi til nema á pappírum. Og það eins þótt þeir sömu pappírar segðu að byggingu þeirra væri lokið. í ræðu sinni sagði Yeltsin að samtals 86 verkefnisstjórar og stjómendur fyrirtækja hefðu verið reknir úr flokknum síðustu mánuði og að marg- ir þeirra yrðu trúlega sóttir til saka. Gorbatsjov-stjómin stefrár að end- urbótum á kerfi sínu - og ekki með byltingu heldur með nýjum og betri starfskröftum. Charles Bremner/Reufr er. m -MiMosta’MM.rl.i™—^»i»tash.r.r»áH>p,n»“ 120þúsund nýjaribuðir a aniM Nú er Gorbatsjov búinn að skipa nýjan borgarstjóra. Moskvu, embætti sem hann var settur í í síðasta mánuði. Þegar hann tók við lýsti hann stríði á hendur þeim fjölmörgu atriðum sem hann sagði að hefðu gengið á skjön í Moskvu þarrn tíma sem henni var stjómað af mönn- um sem höfðu ekki lengur samband við íbúa borgarinnar. Yeltsin, sem er 55 ára, lýsti hneyksl- un sinni og reiði yfir stjómarháttun- um í Moskvu í einkar harðorðri og opinskárri ræðu á ráðstefnu flokksins um málefrú borgarinnar. Þá ráðstefhu sátu margir af hinum ábyrgu embættr ismönnum borgarinnar - og einnig forveri Yeltsins í formannsstólnum, Viktor Grishin, sem stýrt hefúr Moskvuborg undanfarin 18 ár. Grishin er meðal þeirra öldunga sem Gorbatsjov og fylgismenn em að hreinsa út úr kerfinu. Hann á sæti í Pohtburo, hinni valdamiklu stjómar- nefhd, en varla er búist við því að hann vermi þar stólsetu lengi enn. Yeltsyn „að einhver yrði að taka að sér að segja þetta.“ „Blómleg skriffinnska“ Eftir því sem hinn nýi aðalritari flokksins í Moskvu sagði í ræðu sinni þá er skriffinnskan í Moskvu víðfræg um öll Sovétríkin. Þar hafa stýrt skrilfinnar sem hafa tahð sig hafha yfir aUar breytingar - vemdaðir af kerfinu. „Moskva hefúr verið eins konar fríhöfii, vemduð fyrir aUri gagnrýni," sagði Yeltsin Áðalritarinn sagði að embættis- menn Moskvuborgar hefðu hiklaust falsað skýrslur tíl þess að láta líta svo út sem aUt væri í stakasta lagi og framfarasóknin stöðug. Og með föl- suðum skýrslum hefðu þeir ætlað að blekkja Gorbatsjov og aðra foringja í Kreml sem hafa krafist nýrra vinnu- bragða. Á þessum fundi, þar sem Yeltsin talaði sig heitan, risu og upp aðrir og lýstu óstandinu í Moskvu. FuUtrúi Áætlun um að hreinsa til í Moskvu kemur heim og saman við hreinsunar- herferð Gorbatsjovs, áætlun hans um að gjörbreyta rekstri í landinu og efnahagskerfinu og gera flokkinn ábyrgan gagnvart þjóðinni. Tii þess að sýna föUri og sanna að stjómendur meintu það sem þeir hafa undanfarið sagt þá fór forseti Sovét- ríkjanna, Andrei Gromyko (utanrflris- ráðherra í áratugi), í göngufeið um götur Moskvu og kynnti sér vöm- framboð og afgreiðsluhætti í Moskvu. Sjónvarp6vélin fylgdi honum fast eftir þá viku sem hann eyddi í þetta og kvartanir heyrðust í sjónvarpi og klögumál. Gárungamir sögðu jafri- framt að þetta hefði verið í fyrsta sinn á fimmtíu ára ferh sem Gromyko hefði komið út á meðal lýðsins. Fyrir margt löngu lýstu komm- únistaforingjar því yfir að Moskva ætti að vera sýningargluggi hins kommúniska kerfis. Og miklum fjár- hæðum hefúr verið varið til að gera borgina nútímalegri. Saga Moskvu er orðin löng. Fyrst Jósef Stalín lét reisa voldug minnis- merki viða í Moskvu og lét leggja mikfar breiðgötur og aðalbrautir í kjölfar niðuirils gamaha hverfa og margra fallegra kirkna. Á sjötta áratugnum hratt Nilrita Krúsjeff af stað mikilli áætlun um húsbyggingar sem haldið var áfiam að framkvæma eftir að Breshnef tók við. Sú áætlun stendur reyndar enn samhhða tilburðum til að vemda gömul hverfi og einstakar byggingar. Á hveiju ári em byggðar 120 þúsund íbúðir í Moskvu. Meira en 80% hinna 8,5 milljóna íbúa í borginni hafa flutt úr þröngum, gömlum íbúðum í nýjar síðan á árinu 1945. Þjónusta og samgöngur í Moskvu eru lakari en í flestum vestrænum borgum en eigi að síður er Moskva eftirsóttur staður meðal Rússa sem verða að fa sérstakt leyfi frá yfirvöld- um til að búa þar. Þótt lögreglan geri sér far um að hrekja út úr borginni þá borgara sem þar hafa sest að án hinna eftirsóttu leyfa þá hefur íbúum í Moskvu fjölgað um hálfa milljón síðan 1979. ——í- -

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.