Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1986, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1986, Page 20
Surtla heitin, frá á fæti Surtla úr Herdísarvík er sennilega frægust íslenskra sauðkinda. I fjár- J skiptunum 1952, þegar allt fé var skorið á svæðinu milli Hvalfjarðar og Rangár, var hún lengi vel ein sauðkinda á lífi afsfnum kynstofni. Við rákumst á hausinn af henni ofan við dyr uppi á Keldum, þar sem Rannsóknarstofnun Háskólans í meinafræði er. I þeirri stofnun hefur margt göfugt handtak verið unnið í þágu visnurannsókna sem nú tengjast rannsóknum á eyðni (sem nefnist Aids á útlendum tungum). Stór og stygg Herdísarvíkur-Surtla var stór og stygg. Hún var eign Hlínar í Herdis- arvík og hafði náð miklum vexti og styrkleika í hrauninu þar sem hún - hefur trúlega gengið úti alla tíð. í Öldinni okkar segir m.a. um Surtlu: „Surtlu mun fyrst hafa orðið vart í leitum í fyrrahaust. Var hún þá með lambi, en hvort tveggja gekk mönn- um úr greipum. Þegar kom fram á veturinn varð hennar vart, og tókst mönnum að ná frá henni lambinu. En sjálf slapp Surtla, enda kom betur í ljós síðar að við kræfan var að kljást þar sem hún var. Leiðangrar á eftir Surtlu 'f Þegar líða tók á síðasta vetur fóru fjárskiptavfirvöld að hafa áhyggjur af Surtlu, sem þótti í meira lagi óæskileg á fjárskiptasvæði þegar nýtt fé kæmi, enda þótt kindin virtist síst af öllu mæðiveikileg. Kom þar, að fjárskiptanefnd tók að gera út leiðangra til þess að elta hana uppi. Misstu menn af henni hvað eftir annað, enda fór lnin hiklaust kletta. þar sem menn og hund.ar treystu sér ekki. I vor og sumar hafa hvað eftir annað verið gerðar tilraunir til að handsama Súrtlu, en menn hafa ýmist ekki fundið lrana eða hún gengið þeim úr greipum. Fé til höfuðs kindinni! ‘j Og nú má búast við að enn fleiri fari á stúfana. þar eð svo er komið að fé hefur verið lagt til höfuðs henni, eins og Gretti forðum. Hafa fjárskiptanefnd og sauðfjársjúk- dómanefnd heitið tvö þúsund krón- um hverjum þeim, sem handsamar Surtlu eða fellir. Líður óðum að þeim tíma er nýja féð kemur á íjárskipta- svæðið. svo að líklegt má telja að brátt týni Surtla frelsi sínu eða fjöri." Einhverjir höfðu á því fullan hug að ná Surtlu lifandi því eintakið var vissulega friskt og gott dæmi um hinn íslenska fjárstofn. En þegar yfirvöld höfðu lagt fé til höfuðs henni greip um sig veiðigleðin og feigri rollunni var ekki forðað. „Herdísarvíkur-Surtla féll fyrir skoti í klettahlíðinni ofan við Hcr- dísarvik." segir í Öldinni okkar. „Fjórir menn vopnlausir fundu Surtlu og tókst að koma henni fram á hamrabrúnirnar ofan við Herdísar- vík, en þá bar þar að þrjá rnenn vopnaða, sem einnig voru í Surtlu- leit, og féll hún fyrir skotum þeirra." Banamenn Surtlu fóru svo með höfuð hennar í skrifstofu Sauðfjár- veikivarna og kröfðust sinna víga- launa fyrir. Surtla mun hafa verið fimm eða sex vetra - sögð ákaflega fönguleg ær - og þótt hún sé löngu fallin að velli þá er hún í miklu uppáhaldi meðal þeirra sem halda upp á íslenskt sauð- fé - til dæmis meðal rannsóknar- manna á Keldum þar sem hausinn af henni fær að tróna hátt á vegg. GG Á BAKINU V •./ MORAVIA ítalski rithöfundurinn Alberto Moravia er nýgeng- inn í það heilaga enda þekktur fyrir áhuga sinn ó veikara kyninu. Sú útvalda heitir Carmen Lelera og er 32 óra. Moravia er hins vegar sjálfur orðinn 78 ára og hefur því verið 46 óra þegar Carmen fæddist og löngu þekktur sem lífslista- maður og heimsborgari. Þetta er annað hjóna- band þeirra beggja; Alberto Moravia var áður kvæntur rithöfundinum Elsu Mor- ante en hún lést í nóvemb- ermánuði siðastliðnum. SUPERMAN Kínveijar eiga bágt með að festa augun á Superman þessa dagana. Hetjan er nefnilega flogin af hvíta tjaldinu þar í landi og gerð- ist það bæði snöggt og óvænt. 13. desember voru Super- man-myndir sýndar í 25 kvikmyndahúsum i Beijing en daginn eftir voru þær horfnar af tjaldinu. Menn vissu ekki hvaðan á sig stóð veðrið og skáskutu ská- eygðir augum til himins. 17. desember kom svo skýring- in í dagblaðinu Beijing Evening News í formi árás- argreinar ó Superman. Þar er honum lýst sem hinu mesta úrhraki, afkvæmi auðvaldsscggja sem ætlað er að draga athy gli almenn- ings frá þeirri kreppu er ríkir á Vesturlöndum. Opinberir talsmenn vildu ekkert láta hafa eftir sér um brotthvarf Supermans úr kínverskum kvik- mvndahúsum. MASTRO- IANNI Marcello Mastroianni er á leið til Sovétrikjanna þar sem hann ætlar að lcika í kvikmynd sem byggir á þremur smásögum eftir Anton Tjekov. Kvikmyndin hefur enn ekki fengið nafn en Mastroianni var í Moskvu fyrir skömmu til skrafs og ráðagerða um ýmis framkvæmdaatriði. Fékk hann ákaflega góðar viðtökur og var fagnað sem sannri stjörnu. Leikhús eitt í Moskvu bauð honum að leika í Tjekov-verki að eig- in vali og það á ítölsku ef hann vildi. Slíkt tilboð hefur enginn ítalskur listamaður fengið siðan Eleonora Duse dans- aði i Rússlandi skömmu eftiraidamótin. BAKARl OG BARDAGAR Don Kíkóti ferðaðist sem kunnugt er um á hrörlegri meri og barðist við vind- myllur. í fylgd með honum var félagi hans, Sancho Pancha, og reið sá ó asna. Nú er það einu sinni svo að bókmenntakennsla er ekki fyrirferðarmikil í Iðn- skólanum og kemur líklega ekki að sök í daglegu lifi iðnaðarmanna. En um daginn var prentari nokkur að lýsa vinnufélaga sinum og vildi líkja honum við Sancho Pancha. En það tókst ekki sem skyldi: „Hann er eins og Sambó, þessi sem var alltaf með Dónkikóti og barðist við bakarí...“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.