Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1986, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1986, Side 6
6 DV. FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR1986. Viðskipti Vióskipti Viðskipti Viðskipti Peningamarkaðurinn Innián með sérkjörum Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn- stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir verða fullra 16 ára. 65-74 ára geta losað inn- stæður með 6 mánaða fyrirvara, 75 ára og eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningam- ir eru verðtryggðir og með 8% nafnvöxtum. Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með 9% nafnvöxtum. Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn- stæður eru óbundnar og óverðtryggðar. Nafn- vextir eru 29% og ársávöxtun 29%. Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir 27% en 2% bætast við eftir hverja þrjá mánuði án úttektar upp í 33%. Ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu er 33,5‘X* á fyrsta ári. Búnaðarbankinn: Sparibók með sér- vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 36% nafnvöxtum og 36% ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð- tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 1,7% í svonefnda vaxtaleiðrétt- ingu. 18 mánaða reikningur er með innstæðu bundna í 18 mánuði á 39% nafnvöxtum og 42,8% ársávöxtun. eða ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings reynist hún betri. Iðnaðarbankinn: Bónusreikningar eru annaðhvort með 28% nafnvöxtum og 30% ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3,5% vöxtum. Hærri ávöxtunin gildir hvern mánuð. Á hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging auk 2% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka má út tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án þess að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir 30.06. og 31.12. Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með 36% nafnvöxtum og 39,2% ársávöxtun eða ávöxtun 3ja mánaða verðtryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 1,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu. 100 ára afmælisreikningur er verðtryggð- ur og bundinn til 15 mánaða. Vextir eru 7,25‘X* og breytast ekki á meðan reikningurinn verð- ur í gildi. Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg, fyrst 22%, eftir 2 mánuði 25%, 3 mánuði 27%, 4 mánuði 29%, 5 mánuði 31%, og eftir 6 mánuði 37%. Frá 11.02. 1986 verða vextir eftir 12 mánuði 38% og eftir 18 mánuði 39%. Sé ávöxtun betri á 3ja eða 6 mánaða verðtryggð- ura reikningum gildir hún um hávaxtareikn- inginn. 18 og 24 mánaða reikningar eru bundnir og verðtryggðir og gefa 7.5 og 8% vexti. Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í bankanum, nú 34,6%, cða ávöxtun 3ja mán- aða verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxt- mn sé hún betri. Samanburður er gerður mánaðarlega en vextir færðir í árslok. Sé tekið út af reikningnum gilda almennir spari- sjóðsvextir, 22%, þann mánuð. Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er óbundinn. f>á ársfjórðunga sem innstæða er óhrcyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu sinni eru reiknaðir hæstu vextir sparifjár- reikninga í bankanum. Nú er ársávöxtun annaðhvort 34.8'%, eða eins og á verðtrvggðum 6 mánaða reikningum með 3,5% nafnvöxtum. Af úttekinni upphæð reiknast almonnir spari- sjóðsvextir, 22%, og eins á alla innstæðuna innan þess ársfjórðungs þegar tekið hefur verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heila ársfjórðung. Sparisjóðir: Trompreikningur er verð- tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn 3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun með svokölluðum trompvöxtum. 32%. með 34,3% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn- stæðu í hverjum ásfjórðungi. Reynist tromp- vextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður inn- an mánaðar bera trompvexti sé innstæðan eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari- sjóðsvexti, 22%. Vextir færast misserislega. Spariskírteini Spariskírteini Ríkissjóðs íslands eru seld í Seðlabankanum, viðskiptabönkum. sparisjóð- um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum. Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og 100 þúsund krónur, nema vaxtamiðabréf sem eru 50 þúsund að nafnverði. Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára. Með þriggja ára binditíma eru ársvextir 7%, fjög- urra ára 8,5% og sex ára 9%. Verðbætur, vextir og vaxtavextir greiðast með höfuðstól við innlausn. Með vaxtamiðum, til mest 14 ára, innleysanleg eftir fjögur ár. Ársávöxtun er 8,16% á verðbættan höfuðstól hverju sinni og vextir greiðast út 10.01. og 10.07. ár hvert. Víð innlausn greiðast verðbætur með höfuð- stól. Gengistryggð skírteini eru til fimm ára. Þau eru bundin safngjaldeyrinum SDR (til- tekin samsetning af dollar, pundi, yeni, þýsku marki og frönskum franka). Vextir eru 8,5%. Höfuðstóll, vextir og vaxtavextir greiðast í einu lagi við innlausn. Almenn verðbréf Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá verðbréfasölum. f>au eru almennt tryggð með veði undir 60% af brunabótamati fasteign- anna. Bréfin eru ýmist verðtryggð eða óverð- tryggð og með mismunandi nafnvöxtum. Þau eru seld með affollum og ársávöxtun er al- mennt 12-18% umfram verðtryggingu. Húsnæðislán Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis- ins, F-lán, nema á 4. ársfjórðungi 1985: Til einstaklinga 720 þúsundum króna. 2-4 manna fjölskyldna 916 þúsundum, 5 manna og fleiri 1.073 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik- um) 1.237 þúsundum. Lánin eru til 31 árs. Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán. nema á 4. ársfjórðungi 1985: Til kaupa í fyrsta sinn er hámark 348 þúsund krónur til einstaklings, annars mest 139-174 þúsund. 2-4 manna fjöl- skylda fær mest 442 þúsund til fyrstu kaupa, annars mest 177-221 þúsund. 5 manna fjöl- skylda eða stærri fær mest 518 þúsundir til fyrstu kaupa. annars mest 207-259 þúsund. Lánstími er 21 ár. Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns- kjaravísitölu og með 3.5% nafnvöxtum. Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól, aðeins vextir og verðbætur. Útlán lífeyrissjóða Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver sjóðurákveðursjóðfélögum lánsrétt. lánsupp- hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að láns- rétti er 30-60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin stig. Lán eru á bilinu 150-700 þúsund eftir sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð- tryggð og með 5-8% vöxtum. Lánstími er 15-35 ár. Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur. Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum. Nafnvextir, ársávöxtun Nafnvextir eru vextir í eitt ár og reiknaðir í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir reiknaðir og lagðir við höfuðstól oftar á ári verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verður þá hærri en nafnvextirnir. Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á 22% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tímans 1220 krónur og ársávöxtunin þannig 22%. Liggi 1000 krónur inni í 6 + 6 mánuði á 22% nafnvöxtum reiknast fyrst 11% vextir eftir 6 mánuði. Þá er upphæðin orðin 1110 krónur. Á hana koma svo 11% vextir eftir næstu 6 mánuði. Þannig verður innstæðan í lok tím- ans 1232 krónur og ársávöxtunin 23,2%! Dráttarvextir Dráttarvextir eru 3,75% á mánuði eða 45% á ári. Dagvextir reiknast samkvæmt því 0.125%. Vísitölur Lánskjaravísitala í febrúar 1986 er 1396 stig en var 1364 stig í janúar. Miðað er við grunninn 100 í júní 1979. Byggingarvísitala á 1. ársfjórðungi 1986 er 250 stig á grunninum 100 frá 1983 en 3699 stig á grunni 100 frá 1975. VEXTIR BANKA 0G SPARISJÓÐA (%) 21.-28.02. 1986 INNLÁN MEÐ SÉRKJÚRUM SJA sérlista li i j II il if 1l IlH li li INNLAN 0VERÐTRYGGÐ SPARISJÓBSBÆKUR Óbundin innstæða 22,0 22,0 22.0 22.0 22,0 22.0 22.0 22.0 22.0 22,0 SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsögn 25,0 26,6 25.0 25.0 23.0 23.0 25.0 23.0 25.0 25.0 6 mán.uppsögn 31,0 33,4 30.0 28.0 26.5 30,0 29,0 31,0 28.0 12 mán.uppsogn 32.0 34,6 32.0 31.0 33.3 SPARNAÐUR- UNSRÉHUR Sparað 3 5 mán. 25,0 23.0 23,0 23.0 23,0 25.0 25.0 29,0 26,0 28.0 29.0 28,0 INNLÁNSSKÍRTEINI Til 6 mánaða 28,0 30,0 28,0 28.0 TÉKKAREIKNINGAR Avísanareikningar 17,0 17.0 8.0 8.0 10.0 10.0 8.0 10.0 10,0 Hlaupareikningar 10,0 10,0 8.0 8.0 10.0 10.0 8.0 10,0 10,0 INNLÁN VERÐTRYGGÐ SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsögn 2.0 1.5 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 2.0 1.0 6 mán.uppsögn 3.5 3.5 3.5 3.0 3.5 3.5 3.0 3.5 3.0 INNLÁN GENGISTRYGG0 GJALDEYRISREIKNINGAR Bandarikjadollarar 8.0 8.0 7.5 7.0 7.5 7.5 7.5 7.5 8.0 Sterlingspund 11.5 11.5 12.0 11.0 11.5 11.0 11.0 11.5 11.5 Vestur þýsk mörk 5.0 4.5 4.0 4.0 4,5 4.5 4.5 5.0 4.5 Danskar krónur 10,0 9.5 8.0 8.0 9.0 9.0 9.0 10.0 8.0 ÚTLÁN ÚVERÐTRYGGÐ ALMENNIR ViXLAR (forvextir) 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 VIOSKIPTAVlXLAR (forvextir) 34.02) kge 34.0 kge 32.5 kge kge kge 34.0 ALMENN SKULOABRÉE 32,03) 32,0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 VIOSKIPTASKULDABRÉF 35.0 2) kge 35.0 kge 33.5 kge kge kge 35.0 HLAUPAREIKNINGAR YFIRDRÁTTUR 31.5 31,5 31.5 31.5 31.5 31.5 31,5 31.5 31.5 ÚTLÁN VERÐTRYGGÐ SKULDABRÉF Að 21/2 ári 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 Lengrien21/2ár 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 ÚTLÁN TIL FRAMLEIÐSLU SJÁNEDANMÁLS1) 1) Lán til innanlandsframleiðslu eru á 28,5% vöxtum. Vegna útflutnings, í SDR 10%, í Bandaríkjadollurum 9,75%, í sterlingspundum 14,25%, í vestur-þýskum mörkum 6,25%. 2) Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfúm er miðað við sérstakt kaup- gengi, kge, hjá þeim bönkum sem þannig er merkt við, einnig hjá sparisjóðunum í Hafiiarfirði, Kópavogi, Keflavík, Sparisjóði Reykjavíkur og Sparisj. vélstj. 3) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er 2% á ári, bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán, nema í Alþýðubankanum og V(?rslunarbankanum. Seðlabankinn gefur tóninn ívaxtamálum: Sparisjóðsvextir lækka í 12 prósent í tengslum við kjarasamningana og ráðstafanir ríkisstjórnarinnar til nið- urfærslu á verðlagi hafa seðlabanka- menn ákveðið verulega lækkun á þeim vöxtum sem bankinn ákveður. Þannig eiga almennir sparisjóðsvextir að lækka á morgun, 1. mars, úr 22% í 12%. Víxilvextir eiga að lækka úr 32% í 19% og skuldabréfavextir úr 32% í 20%. Þá verða afurðalánavextir, vegna framleiðslu á innanlandsmark- að, að lækka úr 28,5% í 19,25%. Og loks lækka vanskilavextir úr 45% í 33% á ári. Þessi vaxtalækkun er ákveðin til samræmis við niðurfærslu verðlags og þar með verðbólgunnar, sem áætlað er að fari niður í 7% yfir 12 næstu mánuði. Verðbólgan minnkar ört á næstunni standist áætlanir og vextir þá væntanlega einnig enn frekar en ákveðið hefur verið. Þegar verðbólguhraðinn verður kominn niður í 7% verða raunvextir á almennum sparisjóðsbókum 5%, haldist 12% grunnvextir á bókunum. Eins verða þá 12% raunvextir á víxl- um, haldist 19% grunnvextir á þeim. Vextir á öðrum innlánsreikningum og skuldum en Seðlabankinn ræður munu vafalítið breytast í kjölfar þess- ara aðgerða sem nú hafa verið ákveðn- ar. Þó er ljóst að áfram verður sam- keppni um sparifé milli innlánsstofn- ana, ríkisins og verðbréfamarkaðar- ins, með mismunandi vöxtum og kjör- um. HERB Bætt þjófavamarkerfi handa íslenskum iðnaði Nú er fyrirhugað að stofna samtök til vamar því að hugverkum og fram- leiðsluvörum á sviði iðnaðar á Islandi sé rænt af samkeppnisaðilum. Samtök- in eiga að heita Samtök um vemd eignarréttinda á sviði iðnaðar. Fyrir stofriuninni standa Félag íslenskra iðnrekenda, íslenska einkaleyfa- og vörumerkjastofan og Faktor Comp- any. Þessir aðilar spyrja sig hvers virði sé atorkusemi, framleiðni, vömþróun og markaðssetning ef ekki er hægt að tryggja það að þessir þættir eigi sér vemd í réttarríkinu. Eignarréttindi á sviði iðnaðar mætti líka nefna iðnaðarréttindi. í víðtæk- asta skilningi er hér átt við réttindi sem einkaleyfi, vörumerki og útlist- vemd taka til, en að nokkm leyti nær réttarsvið þetta einnig til reglna um firmanöfii og samkeppni í viðskiptum. Fyrirhugað er að samtökin stuðli að bættu þjófavamarkerfi til handa is- lenskum iðnaði, skoði samsvarandi kerfi í útlöndum, kynni fyrir þeim sem hagsmuni eiga þær leiðir sem færar em og fylgist með þróuninni á þessu sviði. Stofnfundur samtakanna, sem verða öllum opin, verður haldinn á Hótel Esju 4. mars næstkomandi. -KB Starfsfólk við Hestasölu Halldórs, f.v. Halldór Sigurðsson gullsmiður, Halldór Jónsson, Margrét Halldórsdóttir og Eggert Helgason. Gullsmiður selur hesta „Ég mun selja mína eigin hesta, taka hesta í umboðssölu gegn umboðslaun- um, kaupa sjálfur hesta, taka hesta í þjálfun og bjóða ýmsa aðra þjónustu," sagði gullsmiður í Reykjavík, Halldór Sigurðsson, sem hefur komið á fót hestasölu, Hestasölu Halldórs, á fé- lagssvæði Fáks í Reykjavík. Þeir hestaeigendur, sem áhuga hafa, geta komið hestum sínum þama í sölu alla virka daga. Tamningamenn munu líta á hestana og gefa ráð um verðlagn- ingu. Þurfi hestamir á þjálfun að halda er unnt að veita hana, og einnig eru hestar teknir í fóður eftir því sem húsrými leyfír. Nú þegar eru um 15 til 20 reiðhestar í sölu hjá Halldóri. Sýningar verða á söluhestum alla sunnudaga mi'.Ii klukkan 13 og 17 og í fyrsta skipti næsta sunnudag. _KB Þjóðfélagsfræðingur ráðinn markaðsstjóri Nýlega var Esther Guðmundsdóttir þjóðfélagsfræðingur ráðin markaðs- stjóri hjá Sparisjóði Reykjavíkur og Esther Guðmundsdóttir þjóðfélags- fræðingur ráðin markaðsstjóri nágrennis. Ester er fædd árið 1948 og lauk BA-prófi í þjóðfélagsfræðum frá Háskóla Islands árið 1975. Síðan þá hefur hún unnið að ýmsum rannsóknum á stöðu kvenna í þjóð- félaginu og síðastliðin tvö ár starfaði hún sem fræðslu- og upplýsingafúlltrúi hjá Vinnuveitendasambandi Islands. Esther er gift Björgvini Jónssyni tannlækni og eiga þau þrjár dætur. -KB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.