Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1986, Qupperneq 8
8
DV. FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR1986.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Skotbardagi
viðlögreglu
Einn maður lést og annar særð-
ist alvarlega þegar demanta-
þjófar lentu í skotbardaga við
hollensku lögregluna. Fjórir
menn, þrír Frakkar og einn Hol-
lendingur, rændu gimsteinasala
í miðborg Amsterdam og stungu
síðan af á bíl. Lögreglan elti
-þjófana og tókst að króa þá af
þegar þeir reyndu að skipta um
bíl. Þeim viðskiptum lauk með
því að lögreglan skaut einn
ræningjanna til bana og særði
annan en hinir tveir voru hand-
teknir. Enginn lögreglumann-
anna særðist.
Þekktbaráttu-
konalátin
Amalia Fleming, ekkja Sir
Alexanders Fleming, sem upp-
götvaði penísillínið, lést í vik-
unni í Aþenu, höfuðborg Grikk-
lands, af völdum hjartaáfalls, 73
ára að aldri. Hún hafði verið
undir læknishendi um nokkurt
skeið vegna nýrnaveiki og sykur-
sýki.
Amalía Fleming var vel þekkt
í sínu heimalandi sem einn af
leiðtogum sósíalista og ötul bar-
áttumanneskja fyrir almennum
mannréttindum. Hún var í grísku
andspyrnuhreyfingunni undir
hernámi nasista og tók virkan
þátt í baráttunni gegn herfor-
ingjastjórninni grísku.
Frá 1971 og þangað til hún lést
sat hún á þingi fyrir sósíalista.
Hún var meðal annars fyrsti
forseti Grikklandsdeildar Am-
nesty International og formaður
sambands grískra vísinda-
kvenna.
Lögreglumenn
handteknir
Yfir tvö þúsund lögreglumenn
úr egypsku öryggislögreglunni í
Kaíró hafa verið handteknir í
þriggja daga átökum hersins við
uppreisnarmenn, að því er opin-
ber talsmaður stjórnarinna segir.
Að minnsta kosti 36 manns, flest-
ir úr röðum uppreisnarmanna,
hafa látið lifið í þesum átökum.
Talsmaðurinn sagði að herinn
elti nú flýjandi lögreglumenn um
alla höfuðborgina í leit að þeim
sem bera ábyrgð á öldu íkveikja
og gripdeilda í Kaíró.
ívanægilegi
tilísraels
John Demajanjuk eða Ivan
ægilegi, eins og hann var kallað-
ur þegar hann var vörður í út-
rýmingarbúðunum í Treblinka í
Póllandi á nasistaárunum, var
settur um borð í farþegaþotu og
sendur til ísraels í gær. Hann er
framseldur til þess að svara til
saka fyrir stríðsglæpi. Bíða hans
réttarhöld í ísrael og ákærur
vegna fjöldamorða á gyðingum á
stríðsárunum. Hann var sviptur
ríkisborgararétti í Bandaríkjun-
um.
Frestarétt-
arhöidum
Deloreans
Réttarhöldunum yfir bílafram-
leiðandanum Delorean hefur
verið frestað þar til í september
á meðan raktar eru frekar flókn-
ar millifærslur á milli banka-
reikninga erlendis og ýmsar
krókaleiðir sem John Delorean
er talinn hafa farið til þess að
draga fé út úr fyrirtækinu þegar
það var orðið gjaldþrota.
Hann var sýknaður í ágúst 1984
af ákærum um samsæri til að
smygla heróíni en þessi réttar-
höld eru um ákærur vegna
svindls, skattsvika, undanskots
eigna og fjárdráttar úr eigin fyr-
irtæki.
Danirsögðu: JÁ!
Samþykktu Efhahagsbandalagstillögurnar íþjóðaratkvæðagreiðsiunni
ganga nærri einstökum persónum á
kostnað málefnalegrar umræðu.
Forsætisráðherra ánægður
Poul Schlúter forsætisráðherra var
mjög ánægður með úrslitin. Sagðist
hann alltaf hafa verið ánægður með
réttmæti þessara kosninga og ekki
voga sér að hugsa út í afleiðingar
þess, ef þingið hefði verið látið hafa
síðasta orðið í þessu máli. Sagði
hann úrslitin ekki vera sérstaka
traustsyfirlýsingu á ríkisstjórnina,
heldur væri einungis um örlög þess-
ara tillagna að ræða.
Að lokum sagðist Poul Schlúter
búast við jákvæðu viðmóti jafnaðar-
manna, þegar mál Efnahagsbanda-
lagsins yrðu til umræðu í þinginu á
næstunni. Enda ekki annað hægt þar
sem þjóðin hefði talað út um málið.
flokksins. Loks sagði Anker Jörgens-
en að jafnaðarmenn mundu hafa
vakandi auga með þróun mála á
næstunni.
Óljóst deiluefni
Kosningaþátttaka nam 74,8% en
veðurblíða fékk marga til að fara á
kjörstað. Þótti ófáum óljóst um hvað
nákvæmlega væri kosið þar sem
innihald tillagnanna var ekki ýkja
aðgengilegt. Er því ekki að undra
þótt deilur Dana undanfarið um
EBE-tillögurnar hafi ruglað marga
utanaðkomandi.
Úrslit kosninganna eru sigur fyrir Paul Schlúter þó ekki hafi sigurinn orðið
jafnótvíræður og skoðanakannanir fyrir kosningar gáfu til kynna.
Haukur L. Hauksson, fréttaritari DV
í Kaupmannahöfn:
Danir samþykktu hinar svokölluðu
Efnahagsbandalagstillögur en þær
voru lagðar fyrir dóm þjóðarinnar í
leiðbeinandi þjóðaratkvæðagreiðslu
í gær. Voru 56,2% kjósenda fylgjandi
tillögunum en 43,8% voru á móti. -
Fylgnin var ekki eins mikil og skoð-
anakannanir höfðu gefið til kynna.
Úrslit þessi þýða að nú geta Danir
skrifað undir tillögurnar sem meðal
annars stuðla að opnun Efnahags-
bandalags Evrópu, það er afnema
innflutningshindranir. I undangeng-
inni kosningabaráttu var einmitt
afnám innflutningshindrana, um-
hverfismál, hugsanlegt afsal neitun-
arvalds í ráðherranefndinni, auk
aukins valds Evrópuþingsins það,
sem mest var rætt úr Efnahagstillög-
unum.
Þótti kosningabaráttan oft hörð og
Bera á móti klofningi
Anker Jörgensen var fremur von-
svikinn, en taldi merkilegt að and-
stæðingar tillagnanna höfðu verið
tæp 44% kjósenda, þar sem aðilar
vinnumarkaðarins hefðu ausið pen-
ingum í fylgjendur tillagnanna. Taldi
hann að fjáraustur þessara aðila
hefði leitt til ójafnvægis í miðlun
upplýsinga til kjósenda. Sagði hann
jafnaðarmenn mundu virða úrslitin
til fulls og að þau mundu styrkja
flokkinn. Vísaði hann öllum klofn-
ingssögum á bug en viðurkenndi
vissan skoðanaágreining innan
Anker Jörgensen, leiðtogi jafnað-
armanna, neitar því að klofningur
sé innan flokksins vegna EBE
breytinganna.
Gallaðar aðferðir
Forsetanefndin, sem rannsakar
;kutluslysið, hefur komist að þeirri
aiðurstöðu að það sé stórgallað
hvernig NASA (geimrannsóknar-
;tofnunin) ákveður hvort af geim-
;koti skuli verða eður ei.
-segir rannsóknarnefndin sem kannar skutluslysið
Eftir þriggja daga yfirheyrslur um
hvað úrskeiðis fór við geimskot
skutlunnar Challenger þann 28. jan-
úar segir nefndarformaður, William
Rogers: „Þetta er stórgölluð aðferð.“
Nefndin hlýddi á skýringar starfs-
LAUNAKRÖFURI
NOREGIEFTIR
OLÍULÆKKUNINA
Björg Eva Erlendsdóttir, fréttaritari
DVíOsló:
Opinberir starfsmenn í Noregi báru
í gær fram launakröfur sínar. Þeir
hafa dregist aftur úr öðrum laun-
þegum á síðustu árum. Kröfurnar
hljóða upp á 12-13% hækkun og að
vinnuvikan verði stytt niður í 37 'A
stundir.
Kennarar, sem hafa dregist mest
aftur úr öðrum stéttum, setja fram
sérstakar kröfur um milli 15 og 20%
hækkanir. Undanfarin ár hefur verið
flótti úr kennarastéttinni og í haust
er trúlegt að sumir framhaldsskólar
verði að leggja niður vissar deildir,
fyrst og fremst tæknideildir, vegna
þess að kennurum bjóðast betri laun
annars staðar í einkarekstrinum.
Norska ríkisstjórnin er ekki hrifin
af þessum kröfum. Tekjutapið vegna
olíuverðslækkunarinnar gerir strik í
reikninginn á þessu ári. Káre
Wilioch forsætisráðherra hefur hvatt
menn til þess að herða sultarólina
og sýna samstöðu. Hann hefur sagt
að í vor mættu launahækkanir ekki
fara fram úr 4,5%. Launþegum hjá
ríkinu finnst það standa öðrum nær
að spara en þeim. Þessar launakröfur
eru miklu hærri en undanfarin ár.
manna NASA og aðallega stjórnar
heiinar á þvi hvernig stóð á því að
ekki voru virtar viðvaranir verk-
fræðinga fyrirtækisins sem fram-
leiddi burðarflaugarnar. Verkfræð-
ingarnir höfðu talið of kalt í veðri
og hætt við því að þéttingar gæfu sig
í frostinu. - Það er almennt álitið
orsök slyssins að þétting á samskeyt-
um hafi gefið sig og eldsneyti lekið
út og leitt til sprengingar.
Fram hefur komið að helstu ráða-
mönnum hafi ekki verið kunnugt um
ugg verkfræðinganna, að mikil
skriffinnska teíji fyrir innan NASA
og hamli því að stjórnendur fylgist
gjörla með.
Rannsóknarnefndin mun nú halda
fundi sína næstu viku fyrir luktum
dyrum.
Rannsókn stendur enn yfir á slysi
skutlunnar Challenger, þegar sjö
geimfarar fórust í geimskotinu.
Hér sést bandarískur dáti taka til
handargagns brak sem fannst úr
skutlunni.
RÁÐAST GEGN SLOÐASKAP
Árasir á spillingu, slóðaskap og
léleg afköst eru það sem mestan svip
Umsjón:
Guðmundur Pétursson og
ValgerðurA. Jóhannsdóttir
setur á þing sovéska kommúnista-
flokksins sem stendur yfir í Moskvu.
Einn frammámanna í Moskvudeild
sovéska kommúnistaflokksins, Boris
Yeltsin, réðst í ræðu sinni á þinginu
harkalegr á forréttindi flokksbund-
inna og það sem hann kallaði mistök
flokksins í stjórn ýmissa málaflokka.
„Hvernig stendur á því að eftir öll
þessi ár hefur okkur ekki tekist að
losna við skrifræðið, óréttlætið sem
víða þrífst og misbeitingu valds?'
spurði hann.
Yeltsin var tekinn inn í forysti
kommúnistaflokksins fyrir tilstill
Gorbatsjov til að hreinsa aðeins ti
í kommúnistaflokknum í Moskvi
eftir meiri háttar hneykslismál þar.
Einn meðlimur í æðsta ráðinu hef
ur hins vegar borið á móti því a<
flokksmenn njóti forréttinda fran
yfiraðra.