Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1986, Side 16
16
DV. FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR1986.
Spurningin
Heldur þú að verðbólgan náist
niður fyrir 10% á árinu?
Magnús Gunnarsson húsvörður: Ég
veit það ekki. það væri ágætt ef þeir
gætu það - væri til stórra bóta.
Páll Hannesson félagsfræðingur: Það
hugsa ég ekki og það færi nú eftir
því á hverra kostnað það yrði hvort
það væri jákvætt eða ekki. Það er
náttúrlega jákvætt í sjálfu sér að
hafa hana sem lægsta en það er ekki
sama hver borgar hana niður.
Guðrún Guðmundsdóttir nemi: Það
efa ég stórlega en mér þætti mjög
gott ef það tækist.
Haraldur Teitsson ellilífeyrisþegi: Ég
hef ekki neina trú á því. Verðbólgan
hefur nú verið að lækka en samt
hækka vörur. Ég veit ekki hvernig
þetta er reiknað og efast um að fólk
hafi það nokkuð betra þó verðbólgan
hverfi.
Marteinn Marteinsson póstur: Ég tel
það afar hæpið og ætli það verði þá
nokkuð betra, það kemur bara annað
ístaðinn.
Þorvaldur Guðlaugsson teiknari: Við
skulum vona það, dana ....dana!
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Skemmti-
legur
Lukku-
Hddari
3919-4848 skrifarf.h. saumaklúbbs:
Eitt kvöldið tókum við okkur
saman og fórum í leikhús í stað þess
að skrafa og baka kökur. Við fórum
í Hjáleiguna í Kópavogi og sáum
Lukkuriddarann. Þetta er stór-
skemmtilegur gamansöngleikur og
urðum við mjög ánægðar í alla staði.
Leikfélag Kópavogs er áhugaleik-
félag sem greinilega hefur á að skipa
úrvalsleikurum. Allur leikur var
mjög góður og gat maður ekki fundið
neinn mun á því að þama voru á
ferð áhugaleikarar en ekki atvinnu-
leikarar. Við ætlum ekki að gerast
neinir gagnrýnendur, látum aðra um
það, en viljum þakka fyrir okkur og
mæla með þessu leikhúsi ef fólk vill
virkilega skemmta sér.
Úr sýningu Leikfélags Kópavogs á
Lukkuriddaranum.
„Munið að allir verða stjörnur í Hollywood.“
Allar „brjost-
góðar“ stelpur
á íslandi
K.V. 5945-5265 skrifar:
Loksins, í fyrsta skipti á íslandi fer
ffam blautbolskeppni á ekki ómerkari
stað en í Hollywood.
Loksins datt einum af hinu ÆÐRA
kyni í hug að innleiða þessa stórgóðu
menningu erlendis ffá, þökk sé Óla
Laufdal (sem er alltaf að hugsa um
okkur stelpumar og auðvitað sjálfan
sig líka) að við fáum tækifæri til að
sýna á okkur kroppinn almennilega.
Óg hugsið ykkur hvað við gleðjum
augu karlmannana, því að það er
okkar takmark að láta þeim líða vel.
Síðan reynum við að skrækja svolítið
vel þegar við fáum vatnsgusuna á
okkur, sem fær litla, pínulitla bolinn
(sem sést varla) til að límast við kropp-
inn svo að allt sjáist nú örugglega, það
finnst karlmönnunum, „þessum el-
skum“, líka svo spennandi, svo að ég
tali nú ekki um alla athyglina sem við
fáum í Hollywood.
Ef við verðum nú nógu duglegar að
mæta í þessa keppni, hver veit þá nema
að Óla Laufdal detti fleiri svona
„menningarlegar" keppnir í hug, eins
og t.d. að slást í leirbaði eða í jarðar-
berjahlaupi, jafhvel væri hægt að
innleiða keppni um ungffú blautnær-
buxur með titli sem væri UNGFRÚ
LÍFBEIN.
Ég skora því á ykkur, kvenfplk á
íslandi, að valda Ólafi og hinum karl-
mönnunum ekki vonbrigðum og
munið að allir verða stjörnur í
Hollywood.
Rauðri Hondu stolið
Stolinn skrifar:
„Ég er handviss um að þeir sem stálu
hjólinu þekkja eitthvað til því það er
svo sjaldgæft að það sé skilið eftir
utan húss. Hjólið var skilið efitir í
hálftíma við bílskúrinn, en hann
stendur langt inni í lóðinni, þannig
að mér þykir þetta meira en lítil bí-
ræfhi,“ sagði móðir sem hringdi til
okkar vegna þess að skellinöðru var
stolið frá 15 ára syni hennar.
„Þetta er tilfinnanlegt tjón fyrir son
minn, en hann hefur sjálfur unnið sér
fyrir andvirði þessa hjóls. Þar að auki
vinnur hann eftir skólatíma og þarf
að nota hjólið til þess að komast í
vinnuna á réttum tíma,“ sagði móðir-
in.
Um er að ræða skellinöðru af gerð-
inni Honda MT 50, númer R-1231,
árgerð 1982, rautt á lit. Hjólinu var
stolið af lóðinni að Langagerði 52 að
kvöldi sunnudagsins 16. febrúar milli
kl. 21 og 21:30.
Þeir sem hugsanlega hafa orðið varir
við hjólið eru beðnir að hringja í síma
687862 eða gera lögreglunni viðvart.
Hundavinur vill ekki að hundar séu í Reykjavík,
í sveit með hundana
Runólfur hundavinur skrifar:
Hér eru nokkrar línur til „hundavin-
arins“ sem skrifaði Lesendasíðunni
fyrir nokkrum vikum. Ég verð að segja
það að þú ert ekki hundavinur, heldur
hundahatari. Heldur þú að hundum
líði vel hér í Reykjavík? Þar sem lítið
er af stórum, auðum svæðum en mikið
af fólki, bílum, húsum og menguðu
lofti. Og brjáluðum Víkingasveitar-
mönnum sem hlaupa imi og skjóta
niður hunda. Nei, staður hunda er
dreifbýli og hvergi annarsstaðar. Þar
líðurþeim vel.