Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1986, Síða 30
42
DV. FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR1986.
s>VM
SU BESTA
CLANNAD + BONO-
IN A LIFETIME (RCA)
Þessi plata er vissulega
ekki alveg ný af nálinni,
en það verður bara ekki hjá
því komist að skrifa um lög
af þessu tæi, þau heyrast
svo sjaldan. Hér drýpur
nefnilega snilldin af hverj-
um tón; allt hjálpast að,
kynngimagnað lag, stór-
brotinn söngur og frábær
útsetning. Þeir gera ekki
betur sem hafa lært.
ÖNNUR STÓRGÓÐ
HIPSWAY -
THE HONEYTHIEF
(PHONOGRAM)
Nýir vendir sópa best og
það sópar aldeilis að þess-
um; virkilega gott lag, þétt-
ur taktur, fæturnir fara
ósjálfrátt á stjá, góð meló-
día, venst afskaplega vel.
Pottþétt.
ÞRJÁR ÞÓ NOKKUÐ GOÐ-
AR
PRIME MOVERS -
ON THE TRAIL (ISLAND)
Þessir drengir eru svo
sannarlega á réttu spori;
glimrandi gott lag undir
sterkum áhrifum frá Big
Country og U2. Segiði svo
að Bandaríkjamenn geti
ekki lært.
THOMPSON TWINS -
KING FOR A DAY (ARISTA)
Ekta tvíburalag, glaðværð-
in í fyrirrúmi, góð melódía,
ekki of eínföld, ekki of flók-
in, mitt á milli það er
galdurinn. Skemmtilegar
raddbeitingar.
DIANA ROSS-
CHAIN REACTION (RCA)
Gamla Motownsándið
blandað saman við slatta
af Gibbagibb, pottþéttur
kokteill.
TVÆR I TUNNUNA
MODERN TALKING -
BROTHER LOUIE (HANSA)
Þetta er svo hallærislegt
að manni er skemmt.
Hörmuleg stæling á Boney
M. Og þar er ekki úr háum
söðli að detta.
ARCADIA - GOODBYE IS
FOREVER (PHARLOPHONE)
Betur að satt væri.
-SþS-
w— DEPECHE MODE -14 SINGLES
Flotttónlist
1
Þessi samsafrisplata er hinn eiguleg-
asti gripur, enda Depeche Mode einn
af merkilegri fulltrúum nýbylgjunnar.
Samt verð ég að segja að þó þama séu
öll bestu lög hljómsveitarinnar saman
komin þá get ég ekki hælt plötunni
fram úr hófi. Það er vissulega mikill
elegans og sjarmi yfir þessari tónlist,
en mér finnst að tilfinningin mætti
vera meiri. Það er eitthvað svo yfir-
gnæfandi hjá Depeche Mode að gera
flotta tónlist að aðrir mikilvægir þætt-
ir listarinnar vilja verða útundan.
Tónlistin er tæknivædd og vönduð en
ekki beinlínis hlý. Og hún er iðulega
á mörkum þess að vera þreytandi,
leiðinleg. Finnst mér. Tek það fram
af því ég held að voða margir geti
haft virkilega ánægju af Depeche
Mode. Og ég get það líka ef þannig
liggur á mér. En það er ekki oft. Helst
ef ég spila hana eins hátt og húsreglur
leyfa og enginn heima sem hlær að
mér ef ég syng með. Depeche Mode
er þannig grúppa sem syngur vel og
raddar eins og þjóðlagatríó ef þvi er
að skipta, mér dettur jafrivel í hug
hljómsveit sem einu sinni var og hét
Crosby, Stills, Nash og Young. En það
er bara söngurinn, þessi vel útfærða
röddun. Annars er Depeche Mode í
rauninni hálfgerð súkkulaðigrúppa
og ég verð mjög hissa ef hún gleymist
ekki jafhskjótt og hún geispar golunni
íyrir fullt og allt.. En það er svo með
þessar súkkulaðigrúppur í dag að þær
geta betur falið sig á bak við alls kyns
tæknibrellur og fínheit heldur en áður
þegar það fór ekkert milli mála hvern-
ig hljómsveit Bay City Rollers var.
Nú er ég búinn að segja miklu ljótari
hluti en ég ætlaði að segja um Depeche
Mode og hef kallað hana súkkulaðigr-
úppu og hvað eina. En fyrir mér er
það orð ekki það versta sem hægt er
að segja um hljómsveit, alls ekki, og
þó Depeche Mode risti ekki jafndjúpt
og ég eitt sinn hélt þá eru þeir óneitan-
lega mjög flott hljómsveit. Ef maður á
góð hljómflutningstæki þá er alltaf
dálítið freistandi að setja þá á fóninn
og „fíla“ í botn. -JSÞ
ROBIN GIBB-WALLS HAVE EYES
Vandað skallapopp
Eftir að Bee Gees hættu hafa þeir
bræður, Robin, Maurice og Barry
Gibb, reynt fyrir sér upp á eigin spýtur.
Ekki hafa þeir þó náð sömu tökum á
áheyrendum og þeir gerðu undir nafni
Bee Gees. Það er helst að Robin Gibb
hafi getað skapað sér sjálfstæðan feril.
Má aðallega þakka það plötu, er hann
gaf út fyrir rúmu ári, Secret Agent.
Innihélt hún Boys Do Fall In Love sem
naut töluverðra vinsælda.
Robin Gibb hefur nú gefið út aðra
sólóplötu, nefnist hún Walls Have
Eyes. I heild er hún betri en fyrmefnd
plata en inniheldur kannski ekki lag
sem á jafngreiðan aðgang að hlustend-
um eins og Boys Do Fall In Love.
Þrátt fyrir að Bee Gees séu hættir að
starfa saman opinberlega þá halda
þeir greinilega hópinn því öll lögin tíu
á Walls Have Eyes eru eftir þá bræður j
og hafa þeir samið lögin í sameiningu.
Þau leyna sér ekki, Bee Gees áhrifin,
þegar hlustað er á Walls Have Eyes.
Lögin eru eins og endurómur af lögum
hljómsveitarinnar, melódískar bal-
löður ásamt léttrokkuðum lögum og
sammerkt er með lögunum að öll eru
þau mjög áheyrileg og erfitt að taka
eitt fram yfir annað. Þrátt fyrir áheyri-
leika plötunnar held ég þó að Robin
Gibb, sem hefur bestu rödd þeirra
bræðra, hefði þurft að söðla um og
taka meiri áhættu en hann gerir til
að eiga einhverja möguleika að slá í
gegn, svipað og Bee Gees þegar þeir
voru upp á sitt besta. Hæfileikamir
til að semja lög em fyrir hendi. Áhætt-
an liggur í að breyta útsetningum,
gera þær fjölbreyttari.
Walls Have Eyes er, eins og hún
kemur fyrir, átakalaus og þeir sem
vilja fá þægilegt rokk ættu ekki að
verða fyrir vonbrigðum.
HK.
THECLASH-CUTTHECRAP
Kemur engu til leiðar
Þar kom að því að krosstréð Clash
brygðist. Allt frá því fyrsta plata
hljómsveitarinnar kom út hefur hún
verið með þeim betri í heiminum að
mínu mati. En það var svo einkenni-
legt með Clash að þótt mér þættu lögin
yfirleitt hálfómerkileg og svo innilega
auðveld var alltaf eitthváð í flutningn-
um og strákslega söngnum sem hreif
mig.
i nýju plötunni er því öðmvísi varið'
og fátt sem gleður jafnmikið og áður.
En hún er svo sem ekkert slæm og
alls ekki heldur mjög ólík þvi sem
maður á venjast frá hljómsveitinni -
nema hvað þetta er einhvem veginn
yfirvegaðra og meira heft. Það vantar
Clashkraftinn og mddaskapinn. Eins
og þeir félagar séu ekki jafnreiðir og
þeir vom. Jafnvel þó textarnir séu enn
pólitískir (annað væri nú meira en lítil
bylting) em þeir ekki jafnsannfærand:
og í gamla daga.
Mér hefur alltaf leiðst þegar orðið
bergmál er notað í umsögnum - að
hitt eða þetta sé nú bara bergmál þess
sem það var. En ég fæ það mjög sterkt
á tilfinninguna þegar ég hlusta á Cut
the Crap að hún sé bergmál. Takturinn
og söngurinn er góður og gamalkunn-
ur en utan um allt of lítið.
Líklega er kominn tími til afgerandi
breytinga hjá Clash eða þá að það er
nauðsynlegt að gera gömlu hlutina
upp, gera þá enn betur en nokkm
sinni. Það vantar ferskleika í strák-
ana, sjálft aðalsmerki þeirra. Cut the
Crap er lágvær og kemur engu til
leiðar, hvorki fyrir heiminn né hljóm-
sveitina.
Mikið væri gaman ef Clash færi að
leita inn á einhverjar skemmtilegar
og spennandi brautir, eins og til dæmis
Stranglers gerðu þegar þeir hættu með
reiðu, ungu mennina. Það er ekki svo
langt á milli uppmna þessa hljóm-
sveita að ekki megi nefna þær í sömu
andrá. En ólíkt Stranglers hefur
Clash að mest-u haldið sig á svipuðum
slóðum allan sinn aldur, að visu með
góðum árangri, nú hins vegar held ég
að tíminn til að gera nýja hluti sé
kominn. Annars á ég ekki von á öðm
en að saga sveitarinnar verði sorgar-
saga. -JSÞ
SMÆLKI
Sæl nú!... Myndbandið
með laginu hans Billy Oce-
ans. sein við sáum i Popp-
korni á mánudaginn var,
hefur verið bannað í Bret-
landi að kröfu samtaka tón-
listarmanna. Það sem fer
fyrír brjóstið á tónlistar-
mönnunum er þátttaka
þriggja kvikmyndaleikara i
myndbandinu en þeir eru
jafnframt leikarar i kvik-
myndinni The Jewel of the
IMíle, en úr þeirri kvikmynd
er lagið ættað. Vegna þessa
varð Billy að koma fram
„læf' i þættinum Top of the
Pops í stað þess að mynd-
bandið væri sýnt einsog
venja er... Æ fleiri bætast
nú í hóp þeirra hljómsveita
og einstaklinga sem ætla
að koma fram á styrktar-
hljómleikum Greenpeace-
samtakanna i apríl, þar sem
safnað verður fé til aðgerða,
meðal annars gegn fyrir-
huguðum hvalveiðum Sslend-
inga. Nýjustu nöfnin eru:
Echo & The Bunnymen, Van
Morrison, Mike Oldfield,
The Waterboys, Ruby Tumer
og Aswad. Fyrir hafa til-
kynnt þátttöku Nik Kers-
haw, Big Country og China
Crisis, svo nokkur stór nöfn
séu nefnd. Það þýðir vist
litið að reyna að fá einhverja
af þessum listamönnum á
Listahátíð hjá okkur i sum-
á
ar... Hljómplötufyrirtæki
Paul Wellers i Style Council,
Respond Records, er farið á
höfuðið. Ástæðan er verk-
efnaskortur... Boy George
og félagar i Culture Club eru
nú loksins að vakna til lifs-
ins á ný eftir að hafa legið
i dvala um tveggja ára skeið.
Ný smáskifa er á leíðinni
og breiðskifa fylgir i kjölfar-
ið. Goggí kallinn er annars
i Los Angeles þessa dagana
þar sem hann leikur stórt
hlutverk í japanskri kvik-
mynd þar sem þarlendur
bjór, JIN að nafni, er veg-
samaður i bak og fyrir; það
heitir vist auglýsingakvik-
mynd... Annar þekktur
kappi, sem sömuleíðis hefur
legið í dvala, er að hugsa
sér til hreyfings i ný. Þetta
er hans konunglega ótukt
Prince, sem sendi frá sér
smáskífuna Kiss síðastlið-
inn mánudag og von bráðar
kemur breiðskifan Parde
út... Nýjustu fréttir: Smá-
skifan Kiss með Prince
stökk rakleitt upp i 52. sætí
bandariska smáskífulistans
og á þvi Prinsinn fjögur lög
á topp sextiu: Kiss, Love
Bizarre sem Sheíla E flytur,
Manic Monday sem Bangles
flytja og Do Me Baby sem
Melissa Morgan flytur. Geri
aðrir betur... sæl að sinni...
SþS