Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1986, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1986, Síða 19
18 DV. FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR1986. DV. FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR1986. 31 Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Ingcmar Stcnmark. 82. sigurinn hjá Stenmark Ingemar Stenmark, Svíþjóð, vann sinn 82. sigur í keppni heimsbikarsins i gær þegar hann varð fyrstur í stór- svigi i Hemsedal i Noregi. Kcyrði ó 2:26,04 min. Annar varð V-Þjóðverj- inn Hans Stuffer, mjög óvænt, ó 2:36,32 mín. Náði bestum tíma allra keppenda i síðari umferðinni. Þriðji varð Hubert Strolz, Austurríki, á 2:26,67 mín. Marc Girardelli, Lúxem- borg, varð fjórði og bætti því tíu stig- um í safn sitt. Hann er efstur með 268 stig. Peter Miiller, Sviss, annar með 199 stig. Stenmark er i fimmta sæti með 162 stig. Hann verður þrít- ugur eftir mánuð sem þykir hár aldur hjáskíðagörpum. -hsim Pólverjinn á leiðtilEyja Pólverjinn Griegorz Bielatowicz, sem þjólfar nýliða Vestmannaeyja í 1. deildar keppninni í knattspymu, kemur til landsins um helgina. Eyja- menn byrja því að æfa undir stjórn hans í næstu viku. Eyjamenn hafa orðið fyrir blóð- töku. Hlynur Stefónsson, hinn efni- legi leikmaður þeirra, fcr til Noregs og Tómas Pólsson hefur ákveðið að ganga til liðs við Selfoss. Þá er ekki vitað hvað Viðar Elíasson gerir en hann hefur haft hug á að leggja knattspyrnuskóna á hilluna. Þórður Hallgrímsson er byijaður að æfa af fullum krafti eftir smáhvíld og þá æfir Siglfirðingurinn Baldur Benónýsson með Eyjamönnum. -SOS Hlaut „Irfs- tíðarbann" Korfuboltamaður íkókinu Bandaríski körfuknattleiksmaður- inn Michael Ray Richardson, sem leikur með bandaríska liðinu New Jersey Nets í NBA-deildinni, hefur verið dæmdur í lífstiðarbann frá körfuknattleik vegna eiturlyljanotk- unar (kókaín). Richardson var færður í lyfjapróf á þriðjudagskvöldið eftir að hann hafði stífdópaður ráðist inn á heimili fyrrverandi eiginkonu sinnar. Niður- stöður lyfjaprófsins leiddu i ljós að Richardson hafði neytt kókaíns í ríkum mæli. Micheal Ray Richardson er mjög snjall leikmaður og á mánudags- kvöldið lék hann með New York Nets gegn Washington Bullets og skoraði þá 16 stig og átti átta send- ingar á leikmann sem skoraði. En daginn eftir fór sem sagt allt í hund og kött hjá kappanum og hann leikur ekki körfuknattleik íbráðina. Að sögn eins forráðamanna New Jersey Nets var vitað um eiturlyfja- neysfu Ríchardsons og reyndi félagið að gera allt sem í þess valdi stóð til að komast hjá þessu mikla slysi sem kemur sér mjög illa fyrir félagið. Þetta mál hefur vakið mikla athygli í Bandaríkjunum og þykir mikil niðurlæging fyrir bandarískan körfuknattleik. -SK. Biynjar skor- aði sextán mörk þegar Olympia varð Skánarmeistari Frá Gunnlaugi A.Jónssyni, frétta- mann DV í Svíþjóð. Helsingborgarliðið Olympia varð Skánarmeistari í handknattleik í Svíþjóð í vikunni og sigurinn getur félagið fyrst og fremst þakkað íslend- ingnum Brynjari Harðarsyni. Hann skoraði 16 - sextán - mörk i úrslita- leiknum. í keppninni var bikarfyrir- komulag og tóku þátt i því lið úr Allsvenskan og 1. og 2. deild. Hún hefur staðið yfir síðustu mánuðina og á leið í úrslitin sigraði Olympia m.a. H43 frá Lundi, sem leikur í Allsvenskan. I úrslitum lék Olympia, sem leikur í 2. deild, við 1. deildarlið IFK Malmö. Sigraði 33-32 eftir fram- lengdan leik. Um tíma virtist stefna i öruggan sigur IFK Malmö. Liðið náði sjö marka forustu, 23-16. Olympia jafnaði hins vegar í 27-27 og þurfti því framlengingu til að knýja fram úrslit. Sænsku blöðin segja að Brynjar hafi verið yfir- burðamaður í leiknum eins og mörk- in hans 16 gefa vel til kynna. Það er sjaldgæft að leikmenn skori 16 mörk í leik. hsím • BrynjarHarðarson. Kóreumenn vinsælir í Sviss: Kunnu lagið sem HM lið íslands sóng Það er ekki ofsögum sagt að lands- lið Suður-Kóreu sé langvinsælasta liðið hér á HM keppninni. Hvar sem þeir koma eru þeir umkringdir fólki og þeir veita aðdáendum sinum eigin- handaráritanir í löngum bunum. Það hefur komið í ljós að leikmenn Suður-Kóreu vissu mjög mikið um íslenska liðið. Þeir kunnu meira að segja lagið „Það er allt að verða vitlaust” sem kom út á hljómplötu með íslenska landsliðinu fyrir HM. Þetta kom í ljós þegar þeim var gefin platan hér í Sviss. Suður-Kóreu menn leika mjög sér- stakan handknattleik og svo sannar- lega er hægt að segja að þeir leiki handknattleik fyrir augað enda er uppselt á alla leiki þeirra í keppn- inni. Landslið þeirra minnir mjög á landslið Norður-Kóreu sem lék í úrslitakeppni HM i knattspyrnu í Englandi árið 1966. -SK. Mikilvægasti landsleikur íslendinga í langan tíma Frá Stefáni Kristjánssyni, blaða- manni DV á HM í Sviss: „Ég er á því að þetta sé mikilvæg- asti landsleikur sem íslenska lands- liðið hefur spilað í mjög langan tíma. Við þurfum líklega að ná í stig í gegn Rúmenum og það tekst ekki nema með toppleik hjá strákunum,” sagði Guðjón Guðmundsson, liðsstjóri ís- lenska landsliðsins í handknattleik, í samtali við DV í gærkvöldi. „Þessi leikur er hreinlega upp á líf og dauða fyrir íslenskan handknatt- leik. Ég veit að strákarnir munu leggja sig alla fram en þetta verður gífurlega erfiður leikur. Það er gífur- leg spenna á leikmönnum og öllum sem standa að landsliðinu en við verðum bara að vona það besta. Það er þannig í þessum bransa að þegar vel gengur átt þú marga góða vini en þegar illa gengur fækkar þeim stöðugt. Neikvæðar umsagnir í blöð- um eins og til dæmis Helgarpóstinum eru ekki til að hjálpa til. En við sem stöndum að þessu landsliði munum standa og falla með okkar verkum,” sagði Guðjón ennfremur. Rúmenar öruggir með sig Pana, þjálfari Rúmena, er mjög Þeir gráklæddu voru í aðalhlutverkunum -þegarHaukarunnu naumansiguráVal í urslitakeppninni íkörfu, 80-77 Valsmenn komu mjög á.óvart í gærkvöldi með því að veita Haukum harða keppni í leik liðanna í úrslita- keppni úrvalsdeildarinnar í körfu- knattleik í gærkvöldi. Valsmenn, sem flestir bjuggust við að myndu ekki standa uppi í hárinu á Hafnar- fjarðarrisunum, komu mjög á óvart Fjöldi hvatning- arskeyta barst Frá Stefáni Kristjánssyni, blaða- manni DV á HM í Sviss: íslenska landsliðinu í handknatt- leik barst í gær og fyrradag aragrúi af símskeytum frá Islandi þar sem landsliðsmennirnir voru hvattir til dáða. I flestum skeytunum var sagt að viðkomandi stæði heilshugar að baki landsliðinu og hvatningarorðin voru ekki spöruð. Skeyti þessi komu bæði frá fyrirtækjum og einstaklingum og að sögn eins forráðamanna lands- liðsins hafði þessi óvænta hvatning frá Islandi mikil áhrif á íslensku strákana fyrir leikinn gegn Tékkum og eflaust á hún eftir að hafa góð áhrif á íslenska liðið fyrir leikinn gegn Rúmeníu í kvöld. Eiginkonur landsliðsmannanna og þeirra sem að landsliðinu standa létu ekki sitt eftir liggja og í gærdag kom kröftugt hvatningarskeyti frá þeim til landsliðsins og kunnu þeir sem í hlut áttu mjög vel að meta þetta framtak kvenfólksins. _SK Ellertræðirvið Hollendinga í Róm - írar hafa mikinn áhuga á að koma til Reykjavíkur Það bendir allt til að þriggja lands- liða keppni í knattspyrnu verði í Reykjavík í byijun júní, með þátt- Ellert Schram. töku íslands, Írlands og Hollands. Ellert B. Schram, formaður KSÍ, er nú staddur á UEFA-fundi á Ítalíu. Þar mun hann ræða við einn af for- ráðamönnum hollenska knatt- spyrnusambandsins. Miklar likur eru á að hollenska landsliðið komi og einnig það írska. frar hafa sýnt mikinn áhuga á að koma hingað og Ieika. Jackie Charlton, sem hefur verið ráðinn þjálfari írlands, fengi þá tilvalið tækifæri til að byija uppbyggingu sína á írska landsliðinu - fyrir Evr- ópukeppni landsliða. -SOS með sterkum Ieik og ef ekki hefði verið fyrir hlut gráklæddu mannanna með flauturnar, þeirra Jóhanns Dags og Sigurðar Vals, þá má allt eins álykta að Valsmenn hefðu unnið leik- inn. Þeir tvemenningar virtust aldrei komast í takt við leikinn og það sem meira er, virtust vera fullhliðhollir Haukum sem náðu að knýja fram þriggj a stiga sigur, 80-77. Sem fyrr sagði komu Valsmennirn- ir sterkir til leiks og höfðu undirtök- in allan fyrri hálfleikinn. Liðið náði um tíma þrettán stiga forystu, 26-13, en munurinn var níu stig í hléi, 42-33. Heimamenn tóku sig nokkuð sam- an í andlitinu í seinni hálfleik, vörn þeirra styrktist og munurinn á liðun- um minnkaði jafnt og þétt. Haukar náðu síðan yfirhöndinni, 68-66, og héldu forystu sinni allt til loka. Það var mikill munur á leik Vals í gærkvöldi frá frammistöðu liðsins í megninu af forkeppninni. Leik- menn voru mun einbeittari og greini- legt var að alvaran var hafinn. Liðið átti sérstaklega góðan leik í fyrri hálfleik og eftirminnilegt var að sjá hve þeir Páll Arnar og Jón Stein- grímsson höfðu góð tök á heila Haukaliðsins, Pálmari Sigurðssyni, í fyrri hálfleik er hann gerði aðeins tvö stig. Tómas Holton átti einnig frábærar rispur í fyrri hálfleiknum og þeir Leifur Gústafsson og Torfi Magnússon skiluðu sínum hlutverk- um einnig vel, sá síðarnefndi þurfti reyndar að burðast með íjórar villur eftirfyrri hálfleikinn. Pálmar Sigurðssn og Ólafur Rafns- son léku mjög vel í síðari hálfleikn- um og þá komst ívar Webster einnig vel frá sínu. Stig Hauka: Pálmar Sigurðsson 22, Ólafur Rafnsson 18, Ivar Webster 17, Kristinn Kristinsson 9, Eyþór Árna- son 8, Henning Henningsson 7. Stig Vals: Tómas Holton 22, Leifur Gústafsson 14, Jón Steingrímsson 12, Torfi Magnússon og Sturla Örlygs- son 8, Kristján Ágústsson 7, Páll Arnar 4, Jóhannes Magnússon 2. Igol/-fros „Aldreiséðdóm-, gæslu sem þessa -sagöi Lárus Hólm, form. körfudeildar Vals „Ég er ekki vanur því að kvarta undan dómurum en þetta var einum of mikið af því góða. Eg hef aldrei séð dómgæslu sem þessa,“ sagði Lárus Hólm, formaður körfuknattleiks- deildar Vals, eftir leik Valsmanna við Hauka í úrvalsdeildinni í körfubolta. Valsmönnum var mjög heitt í hamsi eftir leikinn og töldu að þeir Sigurður Valur og Jóhann Dagur dómarar hefðu ekki haft vald á dómgæslunni. „Það var eins og þeim fyndist að Haukar ættu að sigra þar sem þeir eru ofar a stigatöfl- unni og það var eins og við værum fimm gegn 6 7 Haukum í leiknum. Við fengum á okkur sautján villur í fyrri hálfleik gegn sex villum Hauka og hver vitleysan af annarri bitnaði á okkur í þeim síðari. Ég vil sórstaklega greina frá þremur atvikum. Fimmta villan er dæmd var á Sturlu var þegar hann stóð með hendur niður með síðum þegar Haukamaður hljóp að honum. hað var ekki nóg með að dómararnir gæfu Sturlu villu heldur var einnig dæmt á hann ásetningsbrot sem þýddi tvö vítaskot fyrir Hauka. í öðru lagi er brotið var á Tómasi í þriggja stiga skoti. Dómararnir sniðgengu regl- urnar þá og dæmdu honum aðeins eitt vítaskot (aukaskot ef hann hitti úr því) en ekki þrjú eins og reglurnar gera ráð fyrir. hriðja atriðið á lokamínútunum var þegar við pressuðum stíft og náðum að króa Pálmari úti í horni. Að- þrengdur gekk hann á Bjöm Zoega og steig þar að auki út fyrir línuna en dómararnir gáfu Birni villu,“ sagði Lárus. Þess má geta í lokin að það kemur í hlut Jóns Otta Ólafssonar að gefa skýrslu um frammistöðu Sigurðar og Jóhanns en Jón var eftirlitsdómari á leiknum. -fros bjartsýnn fyrir leikinn í kvöld gegn Islandi. Hann sagði í gær að Rúmen- ar myndu vinna öruggan sigur og nefndi hugsanlegan mun á liðunum í lokin sex til sjö mörk. Hann sagði þó einnig að íslenska liðið væri ekki auðunnið og að möguleikar íslenska liðsins á að komast í milliriðlana væru enn fyrir hendi. Gífurleg spenna Það ríkir ótrúleg spenna hér í Bern og loft er lævi blandið svo ekki sé sterkara að orði kveðið. íslenska landsliðið æfði í íþróttahöllinni í Bern í eina og hálfa klukkustund í gærdag en leikið verður í þessari - þegar HM-leikur Islands og Rumeníu verður háður í kvöld sömu íþróttahöll í kvöld. 1 gærkvöldi voru taldar miklar líkur á því að franskir dómarar myndu dæma leik Islendinga og Rúmena í kvöld en það var þó ekki fastákveðið. Eins og allir ættu að vita er þessi leikur mjög þýðingarmikill og ef Is- land tapar og Tékkar vinna Suður- Kóreu þá eru yfirgnæfandi líkur á því að við sitjum eftir með sárt ennið og þá er komin upp sú staða að fall í c-riðil gæti orðið endanleg útkoma landsliðsins eftir þessa heimsmeist- arakeppni en auðvitað vona allir hið besta. -SK STEFAN KRISTJÁNSSON BLAÐAMAÐUR DV SKRIFAR FRÁHM í SVISS Guðjón Guðmundsson, liðsstjóri íslenska landsliðsins. Lánið framlengt um fjórarvikur - og Sigurður Jónsson mun því leika með Bamsley áfram Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni, fréttaritaraDV í Englandi: Barnsley framlengdi i gærkvöldi lánssamning sinn við Sheffield Wed- nesday á Sigurði Jónssyni um fiórar vikur. Sigurður mun því leika með 2. deildar liðinu fram til 27. mars. Samningur sá er félögin undirrit- uðu er nokkuð frábrugðinn hinum fyrri. Þannig getur Sheffield liðið kallað Sigurð til sín aftur án fyrir- vara ef meiðsli setja strik i reikning- inn hjá félaginu. „Mér líður mjög vel hér hjá Barns- ley þrátt fyrir að hafa enn sem komið er aðeins leikið tvo leiki. Barnsley byggir knattspyrnu sína ekki upp á kýlingum upp í loftið og hlaupum og það er ekki næstum því jafn- strangur agi hjá liðinu eins og hjá Sheffield. Mér líkar vel við Allan Clark framkvæmdastjóra ávallt léttur í lund og hefur góð áhrif á leikmennina. Sigurður hefur nú alveg náð sér af meiðslum og hann verður líklega í eldlínunni á laugardaginn er Barnsley leikur á heimavelli gegn Middlesbrough, það er að segja ef afleiknum verður. -fros RÚMENAR BAÐU UM GOTTVEÐUR -ottuöust hávaða íslendinga á hótelinu Rúmenska landsliðið, sem leikur gegn íslendingum hér á HM í kvöld, býr á sama hóteli og mikill fiöldi íslendinga sem kom gagngert hingað til að fylgjast með heims- meistarakeppninni. Þetta er stór og fiörugur hópur og lifnaði heldur betur yfir honum eftir sigurinn gegn Tékkum. Rúmenarnir óttuð- ust það mjög í fyrrakvöld að Islend- ingarnir tækju sig saman og héldu fyrir þeim vöku fyrir leikinn gegn íslandi í kvöld. í fyrrakvöld báðu þeir fararstjóra hópsins, þá Kjart- an Steinback og Kjartan L. Pálsson um að tala við hópinn og biðja liðið um að vera ekki með hávaða og óþarfa læti. „Við lofuðum að gera það og að sjálfsögðu verður það gert,” sagði Kjartan L. Pálsson i samtali við DV. „Einn af farar- stjórum rúmenska liðsins hringdi á herbergi mitt í fyrrakvöld og kvart- aði þá mjög undan hávaða frá landanum. Ég sagði honum að ég kannaðist ekkert við það og sagði honum að eini hávaðinn á hótelinu þá stundina væri í honum sjálfum, svo hátt öskraði hann í símanum. Hann róaðist þá og baðst afsökun- ar og bað um „gott veður” á hótel- inu næstu nótt (sl. nótt) fyrir leik- inn gegnfslandi. Kjartan sagði ennfremur að þessi aðdáendahópur væri ekkert fyrir- ferðarmeiri eða hávaðasamari en venjulega. „Þetta eru allt saman hressir Islendingar sem komnir eru til Sviss til að skemmta sér og styðja við bakið á íslenska liðinu,” sagði Kjartan L. Pálsson. -SK • Sigurður Jónsson. RöðáHM Ef þijú lið verða jöfn í riðli í heims- meistarakeppninni í Sviss fer röð í fyrsta lagi eftir markatölu einstakra liða. Það efst sem besta hefur marka- töluna. Ef lið eru jöfn að markatölu ræður hvert liðanna hefur skorað flest mörk. Hafi ekki fengist úrskurð- ur um röð eftir þessi tvö atriði, sem er ákaflega ólíklegt, ráða innbyrðis úrslit. SK. „Rétt leikskipulag Frá Stefáni Kristjánssyni, blaða- manni DV á HM í Sviss: „Ég tel að það hafi fyrst og fremst verið rétt leikskipulag sem réð því að íslenska liðið vann Tékkana hér i kvöld,” sagði Viggó Sigurðsson, fyrr- verandi landsliðsmaður í handknatt- - sagði Viggó Sigurðsson leik, í samtali við DV i gærkvöldi. „Annars er þetta alltaf sama sagan þegar við leikum gegn Tékkum. Þetta er alltaf sami barningurinn og oft hefur það komið fyrir að við höfum tapað niður unnum leik gegn þeim á lokamínútunum. Það hefði því alveg verið eftir bókinni ef við h' ðum tapað þessum leik með eins marks mun i lokin. Ég er hæfilega bjartsýnn fyrir leikinn gegn Rúmen- um. Ég hef mikla trú á íslenska lið- inu og það gæti gert góða hluti annað kvöld en leikurinn verður mjög erfið- ur fyrir íslenska liðið. -SK. ÚrslitáHM: Annaðtapið HjáSovét Sovétmenn, sem margir spáðu mikilli velgengni á HM, mátti sætta sig við annað tap sitt í jafnmörgum leikjum er liðið tapaði með fimm marka mun fyrir A-Þýskalandi í gærkvöldi. Annars urðu úrslit þessi: A-Riðill Júgóslavía-Kúba 32-28 A-Þýskaland-Sovétríkin 23-18 D-Riðill Danmörk-Alsír 27-18 Svíþjóð-Ungveijaland 22-23 TVEIMUR FRESTAÐ Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni, fréttaritara DV í Englandi: Tveimur leikjum, er fram áttu að fara í ensku knattpyrnunni á laugar- dag, hefur verið frestað. Það eru leik- ir Nottingham Forest og West ham og Sheffield United og Leeds. Reikn- að er með að fresta þurfi fleiri leikj- um vegna mikils frosts í Englandi. -fros kominn Viggó Sigurðsson. -ogRosskemur tilValsmanna í næstu viku Gordon Lee, þjálfari KR-liðsins, er kominn til landsins og byrjaður að stjórna æfingum KR-liðsins af fullum krafti. KR-hópurinn er óbreyttur frá **■ því sl. keppnistimabil. Tveir nýir leik- menn æfa með þeim, Þróttarinn Loftur Ólafsson og Argentínumaður- inn Marcelo Houseman. Ian Ross, þjálfari Valsmanna, er væntanlegur til Reykjavikur í næstu viku. Nokkrar breytingar hafa orðið á Valsliðinu frá sl. keppnistímabili. Guðmundur Þorbjörnsson er farinn til Baden á Sviss og Sævar Jónsson til Brann í Noregi. Heimir Karlsson fór til ÍR og Kristinn Björnsson til Stjörnunnar. Þá hefur Grímur Sæ- f mundsen ákveðið að leggja skóna á hilluna. Nýir leikmenn i herbúðum Vals- manna eru Sigurður Sveinbjörnsson (FH), Hilmar Árnason (Fylki), Ámundi Sigmundsson (Víkingi), Sig- urjón Kristjánsson (Keflavík) og Ársæll Kristjánsson (Þrótti). Það er ekki endanlega búið að ganga frá félagaskiptum þeirra Sigurjóns og Ársæls. -SOS Guðbjöm og Ámiæfa meo pram Skagamennirnir Guðbjörn Tryggvason og Árni Sveinsson hafa æft af fullum krafti með Framliðinu að undanförnu. Þeir félagar hafa ekki hug á að ganga í raðir Framara heldur hafa þeir fengið leyfi hjá Ás- geiri Eliassyni, þjálfara Fram, til að æfa með Framliðinu. Guðbjörn og ÁrnierubúsettiríReykjavik. -SOS Einartil Leiknis Framarinn Einar Björnsson hefur gerst þjálfari og leikmaður með Leikni frá Fáskrúðsfirði. Hann tekur við starfi Óskars Ingimundarsonar semfertilÓlafsfiarðar. -SOS Marokkómað- urinn bestur Marokkómaðurinn Said Aouita hlaut á þriðjudaginn Jesse Owens verðlaunin í frjálsum íþróttum fyrir bcstu afrek í frjálsum íþróttum árið 1985. * Aouita, scm sigraði i 5.000 metra hlaupi á ólv mpiuleikunum i Los Angeles og setti tvö heimsmet á síð- asta ári auk fleiri afreka á hlaupa- brautinni, hlaut 25 stig en í næstu sætum urðu þeir Steve Cram, lang- hlaupari frá Englandi, og sovéski stangarstökkvarinn Sergei Bubka með21stig. -SK.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.