Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1986, Blaðsíða 28
apannranDDnannnoDDDcmnnaaanaonciannnannntjnDDOonaanDa
40
DV. FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR1986.
DaDDDDDnDDaaaDaaaaaa
VÉLALEGUR
í bensín- og dísilvélar
AMC
Audi
Bedford
BMC
Buick
Chevrolet
Chrysler
Datsun
Dodge
Ferguson
Fiat
Ford
Honda
International
Isuzu
Lada
Landrover
Leyland
Mazda
Mercedes
Benz
Mitsubishi
Oldsmobile
Opel
Perkins
Peugeot
Pontiac
Renault
Range Rover
Saab
Scania Vabis
Simca
Subaru
Toyota
Volkswagen
Voívo
Willys
Zetor
D
D
D
O
O
D
D
aaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa
Ólöf B. Guðjónsdóttir, Melabraut 5,
Seltjarnarnesi, lést 14 febr. sl. Hún
fæddist 29. september 1911, dóttir
hjónanna Guðjóns Jónssonar og
Kristínar Jónsdóttur. Ólöf var gift
Jóni B. Helgasyni en hann lést árið
1984. Útför hennar fer fram frá Foss-
vogskirkju í dag, föstudaginn 28.
febrúar, kl. 10.30.
Anna Margrét Jónsdóttir lést 24.
febrúar sl. Hún fæddist 28. nóv. 1909,
dóttir hjónanna Jóns Brynjólfssonar
og Guðrúnar Jósepsdóttur. Anna
Margrét var gift Karli Kristinssyni,
sem lést árið 1977, og eignuðust þau
tvö börn. Anna Margrét verður
jarðsungin frá Fríkirkjunni í
Reykjavík í dag, föstudaginn 28.
febr., kl. 13.30.
Jarðarför Guðmundar Einarssonar,
sem lést 16. febr. sl., fer fram frá
Útskálakirkju á morgun, laugardag-
inn l.mars, kl. 14.00.
Sigrún Sigurðardóttir, Vallarbraut
15, Akranesi, sem lést 22. febr. sl.,
verður jarðsungin frá Akraneskirkju
í dag, föstudag28. febr., kl. 14.15.
Vesturgötu
Nýlendugötu
Ásvallagötu
Brávallagötu
Hofsvallagötu
Ljósvallagötu
Háaleitisbraut 52-155
Bankastræti
Laugavegur 1-105, oddatölur
AFGREIÐSLA
Þverholti 11 - Simi 27022
Sendlar óskast
á afgreiðslu DV.
Utvarp_____________Sjónvarp
Hermann Lundholm garðyrkjumaður:
Morgunútvarpið mjög skemmtilegt
Það var nú náttúrlega ekkert
sjón varp í gær em ég horfi talsvert
mikið á það. Hins vegar hlusta ég
ekki nema örlítið á útvarp, það er
þá helst á morgnana, og ég hef
mjög gaman að morgunútvarpinu.
Svo heyri ég alltaf fréttir, að
morgni, í hádegi og um miðjan dag.
Og Daglegt mál, ég reyni alltaf að
hlusta á það. En undanfarið hef ég
hvorki heyrt margt af útvarps-
dagskránni, né séð sjónvarp. En ef
ég má segja frá hvað mér fmnst
skemmtilegast í sjónvarpinu, þá
eru það til dæmis þættirnir hans
Ómars. Hann er mjög skemmtileg-
ur, hvort sem hann er fljúgandi
svona um landið eða bara svona í
sjónvarpssal. Annars hef ég mest
gaman af alls konar náttúrulífs-
myndum eins og Á fálkaslóðum svo
dæmi séu nefnd.
Ég hef líka fylgst með Blikum á
lofti, en sé svo sem ekkert eftir
þeim, það hlýtur að koma eitthvað
gott í staðinn. Sherlok Holmes og
Taggart eru báðir traustir, standa
alltaffyrir sínu.
I heild finnst mér sjónvarpið
alveg stórgott og fyllilega þess
virði að horfa á það jafnmikið og
ég geri. Nú, ég sleppi því bara að
horfa á það sem mér finnst ekki
áhugavert, poppþætti og þess hátt-
ar. En útvarpið get ég ekki sagt
nóg af viti um því það er ekki oft
sem ég hlusta á það. Ég er til dæmis
útvarpslaus í vinnunni.
Gunnar Kristjánsson tækniteiknari
andaðist 21. febr. sl. Hann fæddist í
Reykjavík 14. júlí 1913, sonur hjón-
anna Kristjáns Jóhannessonar skó-
smiðs og Ingibjargar Jónsdóttur.
Gunnar var kvæntur Guðlaugu
Klemensdóttur og eignuðust þau
fjóra syni. Útförin fer fram frá Bú-
staðakirkju í dag, föstudaginn 28.
febr., kl. 15.00.
Guðjón Guðjónsson kaupmaður frá
Patreksfirði verður jarðsunginn frá
Patrekskirkju á morgun, laugardag-
inn 1. mars, kl. 14.00.
Jóhann ísfeld Ólason frá Hjarðarkoti
verður jarðsunginn frá Húsavíkur-
kirkju á morgun, laugardaginn 1.
mars, kl. 14.00.
Anna S.M. Einarsson lést 24. febr. sl.
Hún fæddist 28. júlí 1901 i Færeyjum.
Anna var gift Magnúsi Einarssyni
framkvæmdastjóra en hann lést árið
1970. Útför hennar fer fram frá Foss-
vogskirkju í dag, föstudag 28. febr.,
kl. 15.00.
Jarðarför Guðbjarts Jónssonar húsa-
smíðameistara, frá Skógi á Rauða-
sandi fer fram frá Fríkirkjunni i dag,
föstudaginn 28. febr., kl. 10.30.
Geirlaug Konráðsdóttir frá Brag-
holti, sem andaðist 21. febr. sl., verð-
ur jarðsungin frá Möðruvöllum í
Hörgárdal á morgun, laugardaginn
1. mars, kl. 14.00.
Sigrún Bjarnadóttir fyrrverandi
saumakona verður jarðsungin frá
Hveragerðiskirkju á morgun, Iaug-
ardaginn 1. mars, kl. 14.00. Jarðsett
verður í Kotstrandarkirkjugarði.
Bílferð verður frá Bifreiðastöð ís-
lands kl. 13.00.
Eiður Finnsson frá Skriðuseli verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju í
dag, föstudag 28. febr., kl. 13.30.
80 ára er í dag, 28. febrúar, frú Hertha
Einarsson, Hátúni 10B. Hún tekur á
móti gestum i félagsheimili Lang-
holtskirkju milli kl. 16 og 20 í dag.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Þörungaverksmiðju á Reykhólum í Barðastrandarsýslu,
þingl. eign Þörungavinnslunnar hf„ fer fram eftir kröfu Iðnþróunarsjóðs þriðju-
daginn 4. mars 1986 kl. 13.00.
Sýslumaður Barðastrandarsýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 111116. og 121. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta í
Rauðalæk 8, þingl. eign Hávarðar Emilssonar, fer fram eftir kröfu Gjald-
heimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri mánudaginn 3. mars 1986 kl. 15.00.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Melbæ 19, þingl. eign Björns Traustasonar hf„ tal. eign
Sigþórs Svavarssonar og Hildar Theódórsdóttur, fer fram eftir kröfu Gjald-
heimtunnar í Reykjavík, Veðdeildar Landsbankans, Iðnaðarbanka íslands hf.
og Búnaðarbanka Islands á eigninni sjálfri mánudaginn 3. mars 1986 kl.
11.00.
____________________ Borgarfógetaembættið i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
2. og síðasta á þörungaverksmiðju á Reykhólum í Barðastrandasýslu þingl.
eign Þörungavinnslunnar hf„ ferfram eftir kröfu Iðnþróunarsjóðs þriðjudaqinn
4. mars 1986 kl. 13.00.
_________________________Sýslumaður Barðastrandarsýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 129, 133. og i39. tölublaði Lögbirtingablaðs 1985 á
Túngötu 2, Eskifirði, þingl. eign Óla Fossberg, fer fram samkvæmt kröfu
Veðdeildar Landsbanka íslands, Árna Einarssonar hdl„ Björns Jóseps Arn-
viðarssonar hdl. og Ásgeirs Thoroddssen hdl. á eigninni sjálfri föstudaqinn
7. mars 1986 kl. 10.00.
__________________________Bæjarfógetinn á Eskifirði.
Anderson
aðmíráll
flaugvestur
umhaf
- bjargaði störfum
íslendingaá
Keflavíkurflugvelli
„Það hef'ur ekki verið tekið á þessu
máli af neinni léttúð. Anderson aðmír-
áll flaug meira að segja vestur um haf
á miðvikudaginn til að rukka um
svör,“ sagði Sverrir Haukur Gunn-
laugsson, skrifstofustjóri vamarmála-
skrifstofú utanríkisráðuneytisins.
Eins og greint var frá í fréttum DV
óttuðust tugir íslenskra starfsmanna
á Keflavíkurflugvelli um störf sín
vegna stefnubreytingar sem orðið
hefur í mannaráðningum hjá banda-
ríska hemum. Vegna takmarkaðra
framlaga bandaríska þingsins tíl varn-
armála hefur bandaríski sjóherinn
gripið til þess ráðs að hætta öllum
nýráðningum. íslendingar sem voru
lausráðnir hjá bandaríska hemum á
Keflavíkurflugvelli sáu því ekki fram
á að fá ráðningarsamninga sína end-
umýjaða. Var hér um 56 menn að
ræða.
„Anderson aðmíráll fékk undan-
þágur vegna þessara starfemanna og
þeir missa því ekki vinnuna. Við feng-
um þetta staðfest síðdegis í gær,“ sagði
Sveirir Haukur Gunnlaugsson.
-EIR