Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1986, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1986, Page 2
2 DV. LAUGARDAGUR 3. MAÍ 1986. Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir Landhelgisgæsla í brennidepli Þyrlurekstur Landhelgisgæslunnar hefur verið gagnrýndur harðlega, sér- staklega í kjölfar slyssins á TF-Rán í Jökulfjörðum 1983. Málefrii Landhelgisgæslunnar hafa verið í sviðsljósinu undanfama daga. Upphafið var grein, sem ungur íslendingur með sjóliðsforingja- menntun frá Noregi, Jón Sveinssor skrifaði eftir 5 mánaða reynslu sem 3. stýrimaður á einu varðskipanna. Var hann mjög harðorður í garð Gæshmnar og sagði að á meðan engar siðferðilegar og faglegar kröf- ur væm gerðar til Landhelgisgæsl- unnar, væri réttast að leggja hana niður. Miðað við ástand Landhelgis- gæslunnar núna væri rekstur hennar einungis sóun á íjármunum skattborgarans. Jón sagði að skip- verjar á varðskipunum eyddu tíma sínum um borð í spilamennsku og fyllerí, allan ága skorti, fagmennska væri engin og ekki vottaði fyrir heildarskipulagi, t.d. varðandi út- köll. Þá væm öryggismálin í molum, þjálfun skipverja engin og þyrlu- reksturinn vafasamur. Forstjórinn Fljótlega var haft samband við for- stjóra Landhelgisgæslunnar, Gunnar Bergsteinsson, vegna þess- ara ásakana. Hann varðist allra frétta, sagðist ekkert hafa um grein Jóns að segja og allra síst við blaða- menn. Einnig var haft samband við Stein- grím Hermannsson forsætisráð- herra, sem gegndi störíúm dómsmálaráðherra í fjarvem Jóns Helgasonar. Sagði hann þessar ásakanir kalla á rannsókn á málefn- um Landhelgisgæslunnar. Stein- grímur sagðist ekki vita annað en að Jón Sveinsson væri traustur mað- ur og að á hann bæri auðvitað að hlusta. „Ef ásakanir Jóns em réttar verður að laga það sem aflaga hefur farið. Landhelgisgæslan verður að hreinsa sig,“ sagði Steingrímur. Eftir boðaðar aðgerðir Steingríms var aftur haft samband við forstjóra Gæslunnar og sagðist hann því feg- inn að málefhi Gæslunnar yrðu skoðuð.„Ég hef oft óskað eftir endur- skoðun á málefnum Landhelgis- gæslunnar," sagði forstjórinn. Þegar síðan blaðamaður spurði hvað það væri sem þyrfti endurskoð- unar við og hvað væri helst að í rekstrinum, sagðist forstjórinn minnst lítið vilja ræða það við blaða- mann. Ráðherrar Haft var samband við Jón Helga- son í Istanbul í Tyrklandi þar sem hann sat ráðstefhu. Sagði hann að fara bæri að ráðum forsætisráðherra og rannsaka máiið. Hann mundi sjá til þess, þegar hann kæmi heim, að rannsókninni yrði framfylgt. Jón sagði að honum hefðu komið þessar ásakanir á óvart, hann hefði ekki vitað til þess að málefni Gæslunnar væm athugunarverð. Forsætisráð- herra sagði það sama í samtali við blaðamann. Ekki í fyrsta sinn En þetta er ekki í fyrsta sinn sem málefhi Gæslunnar em til umræðu. Innan hennar hefur borið á margs konar samskiptavandamálum og hún hefur sætt gagnrýni, sérstaklega Fréttaljós Katrín Baldursdóttir fyrir hvemig staðið hefur verið að þyrlurekstrinum. Er skemmst að minnast þyrluslyss- ins í Jökulfjörðum 1983. TF Rán, þyrla Landhelgisgæslunnar, fórst þar í æfingaflugi með þeim afleiðing- um að fjórir menn dóu. í skýrslu Flugslysanefndar og Flugmála- stjórnar, sem kom út að lokinni raniisókn slyssins, segir að rann- sóknin hafi leitt i ljós að í mörgum tilfellum skorti aga innan Land- helgisgæslunnar og ekki sé farið að settum reglum stofriunarinnar. I skýrslunni segir að þyrlurekstrinum sé um margt ábótavant og eru lagð- ar fram margar tillögur til úrbóta. Því hefur jafiivel haldið því fram á prenti, að TF- Rán hafi verið í ómerkilegri sendiferð fyrir ákveðinn skipherra er slysið varð. Samskiptaörðugleikar Fjögur stéttarfélög; Félag ís- lenskra atvinnuflugmanna, Félag íslenskra loftskeytamanna, Flug- virkjafélag íslands og Stýrimannafé- lag íslands sendu á miðju ári 1984 dómsmálaráðherra, Jóni Helgasyni, og þingflokksformönnum bréf, þar sem vakin var athygli á samskipta- örðugleikum innan Gæslunnar. „Þannig magnast sambúðarvanda- mál innan stofnunarinnar. Nokkur ágreiningsmál eru nú þegar komin eða á leið til dómstóla....Fjölmargir gamlir og grónir starfsmenn eru í alvöru að hugsa um að hætta störf- um og nú þegar eru einhverjir hættir," sagði m.a. í bréfinu. í samtali DV við Ólaf Val Sigurðs- son, sem starfað hefur sem stýrimað- ur hjá Gæslunni um árabil og gegnir nú starfi skipherra, kom fram að stofhunin hefði lengi verið í uppnámi og samskiptin gengið erfiðlega við yfirstjóm Gæslunnar, einkum síðan núverandi forstjóri tók vjð störfum. Ólafur sagði að fiórir bestu menn Gæslunnar hefðu hætt vegna slíkra erfiðleika og mjög erfitt reyndist að fá toppmenn i vinnu. Þá sagði Ólafur að hann og aðrir hefðu lengi barist fyrir því að þjálf- unar- og æfingamál starfsmanna yrðu lagfærð, en þeim málum hefði ekki verið sinnt sem skyldi. „Skip- herra eftir skipherra er sagt að spara þegar hann fer með sitt skip út, og þeir túlka það auðvitað þannig að þjálfunaræfing''r eigi að sitja á hak- anum. Sparsemin bitnar á því sem auðveldast er að sleppa,“ sagði Ólaf- ur Valur. Óregla og spilamennska Hins vegar sagði Ólafur að allt sem Jón Sveinsson segði í grein sinni ufri agaleysi, óreglu og spilamennsku um borð væri uppspuni. Sagði hann að maður, sem lært hefði hjá norska sjóhemum, þekkti ekki Norður- Atlantshafið. Og sá sem hefði aðeins unnið hjá Gæslunni í fimm mánuði væri ekki maður til að dæma um störf hennar. í sama streng tók Sigurður Áma- son, sem verið hefúr skipherra hjá Gæslunni í 25 ár. Hann sagði ásak- anir Jóns Sveinssonar orðum auknar. „Hvað varðar áfengi þá er það nú einu sinni svo að íslenskir sjómenn neyta alltaf áfengis." Taldi Sigurður að vandamál Gæslunnar snemst ekki um áfengi, agaleysi og spilamennsku. Þau snemst aðallega um verkefhaskort. Endurskoða þyrfti starfsramma stofriunarinnar. Sjómenn fæm nú betur eftir boðum og bönnum á sjónum og eins væri mun minna um það að erlend skip fiskuðu í íslenskri lögsögu. Meira og minna lygi Helgi Hallvarðsson, skipherra á varðskipinu Tý, sama skipi og Jón Sveinsson starfaði á í ftmm mánuði, lýsti því yfir að skrif Jóns væm meira og minna lygi og lýsti hann ósannindamann. Hvað varðaði hlut- deild Jóns í þjálfunarmálum starfs- manna, þá sagði Helgi, að ákveðið hefði verið á fundi með Jóni og yfir- mönnum skipsins, að Jón tæki að sér að þjálfa starfsmennina í bruna- vömum. Jón hefði hins vegar ekki sinnt þessu verki, og ekkert hefði orðið af þjálfúninni. Það væri því lygi er Jón héldi því fram að allri þjálfun hafi verið hafnað er hann var um borð. Bitur reynsla Meðan á þessari umræðu hefur staðið hafa nokkrir fyrrum starfs- menn Gæslunnar haft samband við blaðið og sagt sínar farir ekki slétt- ar. Segjast þeir hafa hætt í Gæslunni vegna biturrar reynslu. „Það er allt- of mikið fyllerí á starfsmönnum og aginn er lítill," sagði einn. „Yfir- menn fara illa með og líta niður á undirmenn," sagði annar.„Aðgerða- leysið er algjört," sagði sá þriðji. Ólafúr Valur Sigurðsson, núver- andi skipherra á varðskipinu Ægi, sagði að ekki væri rétt að tala um aðgerðaleysi. Starfið á varðskipun- um byggðist fyrst og fremst á þolin- mæði. „Við verðum að bíða og bíða eftir því að ekkert gerist. Ef síðan eitthvað gerist erum við reiðubúnir." Þessi samantekt sýnir að menn em yfirleitt sammála um að eitthvað bjáti á í starfsemi Landhelgisgæsl- unnar. Hins vegar veitist mönnum erfitt að koma sér saman um hvað sé að. -KB Bann á innflutning matvæla fiá austri Vél stolið úr báti við verbúðimar í Reykjavík: „Þjófamir hafa verið hraustir' - segir Jón Guðmundsson sem stendur nú eftír með skrúfublað og dýptaimæli „Þjófamir hafa verið mjög hraustir eða þá að þeir hafa komið hingað með vörubifreið með krana á þegar þeir stálu vélinni úr bátnum," sagði Jón Guðmundsson trillueigandi sem situr nú með sárt ennið. Stolið var 400 kg vél af Bowmans-gerð úr báti sem hann á. „Það hafa aðeins örfáar vélar af þessari gerð verið fluttar inn til lands- ins. Ég á enn startara vélarinnar, sem erfitt er að fá hér á landi,“ sagði Jón. Jón, sem er að gera nýjan bát sem hann á sjófæran, keypti fyrir stuttu ónýtan bátsskrokk, sem hefur staðið uppi á landi við gömlu verbúðimar í Reykjavík, við slippinn. 1 bátnum vom ný tæki sem Jón ætlaði að setja í nýja bátinn sinn. „Ég var búinn að losa vélina úr gamla bátnum við verbúð- imar fyrir sl. helgi. Þá fékk ég tak í Jón Guðmundsson trillueigandi. bakið og ákvað að bíða með að taka vélina upp. Þegar ég kom á staðinn á sl. þriðjudag, til að ná í vélina, var hún horfin,“ sagði Jón. Jón sagði að þjófamir sem stálu vél- inni, hefðu gefið sér góðan tíma til að ná henni upp úr bátnum. „Þeir tóku öxulinn einnig, en það hefur verið klukkutima verk fyrir þá að ná hon- um. Þetta er 260 þúsund króna tjón fyrir mig. Ég hef nú aðeins skrúfublað og dýptarmæli í höndunum, eftir að þjófamir hafa látið greipar sópa um bátinn,“ sagði Jón. Þeir sem geta gefið upplýsingar um þjófnaðinn, hafa séð menn glíma við bátsvél við verbúðimar um sl. helgi, geta komið upplýsingunum á framfæri við ritstjóm DV. -SOS Heilbrigðisráðuneytið ákvað í gær að setja bann á allan innflutning mat- væla, hverju nafiii sem þau nefnast, frá austantjaldslöndunum Sovétríkj- unum, Póllandi, Tékkóslóvakíu, Búlgaríu, Ungverjalandi og Rúmeníu. Þetta bann er tilkomið vegna kjam- orkuslyssins við Kiev en mikil hætta er á að í matvælum frá áðumefndum löndum séu geislavirk efni. Bannið stendur þar til annað verður ákveðið. -SOS Alvarlegt umferðar- slys í Garðinum Ungur maður hlaut höfuðmeiðsli í miðjum Garðinum. Maðurinn, sem þegar létt bifhjól og vömbifreið lentu ók bifhjólinu, var fluttur á slysadeild saman í Garðinum í gærmorgun kl. Borgarspítalans. 11.42. Slysið átti sér stað við gatnamót -SOS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.