Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1986, Blaðsíða 6
6
DV. LAUGARDAGUR 3. MAÍ 1986.
Peningamarkaðurinn
Utlönd Utlönd
Innlán með sérkjörum
Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru
fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn-
stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir
verða fullra 16 ára. 65-69 ára geta losað inn-
stæður sínar með 9 mánaða fyrirvara, 70-74
ára með 6 mánaða fyrirvara og 75 ára og eldri
með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningarnir eru
verðtryggðir og með 8% vöxtum.
Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert
innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með
9% nafnvöxtum.
Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá
lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn-
stæður eru óbundnar og óverðtryggðar.
Nafnvextir eru 15% og ársávöxtun 15%.
Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir
10% en 2% bætast við eftir hverja þrjá mán-
uði án úttektar upp í 16%. Ársávöxtun á
óhreyfðri innstæðu er 13,64% á fyrsta ári.
Búnaðarbankinn: Sparibók með sér-
vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 13%
nafnvöxtum og 13,4% ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri
úttekt dragast 0,75% í svonefnda vaxtaleið-
réttingu.
18 mánaða reikningur er með innstæðu
bundna í 18 mánuði á 14,5% nafnvöxtum og
15% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri.
Iðnaðarbankinn: Bónusreikningar eru
annaðhvort með 10,5% nafnvöxtum og 10,8%
ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3% vöxt-
um. Hærri ávöxtunin gildir hvern mánuð. Á
hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging auk
1% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka má út
tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án þess
að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir 30.06.
og 31.12.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með
13% nafnvöxtum og 13,4% ársávöxtun eða
ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings
reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast
0,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu.
100 ára afmælisreikningur er verðtryggð-
ur og bundinn til 15 mánaða. Vextir eru 7,25%
og breytast ekki á meðan reikningurinn verð-
ur í gildi.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur
hefur stighækkandi vexti á hvert, innlegg,
fyrst 8%, eftir 2 mánuði 8,25%, 3 mánuði 8,
50%, 4 mánuði 9%, 5 mánuði 9,5% og eftir 6
mánuði 12%, eftir 12 mánuði 12,5% og eftir
18 mánuði 13%. Sé ávöxtun betri á 3ja eða 6
mánaða verðtryggðum reikningum gildir hún
um hávaxtareikninginn.
18 og 24 mánaða reikningar ery bundnir
og verðtryggðir og gefa 7,5 og 8% vexti.
Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort
hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í
bankanum, nú 13%, eða ávöxtun 3ja mánaða
verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxtum
sé hún betri. Samanburður er gerður mánað-
arlega en vextir færðir í árslok. Sé tekið út
af reikningnum gilda almennir sparisjóðs-
vextir, 8%, þann mánuð.
Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er
óbundinn. I5á ársfjórðunga, sem innstæða er
óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu
sinni, eru reiknaðir hæstu vextir sparifjár-
reikninga í bankanum. Nú er ársávöxtun
annaðhvort 12,9% eða eins og á verðtryggðum
6 mánaða reikningum með 3% nafnvöxtum.
Af úttekinni upphæð reiknast almennir spari-
sjóðsvextir, 8,5%, og eins á alla innstæðuna
innan þess ársQórðungs þegar tekið hefur
verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax
hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heila
ársfjórðung. Vextir færast fjórum sinnum á
ári og leggjast við höfuðstól. I’eir eru alltaf
lausir til útborgunar.
Sparisjóðir: l'rompreikningur er verð-
tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga
með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur oröinn
3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun
með svokölluðum trompvöxtum, 12,5%, með
13% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn-
stæðu í hverjum ársfjórðungi. Reynist
trompvextir gefa betri ávöxtun er þeim mun
bætt á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður
innan mánaðar bera trompvexti sé innstæðan
eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari-
sjóðsvexti, 8%. Vextir færast misserislega.
12 mánaða reikningur hjá Sparisjóði vél-
stjóra er með innstæðu bundna í 12 mánuði,
óverðtryggða en á 15.5% nafnvöxtum. Þeir
eru færðir cinu sinni á ári og ársávöxtun e.
því einnig 15,5%.
18 mánaða reikningar. Nokkrir stærri
sparisjóðanna eru með innstæðu bundna
óverðtryggða í 18 mánuði en á 14,5% nafn-
vöxtum og 15,2% ársávoxtun.
Spariskírteini
Spariskírteini Ríkissjóðs íslands eru seld í
Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð-
um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum.^
Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og
100 þúsund krónur, nema vaxtamiðabréf sem
eru 50 þúsund að nafnverði.
Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára. Með
þriggja ára binditíma eru ársvextir 7%, fjög-
urra ára 8,5% og sex ára 9%. Verðbætur,
vextir og vaxtavextir greiðast með höfuðstól
við innlausn. Með vaxtamiðum, til mest 14
ára, innleysanleg eftir fjögur ár. Ársávöxtun
er 8,16% á verðbættan höfuðstól hverju sinni
og vextir greiðast út 10.01. og 10.07. ár hvert.
Við innlausn greiðast verðbætur með höfuð-
stól. Gengistryggð skírteini eru til fimm ára.
Þau eru bundin safngjaldeyrinum SDR (til-
tekin samsetning af dollar, pundi, yeni, þýsku
marki og frönskum franka). Vextir eru 8,5%.
Höfuðstóll, vextir og vaxtavextir greiðast í
einu lagi við innlausn.
Almenn verðbréf
Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá
verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með
veði undir 60% af brunabótamati fasteign-
anna. Bréfin eru ýmist verðtryggð eða
óverðtryggð og með mismunandi nafnvöxtum.
Þau eru seld með afföllum og ársávöxtun er
almennt 12 16% umfram verðtryggingu.
Húsnæöislán
Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis-
ins, F-lán, néma á 1. ársfjórðungi 1986: Til
einstaklinga 782 þúsundum króna, 2 4 manna
fjölskyldna 994 þúsundum, 5 manna og fleiri
1.161 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik-
um) 1.341 þúsundum. Lánin eru til 31 árs.
Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema
á 1. ársfjórðungi 1986: Til kaupa í fyrsta sinn
er hámark 391 þúsund krónur til einstakl-
ings, annars mest 195 þúsund. 2 4 manna
fjöískylda fær mest 497 þúsund til fyrstu
kaupa, annars mest 248 þúsund. 5 manna fjöl-
skylda eða stærri fær mest 580 þúsundir til
fyrstu kaupa, annars mest 290 þúsund. Láns-
tími er 21 ár.
Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns-
kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum.
Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól,
aðeins vextir og verðbætur.
Útlán lífeyrissjóða
Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver
sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupp-
hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að
lánsrétti er 30 60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða
aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin
stig. Lán eru á bilinu 150 1000 þúsund eftir
sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð-
tryggð og með 5% vöxtum. Lánstími er 15 42
ár.
Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur.
Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli
sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í heilt ár og reiknað-
ir í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir
reiknaðir og lagðir við höfuðstól oftar á ári
verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verður
þá hærri en nafnvextirnir.
Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á
10% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tíma-
bilsins 1100 krónur. Ársávöxtunin veröur því
10%. Sé innstæðan óverðtryggð í verðbólgu
dregur úr raunávöxtun sem því nemur og hún
getur jafnvel orðið neikvæð.
Liggi 1000 krónurnar inni í 6 + 6 mánuði á
10% nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eft-
ir 6 mánuði. Þá verður upphæðin 1050 krónur
og ofan á þá upphæð leggjast 5% vextir seinni
6 mánuðina. Á endanum verður innstæðan
því 1.102,50 og ársávöxtunin 10,25%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir eru frá 01.04.1986 2,25% á
mánuði eða 27% á ári.
Vísitölur
Lánskjaravísitala í apríl 1986 er 1425 stig
en var í mars 1428 stig og í febrúar 1396 og
janúar 1364 stig. Miðað er við grunninn 100
í júní 1979.
Byggingarvísitala á 2. ársfjórðungi 1986
er 265 stig á grunninum 100 frá 1983 en 3924
stig á grunni 100 frá 1975.
Húsaleiguvísitala hækkaði um 5% 01.04.
en um 10% næst þar áður, frá 01.01. Þessi
vísitala mælir aðeins hækkun húsaleigu þar
sem við hana er miðað sérstaklega í samning-
um leigusala og leigjenda.
VEXTIR BANKA 0G SPARISJÓÐA (%) 21 -30.04. 1986
INNLÁN MEÐ SÉRKJÖRUM í 1 i P í.
SJA sérlista ll li II li Íí Íí ÍI ii nn
innlAn óverðtryggð
SPARISJÓÐSBÆKUR Óbundln innslæða 9.0 9.0 8.0 8.5 8.0 9.0 8.5 8.5 8.5 8.0
SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsogn 10.0 10.25 10,0 9.0 8.5 10.0 8.5 9.0 10.0 9.0
6 mán.uppsogn 12.5 12.9 12.5 9.5 10.5 10.0 10.0 12.0 10.0
12mán. uppsogn 14.0 14.9 14.0 11.0 12.6 12.0
SPARNAÐUR - LANSRÉTTURSparað 3-5 mán. 13.0 13.0 8.5 10.0 8.0 9.0 10.0 9.0
Sp.Bmán.ogm. 13.0 13,0 9.0 11.0 10.0 10.0
TÉKKAREIKNINGAR Avisanareikningar 6.0 6.0 2.5 3.0 4.0 4.0 3.0 3.0 3.0
Hlaupareikningar 4.0 3.0 2.5 3.0 4.0 4.0 3.0 3.0 3.0
INNLÁN VERÐTRYGGÐ SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsogn 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0
6 mán. uppsögn 3.5 3.0 2.5 3.0 3.5 2.5 3.0 3.0 3.0
INNLÁN GENGISTRYGGÐ GJALDEYRISREIKNINGAR Bandarikjadollarar 8.0 7.5 6.5 7.0 6.5 7.5 7,0 7.0 6.5
Sterlingspund 11.5 11.5 10.5 11.0 11.5 11.5 11.5 11.5 10.5
Vestur-þýsk mörk 4.5 4.0 3.5 4.0 3.5 4.0 3.5 3.5 3.5
Danskar krónur 8.0 9.5 7.0 8.0 7.0 7.5 7.0 7.0 7.0
útlAn óverdtryggð ALMENNIRVlXLAR (forvextir) 15.25 15.25 15.25 15.25 15,25 15.25 15.25 15.25 15.25
VI0SKIPTAVIXLAR3) (forvextir) kge 19.5 kge 19.5 kge kge kge kge
ALMENN SKULDABREF 2) 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5 15,5 15.5 15.5 15.5
VIÐSKIPTASKULÐABRÉF3) kge 20,0 kge 20.0 kge kge kge kge
HLAUPAREIKNINGAR YFIRDRATTUR 9.0 9.0 9.0 9.0 7.0 9.0 9.0 9.0 9.0
útlAn verðtryggð SKULDABRÉF Aó 21/2 ári 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0
Lengri en 21/2 ár 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0
ÚTLANT1LFRAMLEIÐSLU SjANEÐANMALSt)
l)Lán til framleiðslu á innanlandsmarkað eru á 15,0% vöxtum. Vegna útflutn-
ings, í SDR 8%, í Bandaríkjadollurum 8,25%, í sterlingspundum 11,5%, í vestur-
þýskum mörkum 6%. 2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er 2%,
bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán. 3) Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskipta-
skuldabréfum, á þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge, hjá þeim
bönkum sem þannig er merkt við, einnig hjá flestum stærstu sparisjóðunum.
Austurríkisstjóm
leggst gegn Waldheim
Ríkisstjóm jafnaðarmanna í Austur-
ríki skoraði í gær á kjósendur í
landinu að hafna fyrrum aðalritara
Sameinuðu þjóðanna, Kurt Waldheim,
öðrum frambjóðandanum í forseta-
kosningunum í Austurríki á morgun.
Fred Sinowatz, kanslari Austurríkis,
og ríkisstjóm hans sögðu í tilkynn-
ingu, er opinbemð var í gær, að orðstír
Austurríkis væri í húfi og sannir föð-
urlandsvinir yrðu að velja sér forseta
er sameinaði en sundraði ekki og væri
landi sínu og þjóð til sóma.
Jafhaðarmannaflokkur Sinowats
hefur stutt Kurt Steyrer, mótfram-
bjóðanda Waldheims í kosningabar-
áttunni, á meðan hægrisinnuð
stjómarandstaðan hefur fylkt sér um
Waldheim og vísað á bug öllum ásök-
unum um meinta aðild skjólstæðings
síns að níðingsverkum nasista í síðari
heimsstyrjöld.
Þrátt fyrir rúmlega tveggja mánaða
hatramma kosningabaráttu í Austur-
ríki, þar sem meint aðild Waldheims
að grimmdarverkum nasista hefur sett
svip sinn á kosningabaráttuna, sýna
nýjustu skoðanakannanir að Wald-
heim nýtur enn trausts meirihluta
kjósenda, þótt bilið milli hans og
Steyrers hafi töluvert minnkað að
undanförnu.
í kosningunum á sunnudag er rúm-
lega fimm og hálf milljón Austurríkis-
manna á kjörskrá og búist er við að
úrslit liggi fyrir um klukkan 18 á
sunnudag.
Ekki eru allir jafnhrifnir af Waldheim
í kosningunum á morgun. „Nasisti“
málað á kosningaspjald forsetafram-
bjóðandans í Vínarborg.
Kurt Waldheim á kosningafundi í smábænum Eisenstadt við landamæri Ung-
veijalands fyrir skömmu. Þrátt fyrir ásakanir um aðild að níðmgsverkum nasista
í síðari heimsstyijöld spá skoðanakannanir Waldheim sigri á morgun.
Brundtland tekur
við í Noregi
Ólafur Noregskonungur fól í gær Gro
Harlem Brundtland, formanni norska
Verkamannaflokksins, að mynda
minnihlutastjóm Verkamannaflokks-
ins í Noregi eftir að ríkisstjóm
Hægriflokksins undir forsæti Káre
Willoch sagði af sér í vikunni.
Bmndtland átti fund með Ólafi Nor-
egskonungi snemma í gærmorgun og
fór þess þá á leit við konung að hann
fæli hægri flokkunum stjómarmyndun
vegna þingmeirihluta þeirra á norska
Stórþinginu. Hægri flokkamir höfðu
áður alfarið hafnað slíkri stjómar-
myndun.
„Myndun minnihlutastjómar er frá
mínum sjónarhóli séð skammtíma-
lausn, en við munum gera það sem í
okkar valdi stendur til að standa við
ábyrgð okkar gagnvart norsku þjóð-
inni,“ sagði Brundtland á fundi með
blaðamönnum í gær.
Brundtland hefúr áður gegnt forsæt-
isráðherraembætti í Noregi í átta
mánuði áður en ríkisstjóm Hægri-
flokksins tók við völdum árið 1981.
Brundtland sagðist myndu velja ríkis-
stjóm sína á næstu dögum en búist
er við að minnihlutastjómin taki
formlega við völdum undir lok næstu
viku.
Æsífréttamennska í kjölfar
Chernobyl slyssins
Ketilbjöm Tryggvason, fréttaritari DV
í Vestur-Berlín:
Vegna kjamorkuslyssins í Chemo-
byl í Sovétríkjunum hefur gripið um
sig mikill óhugur meðal almennirgs
hér í Vestur-Þýskalandi eins og víðast
hvar í Evrópu.
Þó svo að geislavirkni er borist hef-
ur með vindum frá slysstað mælist
mörghundruðfalt undir hættumörkum
hafa viðbrögð fólks verið stórbrotin
og nálgast stundum fáránleika.
Sérfi-æðingar á sviði geislunar- og
heilbrigðismála hafa í þessu sambandi
fordæmt fréttaflutning fjölmiðla og
segja hann oft á tíðum óforsvaranleg-
an ef afleiðingar hans em hafðar í
huga. Máli þessu til stuðnings er bent
á þá staðreynd að eftir að eitt víðlesn-
asta dagblað Vestur-Þýskalands benti
á joðtöflur sem eina af bestu vömun
gegn geislun hafi birgðir af þessu lyfi
selst upp hjá velflestum lyfsölum
landsins.
Töflur þessar væru í flestum tilfell-
um skaðlegar almennu heilbrigði
neytandans og væri því fáránlegt að
mæla með þessu lyfi.
Forsvarsmenn ferðaskrifstofa hér í
þýskalandi hafa einnig gagnrýnt fjöl-
miðla og segja að útrúlegur fjöldi
viðskiptavina hafi aflýst ferðum, ekki
bara á staði nálægt Chemobyl heldur
almennt til Sovétríkjanna og landa er
liggja nærri Sovétríkjunum.
Væri þetta oft hálfgrátlegt því marg-
ir þessara staða lægju töluvert fjær
slysstaðnum heldur en Vestur-Þýska-
land.
Swissair lætur koma
fýrir rakáhöldum
Swissair vill ekki eyðni um borð í
vélum sínum. Því hafa ráðamenn fyr-
irtækisins ákveðið að taka allar
rafinagnsrakvélar úr umferð, en slíkar
rakvélar er að finna á öllum lang- og
millivegalengdum flugfélagsins. í stað
rafinagnsrakvélanna koma einnota
rakvélahausar og með þeim fylgir
smá-rakkremskúla.
Talsmaður Swissair, Walter Bom,
segir: „Við hefjum þessar framkvæmd-
ir af heilbrigðisástæðum. Við vitum
að eyðni berst með blóðsmitun og því
þarf ekki mikið til þess að smit berist
á milli ef t.a.m. eyðnisjúklingur eða
smitberi sker sig við rakstur um borð
og næsti farþegi fær á sig blóð.“
Á almenningssalemum hér í Sviss
er hægt að fá lánaðar rafmagnsrakvél-
ar og vegna þeirra upplýsinga sem
bárust frá Swissair var rætt við einn
þeirra sem hafa umsjón með tækjum
þessum á almenningssalemunum.
Hann upplýsti að öll tæki væm geril-
sneydd með ultrageislum eftir hvem
viðskiptavin og væm þau þess vegna
allt að því 100% ömgg.