Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1986, Blaðsíða 26
‘26
DV. LAUGARDAGUR 3. MAÍ 1986.
Síðasta umferðin
tekur á taugarnar
Er síðasta umferðin rennur upp er
ekki spurt að skákstigum eða fornri
frægð. Þá er það taugastyrkleiki og
k keppnisharka sem gildir og enginn
er öruggur með sitt. Að líkindum
mætti skrifa heila bók um óvænt
úrslit síðustu umferðarinnar. Einn
kafli þeirrar bókar varð til á stór-
mótinu í Brussel á dögunum þar sem
Karpov bar höfuð og herðar yfir
aðra keppendur. Hins vegar var
þeim mun harðari barátta um 2. og
3. sætið og margir um hituna.
Timman, Miles og Torre voru jafn-
ir í 2.-4. sæti fyrir síðustu umferðina
en Kortsnoj og Romanishin höfðu
hálfiim vinningi minna í 5.-6. sæti.
Flestir veðjuðu á að Torre myndi
hreppa 2. sætið því að hann átti í
höggi við neðsta mann mótsins,'
Belgann Jadoul. Timman átti hins
vegar svart gegn Ljubojevie, sem oft
* hefur reynst honum þungur í skauti,
og Miles átti að tefla við Karpov sem
var þegar búinn að tryggja sér sigur-
inn og af þeim sökum var óvíst hvort
hann yrði í baráttuskapi. Að síðustu
áttu Kortsnoj og Romanishin að
leiða saman hesta sína. Engum datt
í hug að sigurvegari þeirrar skákar
yrði einn í 2. sæti er yfir lyki. Svo
óvænt urðu úrslit umferðarinnar.
En stórmeistaramir hrundu niður
hver á fætur öðrum eins og dauðar
flugur. Torre var fyrstur til þess að
- 1 lýsa yfir ósigri. Taflmennska hans
gegn Jadoul var ótrúlega slök og
mér er til efe að hann hafi í annan
tíma teflt jafhilla, a.m.k. síðan hann
sleit bamsskónum. Fyrst lék hann
af sér peði og stöðunni og skömmu
síðar féll maður fyrir borð - skákin
varð ekki nema 26 leikir.
Miles var næstur í röðinni. Honum
varð á hrikaleg y firsjón gegn Karpov
eins og við sáum í skákþættinum
fyrir hálfum mánuði. Hann þraukaði
þó í 40 leiki áður en hann gafst upp
en svo lengi var sýnt hvert stefndi
Torre, Timman og Miles - töpuðu allir
síðustu skákinni í Brassel og hleyptu Kortsnoj (t.h.) fram fyrir sig.
að Timman hefur verið farinn að sjá
2. sætið í hillingum. Skák hans við
Ljubojevic var æsispennandi en á
endanum fór fyrir Timman eins og
félögum hans, Torre og Miles.
Skyndilega voru því Kortsnoj og
Romanishin komnir í gott skotfæri
við 2. sætið. Þeir voru ekki á þeim
buxunum að semja um jafhtefli held-
ur tefldu ramma baráttuskák. Svo
fór að Kortsnoj reyndist sterkari og
þannig tókst honum að sigla fram
úr keppinautum sínum - öllum nema
Karpov. Lítum á hve Kortsnoj tefldi
síðustu skákina af miklum krafti.
Hvítt: Kortsnoj
Svart: Romanishin
Kóngsindversk vöm.
1. c4 RfB 2. Rf3 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4
d6 5. d4 0-0 6. Be2 e5 7.04 Rbd7 8. Dc2
Víkur frá algengustu leiðinni, sem
er 8. Hel ásamt Be2 - fl með hróks-
valdi á e-peðinu.
8. - c6 9. Hdl De7 10. d5
Skák
JÓN L. ÁRNASON
Eftir 10. Hbl He8 er 11. d5 enn
sterkara en áður því að eftir að
svarti hrókurinn hefur vikið sér af
f-línunni styður hann ekki við bakið
á framrás f-peðsins. En betra er 10.
- exd4 og því lokar Kortsnoj mið-
borðinu strax.
10. - c5 11. g3 Kh8 12. Bg5 a6 13. Rh4
De8 14. Hel
Hrókurinn hefur vitaskuld lokið
ætlunarverki sínu á d-línunni og fer
í skotlínu drottningarinnar.
14. - Rg8 15. Bd2 De7 16. Rg2 Í5 17.
exf5 gxf5 18. f4 e4 19. g4!
Ræðst strax að svörtu miðborðs-
stöðunni. Kortsnoj hefur náð
frumkvæðinu með markvissri tafl-
mennsku. Nú væri 19. - Rdffi
hyggilegast en Romanishin reynir
að skapa sér gagnfæri með því að
tæla hvítreitabiskupinn af leið -
misráðið eins og berlega kemur í ljós.
19. - b5?! 20. cxb5 axb5 21. Bxb5 Bd4+
22. Be3 Rh6 23. g5 Rg4.
Hugmyndin var að fá þennan reit
fyrir riddarann en hann er ekki eins
ógnandi og ætla mætti í fyrstu.
24. Bxd4! cxd4 25. Re2!
Það þarf kjarkmann til þess að
tefla svona - gefa svörtum tvo sam-
stæða frelsingja á miðborðinu og
auk þess færi á gaffli. í ljós kemur
að gafflinum 25. - d3 bjargar hvítur
með 26. Dc3 (með skák) og riddari
svarts á g4 er valtur í sessi. Hvítur
þarf aðeins að snerta h-peðið og þá
kemst riddarinn aðeins til e3 sem
hefur í för með sér að annar frels-
ingjanna fellur í valinn.
25. - Dg7 26. h3 d3 27. Dc3 dxe2 28.
Dxg7 + Kxg7 29. hxg4 Rc5
Hvítur hefur vinningsstöðu. Engu
breytir 29. - fxg4 30. Hxe2 Rc5 31.
b4 Ra4 32. Bc6 Ha7 33. Hxe4 o.s.frv.
30. gxf5 Bxf5 31. Bxe2 Ra4 32. b3 Rc3
33. Bc4 Rxa2 34. Re3 Bd7 35. Kh2!
Þórannn og Þoriákur íslands-
meistarar í tvímenningskeppni
Eins og kunnugt er af fréttum sigr-
uðu Þorlákur Jónsson og Þórarinn
Sigþórsson frá Bridgefélagi Reykja-
víkur glæsilega á Islandsmótinu í
tvímenningskeppni, sem haldið var um
síðustu helgi á Hótel Loftleiðum.
Sigurinn var nokkuð sannfærandi,
enda voru þeir tveimur „toppum“ ofar
en næsta par sem var einnig frá
Bridgefélaginu, Guðlaugur R. Jó-
hannsson og Öm Amþórsson.
Landsliðsfélagar Þorláks og Þórar-
ins, Jón Baldursson og Sigurður
<SKerrisson, náðu „aðeins" sjöunda
sæti sem hljóta að hafa verið von-
brigði.
Sigurður gerði þó sitt besta í spilinu
í dag og fékk að launum mjög góða
skor.
Austur gefúr/allir á hættu.
Norðuh
* 10876
V KDG975
09
* A6
VtSTIK AUSTUII
*5 * AKDG
8 V 1062
O K1085 0 G743
-y * KD98742 SUDUR +105
♦ 9432
A43
O AD62
*G3
Þar sem Sigurður og Jón sátu n-s
gengu sagnir á þessa leið:
Austur Suður Vestur Norður
pass pass pass 1H
1S 2S 3L 3H
pass pass pass
Tveir spaðar hjá Jóni var sterk
áskorun í geim og þegar Sigurður
hafhaði því var spilið passað út í þrem-
ur hjörtum.
Austur byijaði á því að taka fjóra
slagi á spaða og spilaði síðan laufatíu.
Það voru mikil mistök og Sigurður
var fljótur að hagnýta sér þau. Hann
drap á ásinn heima og tók trompin í
botn. Vestur hélt dauðahaldi í kóng-
inn annan í tígli og vonaði að makker
hefði átt laufasexið með tíunni. Sig-
urður spilaði á laufasexinu og spilið
var unnið.
Það er ef til vill erfitt fyrir austur
að átta sig á því að hann má ekki
spila laufatíu og tígli má hann ekki
spila ef sagnhafi skyldi eiga tígulkóng.
Allavega hefði hann verið hetja
spilsins ef hann hefði spilað laufa-
fimminu í stað tíunnar.
Heiðar með 246 stig
Eftir tvær umferðir af fjórum í
firma/einmenningskeppni félagsins
er staða efetu firma/spilara þessi:
stig
1. Þórsberg,
spilari Heiðar Jóhannsson 246
2. Ríkisskip,
spilari Guðlaug Friðriksd. 242
3. Ragnar Jónsson verktaki,
spilari Ólafur Magnússon 242
4. Fiskverkun Ólafs Þórðarsonar,
spilari Ævar Jónasson 242
5. Bjarnabúð,
spilari Jón H. Gíslason 238
6. Vélsm. Tálknafjarðar,
spilari Kristín Ársælsdóttir 234
Fjölmenn tvímenningskeppni
34 pör mættu til leiks í eins kvölds
tvímenningskeppni sl. þriðjudag.
Spilað var að venju eftir Mitchell-
fyrirkomulagi. Úrslit urðu þessi
(efetu pör):
N/S: stig
Esther Jakobsdóttir-
Valgerður Kristjónsdóttir 396
Guðrún Hinriksdóttir-
Haukur Hannesson 354
Guðmundur Aronsson-
Jóhann Jóelsson 351
Björn Hermannsson-
Lárus Hermannsson 346
Andrés Þórarinsson-
Halldór Þórólfsson 342
A/V:
Júlíus Sigurjónsson-
Matthías Þorvaldsson 379
Eyjólfur Bergþórsson-
Jakob Ragnarsson 375
Steingrímur Steingrimsson-
Örn Scheving 351
Högni Torfason-
Stigur Herlufsen 336
Ari Konráðsson-
Kjartan Ingvarsson 330
Næstu tvo þriðjudaga verður á
dagskrá eins kvölds tvímennings-
keppni þar sem öllu spilaáhugafólki
er heimil þátttaka meðan húsrúm
leyfir. Þriðjudaginn 20. maí hefst svo
sumarbridge í Borgartúni 18 (húsi
Sparisjóðsins) en spilað verður tvisv-
ar í viku þar, á þriðjudögum í umsjón
þeirra Hermanns Lárussonar og Ól-
afs Lárussonar og sumarbridge á
fimmtudögum á vegum Reykjavíkur-
sambandsins. Það hefst í sömu viku,
22. maí.
Bikarkeppnin framundan
Bikarkeppni Bridgesambands Is-
lands 1986 hefet í næsta mánuði.
Spilatími hverrar umferðar verður
sem hér segir:
1. umferð skal vera lokið fyrir 18.
júní 1986 (undankeppninni).
2. umferð (32 sveita úrslit) skal vera
lokið fyrir 16. júlí 1986.
3. umferð (16 sveita úrslit) skal vera
lokið fyrir 13. ágúst 1986.
4. umferð (8 sveita úrslit) skal vera
lokið fyrir 31. ágúst 1986.
5. umferð (undanúrslit 4 sveita) verð-
ur spiluð laugardaginn 6. september
og úrslitaleikurinn verður daginn
eftir, 7. september 1986. Spila-
mennska hefet báða dagana kí. 10
árdegis en í undanúrslitum eru spil-
uð 48 spil milli sveita og 64 spil í
úrslitaleiknum.
I öllum öðrum umferðum eru spiluð
40 spil milli sveita. Þátttökugjald á
sveit verður kr. 4.000 sem greiðist til
Bridgesambands íslands í upphafi
keppni. Greiðslu skulu fylgja nöfn
spilara, nafnnúmer og heimilisfang.
Spilað er um gullstig i hverri um-
ferð. Áríðandi er að fyrirliðar til-
greini þann spilafjölda sem hver
einstakur spilari spilar í hverri um-
ferð (séu fleiri en 4 spilarar í sveit-
inni). Bregðist þetta má búast við að
stig fyrir þann leik verði ekki skráð.
I bikarkeppni er dregið í hverri
umferð. Þeirri sveit, sem fær heima-
leik, ber skylda til að aðstoða gesti
hvað varðar uppihald og viðurgjörn-
ing meðan á leik stendur, enda
myndu gestgjafar njóta þess hið
sama yrðu þeir á útivelli. Fyrirliðar
skulu koma sér saman um leiktíma.
Að öllu óbreyttu gildir auglýstur
spilatími Bridgesambandsins í hverri
umferð.
Skráning sveita til Bridgesam-
bands Islands er hér með hafin.
Henni lýkur miðvikudaginn 21. maí
nk., kl. 16. Strax á eftir verður svo
dregið í 1. umferð keppninnar.
Skráningum skal komið til Ólafs
Lárussonar eingöngu, hjá BSÍ og
heima: 91-16533. Sigurvegarar öðlast
rétt til þátttöku í Evrópubikarkeppni
eða sambærilegri keppni á þeim kjör-
um sem Evrópusambandið (móts-
haldarar ytra) býður. Nánar síðar.
Stofnaður Guðmundarsjóður
Bridgesambandið minnir félög á
síðari hluta árgjalda sem falla í
gjalddaga 15. júlí 1986. Nú þegar, í
lok keppnistfrnabilsins, eru greiðslur
síðari hluta farnar að berast skrif-
stofu BSÍ. Gjaldið hækkaði í 20 kr.
á spilara fyrir hvert spilakvöld eftir
áramót '85-86.
Bridgesambandið býður velkomið
í sambandið nýtt bridgefélag. Það
eru Norðfirðingar sem gengið hafa í
landssamtök bridgefélaga. Alls eru
þá félög innan vébanda BSÍ orðin 47
og hafa aldrei áður verið fleiri. Tals- /
maður þeirra austanmanna er ína
Gísladóttir.
Send hafa verið til allra félaga utan
Reykjavíkur gjafabréf sem prentuð
hafa verið í tilefni stofhunar Guð-
mundarsjóðs, húsakaupasjóðs
Bridgesambands Islands. Einnig hef-
ur verið opnaður reikningur í
Útvegsbanka Islands, hlaupareikn-