Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1986, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1986, Blaðsíða 12
12 DV. LAUGARDAGUR 3. MAÍ 1986. Komur erlendra ferða- manna til íslands hafa stóraukist á undanförn- um árum. Árið 1985 komu tæplega 100.000 ferðamenn til landsins, aukning milli ára var 14,4%. Til gamans má geta þess að fjöldi erlendra ferðamanna sem komu til landsins árið 1960 var tæplega 13.000. Áætlaðar tekjur af ferðaútvegi árið 1985 nema 28% af heildarsjávarafurðaútflutningi. En það dugir ekki að halda uppi skefjalausum innflutningi er- lendra ferðamanna. Samhliða því verður að vinná að markvissri uppbyggingu ferðaþjónustu inn- anlands. Islensk náttúra er sameiginleg auðlind sem okkur ber að standa vörð um, því hennar þoli hljóta, eins og öllu öðru, að vera takmörk sett. Ferðamálaráð íslands var stofnað með lögum árið 1964. Hlut- verk þess skyldi fyrst og fremst vera alhliða uppbygging ferða- þjónustu innanlands og landkynn- ingarstarfsemi á erlendri grund. Mörgum þykir þó sem lítið hafí orðið úr framkvæmdum á upp- byggingu bér innanlands en þeim mun meiri áhersla lögð á öfíuga landkynningu erlendis. Eins hafa menn gagnrýnt að ekki sé til neitt samræmt heildarskipulag eða stefnumörkun fyrir ferðaþjón- ustuna. Nú sé svo komið að skeíja- laus landkynning og óheftur innflutningur erlendra ferða- manna ógni íslenskri náttúru og hvorki land né þjóð séu í stakk búin til að taka við þessum aukna ferðamannafjölda. Við verðum því að gera það upp við okkur hvað gjaldeyrir erlendu ferðamannanna má kosta. Er ekki kominn tími til að taka upp viturlegri búskapar- hætti og nýta en ekki eyða þeim möguleikum sem íslensk náttúra býður upp á fyrir ferðaþjónustuna? Sumarið 1984 var Kjartan Lárus- son, forstjóri Ferðaskrifstofu ríkisins, skipaður formaður Ferða- málaráðs. Það er óneitanlega dálítið sérstæð staða að sitja báð- um megin við sama borðið. En hvað um það, Kjartan Lárusson er mikill atorkumaður, sífellt önn- um kafinn og lítt gefinn fyrir hangs. Enda stundum í gamni kall- aður fellibylurinn Kjartan. Per- sónulega er ég þeirrar skoðunar að ef veðurfræðingamir þarna niðri við Mexíkóflóa þekktu eitt- hvað til Kjartans þá hlytu allir þessir fellibyljir, sem af og til rústa austurstönd Bandaríkjanna og ljúka svo ævinni sem lægð hér yfir Islandi, að heita Kjartan I, Kjartan II, o.s.fr. Það var því ekkert áhlaupaverk að fastákveða tíma fyrir viðtal við Kjartan en ætlunin var að ræða við hann um stöðu ferðaþjónustu á íslandi í dag og viðhorf hans til þeirra mála. Einn- ig var ætlunin að koma aðeins inn á störf Ferðamáláráðs og þá gagn- rýni sem það hefur sætt innan ferðaþjónustunnar undanfarið. Eftir miklar tilfæringar og ótal símtöl tókst þó að ákveða tíma fyrir viðtal og ég var rétt nýbúin að koma mér huggulega fyrir á kaffistofu Ferðaskrifstofu ríkisins þegar fellibylurinn Kjartan geyst- ist inn úr dyrunum: „Jæja, drífum í þessu, ertu ekkí með segul- band?“ Ég sá því þann kost vænstan að neita mér um kaffið og vera eins stuttorð og mögulegt var. - Er ferðaþjónustan olnbogabarn stjórnvalda? „Ég lít engan veginn svo á að ferðaþjónustan sé olnbogabarn að einu eða öðru leyti. En ef við tökum Ferðamálaráð sem fulltrúa fyrir ferðaþjónustuna í heild, þá væri því e.t.v. best lýst sem nokkurs konar munaðarleysingja - þó ekki í orðsins íyllstu merkingu því foreldramir eru Kjartan Lárusson - og Hófí. Ferða þjónusta munaðarleysingi stjómvalda Ferðaþjónusta er ung og ört vaxandi atvinnugrein á íslandi. í kjölfar þeirrar umræðu sem farið hefur fram undanfarið um nýsköpun í atvinnulífmu hafa augu manna beinst í auknum mæli að ferðaþjónustunni. í þessari atvinnugrein eru margir óvirkj- aðir möguleikar. Viðtal: Unnur Úlfarsdottir á lífi; þeir vilja bara ekki kannast við krógann." - Nú eru fulltrúar í Ferðamálaráði skipaðir af ríkinu. Ef þeir skapa ekki þrýsting á stjórnvöld er þá ekki sjálf- gefið að stjórnmálamennirnir sýni lítinn áhuga? „Nú vil ég hvorki mæla Ferða- málaráði bót, né vil ég heldur mæla neitt á móti því. En það er nú einu sinni svo, að Ferðamálaráð er skipað samkvæmt lögum, sem á sínum tíma voru keyrð í gegn á þingi án þess að nokkuð væri hlustað á ábendingar eða ráðleggingar aðila innan ferða- þjónustunnar. Þess vegna má með sanni segja að Ferðamálaráð, sem afsprengi þessara laga, sé fyrst og fremst getnaður þingmanna en svo vilja þeir ekki kannaát við krógann. Ef litið er á samsetningu Ferðamála- ráðs þá eru þar góðir og mætir menn og konur með langa og mikla reynslu af ferðaþjónustu. Þetta fólk, fyrir utan allt það fólk sem starfar við ferðaþjónustu, hefur byggt upp þessa atvinnugrein sem fram til þessa hefur gengið meira sjálfala en flestar aðrar atvinnugreinar þjóðfélagsins. Hún kvartar ekki til jafns við aðrar at- vinnugreinar og þess vegna hafa stjórnmálamennirnir e.t.v. vanrækt þennan bráðþroska ungling, sem íerðaþjónustan er, og talið að hann gæti gengið sjálfala alla tíð og þyrfti því aldrei á hjálp foreldranna að halda. Það má segja að það sé út af fyrir sig ágætt en það er þá heldur ekki foreldranna að láta þennan ungling sjá fyrir sér í ellinni. Ef króg- inn fær ekkert frá foreldrunum þá skilar hann heldur engu til þeirra." - En nú skilar króginn ansi miklu! „Það er einmitt þar sem hnífurinn stendur í kúnni. Nú eru kröfur for- eldranna orðnar svo miklar að króginn stendur tæpast undir þeim. Gott dæmi um þetta er brottfarar- skatturinn mikli. Hann einn skilar ríkissjóði u.þ.b. 100 milljónum króna umfram það sem hann skilaði á síð- asta ári, að ógleymdum smáatriðum eins og söluskatti, tekjuskatti af fyr- irtækjunum, launaskatti af fólkinu sem vinnur i greininni, innílutnings- gjöldum af tækjum og búnaði, ýmsum sérsköttum eins og þunga- skatti og bensínskatti sem er einn stærsti skatturinn í ferðaþjón- ustunni. Á sama tíma fær blessaður munaðarleysinginn litlar 20 milljón- ir til síns framfæris sem er fimmtung- ur þess sem brottfararskatturinn skilar ríkissjóði fyrir utan alla hina skattana." - En ferðamólasjóður, er ekkert þar að hafa? „Jú, en ferðamálasjóður er engin gjöf frá hendi hins opinbera. Ríkið hefur af því verulegar tekjur að lána þeim aðilum, sem eru að byggja upp fyrirtæki innan ferðaþjónustunnar, fé með vöxtum sem sumir kalla allt að því okurvexti. Við skulum segja að það séu hæstu leyfilegir vextir. Þeir eru margir sem eru í mjög slæmri íjárhagsstöðu vegna þess gíf- urlega íjármagnskostnaðar sem stafar af þessum lánum og það er ríkið sem beint eða óbeint hagnast þar af.“ Hvert er hlutverk Ferðamála- ráðs? „Hlutverk Ferðamálaráðs er svo margþætt að það er ástæðulaust að telja það upp hér, ég vísa bara í þessa ágætu lagasmíð. Áðalatriðið er þó almenn lahdkynning erlendis, auk þess að hafa yfirumsjón með því sem betur má fara í almennri þjónustu við ferðamanninn. Þar vil ég sérstak- lega nefna hreinlætisaðstöðu og aðra nauðsynlega þjónustu." - Áttu þá ekki við almenna upp- byggingu hér innanlands?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.