Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1986, Side 27
DV. LAUGARDAGUR 3. MAÍ 1986.
27
Kóngurinn er á leið til g3 en um
leið leggur hvítur lúmska gildru íyr-
ir andstæðinginn.
35. - Hxf4? 36. He2 Rc3 37. Hxa8 Rxe2
38. Bxe2 Hf2+ 39. Rg2! Hxe2 40. Ha7
Svartur tapar manni og framhaldið
þarfiiast ekki athugasemda.
40. - Kg6 41. Hxd7 Kxg5 42. Hxd6 Hb2
43. Hb6 Hd2 44. He6 Kf5 45. He8 Hd4
46. Kgl h5 47. Kfl Hd2 48 b4 Hb2 49.
d6 Hd2 50. Re3+ Kf4 51. Rc4
- Og svartur gafst upp.
Skákþing Sovétríkjanna stend-
ur yfir í Kiev
Kænugarður í Ukraínu komst í
heimsfréttimar i vikunni vegna slyss
sem varð í kjamorkuveri skammt
norðan við borgina. Er slysið varð
stóð 53. Skákþing Sovétríkjanna sem
hæst í borginni en fréttir hafa ekki
borist af því hvort mótinu' var frest-
aö, það fært úr stað, eða hvort
skákmeistaramir héldu áfram að
tefla af stóískri ró í geislavirku and-
rúmsloftinu.
Eins og fyrri daginn sveik innsæi
sterkustu skákmannanna þá ekki.
Flestir héldu sig heima, hvort sem
það var ríkri hættutilfinningu þeirra
að þakka eða ekki. Tíu stigahæstu
Sovétmennimir tefldu ekki í Kiev
að einum undanskildum. Samt er
mótið sterkt og ungir og upprenn-
andi skákmenn setja svip sinn á það.
Að loknum 9 umferðum af fyrir-
huguðum 17 var staðan þessi:
1.-2. Balashov og Lerner 6. v. 3.-4.
Khalifman ogTseshkovsky 5'A v. 5-
7. Eingom, Malantsjúk og Bareev 5.
v. 8-14. Beljavsky, Dolmatov, Gav-
rikov, Lputjan, Gurevich, Rashkov-
sky og Judasjín 4'A v. 15.-17. Dvoiris,
Jakovich og Azmaiparashvili 3 v. 18.
Smagin 2 'A v.
Beljavsky er langsterkastur kepp-
enda á pappímum og sá eini sem
hefur yfir 2600 Eló-stig. Hann hefur
þó átt erfitt uppdráttar og nú er
mótið er liðlega hálíhað hefur hann
aðeins 50% vinningshlutfall. Athygli
vekur annars góð frammistaða Alex-
anders Khalifmans sem er aðeins 19
ára gamall og kemur frá Leningrad.
Hann varð Evrópumeistari unglinga
um áramótin og fékk tveimur vinn-
ingum meira en næsti maður.
Balashov er íslendingum kunnur
írá taflmennsku sinni hér á landi.
Rólegur skákmaður sem gerir mörg
jafhtefli en er hann hrekkur í gír er
hann stórhættulegur. Konstantín
Lemer, sá er deilir með honum efsta
sætinu, er hins vegar lítt þekktur
utan síns heimalands. Hann er írá
Odessa, alþjóðlegur meistari, með
2530 Eló-stig og fæddur 1950 - ári
eldri en Karpov.
Hér er snaggaraleg sigurskák
Lemers fi"á mótinu.
Hvítt: Lemer
Svart: Judasjín
Nimzo-indversk vöm.
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. e3 c5
5. Bd3 Rc6 6. Rge2 cxd4 7. exd4 d5 8.
cxd5 Rxd5 9. 0-0 Rf6 10. Bc2 h6 11.
Dd3 Bd6 12. a3 Re7 13. Bf4 Bxf4 14.
Rxf4 Dd6?
Betra var að hróka og svara 15.
Rh5 með 15. - Rg6. Nú lendir svart-
ur í miklum erfiðleikum.
15. Dg3!
Magnaður leikur. Pyttimir em nú
á hverju strái. Ef 15. - 04) þá 16.
Rfd5! og svartur tapar manni (16. -
Dxg3 17. Rxe7+ eða 16. - Dd8 17.
Rxffi + ) og ef 15. - g6 þá 16. Rh5!
Dxg3 17. Rxffi+ og aftur missir
svartur mann. Þá er 15. - Kf8? engin
lausn vegna 16. Rg6+ og nú fellur
sjálf drottningin. Eftir stendur að-
eins 15. - Hg8, sem svo sannarlega
er ekki fagur og textaleikurinn.
15. - Dxd4 16. Hadl De5
Hann verður að valda riddarann á
ffi svo hann geti svarað 17. Dxg7
með 17. - Hg8. En nú fellur sprengj-
an.
17. Rxe6! Dxe6
Snyrtileg lok hefðu verið 17. -
Dxg3? 18. Hd8 mát.
18. Hfel 0-0
Drottningin er dauðans matur því
að eftir 18. - Dg4 kæmi 19. Hxe7!
Kxe7 20. Dd6+ Ke8 21. Dd8 mát og
eftir 18. - Da619. Dxg7 hrynur svarta
staðan - ef 19. - Hg8 20. Ba4 + og
vinnur.
19. Hxe6 Bxe6 20. Re4 Rxe4 21. Bxe4
Had8 22. Hxd8 Hxd8 23. h3 Rd5 24.
De5 b5 25. Dd4 a6 26. Da7 Rffi 27. Bffi
- Og svartur gafst upp.
JLÁ.
ingur nr. 5005 þar sem hægt er að
leggja inn gjafafé til sjóðsins. Mark-
miðið er að kljúfa þessi kaup en
hlutur okkar bridgemanna er yfir
fimm milljónir króna. Vegna þessa
verðum við að taka á með Guðmundi
Kr. Sigurðssyni. Allar nánari upp-
lýsingar um sjóðinn og framkvæmd
þessarar söfnunar em veittar á skrif-
stofu sambandsins, í síma 91-18350
(Ólafur).
Frá Bridgefélagi Hafnarfjarðar
Vorhugur er nú kominn í Gaflara
og er spilamennsku BH á starfsárinu
því lokið. Síðasta keppni félagsins
var board-a-match keppni (með
saldo) með þátttöku 8 sveita. Þessar
urðu efstar:
1. Sveit Bjarna Jóhannssonar 145 stig
2. Sveit Sigurðar Lárussonar 126 stig
3. Sveit Þrastar Sveinssonar 119 stig
4. Sveit Erlu Sigurjónsdóttur 105 stig
Síðla starfsársins var keppt við 3
önnur félög, Bridgefélag kvenna,
Bridgeklúbb Akraness og Bridgefé-
lag Selfoss, og unnu Hafnfirðingar
öll þessi félög með töluverðum mun.
Viðureignin við Selfoss var sú fer-
tugasta á 40 árum og er því væntan-
lega elsta samfellda bæjakeppni í
íþróttum hér á landi. Spilað var á
Selfossi að þessu sinni og senda spil-
arar BH þeim Selfyssingum bestu
þakkir fyrir frábærar móttökur.
í lok starfsársins var haldin sagn-
keppni með gömlum spilum úr
erlendum og íslenskum blöðum. í
öðrum hópnum náðu þau hjónin Erla
Sigurjónsdóttir og Kristmundur
Þorsteinsson bestum árangri í 20
spilum eða 118 stigum. í hinum hópn-
um urðu þeir Ásgeir Ásbjörnsson og
Friðþiófur Einarsson langefstir með
141 stig. Úr seinni 10 spilunum fengu
þeir hvorki meira né minna en 86
stig. Þau spil voru úr Bridge (blað-
inu) í febrúar 1976 en þar náðu þeir
Þórarinn Sigþórsson og Hörður Árn-
þórsson 75 stigum, sem talið var
„afburða skor“. Kerfi þeirra Ásgeirs
og Friðþjófs mun vera mjög sérstætt
enda botnuðu engir í sögnum þeirra.
Aðalfundur BH verður haldinn
föstudaginn 23. maí í Hraunbyrgi,
húsi Skátafélagsins við Reykjavík-
urveg, og hefst kl. 20. Dagskrá
fundarins verður auglýst síðar.
Félagar BH óska öllum bridsurum
landsins gleðilegs sumars og þakka
umsjónarmönnum bridsþátta dag-
blaðanna fyrir ágæta þjónustu í
vetur.
Bridgefélag Siglufjarðar
Mánudaginn 7. apríl lauk Siglu-
fjarðarmóti í sveitakeppni 1986.
11 sveitir tóku þátt í mótinu og var
hart barist um efstu sætin.
Lokaúrslit urðu þau að sveit V altýs
Jónassonar sigraði með 235 stigum.
I sveit Valtýs spila auk hans Baldvin
Valtýsson, Sigurður Hafliðason og
Sigfús Steingrímsson. f 2. sæti varð
sveit Þorsteins Jóhannssonar með
230 stig og þriðja sveit Boga Sigur-
björnssonar, 207 stig.
Tveggja kvölda hraðsveitakeppni
var spiluð 14/4 og 21/4. Þessa keppni
sigraði sveit Valtýs einnig með 960
stigum, í 2. sæti varð sveit Birgis
Björnssonar með 941 stig og í 3ja
sæti varð sveit Þorsteins Jóhanns-
sonar með 896 stig.
Síðasta keppni félagsins á þessu
starfsári verður þriggja kvölda tví-
menningur sem jafnframt er firma-
keppni.
Mjög öflug starfsemi hefur verið
hjá félaginu í vetur.
Islensk tunga
,M þegja
eins og heilt
málleysingjahæli“
Seðlatætari og sukkari.
völd að láta þar til skarar skríða.
Og eru til samsvarandi lög þar um.
Gaman væri að fá svar lögfróðra
manna.
Nokkur slanguryrði
Þegar slangurorðabókin kom út
báðu umsjónarmenn hennar les-
endur að tína saman slanguryrði
sem þeir rækjust á og senda.
Það er orðinn kækur hjá mér að
skrá niður slik orð sem ég sé eða
heyri. Hér koma nokkur þeirra:
Fyrst nefni ég orðtakið að þegja
eins og heilt málleysingjahæli.
Þetta kannast ég við frá fornu fari
og hygg að hafi komist á prent í
Stéttabaráttunni sem Kommúni-
staflokkur íslands ml. gaf út á
síðasta áratug.
f bók Guðmundar Haraldssonar,
Sögur og Ijóð, sem út kom í Reykja-
vík 1971, hef ég rekist á nokkur orð
sem mér er ekki kunnugt um að séu
i orðabókum.
Orðið róbinn notar Guðmundur
um getnaðarlim. Orðtakið að allt
gangi í stílnum kemur þar líka fyr-
ir og sýnist mér merkingin vera að
allt gangi í haginn.
Á blaðsíðu 18 kemur fyrir orðið
verelsi að sjálfsögðu í merkingunni
herbergi. Þá má nefna nafhorðið
snæðingur og að taka til snæðings.
í smáauglýsingu í DV 28. feb. sl.
var auglýstur til sölu bíll sem eyddi
talsvert miklu bensíni. Seljandinn
var heldur ekkert að leyna þessum
ókosti bílsins og notaði um hann
þessi tvö orð: •seðlatætari og sukk-
ari.
Að lokum langar mig að minnast
á orð sem ég rakst á í ritgerð sem
ég las nýlega. Höfundurinn er
unglingur. Þar var notað orðið spé-
legur um skemmtilegt ljóð eftir
Þórarin Eldjárn: „Tvö sérlega spé-
feg kvæði...“
Gaman væri að heyra hvort ein-
hverjir kannist við þessi orð.
Látum þessu síðan lokið að sinni.
í síðasta þætti urðu pínulítil mis-
tök. Ljóðlína sem ég vitnaði til og
er eftir Sigurð Grímsson breyttist
í millifyrirsögn sem hún alls ekki
átti að vera. Að auki var hún ekki
kórrétt, orðið ég á að vera eg.
í sömu grein gerði ég að umtals-
efni tvo menn sem hafa þann leiða
kæk að vera að ráðskast með ann-
að fólk og geta illa séð það í friði.
Ég nafngreindi annan en ekki
hinn.
Einhveijir lesendur fóru að velta
vöngum yfir því hver hinn maður-
inn var og ónefndur hringdi i mig
og spurði hvort ég hefði átt við
flugmálastjóra; lýsingin ætti nefni-
lega alveg við hann.
Ég verð því að upplýsa að ég'
hafði í huga Reagan Ameríkufor-
seta. Hitt er svo annað mál að
eflaust og því miður getur lýsingin
átt við um enn fleirí menn. Og þá
ber að hafa í huga að konur eru
menn.
En nú er ég líklega á leiðinni út
fyrir mörk málfræðinnar.
Lögbann á nafn
Nýlega var opnaður veitinga-
staður í Keflavík og heitir hann
því ófrumlega nafni Starlight.
Að vísu gengur staðurinn undir
nafninu Surtshellir enda sækja
hann mikið svartir menn í þjónustu
ameríska hersins. Ekki veit ég
hvort það nafn er sprottið af kvn-
þáttafordómum. En hitt er víst satt
að yfirvöld í Keflavík hafa farið
fram á lögbann á Starlight vegna
nafnsins.
Ekki veit ég hvort sú krafa muni
ná fram að ganga. Ég held að eng-
in lög séu til í landinu sem banni
mönnum að láta fyrirtæki sín heita
erlendum nöfnum.
Ég hef sagt. það áður og segi það
enn að ég er andsnúinn því að
þvinga menn með lagasetningu til
að virða móðurmál sitt. Geri menn
það ekki af eigin hvötum þá er or-
Eiríkur Brynjólfsson
sökin önnur og meiri en svo að
lagasetning bæti þar úr.
Þegar ég svo sit hér og skrifa
þessi orð berst mér í hendur blað
þar sem nýjustu fréttir málsins eru
raktar. Nú hefur Starlight fengið
nafnið Glaumberg. Þessa breytingu
gerði eigandi staðarins eftir kröfu
frá bæjarfógetanum í Keflavík.
Bæjarfógetinn vitnar til laga um
leyfisveitingar fyrir rekstri vín-
veitingahúsa en þar er það skilyrði
sett að nafn á fyrirtæki og/eða at-
vinnustarfsemi falli að hljóðkerfi
og beygingum í íslensku máli. Það
fylgir fréttinni að ýms veitingahús
hafi farið kringum lögin með því
að reka skemmtistaði með erlend-
um nöfnum i skjóli íslenskra fyrir-
tækja. Þannig hugðist eigandi
Starlights reka staðinn í skjóli fyr-
irtækisins Veislu. Mér sýnist þó
óumdeilt að áður tilvitnuð lög setja
undir þann leka þar sem þar er
tekið fram að um sé að ræða „fyrir-
tæki og/eða atvinnustarfsemi".
En mér er spurn: Hvað um aðra
starfsemi, s.s. verslanir? Ætla yfir-