Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1986, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1986, Blaðsíða 40
40 DV. LAUGARDAGUR 3. MAÍ 1986. Messur Guðsþjónustur í Reykjavíkurprófastsdæmi sunnu- daginn 4. maí 1986. Bænadagurinn. Árbæjarprestakall: Messa í safnað- ' arheimili Árbæjarsóknar kl. 11. Ath. breyttan messutíma. Organisti Jón Mýrdal. Sr. Guðmundur Örn Ragn- arsson. Áskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Börn úr barnastarfi Grensáskirkju koma í heimsókn. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson. Breiðholtsprestakall: Messa í Breið- holtsskóla kl. 14. Séra Helga Soffía Konráðsdóttir messar. Sr. Lárus Halldórsson. Bústaðakirkja: Guðsþjónusta kl. 14. Lesari Dagmar Gunnlaugsdóttir. Organisti Guðni Þ. Guðmundsson. Sr. Ólafur Skúlason. Digranesprestakall: Guðsþjónusta í ‘3* Kópavogskirkju kl. 14. Sr. Þorbergur Kristjánsson. Dómkirkjan: Messa kl. 11. Bænadag- ur. Sr. Agnes M. Sigurðardóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Þóri Stephensen. Fella- og Hólakirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Ath. breyttan messutíma. Les- arar: Gunnar Petersen framkvæmda- stjóri og Þórður Eydal Magnússon prófessor. Organisti Guðný Margrét Magnúsdóttir. Sr. Hreinn Hjartar- scn. Grensáskirkja: Sunnudagur: Börnin fara í heimsókn til Áskirkju. Lagt af stað frá Grensáskirkju kl. 10.40. Messa, kl. 14. Aðalfundur Grensás- sóknar eftir messu. Biblíulestur þriðjudag kk 20.30. Séra Halldór S. Gröndal. Elliheimilið Grund: Guðsþjónusta kl. ^ 10. Sr. Árelíus Níelsson. Hallgrímskirkja: Laugardagur: Fé- lagsvist í safnaðarsal kl. 15. Sunnu- dagur: Messa kl. 11. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Aðalfundur List- vinafélags Hallgrímskirkju kl. 15.30. Messa kl. 17 þar sem kynntir verða nýir sálmar og sálmalög. Sr. Karl Sigurbjörnsson. Þriðjudagur: Fyrir- bænaguðsþjónusta kl. 10.30. Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr. Karl Sigurbjörnsson. Háteigskirkja: Messa kl. 11. Sr. Tóm- as Sveinsson. Kaffisala kvenfélags- ins verður í Domus Medica kl. 3. Kársnesprestakall: Guðsþjónusta í , Kópavogskirkju kl. 11 árdegis. Sr. Árni Pálsson. Langholtskirkja: Guðsþjónusta kl. 14. Prestur sr. Pjetur Maack. Organ- leikari Jón Stefánsson. F'járöflunar- kaffi til eflingar minningarsjóði frú Ingibjargar Þórðardóttur verður í safnaðarheimilinu kl. 15. Sóknar- nefndin. Laugarneskirkja: Messa kl. 14. Mánudagur: Fundifr í kvenfélagi Laugarnessóknar kl. 20. Þriðjudag- ur: Bænaguðsþjónusta kl. 18. Altar- isganga. Fimmtudagur: Uppstign- ingardagur, messa kl. 14. dagur aldraðra. Friðgeir Grímsson verk- fræðingur prédikar. Halldór Vil- helmsson syngur einsöng. Öldruðum boðið í kafff eftir messu. Sóknar- prestur. Neskirkja: Guösþjónusta kl. 11 árd. Ath. breyttan tíma. Einsöngvari - Magnús Jónsson. Orgel og kórstjórn ~ Reynir Jónasson. Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson. Þriðjudagur: Opið hús fyrir aldraða kl. 13 17. Miðviku- dagur: Fvrirbænamessa kl. 18.20. Sr. Guðmundur Oskar Ólafsson. Fimmtudagur uppstigningaidagur: Guðsþjónusta kl. 11. (Ath. breyttan tíma.) Sr. Frank M. Halldórsson. Fríkirkjan í Reykjavík: Guðsþjón- usta, skírn og altarisgánga kl. 14. Ræðuefni: Þar sem kærleikurinn á heima. Fríkirkjukórinn syngur. Söngstjóri og organleikari Pavel Smid. Aðalfundur * safnaðarins að loknu embætti. Sr. Gunnar Björns- son. Fríkirkjan í Hafnarfírði: Barnasam- koma kl. 10.30. Rætt um væntanlegt vorferðalag. Guðsþjónusta kl. 14 á degi aldraðra í söfnuðinum. Að lok- inni guðsþjónustu býður kvenfélagið ^>»eldra safnaðarfólki til kaffisamsætis í Góðtemplarahúsinu. Sr. Einar Ey- jólfsson. Kirkja Óháða safnaðarins: Guðs- þjónusta kl. 14. Organisti Heiðmar Jónsson. Séra Þórsteinn Ragnars- son. Eyrarbakkakirkja: Messa kl. 13. Ferming. Sóknarprestur. Keflavikurkirkja Guðsþjónusta kl. 14.00. Sverrir Guð- mundsson syngur einsöng. Systrafé- lagið annast kaffisölu í Kirkjulundi eftir messu. Allur ágóði rennur í líknarsjóð kirkjunnar. Sóknarprestur. Tapað - Fundið Varstu í Kreml miðvikudags- kvöldið 30. apríl? Tókstu kannski svarta gúmmítösku í misgripum? 1 töskunni var t.d. blautur sundbolur, handklæði og snyrt.itaska. Vertu svo vinsamlegur að koma töskunni í Kreml eða á 1 DagblaðiðV ísi. 80 ára afmæli Næstkomandi mánudag, 5. maí, verður áttræður Karl Sveinsson, leigubílsstjóri á Hreyfli, Njörvasundi 9, Reykjavík. Hann og kona hans, Anna Bjarnadóttir, taka á móti gest- um í samkomusal Hreyfils að Fells- múla 26 sunnudaginn 4. maí kl. 15.00-18.00. Ferðalög Ferðafélag ísiands Myndakvöld. Síðasta myndakvöld vetrarins verður i Risinu, Hverfis- götu 105 þriðjudaginn 6. maí kl. 20.30 stundvíslega. Fimm ferðir verða kynntar í máli og myndum. 1) Vest- firðir-hringferð (ferð nr. 9): Salbjörg Óskarsdóttir. 2) Snæfell Lónsöræfi Hoffellsdalur (ferð nr. 11): Sæ- mundur Aðalsteinsson. 3) Hval- vatnsfjörður - Þorgeirsfiörður (ferð nr. 22): Tryggvi Halldórsson. 4) Eyja- fjarðardalir (ferð nr. 21): Baldur Sveinsson. 5) Sprengisandur - Skagafjörður Kjölur (1.-4. ág.): Ólafur Sigurgeirsson. Þetta er kjörið tækifæri til þess að sjá og heyra hvernig tilhögun ferða Ferðafélags- ins er í göngu- og ökuferðum. Allir velkomnir félagar og aðrir. Aðgang- ur kr. 50.00. Ferðir um hvitasunnu (16.-19. maí) 1) Öræfajökull. Gist í Skaftafelli, í tjöldum. 2) Skaftafell - þjóðgarður. Gist í tjöldum. 3) Þórsmörk. Gist í Skagfjörðsskála. 4) Snæfellsnes - Snæfellsjökull. Gist á Arnarstapa. 5) Landmannalaugar. Gistí sæluhúsi F.í. 6) Skagafjörður - Drangey - Málmey. Gist í húsi. Ferðir um hvíta- sunnu eru fjögurra daga. Pantið tímanlega. Reykjavík 200 ára - Réttarholts- skóli 30 ára f tilefni 200 ára afmælis Reykjavíkur og 30 ára afmælis Réttarholtsskóla efna starfsfólk og nemendur til sýn- ingar í skólanum í dag, 3. maí, þar sem fjallað verður um ýmsa þætti er snerta daglegt hf í Réttarholtsskóla og Reykjavík. Skólinn verður opnaður klukkan 13 en klukkan 13.30 verður sýningin formlega opnuð og lýkur henni klukkan 18.00. Allan tímann munu núverandi og fyrrverandi nemendur sjá um fjölbreytta dagskrá skemmti- atriða, m.a. verður boðið upp á: hópreið nemenda frá Fáksheimili að Ymislegt Snæfellingafélagið í Reykjavík Mörg undanfarin ár hefur skemmti- nefnd Félags Snæfellinga og Hnapp- dæla gengist fyrir því að bjóða eldri héraðsbúum til sameiginlegrar kaffi- drykkju. Hafa þessar samkomur verið mjög vel sóttar. Að þessu sinni verður kaffiveislan haldin í hinu nýja félagsheimili Sóknar að Skip- holti 50a sunnudaginn 4. maí nk. kl. 15. Til skemmtunar verður m.a. að kór félagsins syngur nokkur lög und ir stjórn Friðriks Kristinssonar. Kórinn mun í vor fara i söngferð á Snæfellsnes og halda tónleika 10. maí á Hellissandi og í Breiðabliki. Starfsdagur í Stjórnarráðinu færður fram Ákveðið hefur verið að færa starfs- dag í Stjórnarráðinu fram um klukkutíma yfir sumarmánuðina. Verða því skrifstofur Stjórnarráðs Islands opnar kl. 8.00 til kl. 16.00 mánudaga til föstudaga frá 1. maí til 30. september 1986. Vorhátíð Hagaskóla Vorhátið Hagaskóla verður haldin sunnudaginn 4. maí og hefst kl. 14. 00. Sýnd verða kennnslugögn og sýn- ishorn af vinnu nemenda i ýmsum greinum. Hátíðardagskrá verður í samkomusal, en þar verða flutt leik- ritin Konur og þrír karlar og Grænar baunir, skáldin Þórarinn Eldjárn og Pétur Gunnarsson verða kynnt og fimleikasýning verður í lokin. HALLDÖRA TIIORODDSEN OG BÁRA GUÐMUNDSDÓnrnR íGdkrfBotg 24. apríl-5. maí Vefjarlistasýning í Gallerí Borg Nú stendur yfir í Gallerí Borg við Austurvöll vefjarlistasýning Báru Guðmundsdóttur og Halldóru Thor- oddsen. Á sýningunni eru ellefu' vefnaðarverk. Þetta er síðasta sýn- ingarhelgin, en hún stendur til 5. maí. Sýningin er opin virka daga frá kl. 10.00-18.00 og um helgar frá kl. 14.00-18.00. Akranes - Ný umferðarljós Þann 26. apríl sl. var kveikt á um- ferðarljósum á gatnamótum Kirkju- brautar/Kalmansbrautar og Still- holts. Ljós þessi eru tveggja fasa og umferðarstýrð að hluta til, þannig að málmskynjarar eru í Stillholti, rétt við gangbraut þar yfir. Bílar sem koma eftir Stillholti geta ,,kallað“ á grænt ljós með því að aka inn á skynjarana. Eins geta fótgangendur ,,kallað“ á grænt ljós yfir Kirkju- braut og Kalmansbraut með því að ýta á hnapp sem er á umferðarljósa- staurum. Sé engin umferð á Stillholti og enginn fótgangandi, sem ýtt hefur á hnapp fyrir leið sína þar yfir, logar stanslaust grænt ljós móti ökumönn- um sem aka eftir Kirkjubraut eða Kalmansbraut. Réttarholtsskóla, hljóðfæraleik og söng, sýningu á búningum íþróttafé- laganna í Reykjavík og klæðnaði Reykvíkinga síðastliðin 200 ár, leik- rit, danssýningu, ratleik, íþrótta- keppni o.m.fl. Ennfremur gefst kostur á að skoða vinnu nemenda, svo sem handavinnu, keramik, teikn- ingar, vinnubækur og ritgerðir. Veitingar verða á boðstólum. Starfrækt verður hverfisútvarp í skólanum á meðan á sýningu stend- ur. Starfsfólk og nemendur Réttar- holtsskóla hvetja hverfisbúa, gamla nemendur og aðra velunnara skólans til að fjölmenna. Málfreyjusamtökin Kappræðufundur verður haldinn sunnudaginn 4. maí kl. 13.30 á Hótel Esju milli málfreyjudeildarinnar Bjarkarinnar Reykjavík og mál- freyjudeildarinnar Emblu Stykkis- hólmi. Umræðuefni: „Heimilið er hornsteinn þjóðfélagsins". Allir vel- komnir. Ljóðabók eftir Sjón Nýlega kom út ljóðabók eftir skáldið Sjón. Nefnist hún „Leikfangakastal- ar, sagði hún, það er ekkert til sem heitir leikfangakastalar“. Þetta er áttunda bók höfundar en áður hafa komið út „Reiðhjól blinda manns- ins“ (1982), „Sjónhverfingabókin" (1983) og „0H!“ (1985) svo dæmi séu nefnd. Skáldið er einnig þekkt fyrir myndlist og brúðugerð. I þessari nýju bók eru ellefu ljóð sem ort voru á síðasta ári í þremur borgum, London, París og Reykjavík. Viðfangsefnin eru því mótuð af því. Bókin er gefin út í takmörkuðu upplagi. Útgefandi er „Einhver djöfullinn - Medúsa" og er bókin til sölu í Bókabúð Máls og menningar, Gramminu og Bóka- verslun Sigfúsar Eymundssonar. Atvinnumálaráðstefna á Suður- nesjum Atvinnumálaráðstefna verður haldin í Stapa, Ytri-Njarðvík, laugardaginn 3. maí og hefst hún kl. 13.00. Á ráð- stefnunni verður meðal annars fjall- að um nýtingu sjávarafla, rannsóknir um líftækni í fiskiðnaði, atvinnumál og bæjarfélög á Suður- nesjum, þjónustu og markaðsmál, þjónustu Iðntæknistofnunar, Hita- veitu Suðurnesja og tengsl hennar við atvinnulífið og skipulagsmál Suðurnesja í framtíðinni. Þingmenn kjördæmisins eru sérstaklega boðað- ir. Vorfagnaður Átthagasamtaka Héraðsmanna verður í Golfskálanum 3. maí og hefst kl. 22. Tríó Bjarna Helgasonar skemmtir ásamt íleiri góðum gestum. Fundir Rangæingafélagið í Reykjavík Rangæingafélagið í Reykjavík held- ur aðalfund sinn miðvikudaginn 7. maí að Hallveigarstöðum kl. 8.30. Fríkirkjusöfnuðurinn í Reykja- vík Aðalfundur safnaðarins verður hald- inn í Fríkirkjunni í Reykjavík sunnudaginn 4. maí kl. 15.00, strax að lokinni messu. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. Aðalfundur Landssambands ís- lenskra vélsleðamanna Aðalfundur Landssambands ís- lenskra vélsleðamanna (LÍV) var haldinn í Kerlingarfjöllum þann 12. apríl sl. Um 200 vélsleðamenn voru þar mætt.ir hvaðanæva af landinu. Þetta er i fyrsta sinn sem fundur þessi er haldinn í Kerlingarfjöllum og er mjög mikil ánægja með þann stað. Húsin eru hin vistlegustu, að- staða öll mjög góð óg móttökur „Kerlingarfjallamanna" alveg frá- bærar. Stjórn LÍV vill hér með nota tækifærið og færa þeim bestu þakkir fyrir. Það er einlæg ósk LIV að við fáum oftar að njóta aðstöðu þeirra í Kerlingarfjöllum. Þessa fundarhelgi var hið besta veður og skartaði „Vet- ur konungur" sínu fegursta. Stjórn- arskipti urðu á fundinum og lét athafnasöm stjórn norðanmanna, undir forystu Vilhelms Ágústssonar, af störfum eftir tveggja ára farsælt starf. Ný stjórn var kosin og skipa hana sunnanmenn sem sitja þá við stjórnartaunia næstu tvö árin. Nýju stjórniná skipa: Sigurjón Pétursson formaður, Gylfi Þ. Sigurjónsson gjaldkeri, Kristinn Pálsson ritari, Sigurjón Þór Hannesson og Eggert Sveinbjörnsson meðstjórnendur. I Kerlingarfjöllum voru einnig sýndar ýmsar nýjungar á sviði öryggis- og tæknimála sem henta vélsleðamönn- um mjög vel. Flestir fóru í ferðir um fjöllin og nágrenni, skoðuðu Hveradalina og frábært útsýni af Snækolli og Hofsjökli. Að morgni sunnudagsins 13. apríl fóru menn að halda heim á leið en um mjög mis- langan veg var að fara. Kvenfélag Laugarness Fundur verður mánudaginn 5. maí kl. 20 í safnaðarheimili Laugarnes- kirkju. Dagskrá: Heimsókn til Kvenfélags Breiðholts 13. mai og væntanleg ferð í Islensku óperuna 16. maí. Kvenfélag Kópavogs heldur fund fimmtudaginn 8. mai kl. 20.30 (uppstigningardag) í félags- heimili Kópavogs. Gestir á fundinum verða konur úr Kvenfélagi Laugdæla og kvenfélagi í Grímsnesi, Árnes- sýslu. Félagsfundur Skýrslutæknifé- lags Islands Skýrslutæknifélag íslands boðar til félagsfundar í Norræna húsinu þriðjudaginn 6. mai nk. kl. 14.30. Efni: Sjálfvirkni og upplýsingakerfi á skrifstofum. Miklar breytingar munu eiga sér stað í upplýsinga- vinnslu á næstkomandi árum. Aukin tækni við úrvinnslu gagna mun breyta starfsháttum á skrifstofum. Lýst verður þróun þeirri er átt hefur sér stað í notkun upplýsinga og fiall- að um þau skrifstofukerfi, sem fáanleg eru. Nemendur í tölvunar- fræði H.I., sem hafa verið á nám- skeiði um sjálfvirkni og upplýsinga- kerfi á skrifstofum, undir leiðsögn dr. Jóhanns P. Malmquist, sjá um efni fundarins óg halda fyrirlestra. Umræður og fyrirspurnir í lok fyrir- lestra. Kaffiveitingar í fundarhléi. Kaffisala Kvenfélag Hátéigssóknar verður með sitt árlega veislukaffi sunnudaginn 4. maí kl. 15. Allur ágóði rennur til altaristöflukaupa. Síðasti fundur vetrarins verður þriðjudaginn 6. maí kl. 20.30 í Sjó- mannaskólanum. Kynntar verða snyrtivörur og sumarferðalagið rætt. Fjáröflunarkaffi Fjáröflunarkaffi til eflingar Minn- ingarsjóði frú Ingibjargar Þórðar- dóttur verður í Safnaðarheimili Langholtskirkju sunnudaginn 4. maí kl. 15.00. Basarar Basar Kattavinafélagsins verður haldinn að Hallveigarstöðum sunnudaginn 4. maí kl. 14. Allur ágóði rennur í húsbyggingu félags- ins. Tónlist Tónleikar í Norræna húsinu Dóra Reyndal sópransöngkona og Vilhelmína Ólafsdóttir píanóleikari halda tónleika í Norræna húsinu næstkomandi mánudagskvöld, þann 5. maí kl. 20.30. Á efnisskránni verða: Liederkreis opus 39 eftir Robert Schuman, La Courte Paille eftir Francise Poulenc og Quatre Chan- sons de Jeunesse eftir Claude Debussy."Ðóra hóf nám við Tónlist- arskólann í Reykjavík og var um þriggja ára skeið við söngnám er- lendis. Hún lauk kennaraprófi við Söngskólann í Reykjavík 1980 og hefur starfað sem söngkennari við Söngskólann og Kennaraháskóla ís- lands. Dóra hefur tekið þátt í mörgum óperu- og ljóðanámskeiðum, aðallega í Vín, og síðastliðin þrjú sumur hjá Lore Fisher í Weimar. Hún hefur komið fram á mörgum tónleikum hérlendis og erlendis. Vil- helmina Ólafsdóttir lauk einleikara- og píanókennaraprófi frá Tónlistar- skólanum í Reykjavík árið 1975. Að loknu námi hefur Vilhelmína sótt einkatíma við Tónlistarháskólann í Hamborg og hjá Árna Kristjánssyni auk þess að sækja hin ýmsu nám- skeið í einleik og undirleik. Vil- helmína starfar nú sem píanókennari og undirleikari við Nýja tónlistar- skólann. RÉTTARHOLTSSKÓLI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.