Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1986, Page 7
DV. MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 1986.
7
Atvinnumál Atvinnumál Atvinnumál Atvinnumál
Yfirtaka heimamenn
Þörungavinnsluna?
- eiga nú í samningum við fjámiálaráðuneytið
„Það hefði ekki þurft að koma til
gjaldþrots, það hefur tekið alltof lang-
an tíma að leysa vandamál Þörunga-
vinnslurmar. En ég held að fyrirtækið
verði ekki lagt niður, það er auðvitað
eðlilegast að verksmiðjan verði leigð
heimamönnum, eins og Alþingi sam-
þykkti í fyrra,“ sagði Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra, vegna
þeirrar ákvörðunar stjómar Þömnga-
vinnslunnar að fyrirtækið verði tekið
til gjaldþrotaskipta.
„Það er auðvitað besta leiðin að
heimamönnum verði leigð verksmiðj-
an. En því boði hefur bara ekki verið
sinnt fram áð þessu,“ sagði Albert
Guðmundsson iðnaðarráðherra.
„Það er búið að reka þetta fyrirtæki
í strand. Sverrir Hermannsson leyfði
þeim að reka fyrirtækið með tapi. En
það er ekki hægt að ganga endalaust
á ríkissjóð. Framkvæmdastjórinn
heldur því fram að hægt sé að verða
ríkur á að reka verksmiðjuna. En ég
spyr þá, hvað hefur hann verið að
gera fram að þessu? Ég efast um að
hægt sé að reka þetta fyrirtæki með
hagnaði, en best er að heimamenn
komist að því sjálfir með því að taka
verksmiðjuna á leigu.
Við erum ekki að berjast gegn þessu
fólki, við erum áð berjast fyrir fólkið.
Þess vegna skil ég ekki í þessum skeyt-
um á okkur fiá framkvæmdastjóran-
um. Kannski hann sé að vinna sig í
áliti heima fyrir,“ sagði Albert.
„Nú erum við heimamenn að semja
um leigu á verksmiðjunni við íjár-
málaráðuneytið," sagði Kristján Þór
Kristjánsson, framkvæmdastjóri Þör-
ungavinnslunnar. „Albert valdi gjald-
þrotsleiðina og úr því sem komið er
er það gott. Við heimamenn munum
nú byrja á rekstrinum upp á nýtt, það
var ekki hægt að halda rekstrinum
áfram með alla skuldasúpuna. Skuld-
imar nema alls 120 milljónum. Með
þvi að gera breytingar á rekstrinum
er ég viss um að við getum rekið verk-
smiðjuna með hagnaði. En til þess
þurftum við að losna við skuldimar,"
sagði Kristján.
- En hvers vegna vomð þið ekki
búnir að taka reksturinn á leigu fyrr,
eins og ykkur stóð til boða?
„Það hefði í raun engu breytt, það
var ekki hægt að reka fyrirtækið með
allar þessar skuldir," sagði Kristján.
-KB
Þörungavinnslan: rekin áfiram af heimamönnum?
Orðsending frá
Lífeyrissjóði
verzlunarmanna
Þessi auglýsing er birt til þess að kynna sjóðfélögum Lífeyrissjóðs verzl-
unarmanna áhrif nýsamþykktra laga um Húsnæðisstofnun rikisins á
lánsrétt þeirra hjá sjóðnum og Húsnæðisstofnun.
Stjórn sjóðsins hefur tekið þá ákvörðun að verja 55% af ráðstöfunarfé sjóðsins til kaupa á
skuldabréfum Húsnæðisstofnunar frá 1. janúar 1987. Þessi ráðstöfun mun tryggja sjóðs-
félögum hæsta mögulega lánsrétt hjá Húsnæðisstofnun frá og með næstu áramótum.
Vakin er athygli á að ekki er unnt að tryggja jafnháan lánsrétt á tímabilinu 1. september
1986 til 31. desember 1986, eins og frá 1. janúar 1987, en frá þeim tíma er fullur lánsrétt-
ur tryggður. Því bendir stjórn sjóðsins væntanlegum lántakendum, sem hyggjast fá
hámarkslán, á að fresta lántöku fram yfir nk. áramót. Til þess að tryggja sjóðsfélögum há-
markslánsrétt hjá Húsnæðisstofnun var ekki hjá því komist að endurskoða lánareglur
sjóðsins.
Eftirfarandi lánareglur munu því gilda frá og með
1. maí 1986:
1. Lánsupphæð kr. 150.000.
2. Lánstími 3-5 ár að vali lántakanda.
3. Tveir gjalddagar pr. ár.
Lántökuskilyröi:
4. Þriggja ára greiðslur til lífeyrissjóðs.
5. Fimm ár liðin frá síðustu lántöku.
6. Ekki um lánsrétt aö ræöa hjá Húsnæðisstofnun.
Þeir aðilar sem lagt hafa inn lánbeiðni hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna
fyrir 1. maí 1986 fá hana afgreidda samkvæmt eldri lánareglum óski þeir
þess.
Upplýsingar og aðstoð við þá sjóðfélaga sem hyggja á lántöku hjá Hús-
næðisstofnun verða veittar á skrifstofu sjóðsins á 4. hæð í Húsi verzlunar-
innar.
Alþýðuflokkurinn.
iri 1 Jimönj
Alþýðuflokkurinn efnir til sumarferðar á ítölsku Rívíer-
una — Pietra Liqure — dagana 7. til 28. júlí.
Flogið verður í beinu leiguflugi til Genova.
Skoðunarferðir að vild til Monaco og Monte Carlo, Nice
og Cannes, Pisa, Genova, Portefino og ítalskt útileikhús
skoðað.
Ácetluð er heimsókn í stöðvar ítalska brceðraflokksins í
Genova.
Verð frá kr. 23-900.-
Fararstjóri: Guðlaugur Tryggvi Karlsson.
Allar frekari upplýsingar á flokksskrifstofunni, hjá far-
arstjóra og Ferðaskrifstofunni Terru, Laugavegi 28.
Fararstjóri: Guðlaugur
Tryggvi Karlsson.
örstutt á heimasíóðir Verdis.
Craxi: Formaður italska Al-
þýðuflokksins og forsætisráð-
hcrra ítaliu.