Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1986, Page 23
DV. MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 1986.
23
Tippað á tólf______Tippað á tólf______Tippað á tólf
Merseyúrslit
Eins og svo oft áður hafiia flest verð-
laun í ensku knattspyrnunni í borg-
inni Liverpool. Liverpool og Everton,
liðin írá Liverpool, haf'a oft verið nefhd
Mersey-liðin vegna árinnar Mersey
sem liðast um borgina. Nú er það
draumaúrslitaleikur fyrir aðdáendur
liðanna en næstkomandi laugardag
keppa liðin um F.A. bikarinn. Það er
ekki ofsögum sagt að allir íbúar
Liverpool halda uppá annað liðið.
Annaðhvort er innrétting húsanna blá
eða rauð. Enginn leyfir sér að vera
hlutlaus.
Leikurinn á laugardaginn verður
sýndur beint í íslenska sjónvarpinu
og hefst útsending klukkan 13.30 en
leikurinn sjálfur hefst klukkan 14.00.
í báðum liðunum er valinn maður í
hveiju rúmi og flestir eru leikmenn-
imir landsliðsmenn hinna ýmsu landa.
Þetta verður spennandi ieikur og gam-
an að sjá hvort Liverpool tekst að ná
að sigra tvöfalt. Ég get engu spáð urn
þennan leik. Úrslitin ráðast á laugar-
daginn.
Jan Mölby, danski landsliðsmaðurinn, hefur staðið sig mjög vel í vetur. Ef Liv-
erpool fær vítaspyrnu þá stígur hann fram og tekur hana.
Höfúm við gengið
til góðs?
Þetta er síðasti þátturinn Tippað á
tólf. Fyrsti þátturinn birtist 16. októb-
er síðastliðinn og hefur honum verið
haldið úti reglulega síðan. Margt frétt-
næmt hefur gerst á tipptímabilinu og
mun það helsta tínt til hér á eftir.
Getraunaárið 1985/86 er merkilegt
fyrir margra hluta sakir. Miklar og
oftast góðar breytingar hafa orðið.
Sala jókst mjög og vinningar voru því
hærri. Hlutur íþróttafélaga jókst einn-
ig. Tekinn var upp nýr kerfisseðill, 64
raða seðillinn og mæltist það vel fyrir.
Sá seðill reyndist leynivopn margra
tipparanna. Tölvutippseðlar voru
teknir í gagnið í febrúar og þó að sala
á þeim hafi verið frekar dræm, þá hef-
ur sala á þeim aukist jafnt og þétt.
Með auknum kerfum í tölvum mun
tölvutipp stóraukast.
Heildarsala fyrir tippárið 85/86 var
25.275.358 raðir. Þó má geta þess að
þessi tala er ekki pottþétt því margir
getraunasalar eiga eftir að skila af sér
uppgjöri. Talan á sennilega eftir að
hækka. Salan árið 1984/85 var 17.345.
902 raðir þarrnig að aukningin var 7.
929.456 raðir, eða tæpar átta milljónir
raða. Alls seldust raðir fyrir 94.782.592
krónur. Helmingurinn af þeirri upp-
hæð fer í pottinn. Það voru því 47.391.
296 krónur í pottinum í vetur. íþrótta-
félög fengu í sinn hlut 23.695.563
krónur til styrktar sinni starfsemi. Af
íþróttafélögunum varð knattspyrnu-
deild Fylkis söluhæst með rúmlega 2
milljónir raða seldar. Knattspyrnu-
deild Fram var í öðru sæti og knatt-
spymudeild KR í þriðja sæti.
Iþróttafélögin tóku sig saman fyrir
helgina 23.11. síðastliðinn og lögðu
áherslu á að selja meira en vant er.
Þá var slegið met er 1.470.824 raðir
seldust. Það gaf í pottinn 2.757.795
krónur. Stærstu vinningar voru eftir-
taldir. Stærsti vinningur var 1.172.382
krónur og er þá eingöngu átt við 1.
vinning. Sá vinningur kom 16. nóv-
ember. 22. febrúar fékk heppinn tippari
987.211 krónur í 1. vinning. Metsölu-
vikuna 23. nóvember fengu tveir
tipparar 965.225 krónur hvor. 23. mars
fékk tippari 839.345 krónur fyrir 1.
vinning. Aðrir vinningar vom lægri
en þó góðir margir.
Nú verður hlé hjá íslenskum get-
raunum hf. fram á haustið. Eftir bestu
heimildum er verið að kanna með
ýmsar leiðir til batnaðar hvað varðar
sölu á getraunaseðlum og hefur verið
skipuð nefhd til að kanna þau mál.
Einnig hafa tölvutippsgrúskarar verið
að hanna ný kerfi fyrir tölvur þannig
að auðvelt ætti að vera að tippa næsta
getraunaár.
Sprenging í tóKudeildinni
Mikil sprenging varð hjá tippurum
um síðustu helgi. Úrslit voru ekki
mjög óvænt og því komu fram 92
raðir með 12 rétta. Hver tólfa getúr
þvf 11725 krónur. 1408 ellefúr komu
fram og fær hver röð 328 krónur.
Þó eru þetta lágmarkstölur því
nokkrir söluaðilar getraunaseðla
eiga eftir að gera fullnaðarskil. Potú
urinn mun því sennilega hækka.
Potturinn var að þessu sinni krónur
1.540.524.
Breskir tipparar duttu í lukkupott-
inn um síðustu helgi. Ekki allir, en
nokkrir þeirra. Einungis níu marka
jafntefli komu fram þannið að tölu-
verða heppni þarf til að ná 24
punktum. Markajafntefli eru númer
6, 10, 14, 16, 29, 41, 49, 50 og 54.
Markalaus jafntefli em fjögur. Þau
eru númer 22, 25, 36 og 52. Næstu
vikumar verða leikir frá Ástralíu á
bresku getraunaseðlunum.
IBR _____________________ KRR
REYKJAVIKURMÓT
MEISTARAFLOKKUR
1. sætið
KR - FRAM
Fimmtudag kl. 20.30.
Á GERVIGRASINU í LAUGARDAL
Félög eldri borgara í Reykjavík og nágrenni.
Skemmtifundur í Sigtúni
fimmtudaginn 8. mai kl. 20.00.
Hljómsveitin Danssporið og Kristbjörg Löve leika og
syngja frá kl. 20.00. Samleikur á munnhörpu og gít-
ar. Aðalheiður og Árni. Vísnamót, Andrés Valberg.
Dansað til kl. 1 2. Eldri lögin hafa forgang. Sala að-
göngumiða hefst kl. 19.30 í Sigtúni og er húsið opnað
á sama tíma. Við eigum stefnumót í Sigtúni annað
kvöld.
Velkomin
a syningu i Sundaborg 11 (Sundahafnarmegin)
Við sýnum tjaldvagna, kerrur og sólstofur.
1986 Camplet á 13" dekkjum.
...
3 gerðir af ódýrum fallegum kerrum.
Sólstofur og fleira.
Gísli Jónsson og Co. hf.r
Sundaborg 11, sími 68-66-44.