Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1986, Síða 37
DV. MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 1986.
37,
Sviðsljós
Sviðsljós
Sviðsljós
Sviðsljós
Marilyn
sextug
Myndin sem hneykslaði
Hollywood
Frá Gizuri f. Helgasyni, fréttaritara
DV í Ziirich:
Andlitið sem milljónir manna dáð-
ust að er markað djúpum sporum.
Hálsinn og axlimar eru hmkkótt og
beinaber.
Þetta er niðurstaða manns, sem er
að gera því skóna, hvernig Marilyn
Monroe hefði litið út, ef hún hefði
lifað það að komast á eftirlaunaald-
urinn.
Alan Reingold tók sig til og bjó til
málverk'af gyðjunni sextugri, hvað
hann hefði betur látið ógert því það
hefur heldur betur gustað um hann
síðan.
Meðan hún var og hét.
Hollywood kærir sig ekki um að
menn geri lítið úr goðsögnum og því
hefur Reingold fengið hauga af
skammarbréfum og símhringingun-
um rignir yfir hann þar sem menn
mótmæla „óviðeigandi móðgun" við
minningu Marilyn.
Reingold telur myndina aftur á
móti afar trúverðuga. Hann var að-
eins 6 ára gamall þegar Marilyn lést,
vegna of stórs skammt af svefnlyfj-
um, 1962.
„Ég málaði hana eins og hún var
þegar hún dó en gerði hana síðan
ellilegri með því að bæta inn á
hrukkum og fellingum sem hljóta að
koma með tímanum," sagði hann.
„Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á
Marilyn. Ég hef séð allar kvikmynd-
irnar hennar og síðan rannsakaði ég
nákvæmlega allar þær ljósmyndir af
henni sem ég gat nálgast, áður en
ég byrjaði að mála hana.“
Marilyn er ekki sú eina sem hefur
hlotið slíka útreið hjá Reingold.
John F. kennedy, Farrah Fawcet og
Jackie Onassis hafa líka verið fest á
léreftið.
Þrátt fyrir öll mótmælin hefur
hann fengið hátt kauptilboð í „Mari-
lyn ömmu“ - hann vill hins vegar
ekki segja hversu hátt.
Draugur eða draumadís: Á bak við hrukkurnar má enn þekkja svip hinnar
frægu Marilyn Monroe.
Diana prinsessa
kraup fyrir
spönsku konungs-
hjónunum
Frá Gizuri f. Helgasyni, fréttaritara DV í Zurich:
Meira að segja prinsessan sjálf kraup. Við komu spánska konungsins,
Juan Carlos I., og eiginkonu hans heilsaði Diana hinni spönsku drottn-
ingu, Sofiu, með djúpri hnébeygju. Spönsku konungshjónin voru í fjögurra
daga opinberri heimsókn í Bretlandi. Þetta er fyrsta heimsókn spánsks
konungs til Breta í 81 ár.
Carlos flutti ræðu í báðum deildum breska þingsins og er fyrstur þjóð-
höfðingja til að öðlast slíkan heiður.
Diana og Charles bjóða konungshjónin velkomin.
Gaf líkama sinn
í þágu vísindanna
Samanta Fox, ein frægasta fyrirsæta
Breta, hefur eftirlátið vísindunum
líkama sinn til rannsókna. Þetta er
ekki fyrirheit um að hinir lærðu
menn fái líkamann að henni látinni
- öðru nær. Samanta hefur þegar
staðið við sinn hlut og er þó enn í
fullu fjöri.
Svo er mál með vexti að breska
sjónvarpið lét gera fræðslumynd um
ýmsa þá hluti sem fólk hræðist öðru
fremur. í myndinni eru viðbrögð
manna við hryllingnum skoðuð og
skilgreind vísindalega.
Þannig er ástatt fyrir Samöntu að
henni stendur nær óbærileg ógn af
loðnum kóngulóm. Samanta varð
góðfúslega við beiðni sérfræðing-
anna um að mæla viðbrögð hennar
í návígi við loðnar kóngulær.
Tilraunin hófst á því að kónguló
af tegundinni tarantula var sett inn
í sama herbergi og fyrirsætan.
Kóngulóin var geymd í öruggu búri
og Samanta fullvissuð um að hún
þyrfti ekkert að óttast. Þrátt fyrir
allt öryggið rauk púlsinn hjá ung-
frúnni upp í 140 og adrenalínið jókst
stórum í blóðinu. Hvort tveggja rekja
vísindamennimir til ósjálfráðs und-
irbúnings bardaga.
En af hverju þola sumir að gæla
við loðnar kóngulær meðan aðrir
verða æfir við að sjá þær? Það er
alveg sama hvernig niðurstöðurnar
eru lagðar sundur og dregnar saman.
Við því er ekkert svar.
Samanta Fox - þolir ekki loðnar kóngulær.
Ólyginn
sagði ...
Julian Lennon
getur hins vegar búist við
góðum partíum á næstunni
eins og aðrir hrútar þetta vor-
ið. En það gildir víst sama og
oft áður um slíka atburði að
mikilvægt er að ganga hægt
um gleðinnar dyr ef ekki á illa
að fara aö lokum.
Marie Osmond
hefur látið huggast eftir skiln-
jaðinn við eiginmann sinn,
ÍSteve Craig. Síðustu mánuði
hefur hún búfð með syni sín-
um, Steve, og fyrir skömmu
fann hún enn einn af Steve-
gerðinni - Steve Yong sem
er amerísk fótboltahetja af
klassísku gerðinni. Ekki spillir
að hann er mormóni eins og
Osmondarnir og fullyrðir að
framhjáhald verði alls ekki á
dagskránni a< sinni hálfu and-
stætt viö Steve Craig sem féll
fyrir kvenmannsbúkum í
hverju skrefi.
Michael Jackson
er að sögn hinna fróðu til-
búinn i ástarævintýri. Meyjan
Jackson finnur einhverja
ómótstæðilega elsku þetta
vorið og byrjar nýtt lif. Þetta
>ýðir að annaðhvort nælir
hann f Liz sina aftur frá þeim
heilsugóða Hamilton eða finn-
ur aðra brúklega og þá jafnvel
eitthvað yngri að árum.
Mick Jagger
neitar ennþá að giftast bams-
móður sinni, Jerry Hall, þrátt
fyrir mikinn þrýsting úr öllum
áttum. „Þetta er gott i núver-
andi formi,“ segir sá gamli
og bætir viö: „Það virðast all-
ir hafa mun meiri áhuga á
giftingu okkar en við sjálf. Er-
uð þið ekkert að þreytast á
sömu úreltu spurningunni
ámm saman?“ Svo mörg voru
þau orö.