Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1986, Qupperneq 40
Frjálst,óháö dagblað
Simi: 52866
Þegar liggja fjölmörg kaupskip við landfestar vegna verkfallsins. Öll skip Skipaútgerðar ríkisins hafa
þegar stöðvast. Vöruskorts er farið að gæta úti á landsbyggðinni og slæmar horfur með áburðarflutn-
inga til bænda. DV-mynd GVA
68^78 58
Hafir þú ábendingu eða vitn-
eskju um frétt - hxingdu þá í
sima 687858.
Fyrir hvert fréttaskot, sem
birtist eða er notað í DV,
greiðast 1.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í
hverri viku greiðast 3.000
krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum
allan w^larhringj’nn,
Veðrið á morgun:
Slydduei á
Norður- og
Austuiiandi
Á morgun er spáð norðaustanátt
um allt land, víðast 4-6 vindstigum,
þ.e kalda eða stinningskalda. Á
Norður- og Austurlandi verða
slydduél og smáskúrir við suður-
ströndina.
Á Suðvestur- og Vesturlandi verð-
ur þurrt og víða léttskýjað. Hiti
verður nálægt frostmarki á Norður-
og Austurlandi en 3-7 stig á Suður-
og Vesturlandi. -S.Konn.
LOKI
Skyldu geislarnir
vera rauðir?
Vöruskorts
fariðað
gætaúti
á landi
Siglingar til og frá landinu munu
að mestu stöðvast i næstu viku ef
verkfall undirmanna á kaupskipunum
heldur áfram, að sögn Harðar Sigur-
gestssonar, forstjóra Eimskips.
Öll þrú skip Skipaútgerðar ríkisins
hafa þegar stöðvast. Að sögn Guð-
mundar Einarssonar hjá Skipaútgerð-
inni er þegar farið að bera á vöruskorti
úti á landi vegna stöðvunarinnar. Þá
eru horfurnar ekki góðar hvað varðar
áburðarflutninga út á land.
í vikulokin er búist við að 8 af 17
skipum Eimskips hafi stöðvast. Fjögur
skip skipadeildar Sambandsins stöðv-
uðust þegar í byrjun verkfallsins og
• eitt skip bætist i þann hóp í næstu
viku. Skipadeildin er nú með 9 skip á
sínum snærum, þar af eru 3 leiguskip.
Að sögn Ómars Jóhannssonar, fram-
kvæmdastjóri skipadeildar Sambands-
ins, er nú veruleg. hætta á að
dótturfyrirtæki Sambandsins, Iceland
Seafood, fari að vanta íreðfisk á
Bandaríkjamarkað. Það gæti skaðað
viðskiptasamböndin þar vestra.
Deiluaðilar eru ekki bjartsýnir á að
lausn sé í sjónmáli og er fyrirsjáanlegt
að verkfallið geti staðið yfir í nokkrar
vikur. Enginn fundur hefur verið boð-
aður í deilum farmannEinna. Tíma-
bundnu verkfalli skipstjóra lýkur á
morgun en verkfall undirmanna held-
ur áfram þar til deilan leysist.
-APH
t
i
i
i
i
i
i
i
t
t
t
Sælkerar kaupa
Fógetann
Veitingastaðurinn Fógetinn í Aðal-
stræti hefur verið seldur. Kaupendur
eru þau Peggy Friðriksdóttir og Einar
Óskarsson, sem að undanfómu hafa
rekið Sælkerann í Austurstræti.
Samkvæmt áreiðanlegum heimild-
um DV voru innréttingar og rekstrar-
lejdi Fógetans selt á 15,5 milljónir.
-EIR
i
Flotinn að stöðvast:
Ferjubakkamálið:
Enn óljóst um
dánarorsokina
Rannsóknarlögregla ríkisins lagði
fram í morgun kröfú um að 37 ára
Reykvíkingur yrði úrskurðaður í
gæsluvarðhald til 21. maí næstkom-
andi vegna rannsóknar á andláti 29
ára eiginkonu mannsins, Gunnhild-
ar Gunnarsdóttur, að Feijubakka 10
í gærmorgun. Dómari tók sér frest
þar til síðdegis í dag til að kveða
upp úrskurð.
Þau vom á skemmtistað á mánu-
dagskvöldið og á eftir buðu þau
þremur mönnum heim með sér. í
gærmorgun kl. 6.30 hringdi eigin-
maðurinn og bað um sjúkrabifreið
að Ferjubakka 10 og var konan flutt
á slysadeild Borgarspítalans. Hún
var látin þegar þangað var komið.
Eiginmaðurinn og gestir voru
teknir í varðhald og yfirheyrslui-
fóru fram yfir þeim hjá rannsóknar-
lögreglu ríkisins. Gestunum þremur
var sleppt lausum í nótt eftir yfrr-
heyrslu.
Krafan um gæsluvarðhald yfir eig-
inmanninum er til komin vegna þess
að dánarorsök er enn óljós. Við
krufhingu á líki konunnar kom ekk-
ert fram sem bendir til skýrra
dánarorsaka, Nánari rannsókn mun
fara fram á líkinu.
Rannsóknarlögreglan vinnur nú
að því að finna sönnun á dánaror-
sökum og leiða þannig í ljós með
hvaða hætti konan lést. Ákoma á
hálsi konunnar vekur ýmsar grun-
semdir. -SOS
- sjá nánar bls. 2
Kona í Irfshættu:
Var áður
send
heim
afslysa-
deildinni
- maður í gæsluvarðhald
Þrítugur Reykvíkingur hefur verið
úrskurðaður í gæsluvarðhald til 15.
maí grunaður um að hafa veitt 31 árs
sambýliskonu sinni hættulega höfuðá-
verka. Konan liggur meðvitundarlaus
og í lífshættu á sjúkrahúsi í Reykja-
vík. Ekki er vitað með hvaða hætti
hún hlaut áverka, en ljóst að til átaka
kom á milli þeirra.
Konan fór að eigin frumkvæði á
slysadeild Borgarspítalans á sunnu-
( dagsmorgun. Þar kom ekkert óeðlilegt
fram við rannsókn og hélt hún því
heim. Þegar sambýlismaður konunnar
hugðist vekja hana síðdegis á sunnu-
daginn var hún meðvitundarlaus. Við
rannsókn kom þá í ljós að mikið hafi
blætt inn á heila hennar. Konan
gekkst undir aðgerð á höfði.
Maðurinn var handtekinn á mánu-
daginn vegna málsins og í gær var
hann úrskurðaður í gæsluvarðhald.
-sos
DV kemur ekki út á morgun,
uppstigningardag. Næsta blað
kemur út föstudaginn 9. maí.
Smáauglýsingadeild DV, Þver-
holt 11, verður opin í dag, mið-
vikudag, til kl. 22 en lokuð á
morgun, fimmtudag. Smáauglýs-
ingasiminn er 27022.
Geriö verösamanburö
og pantiö
úr