Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1986, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1986, Side 2
46 DV. LAUGARDAGUR 17. MAÍ 1986. Apar máttu erfa Þegar hin 84 ára Marie Lefevre fann dauðann færast nær, samdi hún erfðaskrá yfir ríkidæmi sitt, samtals 400.000 pund (um það bil 22 milljónir kr.) og ánafnaði öpunum í Paigntons dýragarðinum í Devon á suðvestur- horni Englands. Gamla frúin hafði heimsótt þessa apa daglega í tuttugu ár og gefið þeim gott. Nú hefur verið ákveðið að peningamir verði notaðir til að gera öpunum, sem eru eitt hundrað og tuttugu talsins, nýjan bústað - eða því hefur dýragarðsstjórinn lof- að. Ekkert hefur verið sagt um sumarbústað. djöfulsins Miðaldra djöflatrúarmaður í Eng- landi hefur verið dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir svik. Hann sveik samtals tíu milljónir króna af fólki - gegn loforði um að hann myndi losa mannskapinn úr klóm Satans. En til slíkrar iðju taldi hann sig hafa næg og góð sambönd. Það var fingralangur og snjall sóknarprestur sem safnaði pening- unum saman fyrir þennan umboðs- mann skrattans. Dauðinn er óþarfi Flestir ölaungar deyja óþarflega snemma úr einhverjum sjúkdómi og ekki vegna þess að þeir séu saddir lífdaga eða hafi lifað þá daga sem skaparinn skammtaði. Það er sovéskur vísindamaður sem heldur þessum fróðleik fram og jafn- framt því, að eðlilegt ætti að vera að meðalaldur mannfólksins væri 170 til 200 ár. Breiðsíðunefndinni líst vel á þessa rússnesku niðurstöðu. Og leggur til að aldurstakmark verði hækkað í eðlilegu hlutfalli, svo og kosninga- aldur. Þannig fengi enginn að kaupa sér pela af áfengi fyrr en um fimm- tugt - og þá fyrst fengju menn kosningarétt og kjörgengi. Og námslán fengju menn fram yfir sjö- tugt og dónalegar bíómyndir fengi enginn undir fertugu að berja aug- um. Fallhlífastökk af húsþökum Tvær manneskjur hafa stokkið af þaki hinnar 381 metra háu Empire State byggingar i New York. Önnur þessara hoppandi mann- eskja lenti kát á götunni, vöðlaði saman fallhlífinni sinni og hvarf á braut í leigubíl. Hin manneskjan festi fallhlífina á umferðarljósi og lögga, sem átti leið hjá, tók hana höndum. Á B LAÐSÖLU.STÖCUWI Hæverska engin dyggð í þessu fagi Viðtal við Sigríði Ellu úsdóttur óperusöngkonu k Einu sinni þekkt andlit ■k - Hvað gera þau nú Hnfontaði annan smell HHRabbað við stráka & í Mezzoforte Gulur, rauður, grænn og blár Sundbola tískan í ár Ljómalind íslensk smásaga Nú er þessi, sem festist á götuvitan- um, kærð fyrir gáleysislega hegðun og fyrir að hafa „verið í fallhlífar- stökki innan marka ríkisins“ - en það er brot á lögreglusamþykkt New York ríkis. Hafríarfjarðar- saga Svíar segja stöðugt neyðarlegar sögur um Norðmenn. Og Danir segja sams konar sögur um Svía. Og Ung- verjar segja neyðarlegar sögur um Tékka. Og vegna þess að ísland á engin landamæri að öðru landi og þar með enga granna sem hægt væri að segja furðusögur af, þá segjum við Hafnfirðingasögur eða Hafnarfjarð- arbrandara. Hér kemur einn slíkur um Svía: - Veistu hvers vegna Svíar fara aldrei í feluleik? - Nei, það veit ég ekki. - Hver heldurðu eiginlega að nennti að leita að einhverjum heimskum Svía? I framhaldi af þessum: Veit nokkur hvers vegna Hafhfirðingar geyma reiðhjólin sín í kirkjugarðinum? Tryggast að vera í föstu starfi Tónlistarmaður æfir sig um leið og hann kvelst af hungri - já, eins og listamenn eiga að gera: listin dafnar þegar hungrið og vosbúðin sverfur að. Þetta vita allir - og þó ekki alveg allir. Mstislav Rostropovitj veit þetta ekki. Hann er aðalstjómandi Nat- ional Symphony Orchestra í Was- hington, flóttarússi og heimsfrægur. Á árinu 1984-1985 þénaði hann 21 milljón króna að því er fram- kvæmdastjóri hljómsveitarinnar, Stephen King, hefur upplýst. Að auki skreppur maðurinn stund- um í aukavinnu. Þá spilar hann á sellóið sitt og tekur inn um það bil 75 milljón kall fyrir á ári. Hann heldur um það bil 70 hljóm- leika á ári og tekur að jafnaði milljón kall fyrir stykkið. Hann segist trúlega myndu geta látið „endana ná samarí* ef hann einbeitti sér að sellóinu. „En það er viss öryggistilfinning samfara því að vera í fostu starfi," segir Rostropo- vitj og á við hljómsveitarstjórastarf- ið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.