Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1986, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1986, Síða 8
52 Roger Vadim. DV. LAUGARDAGUR 17. MAÍ 1986. Bardot, Deneuve og Roger Vadim segir frá leikkonunum þremur sem i Ýmsir myndu láta i ljósi andúð sína á því hvemig Roger Vadim fer stundum að. „Maður segir ekki frá þeim konum sem maður hefur verið með,“ hefur hins vegar aldrei verið regla hjá Vadim. Hann er þekkt- asti kvennamaður í Frakklandi og betur þekktur fyrjr konurnar sem hann hefur verið kvæntur og skilið við heldur en kvikmyndimar sem hann hefur gert. Þá er hann einn af fáum karlmönnum sem telja rétt að birta æviminningar þar sem sagt er frá ástarævintýrum viðkomandi. Vadim hefur nefnilega afar gaman af því að segja frá því sem á daga hans hefur drifið, þar á meðal hjónaböndum sínum og Brigitte Bardot, Catherine Deneuve og Jane Fonda. Hann kryddar frásögn sína með skemmtilegum sögum, minnist á marga og brosir að því þegar einhverjum tekst að lesa eitt- hvað á milli línanna. Nýjasta bókin Nýjasta bók Vadim er Bardot, Deneuve og Fonda. Hann fullyrðir að þær hafi allar lesið handritið og segir það hafa verið varúðarráð- stöfun til að koma í veg fyrir málaferli. Það fer hins vegar ekki hjá því að þeir sem bókina lesa velti því fyrir sér hvort þessum frægu leikkonum og fyrrverandi eiginkonum hans hafi fallið við það sem hann segir. Vadim virðist hins vegar vera þeirrar skoðunar að hvorki Fonda né Bardot hafi nokk- uð á móti því hvemig hann lýsir ástarleikjum siniim með þeim. Hann virðist ekki taka nærri sér að lýsa þeim og finnst því ekki ástæða fyrir þær til að gera það heldur. Viðtal í Hotel du Pont-Royal Viðtalið, sem þessi frásögn er byggð á, fór fram í bamum á Hotel du Pont-Royal í París en þar koma frægir rithöfundar og útgefendur verka þeirra oft til að ræða það sem fyrir dyrum er. Skáldkonan Franc- oise Sagan, sem var ein þeirra sem töldust vera í Saint-Germain-des- -Préshópi Vadim, var vön að eiga fund með útgefendum sínum þarna þegar hana skorti fé. Vadim kann vel við andrúmsloftið þarna. Vegg- imir em viðarklæddir, dökkrautt leður á stólunum og það er sama hvenær komið er þarna inn - and- rúmsloftið er alltaf eins og um kvöld. Gerðu mér erfitt fyrir „Mér varð ekki eins mikið ágengt sem kvikmyndaleikstjóri og annars hefði orðið af því að konumar, sem ég studdi á leiklistarbrautinni, urðu svo frægar,“ segir hann, dreypir á vodkanu og setur upp hálfgerðan sorgarsvip, rétt eins og skapari sem hefur orðið að lúta i lægra haldi fyrir sköpunarverkum sínum. „Allt umtalið, sem samvistir mínar og þeirra vöktu, beindu aug- um fólks meira að mér en verkum mínum.“ Svo bætir hann við: „Þær voru ungar og óþekktar þegar ég kvæntist þeim en svo urðu þær stjömur og breyttust og ég gat ekki ráðið við þennan nýja per- sónuleika þeirra. Það er sagt að þær hafi farið frá mér en það em til leiðir til að fá konur til að fara frá manni.“ (Það má skjóta því hér inn að Annette Stroyberg, önnur kona hans, fór frá honum áður en nokkur varð var við að hann vildi losna við hana). Að verða sextugur Roger Vadim vantar nú tvö ár í sextugt en hann er ótrúlega mynd- Brigitte Bardot. arlegur. Hann er hár og grannur og andlitið lýsir sterkum persónu- leika en ekki sextugsaldri. Og þykkt hárið er ekki grátt heldur grásprengt. Hann er mjög vel klæddur og mun betur en ætla hefði mátt þegar haft er í huga að hann var um tíma fréttaritari hjá Paris- Match. Sjálfsöryggi hans er mikið og viðmælendur hans hafa það á tilfinningunni að hann njóti þess að segja þeim frá því sem á daga hans hefur drifið, þar á meðal ásta- málunum. Hvað er að Brigitte og Jane? „Gallinn við Brigitte er sá,“ segir hann, „að hún fæst ekki til að við- urkenna hve gömul hún er orðin. Hún lifir þessu ömurlega lífi - býr ein og yfirgefin með dýmnum sín- um.“ Hann þagnar. „Gallinn við Fonda var sá að hún var alltaf að berjast fyrir einhverju," en það er greinilegt að Vadim er minna gef- inn fyrir að gagnrýna hana en sumar aðrar konur sem hann hefur kynnst. Reyndar eru þau nú ná- grannar í Santa Monica í Kalifor- níu og þar hafa þau tekið höndum saman um að koma sautján ára dóttur þeirra, Vanessu, til mennta. Gallinn við Stroyberg var svo auð- vitað sá að hún yfirgaf Vadim. Fórnaði Annette frægðinni? „Ég var ekki búinn að gera það fyrir Annette sem ég hafði i huga og þess vegna hlaut hún ekki eins mikla frægð í kvikmyndum og hin- ar. Svo yfirgaf hún mig fyrir Sacha Distel og það kom mér á óvart." Vadim lítur nefnilega á Distel sem einhvers konar lélega eftirmynd af sjálfum sér. Hann vill hins vegar ekki segja mikið um fjórðu konuna sína, Catherine Schneider, sem var ekki leikkona og sóttist ekki eftir frægð. Og það er ljóst að það er ekki gott á milli hans og Catherine Deneuve en meira um það seinna. Einkennilegt viðtal Það er eitthvað einkennilegt við þetta viðtal við Vadim. Hann ræðir um ástir sínar og fallegustu kvenna í heimi eins og ekkert væri sjálf- sagðara. Það gerir nærveru hans sérstaka. Þetta er maðurinn sem hefur sofið hjá Bardot og Deneuve og það er ekki hægt að gleyma því. Hvernig skyldi hann vera í rúminu? Þetta er eins og velta því fyrir sér hvemig það væri að fara allra sinna ferða í silfurgráum Rolls Royce með einkabílstjóra. Vadim gerir sér sennilega grein fyrir því hvaða áhrif hann hefur á konur og hagnýtir sér það. Hann er sjaldgæfur maður - lífsreyndur Don Juan og kemur í rauninni til dyranna eins og hann er klæddur. Þá ber hann það með sér hve marg- ar konur hafa þráð hann. Þannig horfir hann aldrei spyrjandi á við- mælandann því hann virðist ganga út frá því sem gefnu að töfrar hans séu óbrigðulir. Le Vadim Hvemig hann varð Le Vadim er spuming sem oft hefur verið spurt en aldrei svarað á fullnægjandi hátt. Hann er sonur rússnesks að- alsmanns sem settist að í Frakk- andi (og sjálfur segist hann vera afkomandi Genghis Khan) og gekk í frönsku utanríkisþjónustuna og náði að verða ræðismaður. Fullt nafn er Roger Vadim Plemiannikov og hann fæddist ellefu árum fyrir síðari heimsstyrjöldina. Hann kynntist því hersetu Þjóðverja á uppvaxtarámnum. Hann segir það

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.