Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1986, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1986, Page 9
DV. LAUGARDAGUR 17. MAÍ 1986. 63 Fonda hann hefur verið kvæntur Catherine Deneuve. Jane Fonda. því ekki undarlegt að þegar hann hafi verið orðinn sautján ára hafi hann kunnað best við áhyggjulaust lífið í Saint-Germain-des Prés og helst viljað dansa næturlangt í Le Tabou, eltast við stelpurnar sem sóttu Café de Flore, vinna auka- störf í kvikmyndaverum, selja handrit fyrir smápeninga og skemmta sér stundum næturlangt með Juliette Greco, Boris Van og Edith Piaf í La Rose Rouge. Loks var hann þó talinn fullnuma aðstoðarmaður kvikmyndaleik- stjóra en svo sá hann dag einn mynd af mjög fallegri stúlku í Elle. Hann komst að þeirri niðurstöðu að hún vær einmitt stúlkan til að fara með aðalhlutverk í myndinni sem hann var nýbúinn að skrifa handrit að og því fór hann heim til bennar. Hún hét Brigitte Bardot. Foreldrarnir fullir efasemda „Foreldrar hennar voru lítið hrifnir af venjum minum,“ segir Vadim, „og það var ekki fyrr en 1951 að ég fékk að kvænast henni. Þá hafði það verið sett að skilyrði að ég fengi mér fasta vinnu.“ Vad- im þekkti aðalritstjóra Paris- Match, Hervé Mille, og tókst að fá hann til að ráða sig fyrir jafnvirði átta þúsund króna á mánuði en starfinu fylgdi sá kostur að frétta- mennimir máttu láta skrifa allan kostnað við það hjá tímaritinu. Ævintýraríkt starf Vadim hefði ekki getað kosið betra starf. Ritstjóri Washington Post, Arnaud de Borchgrave, sagði eitt sinn að blaðamennska væri eina starfið sem veitti mönnum tækifæri til þess að haga sér eins og vandræðaunglingar alla ævi. Fá tímarit buðu fréttamönnum sín- um jafn ævintýraríkt starf og Match á sjötta og sjöunda áratugn- um er sjónvarp var ekki búið að ná þeim vinsældum sem það nýtur í dag. „Við fórum um allt,“ segir Vadim. ,Hittum konunga og prins- essur, fallhlífarhermenn frá Indók- ína, leiguliða, kvikmyndastjörnur og stjórnmálamenn. Og öll vildu þau tala við okkur." Á þessum dög- um tóku fréttamenn Match á leigu þyrlur, mútuðu starfsfólki gisti- húsa, gripu far með bílum yfir- manna herja til þess að komast sem fyrst i fremstu víglínu, eyddu mikl- um peningum á veitingahúsum með vinkonum sínum, áttu ljúfar nætur með þeim áður en þeir fóru í hættulegar ferðir, óku hatt, drukku of mikið og lifðu í flestu ævintýrlegu lífi. Og Vadim fannst það afar skemmtilegt. Og Guð skapaði konuna Hann hafði eignast Brigitte Bardot fyrir konu og brátt gerði hann hana að stjörnu. Óreglulegir lifnaðarhættir hans reyndust henni hins vegar um megn eins og öðrum konum hans síðar. „Ég vildi ekki vera bundinn við einn stað,“ segir hann. „Hringdu vinir mínir til mín um miðnætti til að bjóða mér heim til sín þá fór ég.“ Og hann breytti ekki um lifnaðarhætti þótt hann hætti að starfa fyrir Match. 1954 varð hann svo frægur fyrir fyrstu kvikmyndina sína, Og Guð skapaði konuna. Með aðalhlut- verkin fóru Brigitte, Curt Jíirgens og ungur leikari sem átti síðar eft- ir að taka Brigitte frá honum, Jean-Louis Tritignant. Þá var Brigitte Bardot farin að fara sínar eigin leiðir og var búin að fá nóg sjálfsöryggi til að geta svarað vel fyrir sig. Þannig spurði blaðamað- ur hana eitt sinn að því hver hefði verið besti dagur ævi hennar. „Það var nótt,“ svaraði hún. Og þegar hún var spurð að því að hverjum hún dáðist mest sagði hún: „Sir Isaac Newton. Hann uppgötvaði aðdráttaraflið." Stroyberg og Deneuve Eftir að hjónabandið með Brig- itte endaði kvæntist hann Annette Stroyberg en það hjónaband stóð heldur ekki lengi og þá kvæntist hann Catherine Deneuve. „Cat- herine treysti mér aldrei,“ segir hann. „Það var það orð sem af mér fór sem olli því. Hún bjóst við að kynnast yfirborðskenndum, hæðn- um og sennilega vel gefnum manni en komst svo að því að ég var frek- ar ljúfur og hlustaði með athygli á það sem hún hafði að segja.“ Svo gerðist hún ráðrík og það féll Vad- im ekki. Nú talast þau við með aðstoð lögfræðinga en aðallega stendur deilan um son þeirra, Christian, sem er nú tuttugu og eins árs. Um hríð las hann lög en hætti því svo til þess að leika í kvikmyndinni Surprise Party sem faðir hans gerði. Vadim með fyrrverandi konu sinni (Stroyberg) í rúminu. Þá segir frá því er hann var með Bardot ungri á heimili foreldra hennar sem grunaði ekkert. En það segir líka frá alvarlegum hlutum eins og deil- unum um bömin sem hann hefur átt með konum sínum. Og svo má ekki gleyma ævintýrum hans með smástirnum. Vadim er fjórkvæntur. Fjórða kona hans var, eins og fyrr segir, Catherine Schneider, en það hjóna- band stóð heldur ekki lengi. Hún er frænka Giscards D’Estaing, fyrr- verandi forseta. Vadim og D’Esta- ing kynntust og stundum kom frændi konunnar í heimsókn til þess að fá lánaðan Ferrarisportbíl kvikmyndaleikstjórans. Paris og Santa Monica Þessa dagana er Vadim ýmist í París eða Santa Monica í Kalifor- níu þar sem hann gerir sjónvarps- myndir fyrir HBO-stöðina bandarísku. Hann hefur eignast nýja vinkonu sem hann hefur verið með í þrjú ár og það þykir allgott þegar Vadim á í hlut. Hún heitir Ann Bidermann, er þrítug og skrif- ar kvikmyndahandrit. Hann segir hana bæði fallega og vel gefna. „Svo er hún ekki leikkona,“ segir hann. „Þá er hún heldur ekki Ijós- hærð. Hún er menntakona og ólík konunum mínum. Það getur því verið að við finnum hamingjuna saman.“ Þýð. ÁSG Segir sögur af Catherine Vadim kann ýmsar sögur af Catherine Deneuve. „I hvert skipti sem Christian kom að heimsækja mig á meðan hann var í skóla,“ segir hann, „þá vélritað hún lista yfir öll fötin sem hann kom með og vantaði eitthvað þegar hann kom heim aftur þá varð hún bál- reið. Á endanum vorum við famir að skilja ferðatöskuna eftir frammi í anddyri þegar hann kom en ég fór út og keypti ný föt.“ Hræöist hann afleiðingar bók- arinnar? Þegar hann er spurður að því hvort hann hræðist afleiðingar bókarinnar segir Vadim: „Ég strik- aði eitt og annað út að fengnum ráðleggingum lögfræðingsins míns.“ Svo víkur hann aftur talinu að Deneuve og segir: „Fari hún hins vegar að ergja mig þá segi ég bara rneira." Og það er eins og honum finnist afar eðlilegt að tala um þetta allt saman þessum manni sem aldurinn virðist ekki vinna á. Það er engu líkara en honum finnist að allir sem hafi áhuga á lystisemdum heimsins geti notið þeirra og á meðal þeirra séu konur, ferðalög með þotum heimshornanna á milli og alls konar ævintýri. Kennir margra grasa í bókinni (alveg eins og í Dynasty eða Dallas) kemur til rifrildis þegar ástkonan (Deneuve) kemur að

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.