Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1986, Page 11
DV. LAUGARDAGUR 17. MAÍ 1986.
55
kjalómar taka lagið á góðri stundu.
Milli laga létu menn svo brandarana
Qúka og varð ekki annað séð en all-
ir skemmtu sér konunglega.
Eiginkonur hrekkjalómanna voru
í fyrsta skipti með á samkomu hrek-
kjalóma þetta kvöld. Þœr voru
spurðar hvemig væri að vera gift
hrekkjalómi.
„Það er ágætt,“ sögðu þær. „Allt í
lagi á meðan þeir hrekkja okkur
ekki. Þeir þora það nefnilega ekki,
því að þá yrði þeim hent út.“ Reynd-
ar virtist stutt í prakkaraskapinn hjá
þeim sjálfum, þar sem þær sátu og
ræddu um hvernig þær gætu hrekkt
eiginmennina í næsta fagnaði.
Tilhneiging til hrekkja
Að sögn hrekkjalóma er mikið sóst
eftir því að komast í félagið. Slikt
er þó alls ekki fyrir hvern sem er.
Ákveðnir eiginleikar, sem ekki eru
öllum gefnir, eru nauðsynlegir fyrir
hrekkjalóm. Skilyrði fyrir inngöngu
í félagið er að menn hafi annað hvort
hrekkt eða sýnt af sér tilhneigingu
til hrekkja.
Dæmi var nefnt af einum sem fékk
inngöngu í félagið eftir að hafa
hrekkt bílaviðgerðamanninn sinn,
sem reyndar er hrekkjalómur sjálfur.
Bíleigandinn borgaði viðgerðina,
sem hljóðaði upp á nokkur þúsund
krónur, í krónupeningum - kom og
sótti bílinn og rétti viðgerðamannin-
um stóran plastpoka fullan af
krónum. Með þessum hrekk ávann
bíleigandinn sér aðild að Hrek-
kjalómafélaginu.
Viðgerðamaðurinn borgaði hins
vegar fyrir sig. Hann fór með pening-
ana í sparisjóðinn og lét telja þá
þar. í ljós kom að það vantaði eina
krónu. Bíleigandinn var látinn sam-
þykkja víxil fyrir krónunni - og
víxillinn síðan felldur á hann.
Að heilsa að sjómannasið
Eins og fram hefur komið er Árni
Johnsen alþingismaður hrekkjalóm-
ur. Hann var gerður að félaga eftir
að hann heilsaði manni að sjó-
mannasið á sýningu í Stýrimanna-
skólanum, eins og frægt er orðið.
Árni var spurður að því hvernig
þingmennska og prakkaraskapur
færu saman.
„Það fer ágætlega saman,“ sagði
hann og bætti við „ég hrekki sam-
þingmenn mína ef ég mögulega get,
en yfirleitt góðlátlega. Starfsbróðir
minn Garðar Sigurðsson hefur
reyndar sagt að stærsti hrekkur
Hrekkjalómafélagsins hafi verið að
senda mig á þing.“
Árni sagði að prakkaraskapur væri
einhvern veginn hluti af mannlífinu
í Eyjum. „Það er grunnt á galsanum
í Eyjabúum. En við vöndum til
prakkaraskaparins og viljum reynd-
ar kalla þetta hæfilegt kæruleysi."
-VAJ
„Þetta eru teygjanlegar upphæðir." Sigurður Guðmundsson veislustjóri og Magnús Kjartansson gjaldkeri með
gúmmítékka á Gleðibankann.