Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1986, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1986, Síða 19
DV. LAUGARDAGUR 17. MAÍ 1986. 63 Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir Aftur til fortíðar móðurinnar en segir sjálfur sögu hennar í fáum orðum. Hann hefur greinilega haft óhuga á að fá skýr- ari drætti í þessa sögu fyrir sjálfan sig, en í kvikmyndum Bergmans hefur mynd föðurins jafnan verið í fyrirrúmi. Það er eins og leikstjór- inn vilji segja: Fylgist með ef þið viljið, en þetta er fyrst og fremst mynd sem ég hef gert fyrir sjálfan mig. í þessu liggur bæði styrkur myndarinnar og veikleiki: aðdá- endur leikstjórans eru yfir sig hrifnir en hinir geta spurt sig hvort þeim komi þetta nokkurn skapaðan hlut við. Fleiri fjölskyldumyndum var brugðið upp á kvikmyndahátíðinni í Clermont-Ferrand. Þannig voru gulnaðar myndir af föðumum uppi- ’ staðan í verðlaunamynd Banda- ríkjamannsins John Bonanno, Sacred Hearts. Hann blandar sam- an gömlum ljósmyndum og við- tölum við móður sína og reynir þannig að skapa það samband við föðurinn sem hann náði aldrei meðan báðir lifðu. Myndin lýsir bæði góðum tímum og slæmum hjá ítalskri innflytjendafjölskyldu eftir að hún tók sér bólfestu í guðs eigin landi. Harmur og hlátur Tvær myndir frá Englandi voru á svipuðum nótum. Suri Kris- hnamma gerði kvikmyndina Departure á kvikmyndaskólanum í Bournemouth og segir fró því er faðir er á leið úr fangelsi út í frel- sið á ný og fær son sinn í heimsókn. Á hljóðlátan en næman hátt lýsir þessi stutta mynd því hvernig son- urinn er í rauninni á leið út í lífið en faðirinn kemst hvergi þó nútíma farartæki muni ef til vill bera hann til Ástralíu. Claire Bratwell segir í mynd sinni Fotographic memories frá harm- rænu ástarsambandi þjónustu- stúlku og skrifstofumanns senmma á öldinni og byggir frásögnina á nokkrum gömlum myndum sem hún rakst á ó útimarkaði. Á kvikmyndahátíðinni í Cler- mont-Ferrand gengu persónulegar endurminningar eins og rauður þráður í gegnum hverja kvikmynd- ina á fætur annarri og augljóst virðist að þrá eftir fortíðinni er að leysa pólitíkina af sem megin við- fangsefni stuttmynda. Þetta hljóm- ar ef til vill dálítið dapurlega en í kvikmyndinni Story Board frá Spáni er hláturtaugin þó kitluð svo um munar. Julian Pavon stjómaði gerð hennar og segir frá ungum manni sem reynir að festa eigið líf á filmu og klippa saman á ný og gefa því þannig nýjan tilgang. Hann eltir laglega stúlku, kvik- myndar hana og semur síðan kvikmynd sem lýsir ástarsambandi hans og stúlkunnar. Júgóslavneskir meistarar Áhugamenn um heimildarmyndir fengu sitthvað við sitt hæfi á hátíð- inni í Clermont-Ferrand. Frakkinn Pierra-Oscar Levy dró fram filmu- búta úr safni Joris Iven, þar sem Iven lýsir á unglingsaldri aðferð við að reisa indíjánatjald. Iven varð síðar frægur fyrir pólitískar heimildarkvikmyndir sínar. I stutt- mynd eftir Nagisa Oshima gefur leikstjórinn uppskrift að japön- skum rétti og þykir ýmsum eins og nærmyndir hans af hráefninu minni óneitanlega ó óhuga hans á konum fyrir neðan þind sem glögg- lega hefur verið undirstrikaður í seinni verkum Oshima. Og á meðal heimildarmyndanna voru einnig myndir eins og eftir Vertov nokk- urn sem filmaði eiginkonu sína þar sem hún baðar bam þeirra hjóna á fyrstu dögum rússnesku byltingar- innar. Ef til vill myndu Júgóslavar vinna heimsmeistaratitilinn í stuttmyndagerð og fró þeim kom til Clermont-Ferrand myndin Úti- Móðir Ingmars Bergmans ogfleirafólk voru aóal- persónurnar í myndunum á stuttfilmu- hátíðinni í Clermont- Ferrand þar sem afturhvarf til fortíðar gekk eins og rauður þráð- ur í gegnum fjölda verka Ingmar Bergman fullyrti að Fanny og Alexander væri algerlega sjálfsævisöguleg mynd, hver per- sóna myndarinnar speglaði ein- hvern þátt í fari hans sjólfs. Jafnframt var vitað að stjúpfaðir- inn strangi var eftirmynd föður leikstjórans og að konan sem þráir að fórna sér fyrir aðra var honum einnig nákomin. Bergman fullyrðir nú enn einu sinni að hann sé stein- hættur kvikmyndagerð en langi þó að gera nokkrar örstuttar myndir, t.d. um Sauðey þar sem hann býr nú lengst af. Fjórtán mínútna mynd um móður hans hefur þegar komið fyrir sjónir almennings og ber naf- nið Andlit Karinar (Karins ansikt). Þessi mynd var aðalnúmerið ó stuttmyndahátíðinni í Clermont- Ferrand í Frakklandi, en þar voru sýndar fimmtíu og tvær stutt- myndir, hvaðanæva að úr heimin- um, auk þess sem hátíðin er mikil sýning franskra kvikmynda í fullri lengd. Myndir úr fjölskyldualbúminu Kvikmynd Bergmans um móður sína kemur frá innstu hjartans rót- um og hann notar myndir úr fjöl- skyldualbúminu til að sýna ásjónu Unga stúlkan sem fer með aðalhlutverk i Story Board. Tómlegir árbakkarnir upp með Signu eru svið ástarsögunnar eftir Cla- ire Bratwell. Júgóslavneski verkamaðurinn á leið heim í lestinni i Útivinnandi hjón. Joris Iven hóf feril sinn í heimildamyndunum með stuttmynd um listina að reisa indíánatjald. Karin, móðir Ingmars Bergmans. vinnandi hjón. Þar lýsir Miroslav Mandic í hnotskurn fjölskyldulífi margs ungs fólks í dag. Hann er ó leið heim úr vinnunni og fer úr lestinni á sömu stöð og hún stígur upp í hana til að fara í sína vinnu. Hann flýtir sér heim til bamsins en hún er að fara i skúringarnar. Vaktavinna heima og heiman og allt of stuttur tími til að njóta lífs- ins hvort með öðru. Nákvæmlega úrfærður og tilfinningaríkur sós- íalrealismi sem sýnir að til eru leikstjórar sem kunna að nýta sér stuttmyndina sem tjáningarmiðil á meðan aðrir nota kílómetra af filmu með engum árangri. -SKJ Þýtt og endursagt úr Levende billeder.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.