Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1986, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1986, Síða 8
52 DV. LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 1986. Svipleiftuir frá Andalúsíu: Spánverjar eru alltaf með stírurnar í augunum en samt þjód nýrra tíma Andalúsía - þetta sólríka hérað á suðurströnd Spánar, þar sem appelsínurnar vaxa og flamenco-dansinn er stiginn og ungir menn leika ástarljóð á gítar undir lokuðum gluggum hjá döggeygum senjórítum - frá því í barnaskóla hefur mig dreymt um að komast hingað. Og nú sit ég ásamt dóttur minni í flugvél skýjum ofar á leið til Sevilla. Við ætlum að flakka um Andalúsíu í hálfan mánuð, leigja okkur bíl og reyna að komast til Cadiz, Gíbraltar, Granada og jafnvel til Cordoba, gömlu kalífaborgarinnar þar sem stærstu mosku heimsins er að finna og spánska skáldið Garcia Lorca segir að fagurt sé að deyja. blaðsölustöðum um allt land. Tímarit fvTÍT alla > andlit Lófalestur-.Merkúrlínan ::::::::::::::::::::::: »3 að handan Sámirmasefurmeixalifix................ 13 BLS. II Epli: Ekkibara góð ábragðiö. ......... n Andlitaðhandan...................... . 21 Hugsuniorðum.. ....merkúrlínan Trúirþúhonum?........... ....... 29 B1j». Úrheimilæknavísindanna...... ...31 „.„biitD f ^mríflæðandihgn.^ —p ...............37 FASTUR I Ótrúlegt en satt. Stulkan meo gum f 40 _ — fTrT T T Úrvalsljóð..... 42 'PT.ÆÐANDI Skyldaeiginmannsms...... X U*** BLS. 31 Samhljómun: 45 þegar karlinner KONUÞURFl Þegarkarlinnerkonuþurh.»LS. Völundarhús............ í rúminu, flugvéliimi, bílnum, kaffitímanum, útilegunni, ruggustólnum, inni í stofu. Áskriftar- síminn er 27022 Við fljúgum með Espana og sjáum fljótt að spönsku flug- freyjurnar hafa sinn sérstaka stíl. Það er þóttasvipur á löngum, skörpum and- litum þeirra, eins og megi lesa úr Jókkum augunum: „Eg er ekki fædd i þennan heim til að flaðra upp um túrista." Það rifjast upp fyrir okkur sem sagt er, að allir Spánverjar séu ^sjgstoltir, meðvitaðir um sitt eigið gildi, hvort sem þeir eru fátækir eða ríkir. Við fáum mótvind yfir Biskaja- flóanum, þurfum að millilenda í Bilbaó, bíðum hálftíma í vélinni, komumst ekki út að skoða Baska. Áætlun seinkar en áhöfh vélarinnar heldur stillingu sinni. Þegar tauga- strekktir farþegarnir spyrja: „Kom- umst við áfram til Ándalúsíu í kvöld?“ svarar flugþjónn rólega: „Sjáum hvað setur“ í þannig tón að það hljómar eins og „Orlög ráða“. í þrjú þúsund ára sögu Spánar skiptir litlu þótt einni flugvél seinki í klukkustund. Er komið stríð? Næsta morgun sitjum við á litlu veitingahúsi fyrir framan útflúraða dómkirkjuna í Sevilla og virðum fyr- ir okkur borgarbraginn. Appelsínu- trén eru á sínum stað og lítil pálmatré og hvítkölkuð hús með smíðajárnsgrindum fyrir gluggun- um. En á götunum eru hvorki dökkklæddar senjórítur né prestar, heldur fullt af litlum bílum og vel klæddu fólki sem þýtur um með stresstöskur. Á flötum þökum hús- anna er þéttur skógur sjónvarpsloft- neta. Þrátt fyrir miklar sögulegar minjar er Sevilla nýtísku borg með fjörugu viðskiptalífi upp á vestrænan máta og hrynjandi lífsins sú sama og í París, New York og Reykjavík. Það höldum við að minnsta kosti. Það er föstudagur og klukkan ekki nema eitt og við sjáum fram á skemmtilegan dag; kíkja í búðir og skoða dómkirkjuna. En hvað er nú þetta? Allt í einu eru göturnar auðar og enginn á ferli. Búðmn lokað, hlerar settir fyrir alla glugga. Hefur verið gefið merki um yfirvofandi loftárás? Meira að segja dómkirkjan er lokuð. Himinninn þyngist og það fer að rigna. Fyrst strjálir dropar, síðan er eins og flóð- gáttir himinsins hafi opnast. Regnið steypist niður og margar af appelsín- unum á trjánum fylgja með og ljóma niðri í forarpollunum. Við stjáklum skjálfandi um göturnar eins og við værum einar í heiminum og rétt náum að kaupa svarta regnhlíf í túr- istabúð sem ekki fylgir siðvenjum þjóðarinnar. Því ástæðan fyrir þessum fólks- flótta var hvorki loftárás né rigning. Spánverjamir voru einfaldlega allir farnir heim að sofa. Hin fi-æga siesta var runnin upp. í örvæntingu hringdum við upp á í fallegu gömlu húsi, þar sem stóð PENSION. Við heyrðum gelt í hundi, syfjuleg kona opnaði og hleypti okkur upp í her- bergi á efri hæð með rósóttu vegg- fóðri, smíðajárnsrúmum og flísa- lögðu gólfi. Alls hugar fegnar að vera komnar í húsaskjól skriðum við undir rúmteppin, og dóttir mín fór að lesa fyrir mig um Kólumbus og Pétur grimma meðan regndropamir lömdu stéttarnar og það fóm að heyrast þrumur. Óvinahausar í salti Um fimmleytið fara borgarbúar aftur á stjá. Búðir opna og nú förum við í dómkirkjuna. Hún er upphaf- lega moska, byggð af aröbum, sem lengi réðu Suður-Spáni. Þegar kristnir menn náðu Sevilla varhenni breytt í kirkju, með ótal dýrlinga- myndum. Þarna er kista Kólumbus- ar, borin af fjórum brynvörðum riddaralíkneskjum, og heljarmikil kapella, flúmð gulli frá Ameríku. Við hliðina á kirkjunni er höllin Alcazar, byggð í arabískum stíl af kristna kónginum Pétri grimma, á 14. öld að mig minnir. Pétur þessi geymdi höfuð óvina sinna í kamfóm og salti, væntanlega til þess að geta dundað sér við að skoða þau þegar hann var timbraður eða ásóttur af þunglyndi. Það hlýtur að hafa verið Qarska geðbætandi. Franco hafði dálæti á þessari höll. í einhverri álmunni innréttaði hann sér einkaíbúð í viktóríönskum stíl. Ég segi dóttur minni að hann hafi innrætt Spánverjum hreinlæti og

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.