Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1986, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1986, Page 16
60 DV. LAUGARDAGUR 31.MAÍ 1986. Sérstæð sakamál Sérstæð sakamál Sérstæð sakamál Sheila Nixon. Brian Patterson. Laurence Brain. Hvernlg dó Sheila Nixon? Að morgni 16. september 1980 fannst ung kona, Sheila Nixon, látin að heimili sínu í Carlisle í Englandi. Talið var að áverki á höfði hefði orðið henni að bana. Kvöldið áður hafði lögreglu- þjónn verið gestur í íbúð hennar og viðurkenndi hann að hafa yfirgefið hana undir áhrifum áfengis og særða á fæti. Málið vakti athygli vegna undarlegra atvika en loks fékkst niðurstaða. Vann hjá RAF Sheila Nixon vann í flugstöð breska flughersins, RAF, nærri Carl- is!e og hafði orð á sér fyrir stundvísi. Það vakti því athygli að hún var ekki komin til vinnu sundarfjórðung yfir níu að morgni 16 september. Einkum vakti það áhyggjur yfir- manns hennar, Ronalds Ashley, því að Sheila hafði trúað honum fyrir því nokkru áður að hún ætti við mikla erfiðleika að stríða í einkalíf- inu. Er klukkan var orðin tíu og Sheila var enn ekki komin til vinnu fékk Ashley konu að nafni Brady til að fara heim til hennar. Frú Brady hringdi svo skömmu síðar til Ashley og sagði honum að enginn svaraði dyrabjöllunni. Fór hann þá á vett- vang með starfsfélaga Sheilu, Shirley Heaton. Ljót aðkoma Er Ashley og Heaton höfðu gert nokkrar árangurslausar tilraunir til þess að hringja dyrabjöllunni gengu þau að stofuglugganum. Sáu þau þá að glerborð í stofunni var brotið og glerbrot um allt gólf. Tók þá Ashley upp aukalykil sem Sheila hafði feng- ið honum og opnað dyrnar á íbúð- inni; lykilinn hafði hún látið hann fá ef vera kynni að hann þyrfti ein- hver tíma að koma henni til aðstoð- ar. Blóðblettir voru víðsvegar um íbúðina og það vakti athygli að sím- tólið lá á gólfinu. Á efri hæðinni rétt við stigann lá svo lík Sheilu Nixon. Voru fótleggimir mjög blóðugir. Lögreglan kom þegar á vettvang og leiddi frumskoðun í ljós að látna konan hafði fengið ljótt sár á hægra fótlegg. Fædd 1948 Sheila Nixon var fædd í Shropshire árið 1948. Nokkru eftir fæðingu 'hennar fluttust foreldramir til Staf- ford þar sem faðir hennar fór til starfa hjá RAF. Sextán ára hafði hún kynnst Laurence Brain bifvélavirkja og urðu þau góðir vinir. Hélst vin- átta þeirra þótt Brain kvæntist. Síðar kynntist hún svo Don Duggan en við hann hafði hún haft náið sam- band um allangt skeið. Var hann þó kvæntur maður. Duggan hafði hún kynnst 1976 er hann vann í birgða- deild flughersins í Albrighton. 1979 var Sheila orðin mjög vansæl vegna sambands síns við Duggan sem hafði þá eignast tvö börn með konu sinni. Bað hún því um að verða flutt til Charlisleflugstöðvarinnar. Var það gert. Vel liðin í Charlisle kynntist Sheila vel hjónum sem hún leigði fyrst hjá, Hal og Peggy Answorth. Létu þau mjög vel af henni og sögðu hana hafa ver- ið mjög glaðlynda að eðlisfari. Gerði Sheila Peggy að trúnaðarmanni sín- um og sagði henni frá sambandi sínu og Dons Duggan. Kvaðst hún vonast til þess að hann myndi skilja við konu sína og kvænast sér. Sheila kom sér einnig vel á vinnu- stað og líkaði vel að búa í Charlisle. Hún ákvað því að kaupa íbúð og það gerði hún 1980. Þá festi hún kaup á hluta húss við Leathamstræti. Ná- grannar hennar veittu því athygli að fátt var um gesti hjá henni en þó kom einn maður alltaf í heimsókn til hennar á nokkmm fresti. Var það venjulega um helgar. Það var Don Duggan. Ferðin sem ekkert varð úr í byrjun september fór Sheila í rúmlega viku leyfi og hélt þá til Skot- lands með Duggan. Þá hét hann því að taka Sheilu með sér í helgarferð til Edinborgar viku síðar. Hún var mjög glöð eftir ferðalagið og sagði starfsfélögum sínum að hún væri nú sannfærð um að Duggan ætlaði að skilja við konu sína og kvænast sér. Nokkru áður en leggja átti upp í Edinborgarferðina hringdi Duggan hins vegar ti! Sheilu og sagði henni að hann ætti von á tveimur vinum sínum frá írlandi og gæti því ekkert orðið úr ferðinni. Hún féll nær saman enda trúði hún ekki sögunni um írsku vinina. Taldi hún þetta merki um að Duggan hefði ákveðið að binda enda á sambandið við hana. Dularfullt símtal Um klukkan hálftvö aðfaranótt 10. september var svo hringt til lög- reglustöðvarinnar í Charlisle. Einhver maður, sem sagðist vera í Stafford, skýrði þá frá því að Sheila Nixon, sem ætti heima í húsinu núm- er 12 við Leathamstræti, hefði tekið of stóran skammt af svefnlyfjum og væri í lífshættu. Aldrei tókst að ganga úr skugga um hver þessi mað- ur var. Brian Patterson, sem var á vakt þessa nótt, sendi strax bíl heim til Sheilu. Kom hún til dyra en þeir fóru með hana á sjúkrahús. Fékk hún að fara heim daginn eftir en kom þá ekki til vinnu. Er hún kom loks til starfa degi síðar tók Ronald Ashley eftir því að hún var óstöðug á fótum. Gaf hún þá skýringu að hún hefði tekið tvenns konar lyf sem hefðu verkað illa saman. Edinborgarferð Sheila vann nú fram á föstudag en hringdi þá um kvöldið til Laurence Brain. Sagðist hún þá ætla til Edin- borgar til þess að hitta Duggan sem myndi þá vera þar með konu sinni. Ætlaði hún að leggja spilin á borðið. Brain latti hana fararinnar en hún hélt fast við sitt. Fundur hennar og hjónanna stóð aðeins í nokkrar mín- útur og hafði slæm áhrif á Sheilu sem var mjög döpur og vonsvikin er hún kom aftur til Carlisle.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.