Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1986, Qupperneq 10
10
DV. ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ 1986.
Utlönd Utlönd Utlönd Utlönd
Stríðsglæpamaður
í forsetastól?
Waldheim segir gagnrýnisöldur lægja að lokinni kosningabaráttu
„Hérrar minir og frúr, nú er nóg komið af fortiðinni. Stöndum saman, við þurfum að kljást við mikilvægari verk-
efni.“ Kurt Waldheim á kosningafundi skömmu fyrir kjördag.
Austurríkismaðurinn Kurt Wald-
heim, íyrrum aðalritari Sameinuðu
þjóðanna, hefur verið mikið í sviðs-
Ijósinu að undaníomu.
Á heimaslóðum í Austurríki hefur
hann háð harða en árangursríka
kosningabaráttu er lagði grunninn
að stórsigri hans í austurrísku for-
setakosningunum á sunnudag.
Á erlendum vettvangi hafa hins
vegar blásið kaldir vindar um Kurt
Waldheim.
Alheimssamtök gyðinga hafa þar
skorið upp herör gegn forsetanum
tilvonandi og saka hann um aðild
að stríðsglæpum Þjóðveija í síðari
heimsstyrjöld.
Forsvarsmenn gyðinga um heim
allan vom fljótir að fordæma kosn-
ingu Waldheims í forsetakosningun-
um á sunnudag og hétu því að leggja
ekki upp laupana fyrr en þeim hefði
tekist að leggja fram ömggar sann-
anir íyrir stríðsglæpum aðalritarans
fyrrverandi.
Virtur ráðherra ísraelsmanna lét
meira að segja hafa það eftir sér eft-
ir að úrslit lágu fyrir að kosning
Waldheims væri sem „martröð fyrir
sérhvem gyðing".
Sóðalegasta kosningabarátt-
an
Fréttaskýrendur velta því nú fyrir
sér hvaða afleiðingar glæsileg kosn-
ing Waldheims á sunnudag kunni
að hafa á stöðu og ímynd Austurrík-
is á meðal þjóða heims í nánustu
framtíð.
„Þetta var sóðalegasta kosninga-
barátta er háð hefúr verið í Austur-
ríki eftir stríð,“ var haft eftir
Waldheim á kjörstað í Vínarborg á
sunnudag.
Fréttaskýrendur em sammála um
að hin langa og harða kosningabar-
átta í Austurríki, þar sem ásakanir
á hendur Waldheim um stríðsglæpi
vom í öndvegi á meðan ágreiningur
um stefnu í ýmsum innanlandsmál-
um gleymdist, kunni að hafa varan-
leg áhrif á ímynd Austurríkis í
augum alheimsins.
Hin hefðbundna ímynd um frið-
sæld og hlutleysi frá stórveldaátök-
um í skjóli náttúrufegurðar og snævi
þakinna fjallstinda hefur nú orðið
að víkja fyrir beiskum raunvemleika
gyðingahaturs og stríðsglæpa nas-
ista í síðari heimsstyijöld.
Kurt Steyrer, mótframbjóðandi
Waldheims, úr röðum sósíalista,
lagði í kosningabaráttu sinni mikla
áherslu á óskerta ímynd Austurríkis
í augum umheimsins. „Góð og já-
kvæð ímynd erlendis getur verið
ómetanleg,“ sagði Steyrer í kosn-
ingabaráttu sinni og fullyrti að
ímynd Austurríkis sem friðsæll fúnd-
arstaður austurs og vesturs og
griðastaður ferðamanna mætti ekki
við frekari skakkafollum á erlendum
vettvangi. Reyndi frambjóðandinn
þar að beina athyglinni að því áfalli
er Austurríki yrði fyrir á alþjóða-
vettvangi ef í ljós kæmi að þjóðkjör-
inn forseti landsins yrði síðar
afhjúpaður fyrir alþjóð sem forhert-
ur stríðsglæpamaður nasista.
Röð hneykslismála
Austurríkismenn hafa á örfáum
árum orðið vitni að hveiju hneyksl-
ismálinu á fætur öðru, hneykslismál
er sett hafa svartan blett á landið á
alþjóðavettvangi.
Hver man ekki eftir eitruðu aust-
um'sku vínunum, fúllum af ban-
vænum frostlegi, er sýktu hundruð
manna á síðasta ári og lögðu austur-
rískan víniðnað sem næst í rúst?
Annað hneyksli varð einnig opin-
bert á síðasta ári, um óráðsíu og
endalaust tap í rekstri Voest-Alpine
fyrirtækisins, ríkisrekins risastálfyr-
irtækis er átti að verða stolt austur-
rísks þungaiðnaðar.
Að auki hefur á undanfömum
mánuðum orðið uppvíst um fjölda-
mörg fjárglæframál er tengjast
misferli háttsettra embættis- og
stjómmálamanna i Austurríki er
síðar hafa orðið að segja af sér og
bíða þess nú að dómur falli.
Þeirra á meðal em háttsettir
starfsmenn í flokki austurrískra sós-
íalista og fyrrum nánir samstarfs-
menn æðstu valdhafa.
Enn öll þessi hneykslismál hafa
algerlega fallið í skuggann eftir að
ásakanir um aðild forsetaframbjóð-
andans Waldheims að stríðsglæpum
nasista urðu háværari.
Samviska þjóðarinnar
Ásakanir alheimssamtaka gyðinga
hafa ekki aðeins varpað ljósi á vafa-
sama fortíð aðalritarans fyrrverandi
heldur hefur sviðsljósinu verið beint
að samvisku austurrísku þjóðarinn-
ar, aðild hennar að uppgangi Þriðja
ríkis Hitlers á stríðsámnum og
leyndu gyðingahatri á meðal austur-
rísks almennings.
Stíflan brast í mars síðastliðnum
eftir að austum'ska blaðið Profil og
bandaríska stórblaðið New York
Times fullyrtu að Waldheim hefði á
árum síðari heimsstyijaldar gegnt
herþjónustu á Balkanskaga og tekið
þátt í grimmilegri herferð þýska
hemámsliðsins gegn föðurlandsvin-
um í Júgóslavíu á árunum 1942 til
1945.
Waldheim hafði áður fullyrt að
herþjónustu hans hefði lokið árið
1941 eftir að hafa særst á austurvíg-
stöðvunum.
Waldheim vísaði þegar á bug að-
dróttunum þess efnis að hafa vísvít-
andi reynt að hylma yfir þann tíma
er hann gegndi herþjónustu á Balk-
anskaga og sagðist ekkert hafa
fjallað um þann tíma í æviminning-
um sínum af þeirri einföldu ástæðu
að hann hefði ekki talið það tímabil
nógu merkilegt í sögu sinni.
Waldheim hefur einnig staðfast-
lega neitað að hafa á nokkum hátt
verið viðriðinn brottflutning gyð-
inga frá Balkanskaga í útrýmingar-
búðir og segist ekki hafa vitað af
slíkum nauðungarflutningum.
Þessu hafa gyðingar harðlega mót-
mælt og telja ómögulegt annað en
aðalritarinn fyrrverandi hafi vitað
af brottflutningi gyðinga í nauðung-
arbúðir.
Stolt Austurríkis
Gífurleg umfjöllun umheimsins á
máli Waldheims og forsetakosning-
unum í Austurríki, þar sem forsetinn
tilvonandi hefur mátt þola harða
gagnrýni, hefur vakið mikla undmn
Austurríkismanna. Þeir virðast alls
ekki hafa búist við slíkri umfjöllun
í erlendum fjölmiðlum og sh'kri al-
heimsgagnrýni á mann er á sínum
tíma var sem goð í hugum þeirra,
stolt Austurríkis, sjállúr aðalritari
Sameinuðu þjóðanna, fyrrum utan-
ríkisráðherra, sendiherra og virtur
stjómarerindreki.
Fréttaskýrendur telja að á vissan
hátt megi skýra ömggan sigur W ald-
heims í forsetakosningunum með
„samúð og vorkunnsemi" austur-
rískra kjósenda með gamalli fyrir-
mynd sinni er hafi mátt þola ómælda
gagnrýni erlendis frá. Auk þess virð-
ist sem austurrískum kjósendum sé
,af eðlilegum ástæðum kannski, ekk-
ert of vel við áð láta einhverja
útlendinga segja fyrir um hver verði
valinn næsti forseti þeirra eigin
heimalands.
Gagnrýni á alþjóðavettvangi virð-
ist því á endanum hafa hjálpað
Waldheim í glæsilegum kosninga-
sigri hans á sunnudag.
Austurríkismenn virðast að auki
ekki vera eins viðkvæmir fyrir eðli
ásakana á hendur Waldheim og
margir þeir er gagnrýnt hafa hann.
Þeir er upplifðu hörmungar stríðs-
ins, og yngri kynslóðir að auki, sætta
sig almennt við þann grundvöll er
finna má í málflutningi þeirra er
varið hafa Waldheim fyrir ásökun-
um erlendis frá um að hann og fleiri
hafi aðeins verið að gera skyldu sína
og tekið við skipunum frá yfirboð-
urum.
„Öll flækt í stríðsaðgerðir"
„Hér vita það allir að við vorum
öll á einhvem hátt flækt í stríðsað-
gerðir nasista í stríðinu, það var
einfaldlega ekki um neitt annað að
ræða,“ er haft eftir kosningastjóra
Waldheims, Gerold Christian,
skömmu fyrir kosningar.
Gagmýni é hendur Waldheim á
erlendum vettvangi hefur verið
óvæginn.
Virt dagblöð hafa opinberlega
ásakað hann um lygar, háttsettir
embættismenn í Bandaríkjunum
hafa beitt sér fyrir því að honum
verði ekki veitt vegabréfsáritun til
Bandaríkjanna og opinberri rann-
sókn hefur nú verið hleypt af stað í
ísrael og í Bretlandi er miðar að því
að leiða í ljós sannleiksgildi ásakana
á hendur Waldheim.
Waldheim segir sjálfúr að nú, eftir
að kosningabaráttan er yfirstaðin,
muni ófriðaröldur lægja og þær
raddir þagna er hvað háværast hafa
fordæmt hann á undanfömum mán-
uðum.
Kurt Waldheim tekur formlega við
embætti forseta Austurríkis af frá-
farandi forseta, Rudolf Kirchslaeger,
þann 8. júlí næstkomandi.
Kosningaspjald með mynd af Waldheim. Á spjaldið hefur einhver andstæð-
ingur málað orðið nasisti til að ófrægja frambjóðandann. Spumingin um
nasistafortíð forsetans nýkjöma og meinta aðild hans að stríðsglæpum
setti svip sinn á austurrísku þingkosningamar.
Umsjón: Ólafur Arnarson og Hannes Heimisson