Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1986, Blaðsíða 17
DV. ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ 1986.
17
Iþróttir
lþrottir
lþróttir
„Vona að þú haf-
ir rétt fyrir þér “
hann reykir þrjá pakka af Prince
vindlingum á degi hverjum en er þó
að reyna að hætta.
„En við eigum Elkjær“
Dönsku blöðin eru stútfull af fréttum
af landsliði sínu í knattspymu þessa
dagana og þar fær Elkjær einna mest
pláss. Eitt dönsku blaðanna sagði í
gær að ítalir ættu páfann, Bandaríkja-
menn Ronald Reagan en „við eigum
Preben Elkjær “. Slíkur dýrlingur er
hann í augum Dana og reyndar fleiri.
Elkjær er nú markahæsti leikmaður
HM og ef svo heldur fram sem horfir
verður hann markakóngur keppninn-
ar. Hann er að sjálfsögðu í sjöunda
himni yfir velgengni danska liðsins:
„Við komum hingað til að leika
skemmtilega knattspymu og stefndum
að þvi að komast í 16-liða úrslitin. Það
hefur tekist og vonandi fáum við að
leika okkar knattspymu í næstu leikj-
um,“ sagði Elkjær eftir leikinn gegn
Uruguay og var ekki ánægður með
margar mddalegar tæklingar Ur-
uguaymanna.
„Danskt dýnamit“
Eins og áður sagði eiga dönsku blöð-
in ekki lýsingarorð til að Iýsa leik
danska liðsins og Prebens Elkjær gegn
Umguay. Danmörk er á hvolfi þessa
dagana og knattspymuunnendur í
Danmörku og reyndar Danir allir og
fleiri eiga sér nú þann draum heitastan
að danska liðið verði heimsmeistari.
En eiga Danir möguleika á að verða
heimsmeistarar? Preben Elkjær: „Það
er ómögulegt að segja. Okkur hefur
gengið framar vonum og mér er óhætt
að segja að danska liðið hafi þegar *
náð betri árangri en búist var við fyr-
ir HM í Mexíkó. Og auðvitað erum
við nokkuð ánægðir með okkur þessa
dagana og þykjumst hafa ástæðu til.
Allt gott sem við gerum í næstu leikj-
um er einungis viðbót við góðan
árangur okkar og við erum allir stað-
ráðnir í að komast eins og langt í
úrslitunum og kostur er,“ segir marka-
skorarinn Preben Elkjær Larsen.
-SK
- Danir hógværir eftir sigurinn gegn Uruguay
á
Preben
dag
Elkjær hefur skorað
„Ég reikna ekki með að verða
markakóngur HM-keppninnar. Það er
mikilvægast að liðinu gangi vel í leikj-
um sínum. Við erum 22 vinir í lands-
liðshópnum og leikum hver fyrir
annan,“ segir Preben Elkjær Larsen.
þjóðhetja Dana um þessar mundir, eft-
ir frábæra leiki með danska landslið-
inu á HM í Mexíkó.
Preben Elkjær er alveg dæmalaus
knattspymumaður. Hann lék sinn 58.
landsleik gegn Uruguay og i leikjun-
um hefur hann skorað 36 mörk. Þessi
36 mörk hefur hann skorað í 27 leikj-
um og danska liðið hefur sigrað í þeim
öllum að einum undanskildum. Og það
sem kannski er merkilegast við þenn-
an frábæra knattspymumann er að
Mál-kjær
kk
reykir
þrjá pakka
Danir hafa sigrað í 26 af 27 leikjum þegar
v *
j „Danir verða
{heimsmeistarar“
- segir þjátfari Uruguay
„Ég er ekki í nokkrum vafa með dönskum fótbolta og vissi
um að Danir verða heims-
meistarar," sagði Omar
Borras, þjálfari Uruguay, eftir
tapið stóra gegn Dönum.
„Fyrir leikinn bárum við
mikla virðingu íyrir danskri
knattspyrnu. Ég hef fylgst vel
að þeir ættu landslið i heims-
klassa. Danir eru með besta
liðið í riðlunum og lið sem hef-
ur leikmenn eins og Elkjær,
Laudrup, Olsen og Lerby verð-
ur heimsmeistari,“ sagði
Borras. -SK
iisælasti og besti knattspyrnumaður heims i dag. Þrátt fyrir að hann á degi
;ttum hefur hann náö frábærum árangri í iþrótt sinni. Hversu góður yrði hann
inn skora ef hann reykti ekki?
,
Símamynd/Reuter
n Kanadamönnum i gærkvöldi en unnu samt
?ru úr leik. Á þessari mynd er Sovétmaðurinn
Kanada náði að bjarga með góðri markvörslu.
;Ennmethjá
Ragnheiði
i
i
-í Kanada
_ Sundkonan góðkunna frá Akra-
| nesi, Ragnheiður Runólfsdóttii',
Isetti emi Islandsmet í sundi á móti
i Kanada í gær. Það var í 200 inetra
Ibríngusundi og hún tvíbætti metið.
í úrslitum synti hún á 2:42,90 mín.
| og sigraði í greininni.
j Tveir leikir
! á HM í dag
| Tveir leikir fara fram á HM í
■ Mexikó í dag, báðir i a-riðli.
Heimsmeistarar Ítalíu leika gegn
I Suður-Kóreu og Argentina mætir
I Búlgaríu. Argcntína er efst i riðlin-
I um með 3 stig en Ítalía og Búlgaría
j hafa hlotið 2 stig og eru með sömu
Imarkatölu, 2-2. Suður-Kóreumenn
eru aðeins með eitt stig og eru nær
| örugglega úr leik. -SK
I
Erlendir fréttamenn, sem komu i
herbúðir danska landsliðsins i gær,
daginn eftii' stórsigur danska liðsins
gegn Uruguay, gátu ekki greint að
dönsku leikmennirnir hefðu kvöldið
áður unnið einn mesta og óvæntasta
sigur HM-keppninnar.
Leikmenn danska liðsins voru mjög
rólegir og hógværir í viðtölum sínum
við blaðamenn. „Ég held að Brasilíu-
menn og Frakkar muni koma til með
að leika til úrslita í þessari heims-
meistarakeppni," sagði markaskorar-
inn Preben Elkjær Larsen og bætti
við: „Okkur mun ekki takast að kom-
ast alla leið í úrslitaleikinn."
„Ég vona að þú hafir rétt fyrir
þér“
Klaus Berggreen sagði: „Við lékum
betur þegar við unnum Sovétríkin 4-2
í Kaupmannahöíh en gegn Uruguay
hér í Mexíkó."
Vestur-Þjóðverjinn, Sepp Piontek,
landsliðsþjálfari Dana, var kátur og
greinilega ánægður með sína menn.
Þegar blaðamaður spurði hann hvort
• Sepp Piontek, þjálfari Dana.
Hann hefur þegar gert kraftaverk
með danska liðið i Mexíkó.
líkja mætti danska landsliðinu nú við
landslið Hollands árið 1974 sagði
hann: „Það er mér mikil ánægja að
heyra þig segja þetta. Ég vona bara
að þú hafir rétt fyrir þér. Ég veit að
við erum með gott lið. Ég held að við
getum sigrað Vestur-Þýskaland þrátt
fyrir að þeir séu með eitt besta liðið
hér í Mexíkó."
Sivebæk í stað Bertelsens
Piontek sagði að líklega myndi Jens
Jöm Bertelsen ekki leika meira með
Dönum i keppninni. Og mjög líklegt
væri að Jolin Sivebæk, Manchester
United, tæki stöðu hans á miðjunni.
Undir eðlilegum kringumstæðum
hefði Per Frimann tekið stöðu hans
en hann væri farinn heim til Dan-
merkur og myndi þar gangast undir
uppskurð. Piontek sagði einnig að
þeir Frank Amesen og Michael
Laudrup hefðu orðið fyrir meiðslum í
leiknum gegn Umguay en hann reikn-
aði með að þeir yrðu báðir með gegn
Vestur-Þýskalandi, úrslitaleiknum í
„riðli dauðans". -SK
Tveir í heimsklassanum
Dönsku landsliðsmennimir fengu
ekki slorlegar einkunnir eftir leikinn
gegn Uruguay hjá einu dönsku blað-
anna.
Preben Elkjær og Michael Laudmp
fengu 8, hæstu einkunn og heims-
klassa. Morten Olsen, Jens Jöm
Bertelsen og Frank Amesen fengu 7,
framúrskarandi, Klaus Berggreen,
Sören Lerby, Henrik Andersen og Ivan
Nielsen fengu 6, stórleikur, Sören
Busk fékk 5, yfir meðallagi. Mark-
vörður danska liðsins, Troels Ras-
mussen var með lægstu einkunnina, 4
sem þýðir í meðallagi góður. Danska
blaðinu fannst hann ekki hafa sýnt
öryggi í úthlaupum og einnig hafi
hann verið áberandi taugaóstyrkur
undir ýmsum kringumstæðum.
-SK