Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1986, Side 31
DV. ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ 1986.
31
Utvarp Siónvarp
í síöasta þætti missti Corrado lögregluforingi dóttur sina, vin og samstarfsmann, öll dauðsföllin af mafíunnar völdum. Nú stendur Corrado einn uppi og hyggur
ð .. Sjónvarpið kl. 21.45:
Corrado hyggur á hefndir
- spennan eykst í Kolkrabbanum
Annar þáttur í seinni þáttaröðinni
um Kolkrabbann er á dagskránni í
kvöld og segir þar frá lögregluforingj-
anum Corrado Cattani sem á í baráttu
við mafíuna á Sikiley.
I síðasta þætti var Corrado í hálf-
gerðri uppgjöf og ætlaði alfarið að
draga sig út úr deilum við mafíuna,
enda búinn að fá að kenna illilega á
henni; missti ástkonu sína af mafíunn-
ar völdum og dóttir hans á taugahæli
eftir að henni hafði verið rænt af ma-
fíósum til að ógna honum.
Og ekki gerði mafían endasleppt með
grimmdarverkin, enn er mannslífum
fómað. Vinur hans og samstarfsmaður
voru drepnir eftir að hafa komist að
mikilvægum upplýsingum um starf-
semi mafíunnar. Dóttir Corrados,
Paola, bíður líka bana.
Þá er Corrado nóg boðið. Hann
stendur einn eftir uppi og engu er að
tapa. I kvöld sjáum við hann á ný taka
upp hanskann gegn mafíunni, hann
hyggur á hefíidir.
-BTH
íslenska listakonan Guóný Magnús-
dóttir er myndefnið i finnsku kvik-
myndinni sem sjónvarpiö sýnir i
kvöld.
Sjónvarpið kl. 22.50:
Leiiiistar-
maður
- af listakonunni Guðnýju
Þetta er finnsk kvikmynd um ís-
lensku leirlistarkonuna Guðnýju
Magnúsdóttur, sem lengi hefur lifað
og starfað í Finnlandi þar sem hún
hefur vakið athygli fyrir list sína og
haldið íjölda sýninga.
Guðný lærði upphaflega keramik
hér á landi hjá Gesti og Rúnu en hef-
ur nú alfarið snúið sér að leirlistinni.
Síðast sýndi hún verk sín hér á landi
á Listahátíð kvenna síðasta sumar.
Meðal verka heruiar þar vom geysi-
stórir skúlptúrar sem vöktu mikla
athygli.
Nú starfar Guðný í Sveaborg, norr-
æna listasetrinu við Helsinki.
Skafti Guðmundsson sá um kvik-
myndatökuna.
-BTH
Veðrið
I dag verður sunnan- og suðvestan-
átt á landinu, víðast hvar kaldi, skúrir
eða slydduél verða sunnan- og vestan-
lands en skýjað og þurrt að kalla
norðan- og austanlands. Á Vestfjörð-
um má búast við norðaustanátt og
slyddu öðru hverju. Hiti verður 3-6
stig norðantil á landinu en 5-9 stig
sunnantil.
ísland kl. 6 í morgun:
Akureyri skýjað 4
Galtarviti skýjað 3
Hjarðarnes skýjað 7
KeflavíkurflugvöUur rigning 3
Kirkjubæjarklaustur skýjað 5
Raufarhöfn skýjað 4
Reykjavík rign/súld 2
Sauðárkrákur rigning 2
Vestmannaeyjar skúr 6
Útlönd kl. 6 í morgun:
Bergen þokumóða 10
Helsinki léttskýjað 13
Ka upmannahöfn léttskýjað 14
Osló þokumóða 14
Stokkhólmur hálfskýjað 14
Þórshöfn léttskýjað 8
Útlönd kl. 18 í gær:
Algarve skýjað 23
Amsterdam léttskýjað 18
Barcelona heiðskírt 20
(Costa Brava)
Berlín heiðskírt 20
Chicagó léttskýjað 22
Feneyjar léttskýjað 23
(Riinini/Lignano)
Frankfurt léttskýjað 22
Glasgow léttskýjað 10
London alskýjað 18
LosAngeles mistur 24
Lúxemborg léttskýjað 20
Madrid léttskýjað 30
Malaga skýjað 22
(Costa DelSol)
Mallorca léttskýjað 22
(Ibiza)
Montreal heiðskírt 21
New York léttskýjað 26
Nuuk þoka 2
París léttskýjað 25
Vín léttskýjað 20
Winnipeg alskýjað 24
Valencía skýjað 21
(Benidorm)
Gengið
Gengisskráning 1986 kl. 09.15 nr. 106 - 10. júni
Eining kl. 12.00 Kaup Sala Tollgengi
Dollar 41.240 41.360 41.380
Pund 61.914 62.094 62.134
Kan. dollar 29.659 29.746 29.991
Dönsk kr. 4.9902 5.0047 4.9196
Norsk kr. 5,4210 5.4367 5.3863
Sænsk kr. 5.7282 5.7448 5,7111
Fi. mark 7.9552 7,9784 7.9022
Fra. franki 5,8013 5.8182 5,7133
Belg. franki 0.9050 0.9076 0.8912
Sviss. franki 22.4009 22,4661 22,0083
Holl. gyllini 16.4074 16.4551 16.1735
v-þýskt mark 18.4684 18,5222 18.1930
it. lira 0,02692 0,02699 0.02655
Austurr. sch. 2.6272 2.6348 2.5887
Port. escudo 0.2731 0.2739 0.2731
Spá. peseti 0.2886 0.2895 0.2861
Japanskt yen 0.24563 0.24635 0.24522
Írskt pund 56.011 56.175 55.321
SDB (sérstök
dráttar-
réttindi) 47,8981 47,0376 47.7133
Simsvati vegna gengisskráningar 22190
MINNISBLAÐ
Muna eftir
aÓ fá mér
eintak af
r
Útvarpið, rás 1, á morgun kl. 9.05:
Kötturinn Markús Árelíus
-nýsaga í
Morgunstund
bamanna
Sagan i Morgunstundinni segir frá kettinum Markúsi Áreliusi sem er þelm
hæfileika gæddur að skilja mannamál.
Ný saga er nú hafin í Morgun-
stund bamanna og heitir hún
Markús Árelíus og er eftir Helga
Guðmundsson sem les söguna.
Markús Árelíus er heimiliskött-
ur á besta aldri. Hann lítur á
sjálfan sig sem hluta af fjölskyl-
dunni sem hann býr hjá en hún
samanstendur af Ólafi og Hildi og
dóttur þeirra, Beggu. Markús Ár-
elíus segir sjálfur frá því sem á
daga hans hefur drifið, fyrst því
sem honum finnst ástæða til að
riíja upp frá æsku en síðan segir
hann frá nýliðnum atburðum.
Hann er góðviljaður en heldur
seinheppinn og ekki leikinn veiði-
köttur, þrátt fyrir að löngunin
grípi hann stundum og leiði hann
í ógöngur.
Að einu leyti er Markús fremri
öðrum köttum. Hann skilur
mannamál og getur rætt við sína
nánustu. Þessi hæfileiki veitir
honum óneitanlega forskot fram
yfir flesta ferfætlinga og gefur hon-
um færi á að láta í ljós skoðanir
sínar á ýmsu því sem hann sér og
heyrir hjá mönnunum. Vinafár er
hann meðal manna þrátt fyrir góð-
vildina. Ástæðan er sú að honum
hættir til að misskilja gestrisni
fólks, einkum ef hann sér opinn
glugga á nóttunni. Meðal katta er
Pétur mikli, bróðir hans, besti vin-
urinn en harðsnúni villikötturinn,
sá Guli, hættulegasti óvinurinn.
Sagan er 11 lestrar og lýkur
henni 23.júní.
-BTH