Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1986, Síða 32
FRETTASKOTIÐ
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Hafirþú ábendingu eða
vitneskju umfrétt-
hringdu þá í síma 62-25-25
Fyrir hvert fréttaskot, sem
birtist eða er notað í DV,
greiðast 1.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í
hverri viku greiðast 3.000
krónur.
Fullrar nafnieyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
Frjálst, óháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚN-Í 1986.
Hermann tók tuttugu
milljónir í okurvexti
„Ég á eftir að fara yfir þetta en
ég reikna með að þetta sé rétt,“ sagði
Hermann Björgvinsson er Ólöf Pét-
ursdóttir, héraðsdómari í Kópavogi,
spurði hann hvort hann kannaðist
við ákæru í okurmálinu svonefnda
er honum var birt klukkan 9.30 í
morgun.
Hermanni Björgvinssyni er gefið
að sök að hafa tekið sér rúmlega 20
milljónir og 700 þúsund krónur um-
fram lögleyfða vexti af lánum er
hann veitti £5 einstaklingum árin
1984- 85. Með réttu hefði Hermann
Björgvinsson mátt taka um 6 millj-
ónir í vexti af lánum þessum en hann
tók rúmlega 26 milljónir.
mtm + m «*
Fjonr a
slysadeild
Bílvelta varð við Laxámes í Kjós í
gærkvöldi um níuleytið. Ökumaður
og þrír farþegar bifreiðarinnar voru
fluttir á slysadeild en meiðsli þeirra
voru ekki talin alvarleg. -FRI
Fréttaskot DV:
62-25-25
Símanúmeri fréttaskots DV, símans
sem aldrei sefur, hefúr verið breytt.
Það er nú 62-25-25,
Þeir lesendur DV, sem óska eftir að
koma ábendingu um frétt á framfæri
við blaðið, hringja því í síma 62-25-25.
'DV tekur á móti fréttaskotum allan
sólarhringinn, alla daga vikunnar.
Greiddar eru 1000 krónur fyrir hvert
fréttaskot sem birtist í blaðinu og 3000
krónur fyrir besta fréttaskot vikunn-
ar. Þið munið nýja símann: 62-25-25.
JSS
rjiii/no/1""'
LOKI
Fógeti i gær,
okrari i dag,
hvað á morgun?
I ákæm ríkissaksóknara er krafist
refsingar, endurgreiðslu á okurvöxt-
um og greiðslu málskostnaðar.
Hermann Björgvinsson mætti fyrir
rétti, íklæddur leðuijakka, í fylgd
með eiginkonu sinni og réttargæslu-
manni, Grétari Haraldssyni. Hann
hlýddi rólegur á upplestur Ólafar
Pétursdóttur er hún las upp nöfh
þeirra einstaklinga er þegið höfðu
lán hjá honum og tilgreindi í hverju
dæmi hversu háa vexti Hermann
hafði tekið af viðskiptavinum sínum.
Engin svipbrigði sáust á andliti hins
ákærða nema hvað hann dæsti af
og til.
Til nokkurra átaka kom fyrir utan
dómsalinn í húsakynnum bæjarfó-
getans í Kópavogi er héraðsdómar-
inn hafði lokið upplestri sínum. Er
Hermann Björgvinsson gekk úr
salnum og varð ljóst að fjósmyndari
DV var til staðar henti hann frá sér
málskjölunum og réðst að ljósmynd-
aranum. Krafðist Hermann þess að
filma ljósmyndarans yrði gerð upp-
tæk á staðnum en þeirri kröfú vár
ekki sinnt. Á meðan á þessu gekk
voru sjónvarpsmenn að stilla upp
tækjum sínum utan við húsið. DV
er ekki kunnugt um hvemig Her-
mann Björgvinsson brást við þeim
ráðagerðum. -EIR
Hermann Björgvinsson á leið úr úr dómsalnum í morgun.
DV-mynd GVA.
Veðrið á morgun:
Skúrir
suð-
vestan-
lands
Á morgun verður suðvestlæg átt á
landinu og fremur kalt víðast hvar.
Skúrir verða um sunnan- og vestan-
vert landið en þurrt að kalla norðan-
lands. Hiti á landinu verður á bilinu
5-9 stig.
Fjáriagahallinn:
„Byrjum
áað
skera
niðuryfir
vinnuna
kk
„Það var áætlað að halli á fjárlögum
þessa árs yrði 1,5-1,6 milljarðar. Hann
verður eitthvað meiri, ekki mikið. Við
erum með í undirbúningi ýmsar að-
gerðir til þess að draga úr þessari
þróun á seinni hluta árins. Meðal ann-
ars verður skorin niður yfirvinna. Það
getur munað hundruðum milljóna,"
sagði Steingríínur Hermannsson for-
sætisráðherra í morgun.
„Ríkisstjómin hefúr lýst því yfir að
draga verði markvisst úr fjárlagahall-
anum. Við það ætlum við að standa.
Það er ofætlun að gera þetta á einu
ári og við höfum rætt um að deila
þessu á þrjú ár. Fjárlagafrumvarp fyr-
ir næsta ár verður ekki með eins
miklum halla og fjárlögin í ár, það er
alveg víst.“
Er þá hægt að skera endalaust nið-
ur? „Nei, þáð er að vísu hægt að
einhveiju marki ennþá. En ég bendi á
skýrsluna um skattsvikin. Ef til vill
má bæta innheimtuna. Annars er það
mín persónulega skoðun að ef við ætl-
um að halda uppi sama þjónustustigi
og undanfarið komumst við ekki hjá
því að auka tekjur ríkissjóðs með ein-
hveijum hætti.
Áttu þá við skattahækkanir? „Það
er venjulega um þær að ræða, já,
ásamt öðm. En þetta hefúr ekki verið
rætt í stjómarflokkunum núna. Ég sé
bara ekki að hjá því verði komist ef
við ætlum að halda uppi þessari þjón-
ustu sem fólkið vilL“
Hvenær ætlarðu að láta kjósa? „Það
liggur ekkert á að kjósa. Aldrei þessu
vant er ég sammála leiðara D V, leiðar-
anum um að ríkisstjómin eigi að
standa við gerða samninga á vinnu-
markaðnum og loforð um lága verð-
bólgu. Þessu verki er ekki lokið og ég
tel að við eigum að skila því af okkur
áður en kosið verður," sagði forsætis-
ráðherra. -HERB
Hvrt borg
ínótt
Snjókoma var í Reykjavík klukkan
þijú í nótt og hiti þú við frostmark,
samkvæmt upplýsingum Veðurstofú.
Jörð var hvít á höfuðborgarsvæðinu
fram til klukkan sex í morgun.
Á öllu landinu nema Suður- og Suð-
austurlandi hefur orðið vart snjókomu
síðasta sólarhring. Á norðanverðu
landinu var slydda um miðjan dag í
gær'
Sjúkrabíll á leið milli Isafjarðar og
Suðureyrar lenti í byl á Botnsheiði í
nótt. „Það var svo hvítt að það rann
allt saman,“ sagði Guðmundur Fylkis-
son, bílstjóri sjúkrabílsins, sem flutti
bam í asmakasti frá Suðureyri. Vel
búinn sjúkrabíllinn tafðist lítið en
háar heiðar Vestfjarða voru í morgun
taldar ófærar fólksbílum.
Veðurstofan spáir áfram skúraveðri
suðvestanlands og svipuðum hita en
bjartara og hlýnandi veðri noiðaust-
anlands. -KMU
í
4
i
4
5
4
4
4
4
0
4
5
5
4
4
4
4