Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1986, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1986, Page 3
DV. MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 1986. 3 Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir Lögreglumaður brýtur rúðu á Hofða. Myndina tók einn „varnarliðsmanna“, Sigurður Helgason, að innan. „Þeir brutust inn með kylfur á lofti“ - segir Þórður Gíslason „Sýslumaður bankaði fyrst en fékk ekkert svar. Hann kom þá á glugga og bað um húsráðanda, það þögðu allir sem einn. Hann ítrekaði það og enn sagði enginn aukatekið orð. Því næst lamdi hann þung högg á hurðina og loks lét hann lögregluþjón mölva rúðu í mél. Þeir lögðust á hurðina en gátu ekki opnað og þá var staur settur á lögreglubíl og hann látinn brjóta hurðina." Þannig lýsti Þórður Gísla- son, einn úr vamarliðinu á Höfða, áhlaupi lögreglu í Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu á bæinn í því skyni að bera út ábúandann. „Gleri rigndi inn þegar rúðan var brotin og bam ráðskonunnar varð ofsahrætt og grét hástöfum. Eftir að hurðin hafði látið undan þunga lög- reglubifreiðarinnar gekk sýslumaður inn og bað um húsráðanda en enn þögðu allir sem einn. Lögreglumaður gat þá bent á hann og sýslumaður greindi þá frá erindi sínu. Hann bað okkur að fara út en við fórum hvergi. Okkur var gerð grein fyrir því að ef við hindruðum lögregluna í starfi yrði gripið til líkamsmeiðinga. Við höfðum ákveðið að verjast en það var við ofur- efli að etja. Kona hefur barið þig Þeir komu inn með kylfúr á lofti en við sátum berhentir og dmkkum morgunkaffi. Við þögðum og sátum sem fastast er þeir hófu að bera út dótið. Þeir létu okkur eiga sig og við stóð- um smám saman upp þegar stólamir vom teknir undan okkur og bomir út í bíl.“ - Vomð þið viðbúnir handalög- málum? „Það var við ofurefli að etja. En ég segi fyrir mig að ég var tilbúinn til þess. Og konurnar höfðu á orði að löðmnga sýslumann og segja: Mundu, vesæli maður, að kona hefúr barið þig. - ás. Veiðin gengur ekki truflunar- laust í sumar - segir Sigurður Oddsson „Ég átti ekki von á svona mddaleg- um aðferðum," sagði Sigurður Odds- son, ábúandi á Höfða, sem var borinn út með fógetavaldi í gær. „Ég skil ekki af hverju ekki var hægt að bíða eftir niðurstöðu hæsta- réttar í þessu útburðarmáli. Dómur fellur tæplega í málinu í haust og það má því segja að úr því skipti ekki máli hver niðurstaðan verður. Ég fæ tæplega hús og hey fyrir kindumar mínar þrjú hundmð." Eigandi stóð ekki við samn- inginn „Ég byrjaði að búa héma vorið 1974. Það var engin leiga greidd en eigendur héldu hlunnindum. Árið 1982 fer ég fram á að fá að byggja íbúðarhús. Eig- andinn svaraði því til að hann myndi byggja hús sjálfur á jörðinni. Það var ekkert úr þvf og málið þvældist fram og til baka. Ég hótaði um síðir að hefja sjálfur byggingu og til að knýja á um úrlausn bannaði ég umferð veiði- manna um túnið. Þá loks buðust þeir til að byggja. Ég gekk til samninga við. fulltrúa eigenda haustið 1982 og átti einskis annars úrkosti en að ganga að því sem ég vil kalla nauðungar- samning. Ég var látinn greiða 3% af bmnabótamati en vaninn er að miða við fasteignamat sem er í þessu tilfelli helmingi minni fjárhæð. Ég gekk að þessu í staðinn fyrir að húsið yrði klár- að fyrir árslok 1983. Húsið var steypt upp haustið 1982 en meira varð ekki um efndir af hálfu eigenda. Ekkert var unnið við húsið 1983 og um áramótin lýsti ég þvi yfir að byggingabréfið væri fallið úr gildi. Þá vildu þeir bera mig út og gáfu mér þriggja vikna frest, í mars 1984. Ég hef ekki vitað til að bændur flyttu búferlum um hávetur. Jón Steinar Gunnlaugsson tók við málinu um þessar mundir. Hann lét i veðri vaka að hann vildi ganga til samninga en í rauninni var hann sí- fellt með hótanir um að bera mig út ef ég gengi ekki að öllum helstu atrið- um nauðungarsamningsins. Fyrsta útburðamálið vann ég og það skilur enginn hvemig gat staðið á því að hann vann það seinna. Maður hafði á tilfinningunni að það heíði verið dæmt fyrirfram í seinna málinu. Ekki satt að ég hafi aldrei borg- að leigu Það er ekki satt að ég hafi aldrei borgað leigu, ég get sýnt fram á það með kvittunum. Þær lagði ég fram í útburðarmálinu, en af einhveijum óskiljanlegum ástæðum er þeirra að engu getið í úrskurði fógeta. Ég get með engu móti skilið af hveiju -as. „Jeppinn er eina þakið sem ég á yfir höfuðið" segir Sigurður Oddsson. DV- mynd: Árni Snævarr. eigendur jarðarinnar vilja ekki bíða með útburð þar til úrskurður hæsta- réttar kemur. Ég veit ekkert hvað ég á að gera. Jeppinn minn héma er eina þakið sem ég á yfir höfuðið. Þeir gáfu mér ekki kost núna á því að flytja mitt dót sjálfúr. Því var komið fyrir í lekum moldarkofa til að verða músun- um að bráð. Nei, svo mikið er víst að ég elska ekki eigendurna út af lífinu. Og það gerir enginn héma. Það má mikið vera ef veiðar í Haffjarðará ganga truflunarlaust fyrir sig í sumar,“ sagði Sigurður Oddsson að lokum. „Yfiigangur Sigurðar ástæða útburðar ' „Það er ekki landeigandinn heldur ábúandinn, Sigurður Oddsson, sem hefúr valið þessa leið. Það er ekki ánægjulegt að láta bera mann út, en það var einskis annars úrkosti," sagði gerðarbeiðandi í útburðarmálinu á Höfða, Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður dánarbús Thors Thors. „Sigurður Oddsson hefur ekki viljað hlíta dómsúrskurði án þess að til vald- beitingar komi. Langflestir Islending- ar hlýða niðurstöðum dómstóla enda er það hin friðsamlega leið siðmennt- aðra þjóðfélaga. Sigurður hefur aldrei greitt krónu í afgjald af jörðinni. Út- burðarbeiðni var ekki lögð fram fyrr en Sigurður hafði sagt samningnum upp og neitað að fara af jörðinni er eigendur ítrekuðu að samningnum væri sagt upp af þeirra hálfu. Flutti inn í húsið í óleyfi Hann flutti inn i húsið í óleyfi eftir að samningurinn var runninn úr gildi. Sigurður hélt uppi vömum í máli sínu í fógetarétti. Þar var fallist á kröfu um útburð um mánaðamótin ágúst- september 1985. Hann virti að vettugi birtingu dómsins og hefúr ekki svarað ítrekuðum beiðnum um að leiða málið til lykta friðsamlega. Á meðan á þessum málarekstri hefur staðið hefur ítrekað verið reynt að semja við Sigurð en hann hefur ekki sýnt neina viðleitni í þá átt. Konum hefur verið boðið byggingarleyfi á jörðinni en hann hefur ekki sinnt til- raunum okkar um að semja um það. Eins og málum er háttað var ekki um annað að ræða en að láta fram- kvæma útburðardóminn." - Hvað vilt þú segja um fullyrðingar þess efnis að eigendur jarðanna við Haffjarðará stefni að því að koma þeim í eyði? „Það er algjör þvættingur. Útburð- armálið á Höfða tengist ekki öðrum málum jarðanna við Haffjarðará, svo sem veiðiréttindamálum. Ef fylgis- menn Sigurðar segja núna að þessi deila sé sprottin af því gæti það stafað af því að nýverið féll dómur um veiði- réttindi á þessum slóðum þeim í óhag. Ég skal ekki segja um það. Yfirgangur Sigurðar er rótin að þessu útburðar- máli, þetta er sérmál og út í hött að tengja það öðrum málum,“ sagði Jón Steinar að lokum. - ás. Það var sannarlega handagangur í öskjunni við Höfða í gær. DV-mynd: KAE

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.