Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1986, Blaðsíða 5
DV. MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 1986.
5
Upphað
5«nki-Hb |>j
ÝmiiUflt
Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir
- segir Sigurður Kárason, sem nú rekur Tívoluð í Hveragerði
„Það stóð aldrei tO að skipta ávís-
uninni, það vissum við Hermann
báðir. Hvaða banki heíði svo sem
skipt 182 milljón króna ávísun frá
einstaklingi? Þetta var bara skuld-
arviðurkenning," sagði Sigurður
Kárason í samtali við DV í Tívolí í
Hveragerði í gær.
Sigurður Kárason er einn af 35
einstaklingum sem Hermann Björg-
vinsson er ákærður fyrir að hafa
okrað á. Við húsleit hjá Hermanni
fannst meðal annars ávisun að upp-
hæð kr. 181.950.000.- undirrituð af
Sigurði Kárasyni.
Lítil þúfa
„Þetta er ólánsmál og hér sannast
hið fomkveðna að oft veltir lítil þúfa
þungu hlassi. Hins vegar hef ég aldr-
ei vitað til þess að það væri bannað
að fá peninga að láni á íslandi. Ef
ég skulda Hermanni Björgvinssyni
einhverja peninga þá reyni ég svo
sannarlega að greiða honum þá. I
þessu okurmáli verða menn að reyna
að komast að samkomulagi þannig
að allir fái sitt. Það er eina skynsam-
lega lausnin," sagði Sigurður
Kárason sem er þrítugur að aldri,
menntaður húsamálari og eigandi
Hótel Borgar ásamt félaga sínum,
Pálmari Magnússyni. Þá eiga þeir
félagar leiktækjasalinn í Einholti og
Tívolí í Hveragerði sem Sigurður
rekur.
Vextir og aftur vextir
- En hvemig fara menn að því að
koma sér í 182 milljón króna skuld?
„Ég skulda Hermanni ekki 182
milljónir. Eins og ég sagði áðan þá
var aldrei gert ráð fyrir að þessari
frægu ávísun yrði skipt. Þetta eru
ekki alvöru peningar sem liggja
þama að baki heldur vextir og aftur
vextir á lægri skuld.“
- Hvað skuldar þú Hermanni
Björgvinssyni þá mikið í raun og
vem?
„Aðeins brot af þeirri upphæð sem
skráð er á tékkann. í raun og vem
veit engin hversu mikið fé ég skulda
Hermanni. Sjálfur telur hann það
vera um 30 milljónir króna.“
Sigurður Kárason segist hafa átt
löng og oft á tíðum góð viðskipti við
Hermann Björgvinsson. í hraða við-
skiptalífsins hafi ekki alltaf verið
tími til að bíða eftir bankastjórum
og þar sem menn vissu að hjá Her-
manni lágu peningar lá beinast við
að leita þangað.
„Þetta er eins og þegar ungt fólk
hringir í mömmu sína til að fó lánað-
an þúsundkall tímabundið. Mig
vantaði fé og ég fór til Hermanns."
Húsamálari og hótelhaldari
Sigurður Kárason hefur ekki unn-
ið við iðn sína, húsamálun, undan-
farin ár. Ævintýrið byrjaði í
leiktækjasalnum í Einholti og öllum
að óvörum keyptu þeir Sigurður og
Pálmar Magnússon allt í einu Hótel
Borg fyrir þremur árum:
„Það var stundum afgangur í leik-
tækjasalnum og okkur langaði til
að glíma við eitthvað stærra. Hótel
Borg var ekki dýr. Kostaði 50 millj-
ónir, útborgunin var aðeins 5
prósent og afgangurinn á löngum
lánum. Það voru ekki þessi kaup sem
ráku mig til Hermanns. Við lentum
í verðbólgubáli og öll okkar mál
urðu þung í vöfum. Hótel Borg er
hins vegar ekki til sölu. Við tókum
þann kostinn að leigja Ólafi Laufdai
hótelið, þar er maður sem kann dan-
sleikjahald og honum virðist ganga
bærilega. Ég gafst aftur á móti upp
á að reyna að selja fólki máltíðir á
Borginni. Þama situr fólk kannski
í 2-3 tíma og borðar fyrir 1000 krón-
ur. Það er voniaust mál að láta það
dæmi ganga upp, allt fer í laun til
mannskapsins sem er að þjóna og
matreiða.“
„Öll fæðumst við nakin“
Þrátt fyrir þunga skuld er ekkert
uppgjafahljóð í Sigurði Kárasyni.
Hann segist ekki vera að safna auði,
peningar skipti sig engu máli:
„Það þarf meira til að raska ró
minni. A meðan ég held fullri heilsu
og útlimimir dansa eftir höfðinu er
allt í lagi. Vinnan er allt mitt líf.
Ég hef unnið fyrir mér svo lengi sem
ég man, aldrei tekið sumarfrí og ég
ætla að halda áfram að vinna svo
lengi sem ég get. Okurmálið á eftir
að ganga yfir eins og annað og ég
ætla ekki að eyða lífinu í að hugsa
um það. Tími okkar hér á jörð er
ekki svo langur að það taki því að
elta ólar við óhapp eins og þetta.
Öll fæðumst við nakin í þennan heim
og yfirgefúm hann eins og við kom-
um. Það skiptir mig ekki máli hvað
stendur í veðmálsbókum fógeta. Ég
ætla að lifa og vinna á meðan ég
get,“ sagði Sigurður Kárason.
Dómur I sjónmáli
Réttarhöld i okurmálinu fara nú
fram hjá Bæjarfógetaembættinu í
Kópavogi og er dóms að vænta í
næsta mánuði. Ljóst er að mál Sig-
urðar Kárasonar er þar viðamest
auk máls Gissm-ar Eggertssonar
bóksala en það var hann sem kærði
Hermann Björgvinsson upphaflega
fvrir okur. Stóri tékkinn er i vörslu
ðlafar Pétursdóttur héraðsdómara
og honum verður aldrei skipt. Enda
stóð það aldrei til ef trúa skal Sig-
urði Kárasyni.
-EIR
Sigurður Kárason á kappaksturbrautinni í Tívolí í Hveragerði: - Hraðinn i viðskiptunum var stundum mikill og þá
var farið til Hermanns Björgvinssonar þar sem fé var falt. DV-mynd S.
Tékkinn frægi undirritaður af Sigurði Kárasyni; 181 milljón og 950 þúsund krónur.
3iÍE35^Daaiíiia.E353R 33ÍL&Í3ÍD3 «
HLAUPAReiKNINGOR
Arnisinoaútisu
0336331
jffl. ‘V'TÞ
GREIÐID GCGN
TÉKKA PESSUM .
KRÓNUR
0336331+ 10< 031426>
REITUA rn« TÖLVUEKEIFT - Htt HVOHKI SKAiFA NÉ STIMPLA
Skrifadi ávísun að upphæð 181.950.000 krónur og afhenti Hermanni Bjorgvinssyni:
Eins og að fa lánaðan
þúsundkall hjá mömmu
COSTA DEL SOL - BENIDORM sítt. rsu»ss?ís
MALLORCA - COSTA BRAVA
Eftirsóttar
Gerið
og hótel -
verðsamanburð
Beint
leiguflug
í sólina
Fjölskyldutilboð 26. júní og 17. júlí
íslenskir fararstjórax - Fjölbreyttar
skemmti- og skoðunarferðir
FLUGFERÐIR
SOLRRFLUG
Vesturgötu 17 símar 10661, 15331, 22100.