Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1986, Blaðsíða 28
28
DV. MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ 1986.
Flosi Jónsson lést 19. júní sl. Hann
fæddist í Snóksdal 10. ágúst 1898.
Foreldrar hans voru Jón Bergsson
og Sigurflóð Ikaboðsdóttir. Flosi var
ungur tekinn í fóstur af hjónunum á
Hörðubóli, Guðmundi Jónssyni og
Sigurrósu Hjálmtýsdóttur. Flosi
kvæntist Ingibjörgu Hannesdóttur
og bjuggu þau á Hörðubóli til ársins
1952 er þau fluttu til Reykjavíkur.
Eftir að Flosi hætti búskap gerðist
hann kennari og kenndi á ýmsum
stöðum um árabil. Þau hjónin eign-
uðust tvo syni. Ingibjörg lést á
síðastliðnum vetri. Utför Flosa verð-
ur gerð frá Bústaðakirkju í dag kl.
13.30.
Auðbjörg M. Guðlaugsdóttir frá
Ártúnum, Rangárvöllum, Boðahlein
18, Garðabæ, lést í Landakotsspítala
23. júní.
Kjartan Eide, Grevestrand, Kaup-
mannahöfn, lést 22. júní.
Sigurður Rósmundsson lést á
Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri,
mánudaginn 23. júní.
Þórarinn Jónsson, Kleppsvegi 56,
Reykjavík, andaðist í Borgarspítal-
anum 16. júní. Jarðarförin hefur
farið fram í kyrrþey að ósk hins
látna.
Arndís Helgadóttir, Seljavegi 9,
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í
Reykjavík fimmtudaginn 26. júní kl.
13.30.
Guðfinna Vigfúsdóttir, Öldugötu
12, verður jarðsungin frá Dómkirkj-
unni föstudaginn 27. júní kl. 10.30.
Guðmundur Þórðarson skipstjóri
er látinn. Hann fæddist 3. janúar
1903 í Sperðlahlíð í Geirþjófsfirði,
sonur hjónanna Ragnheiðar Ólafs-
dóttur og Þórðar Þorsteinssonar.
Ævistarf Guðmundar var sjó-
mennska og var hann stýrimaður og
síðar skipstjóri í mörg ár. Guðmund-
ur var tvígiftur. Fyrri kona hans var
Guðrún Bjamadóttir og eignuðust
þau tvö börn. Guðrún lést árið 1928.
Seinni kona Guðmundar var Hrefna
Einarsdóttir, hún lést árið 1955. Þeim
varð ekki barna auðið. Síðustu árin
bjó Guðmundur með Sólrúnu Sigur-
steinsdóttur. Útför Guðmundar
verður gerð frá Fríkirkjunni í dag
kl. 13.30.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Stuðlaseli 11, þingl. eign Þorláks Hermannssonar, fer
fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík, Veðdeildar Landsbankans og
Baldurs Guðlaugssonar hrl. á eigninní sjálfri föstudaginn 27. júní 1986 kl.
14.15.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Hagaseli 22, þingl. eign Þórs Sigurjónssonar, fer fram
eftir kröfu Tryggingastofnunar ríkisins, Gjaldheimtunnar í Reykjavík, Veð-
deildar Landsbankans, Búnaðarbanka íslands, Baldurs Guðlaugssonar hrl.,
Sigríðar Jósefsdóttur hdl. og Guðjóns Á. Jónssonar hdl. á eigninni sjálfri
föstudaginn 27. júní 1986 kl. 13.45.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta í Tunguseli 7, þingl. eign Sigurðar V. Ólafssonar,
fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri föstudaginn
27. júní 1986 kl. 16.00.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Engjaseli 17, þingl. eign Halldóru Þ. Ólafsdóttur, fer fram
eftir kröfu Gjaldheimtunnar i Reykjavík, Veðdeildar Landsbankans, Lands-
banka íslands og Ólafs Axelssonar hrl. á eigninni sjálfri föstudaginn 27. júní
1986 kl. 14.45.
________Borgarfógetaembættið i Reykjavik,
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta í Stífluseli 9, þingl. eign Maríu Guðrúnar Finns-
dóttur, fer fram eftir kröfu Árna Guðjónssonar hrl., Veðdeildar Landsbankans,
og Jóhannesar Johannessen hdl. á eigninni sjálfri föstudaginn 27. júní 1986
kl. 15.15.
_____________________Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á hluta í Tunguseli 4, þingl. eign Þorgeirs Hafsteinssonar
og Guðbjargar Þorsteinsdóttur, fer fram eftir kröfu Útvegsbanka íslands á
eigninni sjálfri föstudaginn 27. júní 1986 kl. 15.30.
___________________Borgarfógetaembættið i Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Hamrabergi 10, þingl. eign Haralds Björgvinssonar, fer
fram eftir kröfu Ásgeirs Thoroddsen hdl., Guðna Á. Haraldssonar hd!., Sigrið-
ar Thorlacius hdl., Gjaldheimtunnar í Reykjavík, Tryggva Agnarssonar hrl.,
Hjalta Steinþórssonar hdl., Skúla Bjarnasonar hdl., Jóhannesar Johannessen
hdl., Steingríms Þormóðssonar hdl., Þorvalds Lúðvíkssonar hrl„ Jóns G.
Briem hdl., Hauks Bjamasonar hdl., Sigurmars K. Albertssonar hdl., Jóns
Þóroddssonar hdl., Guðjóns Steingrímssonar hrl„ Ævars Guðmundssonar
hdl„ Valgeirs Kristinssonar hdl„ Brynjólfs Kjartanssonar hrl. og Málflutnings-
skrifstofu Guðmundar Péturssonar og Axels Einarssonar á eigninni sjálfri
föstudaginn 27. júní 1986 kl. 13.30.
_________Borgarfógetaembættið í Reykjavik,
Utvarp___________________Sjónvarp
Jónína M. Guðnadóttir, ritstjóri 19. júní:
íslenskar íþróttir
fallnar í skuggann
Mér finnst morgunvaktin í útvarp-
inu vera skemmtileg og hlusta
næstum alltaf á hana. Það var ansi
góður þáttur fyrir börn á rás 2 í
gærmorgun um tíuleytið þar sem
voru spiluð bamalög. Ég var mjög
ánægð með þennan stutta þátt, oft-
ast finnst mér of lítið spilað af
bamalögum.
Yfirleitt fylgist ég minna með sjón-
varpi þegar líður fram á sumar.
Sjónvarpsdagskráin í gær fannst mér
þó óvenju góð, fyrst kom þessi enski
heimilidarþáttur með James Burke.
Honum reyni ég að missa alls ekki
af þ ví mér finnst hann alveg stórgóð-
ur. íslenskt efhi reyni ég líka alltaf
að sjá og þessi íslenska heimildar-
mynd um Paraguay í gær var mjög
fræðandi, enda vissi maður lítið um
landið. Ég horfði þó aðallega á hann
í fyrstu vegna þess að hann var ís-
lenskur. Sjónvarpið ætti að kaupa
meira af íslenskum heimildarþáttum.
Kolkrabbaþættimir em spennandi,
ég hef annars lítið fylgst með þeim
undanfarið, en sá þó þáttinn í gær.
Mér finnst öll þessi knattspyma
frá HM ganga út í öfgar. Það er sjálf-
sagt að sýna einstaka leiki frá
heimsmeistaramótinu, en að leggja
næstum alla dagskrána undir fót-
boltann, finnst mér ekki ná nokkurri
átt. Auk þess em íslenskar íþróttir
hreinlega fallnar i skuggann, það
snýst allt um heimsmeistaramótið.
Svo finnst mér líka að sumir íslensk-
ir íþróttaviðburðir séu dregnir út og
hampað á meðan öðrum er hreinlega
sleppt. Svo ég nefrii sem dæmi
Reykjavíkurmótið í 2. flokki í
kvennaknattspymu sem fór fram um
helgina. Það er ekki búið að minnast
á það einu orði á meðan öðrum
mótum er gefin hver opnan á fætur
annarri í blöðunum. Þama ætti að
fara milliveg.
Útvarpið finnst mér alveg ágætt
og hlusta nokkuð jafnt á báðar rás-
ir. Ég bind mig þó sjaldnast við
sérstaka fr amhaldsþætti í útvarpinu,
en finn yfirleitt alltaf eitthvað við
mitt hæfi ef ég ætla að hlusta á það.
Ég hef yftr engu að kvarta þar.
-BTH
Guðrún E. Jónsdóttir, Langholts-
vegi 185, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 26.
júní kl. 13.30.
Sigríður Einarsdóttir, áður
Barmahlíð 25, verður jarðsungin fró
Fossvogskirkju fimmtudaginn 26.
júni kl. 15.
Ragnhildur Jónsdóttir frá Núps-
dalstungu, Leifsgötu 10, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju
fimmtudaginn 26. júní kl. 13.30.
Guðjón Sigurðsson bakarameist-
ari, Áðalgötu 5, Sauðárkróki, verður
jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju
fimmtudaginn 26. júní kl. 14.
Guðrún Hjörleifsdóttir, Huldu-
landi 3, verður jarðsungin frá
Bústaðakirkju föstudaginn 27. júní
kl. 15.
Ferðalög
Útivistarferðir
Helgarferðir 27.-29. júní.
1. Þórsmörk. Gist í Útivistarskálanum,
Básum. Gönguferðir við allra hæfi, m.a. í
Teigstungur sem hafa opnast með tilkomu
göngubrúar á Hruná. Við minnum á sum-
ardvöl í Básum. Hægt er að dvelja milli
ferða. Ferðir bæði á sunnudögum og mið-
vikudagsmorgnum. Næsta miðvikudags-
ferð er 2. júli. Frábær gistiaðstaða.
2. Haukadalsskarð - Tröllakirkja - Gull-
borgarhellar. Gist í húsum. Gengið um
hina fornu þjóðleið úr Hrútafirði í Dali.
3. Fjölskylduferð i Viðey um helgina.
Brottför á laugard. kl. 13.30 og tjaldað við
nýja skálann. Ódýr ferð. Dagsferðir með
leiðsögn verða á laugard. og sunnudag.
Uppl. og farm. á skrifst., Grófmni 1, sím-
ar: 14606 og 23732. Sjáumst.
Tónleikar í Mývatnssveit
Margrét Bóasdóttir sópransöngkona og
Margrét Gunnarsdóttir píanóleikari halda
tónleika fimmtudaginn 26. júní kl. 21 í
Skjólbrekku, Mývatnssveit, og laugardag-
Dagsferðir og kvöldferðir
Ferðafélagsins
1. Laugardag 28. júní kl. 8 Hekla (1491
m) - Ferðin tekur um 10 klst. Verð kr. 750.
2. Laugardag 28. júní kl. 13 - Viðeyjar-
ferð - Siglt frá Sundahöfn, 6-7 mín. sigling.
Veitingar í Viðeyjarnausti (ekki innifalið
í verði). Verð kr. 200.
3. Sunnudag 29. júni kl. 8 - Dagsferð í
Þórsmörk. Kr. 800.
4. Sunnudag 29. júní kl. 10 Fagradals-
fjall Núpshlíðarháls - Vigdísarvellir.
Verð kr. 500.
5. Sunnudag 29. júní kl. 13 - Krýsuvík -
Hattur - Hetta - Vigdísarvellir. Verð kr.
500. Ekið til Krýsuvíkur, gengið yfir
Sveifluháls að Vigdísarvöllum.
Brottför í dagsferðimar frá Umferðar-
miðstöðinni, austanmegin. Farmiðar við
bfl.
Helgarferðir 27.-29. júli:
Þórsmörk - gist í Skagfjörðsskála. Ný
og bætt hreinlætisaðstaða, útigrill. Sum-
arleyfi hjá Ferðafélaginu í Þórsmörk er
tilbreyting sem vert er að upplifa.
Helgarferð 4.-6. júli:
Hagavatn - Jarlhettur. Gist v/Hagavatn
og farnar gönguferðir þaðan.
Hlöðuvellir - Brúarárskörð. Gist v/
Hagavatn 1 nótt, á laugardegi er gengið
að Hlöðuvöllum og gist þar, sunnudag
gengið um Brúarárskörð að Geysi.
Tapað-Fundið
Seðlaveski tapaðist
Svart karlmannsseðlaveski með skilríkj-
um tapaðist við Melaskóla sl. sunnudag.'
Finnandi vinsamlegast hringi í síma
610983.
Páfagaukur tapaðist
Grænn páfagaukur með gulan blett á
hnakkanum tapaðist á Álftanesi. Finnandi
vinsamlegast hringi í síma 54427. Fundar-
laun.
inn 28. júní kl. 17 í Borgarbíói. Á fjöl-
breyttri og skemmtilegri efnisskrá er
píanósónata op. 22 eftir Schumann og sön-
glög eftir ýmsa höfunda, innlenda og
erlenda.
Ymislegt
AA-samtökin.
Skrifstofa opin frá kl. 13-17. Símavakt kl.
17-20 alla daga vikunnar í síma 16373.
Listasafni Háskóla íslands
hafa að undanförnu borist stórgjafir frá
ýmsum velunnurum þess. í tilefni þess að
Þorvaldur Skúlason listmálari hefði orðið
áttræður þann 30.4. gáfu hjónin Ingibjörg
Guðmundsdóttir og Sverrir Sigurðsson
safninu stórt olímálverk eftir hann frá
árinu 1947, 140x155 sm að stærð. Einnig
minntist Guðmunda Andrésdóttir list-
málari þess dags með því að færa safninu
að gjöf málverk eftir sig, frá árinu 1976,
95x85 sm. að stærð. Þá færði dóttir Þor-
valds heitins, Kristín Skúlason, safninu
að gjöf úr dánarbúi hans 6 olíumálverk
og 203 vatnslitamyndir, álímingar, krítar-
myndir og vinnuteikningar. Af öðrum
nýlegum gjöfum er að nefna að Hafsteinn
Austmann listmálari færði safninu mál-
verk eftir sig frá árinu 1954, 50x79 sm að
stærð, „til minningar um Þorvald Skúla-
son“ og Ríkharður Valtingojer svartlista-
maður gaf safninu 41 handþrykk eftir
gömlum prentmótum íslenskra bóka-
skreytinga frá árunum 1584-1820. Lista-
safh Háskóla íslands þakkar þann hlýhug
sem felst í gjöfum þessum, en með þeim,
fyrri gjöfum og kaupum þess sjálfs á lista-
verkum hefur það nú aukist úr 140 verkum
við stofnun í nær 400 listaverk á þessu
sumri. Svo sem í fyrrasumar, mun safnið
vera opið í húsakynnum sínum í Odda
(nýbyggingu Háskólans beint upp af Norr-
æna húsinu) allan síðari hluta sumars,
þótt það verði nú opnað nokkru síðar en
ætlað var vegna frágangs á húslóðinni.
Afmæli
Sjötugur er í dag, 25. júní, Magnús
Einarsson kennari, Hjaltabakka 12
Reykjavík. Hann verður að heiman
í dag en ætlar að taka á móti gestum
síðdegis á laugardaginn, 28. júní, í
Fólkvangi á Kjalamesi milli kl. 15
og 18.