Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1986, Page 3
MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 1986.
3
Fréttir
Nýju lánareglumar:
Erfttt fýrir námsmenn
að afla sér lánsréttar
Hinar nýju lánareglur Húsnæðis-
stoíhunar gera ráð fyrir að lántakend-
ur hafi greitt í einn eða fleiri lífeyris-
sjóði samfleytt undanfarin tvö ár.
Þetta ákvæði gæti reynst námsmönn-
um erfiður ljár í þúíu þó svo að þeir
hafi greitt í söfnunarsjóð Kfeyrisrétt-
inda.
Námsmenn, sem taka lán hjá Lána-
sjóði námsmanna, geta óskað eftir því
að greiða í söfnunarsjóðinn og sam-
kvæmt upplýsingum frá lánasjóðnum
nýtir nú meirihluti námsmanna sér
þetta. Hjá söfnunarsjóðnum eru þessar
greiðslur skráðar þannig að þær hafi
farið fram þegar lán var veitt, frá des-
ember til maí. Þeir sem koma því ekki
við að vinna yfir sumartímann öðlast
því ekki lánsrétt hjá Húsnæðisstofnun
þrátt fyrir greiðslumar í söfiiunarsjóð-
inn. Hraíh Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri LÍN, sagði í samtali að sér þætti
furðulegt að ekki væri ijallað sérstak-
lega um námsmenn í reglugerð um
nýju lánaúthlutunina. Hann sagði að
hugsanlega yrði að breyta reglunum
um söfriunarsjóðinn og þegar hefur
verið ákveðinn fundur um þetta efni.
Námsmenn, sem ekki þiggja náms-
lán á námstímanum frá lánasjóðnum,
geta hins vegar ekki greitt í söfnunar-
sjóðinn. Þessir námsmenn hafa því
ekki öðlast lánsrétt á meðan námið
stóð yfir og verða að afla sér hans á
næstu tveimur árum að námi loknu.
Við núverandi ástand er því hvetjandi
fyrir alla námsmenn að sækja um lán
til að öðlast lífeyrisréttindi á námstí-
manum svo fremi sem reglum þar verði
breytt og litið á greiðslur þangað sem
samfelldar. „Það hafa margir náms-
menn leitað til okkar og spurst fyrir
um þetta. Ég tel ekki óeðlilegt að reynt
verði að liðka til hvað snertir þennan
hluta námsmanna, en til þess þyrfti
lagabreytingu. Hugsanlegt væri að
námsmenn fengju að afla sér þessara
tveggja ára réttinda á lengri tíma, t.d.
þremur árum,“ sagði Hrafn Magnús-
son, framkvæmdastjóri Sambands
almennra lífeyrissjóða, í viðtali við
DV.
Einnig hefur verið rætt um að tekið
verði tillit til lífeyrissjóðsgreiðslna
námsmanna sem unnið hafa með námi
á Norðurlöndunum.
-APH
Byggðastofnun til Akureyrar?
Stjómin
tekur
ákvörðun
í dag
í dag mun stjóm Byggðastofnun-
ar taka ákvörðun um hvort stofn-
unin verður flutt til Akureyrar eða
ekki. Fundur stjómarinnar er á
ísafirði og stendur yfir í dag og á
morgun. Heimildir DV telja líklegt
að meirihluti stjómarinnar verði
mótfallinn flutningum.
Allt frá þvi að breytingar vom
gerðar á Framkvæmdastofnun og
Byggðastofiiun sett. á laggimar
hafa verið raddir uppi um að flytja
hana norður til Akurevrar. Á Al-
þingi fluttu þingmennimir Halldór
Blöndal og Geir Gunnarsson til-
lögur um þetta mál. Þeir eiga báðir
sæti í stjóm Byggðastofnunar. Á
'Alþingi var ekki tekið af skarið
og niðurstaðan varð sú að stjóm-
inni var falið að taka endanlega
ákvörðun um hvort úr þessum
flutningum yrði.
í stjóminni sitja sjö menn. Frá
Framsóknarflokki þeir ólafur Þ.
Þórðarson og Stefán Guðmunds-
son, sem jafnframt er fomiaður,
Sjálfstæðisflokki Eggert Haukdal,
Ólafúr G. Einarsson og Halldór
Blöndal, Alþýðubandalagi Geir
Gunnarsson og Alþýðuflokki Sig-
fús Jónsson, sem nú er orðinn
bæjarstjóri á Akureyri.
Samkvæmt upplýsingum DV em
þeir Eggert Haukdal og Ólafur Þ.
Þórðarson á móti flutningi stofh-
unarinnar. Halldór Blöndal og
Geir Gunnarsson em hins vegar
með flutningi. Ekki er ljóst hver
afstða Stefáns og Ólafar G. er í
þessu máli, en frekar er búist við
því að þeir greiði atkvæði á móti.
Sigfús Jónsson hefur fram að þessu
ekki verið alfarið hlynntur því að
Byggðastofnun verði flutt til Ak-
ureyrar. Hann er sjálfsagt undir
þrýstingi vegna stöðu sinnar og
jafnvel búist við að hann láti vara-
mann sinn greiða atkvæði í þessu
máli.
Hjá Byggðastofhun starfa nú um
24 menn. Meðal þeirra er mikil
• andstaða við flutning til Akur-
eyrar og ólíklegt að þeir eigi eftir
að fylgja stofnuninni norður ef það
verður ofan á. Þeir vilja hins vegar
að tekin verði ákvörðun í þessu
máli og létt af þeirri óvissu sem
ríkt hefur um þetta. -APH
Ljóst er að ýmsir hópar í þjóðfélaginu
munu ekki hafa lánsrétt hjá Hús-
næðisstofnun þegar nýju lögin taka
gildi.
DV-mynd GVA
Fangar
tapa
láns-
rétti
Þeir sem verða fyrir því að hafhi
fyrir innan rimlana tímabundið hafi
ekki lánsrétt hjá Húsnæðisstofriur,
vegna þess að þeir, eins og gefur að
skilja, ekki greitt samfleytt í lífeyris-
sjóði í tvö ár eins og reglumar gera
ráð fyrir.
Það em fleiri en fangar og náms-
menn sem geta glata réttinum til láns.
Þeir sem taka sér frá frá störfum í
einhvem tíma eða fara til annara
landa til starfa tímabundið missa
þennan rétt. Reyndar er tekið tillit til
þeirra sem stunda árstíða bundna at>
vinnu og þeirra sem em frá vinnu
vegna veikinda.
Þá er annar hópur, þeir sem ekki
greiða til lífeyrissjóðs, sem hefur ekki
lánsréttindi. Hann getur reyndar sjálf-
um sér um kennt því landslög gera ráð
fyrir að allir þeir er stundi atvinnu
greiði í lífe}TÍssjóði. Eitthvað er um
það að menn komi sér undan þessari
kvöð og er í flestum tilvikum um sjálf-
stæða atvinnurekendur að ræða.
LAN DSBAN KASÝNING
I00ÁRA AFMÆLI LANDSBANKA ÍSLANDS OG (SLENSKRAR SEÐLALJTGÁFU
28.JÚNÍ—20.JÚLÍ í SEÐLABANKAHÚSINU
Itilefni 100 ára afmælis Landsbankans og
íslenskrar seðlaútgáfu hefur verið sett upp
vegleg sýning í nýja Seðlabankahúsinu við
Kalkofnsveg. Þarerm.a. rakin saga gjaldmiðils
á íslandi allt frá landnámsöld, fyrsta afgreiðsla
bankans endurbyggð, skyggnst inn í
framtíðarbankann, sýndar gamlar gullfallegar
vélar og fylgst með hvernig peningaseðill
verður til.
sýningunni verða seldir sérstakir
minnispeningar og frímerki, þar er vegleg
verðlaunagetraun og léttur útibúaieikur
og daglega eru sýndar kvikmyndir um
Landsbankann og sögu íslenskrar seðla- og
myntútgáfu.
Þá eru einnig sýndsaman opinberlega í fyrsta
sinn málverk í eigu bankans eftir marga bestu
listmálara þjóðarinnar.
Veitingasala erá sýningunni og leiksvæði
fyrir börn.
ynmgm er opm virKa aaga rra
kl. 16.00-22.00 ogfrá 14.00-22.00
umhelgar.
Við hvetjum alla til þess að sjá þessa
stórskemmtilegu sýningu.
Aðgangur er ókeypis.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna f 100 ár
-APH