Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1986, Síða 6
6
MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 1986.
Þrotabú Flugfisks hf. heldur fábrotíð:
Eftir er ónýtt
vélsmiðjuhús
og fáein verkfæri
Málefni Flugfisks hf., Flateyri,
verða brátt endanlega til lykta leidd.
Eins og kom fram í DV 24. júní hélt
sýslumaðurinn á ísafirði uppboð á
þrotabúi fyrirtækisins á dögunum.
Um tvær fasteignir var að ræða,
vélsmiðju að Hafiiarbakka 27b og
lýsistank sem stendur við Sólbakka.
Tankurinn var sleginn einum af
þrem stærstu kröfuhöfúm í þrota-
búið, Iðnlánasjóði, á 500 þúsund.
Ekkert tilboð kom í vélsmiðjuna.
„Það dettur engum manrd í hug
að kaupa þetta hús. Það er ónýtt og
algerlega verðlaust," sagði íbúi á
Flateyri í samtali við DV. „Tankur-
inn er í þokkalegu ásigkomulagi.
Með dálitlum lagfæringum er hann
vel nýtanlegur sem iðnaðarhúsnæði.
En hann er vitaskuld algerlega verð-
laus ef enginn ætlar sér að nota
hann.“
„Við sitjum uppi með þennan
tank,“ sagði Bragi Hannesson, fram-
kvæmdastjóri Iðnlánasjóðs. „Hann
verður náttúrlega seldur. Það hafa
víst einhveijir heimamenn áhuga á
honum.“
Allir með sárt ennið
Það sem eftir er af þrotabúi Flug-
fisks hf. er áðumefhd vélsmiðja og
ýmsar vélar og verkfæri í eigu fyrir-
tækisins. Reynt verður að bjóða
húsnæði vélsmiðjunnar aftur upp í
Lýsistankurinn að Sólbakka, sleginn Iðnlánasjóði fyrir 500 þúsund.
Vélsmiðja Flugfisks hf„ Hafnarbakka 27b á Flateyri. „Þetta hús er ónýtt og
algerlega verðlaust."
haust og verið er að leita eftir til-
boðum í tækin.
„Það eru ýmsir að spá í tækin,
bæði í byggðarlaginu og utan þess,“
sagði Skarphéðinn Þórisson, hæsta-
réttardómari og bústjóri þrotabús-
ins. „Ég veit ekkert um ástand
þeirra. Það er erfitt að áætla hvað
fæst fyrir þetta. Ef ekkert tilboð berst
fljótlega verða þessar vélar boðnar
upp ásamt vélsmiðjunni í haust.
Hvað henni viðvíkur þá er líklegast
að hreppurinn kaupi hana fyrir slikk
til niðurrifs. Það eru viðræður í
gangi um það núna,“ sagði Skarp-
héðinn.
Þar með lýkur uppgjöri í þrotabúi
Flugfisks hf. Þegar hafa fengist 500
þúsund upp i tæplega 15 milljóna
króna skuldir. Sú upphæð á ekki
eftir að hækka verulega að mati
kunnugra. Byggðasjóður, Iðnlána-
sjóður og sparisjóðurinn á Þingeyri,
sem áttu kröfúr upp á rúmlega 10
milljónir, sitja eftir með sárt ennið.
Og íbúar Flateyrar líka.
„Þessu lýkur á leiðinlegan hátt,“
sagði frammámaður á staðnum í
samtali við DV. „Þetta hlýtur að
bitna á sveitarfélaginu þótt sjóðimir
sýni okkur engan fjandskap. Sjóð-
imir vom leiddir á villigötur. Þeir
fylgdust einfaldlega ekki nægilega
vel með því sem var að gerast.“
-ÞJV
DV-myndir baj
Peningamarkaður
Innlán með sérkjörum
Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru
fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn-
stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir
verða fullra 16 ára. 65-69 ára geta losað inn-
stæður sínar með 9 mánaða fyrirvara, 70-74
ára með 6 mánaða fyrirvara og 75 ára og eldri
með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningarnir eru
verðtryggðir og með 8% vöxtum.
Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert
innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með
9% nafnvöxtum.
Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá
lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn-
stæður eru óbundnar og óverðtryggðar.
Nafnvextir eru 15% og ársávöxtun 15%.
Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafhvextir
10% en 2% bætast við eftir hverja þrjá mán-
uði án úttektar upp í 16%. Ársávöxtun á
óhreyfðri innstæðu er 13,64% á fyrsta ári.
Búnaðarbankinn: Sparibók með sér-
vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 13%
nafnvöxtum og 13,6% ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri
úttekt dragast 0,75% í svonefnda vaxtaleið-
réttingu.
18 mánaða reikningur er með innstæðu
bundna í 18 mánuði á 14,5% nafnvöxtum og
15% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri.
Iðnaðarbankinn: Bónusreikningar eru
annaðhvort með 10,5% nafnvöxtum og 10,8%
ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3,5%
vöxtum. Hærri ávöxtunin gildir hvem mán-
uð. Á hreyfðum innstæðum gildir verðtrygg-
ing auk 2% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka
má út tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án
þess að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir
30.06. og 31.12.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með
14% nafnvöxtum og 14,49% ársávöxtun eða
ávöxtun 6ja mánaða verðtryggðs reiknings
reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast
0,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu.
100 ára afmælisreikningur er verðryggð-
ur og bundinn til 15 mánaða. Vextir eru 7,25%
og breytast ekki á meðan reikningurinn verð-
ur í gildi.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur
hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg,
fyrst 8%, eftir 2 mánuði 8,25%, 3 mánuði S,
50%, 4 mánuði 9%, 5 mánuði 9,5% og eftir 6
mánuði 12%, eftir 12 mánuði 12,5% og eftir
18 mánuði 13%. Sé ávöxtun betri á 3ja eða 6
mánaða verðtryggðum reikningum gildir hún
um hávaxtareikninginn.
18 og 24 mánaða reikningar eru bundnir
og verðtryggðir og gefa 7,5 og 8% vexti.
Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort
hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í
bankanum, nú 12,4%, eða ávöxtun 3ja mán-
aða verðtrvg^ðs reíknings með 1% nafnvöxt-
um sé hún betri. Samanburður er gerður
mánaðarlega en vextir færðir í árslok. Sé tek-
ið út af reikningnum gilda almennir spari-
sjóðsvextir, 8%, þann mánuð.
Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er
óbundinn. Þá ársfjórðunga sem innstæða er
óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu
sinni eru reiknaðir hæstu vextir sparifjár-
reikninga í bankanum. Nú er ársávöxtun
annaðhvort 13,1% eða eins og á verðtryggðum
6 mánaða reikningum með 3% nafnvöxtum.
Af úttekinni upphæð reiknast almennir spari-
sjóðsvextir, 8,5%, og eins á alla innstæðuna
innan þess ársfjórðungs þegar tekið hefur
verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax
hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heila
ársfjórðung. Vextir færast fjórum sinnum á
ári og leggjast við höfuðstól. Þeir eru alltaf
lausir til útborgunar.
Sparisjóðir: Trompreikningur er verð-
tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga
með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn
3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun
með svokölluðum trompvöxtum, 12,5%, með
13% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn-
stæðu í hverjum ásfjórðungi. Reynist tromp-
vextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt
á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður inn-
an mánaðar bera trompvexti sé innstæðan
eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari-
sjóðsvexti, 8%. Vextir færast misserislega.
12 mánaða reikningur hjá Sparisjóði vél-
stjóra er með innstæðu bundna í 12 mánuði,
óverðtryggða en á 15,5% nafnvöxtum. Þeir
eru færðir einu sinni á ári og ársávöxtun er
því einnig 15,5%.
18 mánaða reikningar 5 sparisjóða eru
með innstæðu bundna óverðtryggða í 18 mán-
uði en á 14,5% nafnvöxtum og 15,2% árs-
ávöxtun. Sparisjóðimir í Keflavík, Hafnar-
firði, Kópavogi, Borgamesi og Sparisjóður
Reykjavíkur bjóða þessa reikninga.
Spariskírteini
Spariskírteini Ríkissjóðs Islands em seld í
Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð-
um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum.
Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og
100 þúsund krónur, nema vaxtamiðabréf sem
eru 50 þúsund að nafnverði.
Þau em: Hefðbundin, til mest 14 ára. Með
þriggja ára binditíma em ársvextir 7%, fjög-
urra ára 8,5% og sex ára 9%. Verðbætur,
vextir og vaxtavextir greiðast með höfuðstól
við innlausn. Með vaxtamiðum, til mest 14
ára, innleysanleg eftir fjögur ár. Ársávöxtun
er 8,16% á verðbættan höfuðstól hveiju sinni
og vextir greiðast út 10.01. og 10.07. ár hvert.
Við innlausn greiðast verðbætur með höfuð-
stól. Gengistryggð skírteini em til fímm ára.
Þau em bundin safngjaldeyrinum SDR (til-
tekin samsetning af dollar, pundi, yeni, þýsku
marki og firönskuin franVnV Vu:dir 8,5%.
Höfuðstóll, vextir og vaxtavextir greiðast í
einu lagi við innlausn.
Almenn verðbréf
Fasteignatryggð verðbréf em til sölu hjá
verðbréfasölum. Þau em almennt tryggð með
veði undir 60% af bmnabótamati fasteign-
anna. Bréfin em ýmist verðtryggð eða
óverðtryggð og með mismunandi nafnvöxtum.
Þau em seld með afföllum og ársávöxtun er
almennt 12-16% umfram verðtryggingu.
Húsnæðislán
Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis-
ins, F-lán, nema á 2. ársfjórðungi 1986: Til
einstaklinga 826 þúsundum króna, 2-4 manna
fjölskyldna 1.052 þúsundum, 5 manna og fleiri
1.233 þúsundum. Lánin em til 31 árs.
Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema
á 2. ársfjórðungi 1986: Til kaupa í fyrsta sinn
er hámark 413 þúsund krónur til einstakl-
ings, annars mest 207 þúsund. 2-4 manna
fjölskylda fær mest 526 þúsund til fyrstu
kaupa, annars mest 263 þúsund. 5 manna fjöl-
skylda eða stærri fær mest 617 þúsundir til
fyrstu kaupa, annars mest 309 þúsund. Láns-
tími er 21 ár.
Húsnæðislánin em verðtryggð með láns-
kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum.
Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól,
aðeins vextir og verðbætur.
Útlán lifeyrissjóða
Um 90 lífeyrissjóðir em í landinu. Hver
sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupp-
hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að
lánsrétti er 30-60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða
aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin
stig. Lán em á bilinu 150-1000 þúsund eftir
sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin em verð-
tryggð og með 5% vöxtum. Lánstími er 15-42
ár.
Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur.
Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli
sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir em vextir í heilt ár og reiknað-
ir í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir
reiknaðir og lagðir við höfuðstól oftar á ári
verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verður
þá hærri en nafnvextirnir.
Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á
10% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tíma-
bilsins 1100 krónur. Ársávöxtunin verður því
10%. Sé innstæðan óverðtryggð í verðbólgu
dregur úr raunávöxtun sem því nemur og hún
getur jafnvel orðið neikvæð.
Liggi 1000 krónumar inni í 6 + 6 mánuði á
10% nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eft-
ir 6 mánuði. Þá verður upphæðin 1050 krónur
og ofan á þá upphæð leggjast 5% yextir seinni
6 mánuðina. Á endanum verður innstæðan
því 1.102,50 og ársávöxtunin 10,25%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir em frá 01.04.1986 2,25% á
mánuði eða 27% á ári.
Vísitölur
Lánskjaravísitala í júlí 1986 er 1463 stig
en var 1448 stig í maí og 1432 stig í maí. Mið-
að er við gmnninn 100 í júní 1979.
Byggingarvísitala á 3. ársfjórðungi 1986
er 270 stig á gmnninum 100 frá 1983 en 3998
stig á gmnni 100 frá 1975.
Húsaleiguvísitala hækkaði um 5% 01.04.
en um lO^^jiæst þar áður, frá 01.01.86. Þessi
vísitala mælir aðeins hækkun húsaleigu þar
sem við hana er miðað sérstaklega í samning-
um leigusala og leigjenda.
Hlutabréfamarkaðurinn
Eimskipafélag íslands Kaupverð m.v. 100 kr. nafnverðs 370 Kaupverð að lokinni jöfnun 185 Söluverð m.v. 100 kr. nafnverðs 400 Söluverð að lokinni jöfnun 200
Flugleiðir 39Ó 130 421 140
Iðnaðarbankinn 125 91 135 98
V erslunarbankinn 124 90 134 97
VEXTIR BANKA 0G SPARISJÓÐA (%)
1.-10.07 1986
INNLÁN MEÐ SÉRKJÚRUM ,, 5
SJA sérlista 11 i! 11 11 11 li 1111 tui
innlAn överðtryggð
SPARISJÓÐSBÆKUR Óbundin innstæða 9.0 9.0 8.0 8.5 8.0 9.0 8.5 8,5 8.5 8.0
SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsögn 10,0 10.25 10.0 9.0 8.5 10.0 8.5 9.0 10.0 9.0
6 mán.uppsögn 12.5 12,9 12.5 9.5 11.0 10.0 10,0 12.5 10.0
12 mán.uppsögn 14.0 14,9 14.0 11.0 12.6 12.0
SPARNADUR- LÁNSRÉTTURSparaA3-5mán. 13,0 13.0 8.5 10.0 8.0 9.0 10.0 9.0
Sp. 6mán. ogm. 13.0 13.0 9.0 11.0 10.0 10.0
TÉKKAREIKNINGAR Avisanareikningar 6,0 6.0 2.5 3.0 4.0 4.0 3.0 3.0 3.0
Hlaupareikningar 4,0 3.0 2.5 3,0 4.0 4.0 3.0 3.0 3.0
INNLÁN VERÐTRYGGÐ SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsögn 1.0 1.0 1.0 1.0 1,0 1.0 1.0 1.0 1.0
6 mán. uppsögn 3,5 3.0 2.5 2.5 3,5 2.5 3.0 3.0 3.0
innlAn gengistryggð GJALDEYRISREIKNINGAR Bandarikjadollarar 7,0 7.0 6.0 6.0 6.0 6.5 6.0 6.5 6.0
Sterlingspund 11,5 10.5 9.5 9.0 9.0 10.5 9.0 10.5 9.0
Vestur-þýsk mörk 4,0 4.0 3.5 3.5 3.5 3.5 3.5 3.5 3,5
Danskar krónur 7.5 7.5 7.0 7.0 6.0 7.5 7.0 7.0 7.0
ÚTLAN úverðtryggð ALNIENNIRVlXLAR (forvextir) 15,25 15.25 15.25 15.25 15.25 15.25 15,25 15.25 15.25
VIÐSKIPTAVlXLAR 3) (forvextir) kge 19,5 kge 19.5 kge kge kge kge
ALNIENN SKULDABRÉF 2) 15,5 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5 15,5 15,5 15,5
VIDSKIPTASKULDABRÉF 3) kye 20,0 kge 20,0 kge kge kge kge
HLAUPAREIKNINGAR YFIRDRATTUR 9.0 9.0 9.0 9.0 7 0 9.0 9.0 9.0 9.0
ÚTLÁN VERDTRYGGÐ SKUL0ABRÉF Aö 21/2 ári 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0
Lengri en21/2ár 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0
útlAntilfranileiðslu sjAneðanmAlsi)
1) Lán til framleiðslu á innanlandsmarkað eru á 15,0% vöxtum. Vegna útflutn-
ings, í SDR 8%, í Bandaríkjadollurum 8,5%, í sterlingspundum 11,75%, í vestur-
þýskum mörkum 6,25%. 2)Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er
2%, bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán. 3)Við kaup á viðskiptavíxlum og
viðskiptaskuldabréfum, á þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge, hjá
þeim bönkum sem þannis er merkt við, einnie hiá flestum stærstu sparisjóðunum.