Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1986, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 1986.
7
Atvinnumál
L5WKM
alla vikuna
„Þá væri ég helst
til horaður..."
- Ámi Oddsteinsson í Vík
„Það gengur nú fremur illa að reka
leigubíl héma og raunar er ég bíllaus
eins og er,“ sagði Ámi Oddsteinsson,
leigubílstjóri í Vík í Mýrdal. Ámi er
eini leigubílstjórinn enda myndu flest-
ir telja það bjartsýni að reka leigubíl
í Vík þar sem aðeins em um 360 íbúar.
„Ég byrjaði að keyra leigubíl 1973
og það var þokkalegt að gera fyrstu
árin. Núna er það helst ef bílar bila
og fólk þarf að komast til Hafnar eða
Reykjavíkur og svo sjúkraflutningar
sem ég tek að mér. En ég held að ég
væri helst til horaður ef ég lií'ði ein-
göngu á leiguakstrinum."
Ámi er því með mörg jám í eldinum,
á fyrirtækið Hrafriatind sem framleiðir
rafinagnsofria, keyrir út póstinn í
hreppinn og rekur 3 hópferðabíla í
samvinnu við tvo félaga sína. „Ég vinn
einn í Hrafriatindi, enda hefur mark-
aðurinn fyrir raímagnsofha minnkað
stöðugt eftir að hitaveitumar komu
til. En póstinn keyri ég út þrisvar í
viku og ef ég er ekki viðlátinn þá
hleypur konan mín í skarðið. Við erum
þrír sem eigum þrjá hópferðabíla og
það gengur þokkalega."
Ámi er fæddur í Skaftártungu en
flutti til Víkur 1970. Hann segir að það
sé gott að búa í Vík en talar um að
atvinnuástandið sé ekki nógu gott.
„Ég ætla að reyna að halda þessu eitt-
hvað áfram, en ég verð að viðurkenna
að ég er ekki bjartsýnn á framtíð leigu-
bílsins." -S.Konn.
Ámi Oddsteinsson hefur mörg jám í eldinum; ekur leigubil, póstbíl, framleiðir
rafmagnsofna og rekur hópferðabíla. Mynd KAE
Skreið skipað út í Selmar Enterprise á Fáskrúðsfirði.
DV-mynd Ægir Kristinsson, Fáskrúðsfirði
Þorskhausum skipað
út til Nígeríu
Ægir Kristinsson, DV, Fáskrúðsfiiði:
Nýverið lestaði Selmar Enterprise,
6100 t skip frá Indlandi, 55 t af hertum
þorskhausum sem fara til Nígeríu. Að
sögn Hallgríms Bergssonar, skrif-
stofustjóra Pólarsíldar, vom 15 t af
skreið send með flutningabíl til
Reykjavíkur nýverið og þar í skip.
Pólarsíld á nú um 150 t af skreið í
geymslum sem væntanlega fara á Ní-
geríumarkað á næstunni.
ALDREI MEIRA URVAL
Mikið úrval af sumarbolum, verð frá kr. 270,-
Háskólabolir, með og án mynda, verð frá kr. 550,-
Mikið úrval af dömujogginggöllum, verð frá kr. 1.190,-
Gallabuxur frá kr. 990,-
Peysur, skyrtur, sokkar, nærföt og fleira og fleira.
SANNKALLAÐ FATALAND
Opið virka daga 10-18 töstudaga 10-19 laugardaga 10-16
1>RÚN«
SMIF
Fatalagennn
REYKJANES&RAl/T
Smiðjuvegi 4, sími 79494,
Laugavegi 28, sími 628838
ísafirði, Akureyri, Húsavík, Neskaupstað
Laxinn tyir á ferðinni:
Góðar heimtur
hjá hafbeitar-
stöðvunum
Það sem af er hafa heimtur hjá
hafbeitarstöðvunum verið nokkuð
góðar miðað við fyrri ár. Hér á landi
em nú fjórar hafbeitarstöðvar. Þessa
stundina er verið að vinna að því
að finna markað erlendis fyrir
aflann.
Hjá Laxeldisstöðinni í Kollafirði
fengust þær upplýsingar að komnir
væm 2600 laxar. Björtustu vonir
gera ráð fyrir að allt að 15 þúsund
laxar eigi eftir að skila sér áður en
yfir lýkur. Meðalþyngd laxanna hef-
ur verið á bilinu 6 til 8 pund. í fyrra
var sleppt um 180 þúsund seiðum og
yrðu þá heimtur um 10 prósent. í
fyrra vom þær um 7 prósent.
Hjá Vogalaxi í Vogum hafa heimt-
ur það sem af er verið helmingi betri
en í fyrra. í stöðina em komnir 285
laxar. Ef heimtur verða 10 prósent
ættu um 2500 laxar að koma í stöð-
ina. Þar er gert ráð fyrir að allur
aflinn verði seldur til Bandaríkj-
1 laxeldisstöðina Pólarlax við
Straumsvík em nú komnir 1165 lax-
ar. Á sama tíma í fyrra vom komnir
200. Ef heimtur verða 10 prósent
ættu 10 þúsund laxar að skila sér.
Ekki tókst að fá upplýsingar frá
Laxeldisstöðinni Lárósi við Grund-
arfjörð en hún er fjórða hafbeitar-
stöðin hér á landi.
Búist er við að laxinn haldi áfram
að skila sér fram í september.
-APH
Amarflug:
Loka-
sprettur-
inn fyrir
vinnu-
stöðvun
Ekki náðist samkomulag á
fundi flugvirkja og forráða-
manna Amarflugs sem haldinn
var hjá sáttasemjara ríkisins í
gær. Fundurinn var stuttur og
var samninganefnd flugvirkja
ekki fullmönnuð vegna of
skamms fyrirboða.
í dag klukkan 13 hefst annar
fundur. Þar ætti að fást úr því
skorið hvort samingar takast.
Ef ekki hefst verkfall flugvirkj-
anna á fimmtudag.
-APH