Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1986, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1986, Síða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 1986. Úúönd TVeir virtír bandariskir lögfræðingar: Vilja ekki Waldheim til Bandaríkjanna Tveir virtir bandarískir lögfræö- ingar segja í blaðagrein í dag að bandarísk stjómvöld eigi hiklaust að banna ferðir Kurt Waldheims, sem í gær var settur í embætti for- seta Austurríkis, til Bandaríkjanna. Greinin, sem Arthur Goldberg, fyrrverandi aðstoðardómari við Hæstarétt Bandaríkjanna, og Eliza- beth Holtzman, fyrrverandi þing- maður í New York og núverandi saksóknari í Brooklyn, skrifuðu í sameiningu, birtist á ritstjómarsíð- um New York Times. Waldheim hefur, sem kunnugt er, neitað öllum ósökunum um að hafa verið nasisti eða átt einhvem þátt í stríðsglæpum meðan hann var í þýska hemum á Balkanskaga. Tveir virtír bandarískir lögfræðingar hafa skorað á Bandaríkjastjórn að fordæma stríðsferil Kurt Waldheims með því að lýsa hann óvelkominn til Bandaríkjanna undir öllum kring- umstæðum. í greininni kom fram að tvenns konar misskilningur væri ríkjandi um það hvort hleypa ætti Waldheim til Bandaríkjanna. í fyrsta lagi væri að hann sem þjóðhöfðingi nyti sömu réttinda og sendifulltrúar annarra þjóða og væri þvi ekki hægt að vísa honum úr landi samkvæmt lögum og i öðm lagi að úr því að ekkert hefði enn sannast ó hann um aðild að stríðsglæpum gæti hann ferðast til Bandaríkjanna sem venjulegur ferðamaður. Varðandi hið fyrra segir í grein- inni: „Sú ókvörðun að samþykkja eða hafna erlendum þjóðhöfðingja eða sendifulltrúa eða að lýsa hann brottrækan er alfarið í valdi forseta eða utanríkisráðherra. Bandaríkin eiga að notfæra sér þennan rétt til að hafna herra-Waldheim á þeim forsendum að athafnir hans, sem skráðar em á Balkansskaga í stríð- inu, em mjög andsnúnar bandarísku þjóðinni." Varðandi hið síðara sagði í grein- inni að rök þeirra sem halda þvi fram að Waldheim hafi ekki verið stríðs- glæpamaður séu í meira lagi vafa- söm. „Samkvæmt bandarískum lögum er það hins vegar svo að þessi rök skipta ekki máli. Ein grein innflytj- endalaganna kveður á um það, að hver sá sem hafi fyrirskipað, hvatt til, aðstoðað við eða á annan hátt aðstoðað við athafhir nasista, sem byggðust á kynþætti, trú, þjóðemi eða stjómmálaskoðun skuli brott- rækur frá Bandaríkjunum. Greinilegt er, samkvæmt skjölum Sameinuðu Þjóðanna, skjalasafhi Bandaríkjastjómar og öðrum heim- ildum, að herra Waldheim aðstoðaði, meðan hann gegndi herþjónustu, við grimmdarverk nasista, samkvæmt lögum þessum. Þetta eitt er nægilegt til að hann skuli brottrækur vera.“ Að auki segir í greininni að stjóm Reagans ætti að lýsa yfir fordæm- ingu sinni á stríðsferli Waldheims með því að gefa yfirlýsingu um að hann verði ekki velkominn til Bandaríkjanna, hvorki sem forseti Austurríkis né sem óbreyttur ríkis- borgari. REYKJAVÍKUR-LJÓSMYND FYRIR VIKUNA Sendist VIKAN Þverholti 11, 105 Reykjavík. Skilafrestur er til 18. júlí. SMÁ AUGLÝSING í DV GETUR LEYST VANDANN. Smáauglýsingadeild sími 27022. Sendið inn Ijósmyndir í samkeppni VIKUNNAR. Besta Ijósmyndin verður á forsíðu VIKUNNAR 14. ágúst nk. en þá kem- ur sérstök REYKJAVÍKUR-VIKA, tileinkuð 200 ára afmæli höfuðborg- arinnar. 1. verðlaun: KODAK AF 2 - ný myndavél frá KODAK. Hans Petersen hf. veitir verðlaunin. 2. VERÐLAUN: 6 þús. kr. 3. VERÐLAUN: 4 þús. kr. Sendið inn Ijósmyndir í samkeppni VIKUNNAR. Myndefnið úr eða í Reykjavík. Nú er talið að aðeins séu rúmlega 700 japanskir stríðsmunaðarleysingjar eftir i Kína frá því á dögum síðari heimsstyrjaldarinnar. Japanskir stríðs- munaðarleys- ingjar í Kína Eyþór Eyióíssan, DV, Tdkýo: Miðaldra kona brestur í grát fyrir framan myndavélar blaðamanna. Móðir hennar, roskin kona klædd japönskum kímono, þerrar tár hennar. Þær hafa ekki sést í yfir 40 ár. Þegar ljóst var að Japanir mymdu bíða ósigur í seinni heimsstyrjöldinni flúðu margir þeirra sem voru búsettir á hemumdum svæðum Japana í Kína í ofboði til Japans. í allri ringulreið- inni, sem fylgdi í kjölfarið, urðu mörg böm viðskila við foreldra sína, öðrum var komið í fóstur hjá kínverskum fjöl- skyldum. I mars 1981 hófet japanska heilbrigð- isráðuneytið handa við að aðstoða stríðsmunaðarleysingjana að finna ættmenni sín hér ó landi. Að sögn kínverskra og japanskra yfirvalda munu 2135 stríðsmunaðar- leysingjar vera á skrá, þar af höfðu í mars sl. 1435 þeirra heimsótt Japan. Af þeim hópi tókst 942 að hitta ættr fólk sitt. Gert er ráð fyrir að hinir 700 „Japan- ir“, sem eftir em í Kína, komi hingað í ár og á næsta ári. í nýlegri skoðanakönnun Kyodo- fréttastofúnnar kom fram að einungis helmingur þeirra stríðsmunaðarleys- ingja, sem tekist hefúr að hafa uppi á fjölskyldum sínum, kjósi að setjast að í Japan. Helstu ástæður fyrir trega þeirra vom ótti við tungumálaerfið- leika, takmarkaðir atvinnumöguleik- ar og vandkvæði á að aðlagast hinu tæknivædda, japanska þjóðfélagi. Auk þess kváðust margir þurfa að annast fósturforeldra sína. í Saitama-héraði, skammt frá Tokýo, hefur verið komið á fót sérstökum skóla sem býr munaðarleysingjana og fjölskyldur þeirra imdir lífið í hinum nýju heimkynnum. Veitt em hraðn- ámskeið í japönsku og japönskum lífsvenjum. Námskeið þessi standa yfir í fjóra mánuði og hafa nú þegar 472 manns frá 99 fjölskyldum „lokið námi“. Ýmsir hafa þó þurft að snúa aftur til Kína með sárt ennið. Sökum hins langa aðskilnaðar skortir marga ótví- ræðar vísbendingar um uppruna sinn. Foreldrar margra þeirra em látnir og hafa tekið minninguna um gleymdu bömin í Kína með sér í gröfina. Frú Wang Shulin tókst í fyrsta sinn í 40 ár að hitta aldraðan föður sinn. En ekki gafet þeim mikill tími til fagn- aðar. Fimm mínútum eftir endurfúndi þeirra lést gamli maðurinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.