Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1986, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1986, Síða 13
MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 1986. 13 Verða laun háskóla- manna leiðrétt? Samtök háskólamenntaðra ríkis- starísmanna, BHMR, hafa háð sérstæða kjarabaráttu. Lög banna BHMR hvers kyns vinnustöðvanir og ríkið neitar hvers kyns yfirborg- unum. Laun háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna sjást því í töxtum og kjarasamningum gagnstætt því sem gerist hjá flestum öðrum. Ef rík- ið vill ekki hækka umsamin laun þeirra í kjölfar uppsagnar samninga fer deilan til kjaradóms sem úr- skurðar endanlega um kjör félags- manna BHMR. Kjaradómur að störfum Einmitt um þessar mundir sitja dómendur kjaradóms yfir því verk- efni að leiðrétta laun háskólamennt- aðra ríkisstarfsmanna. Lög mæla svo fyrir að þeir skuli dæma háskóla- menntuðum starfsmönnum ríkisins KjaUaiinn Stefán B. Sigurðsson dósent við Háskóla íslands „Lög mæla svo fyrir að þeir skuli dæma háskólamenntuðum starfsmönnum ríkis- ins sambærileg laun og háskólamenn hafa á almennum markaði.“ sambærileg laun og háskólamenn hafa á almennum markaði. Öllum er ljóst að þetta er mikið vandaverk, bæði vegna almennrar leyndar um launakjör í einkageira og svo vegna hins að ríkið telur sig ekki aflögu- fært. Þessar ástæður hafa verið notaður áður og kjaradómur á þeim forsendum frestað ákvarðanatöku þar til hann fengi betri upplýsingar. En kjaradómur hefur nú fengið gögn til að vinna úr. Nefhd á vegum BHMR og fjármálaráðherra hefur aflað gagna um dagvinnulaun og önnur kjaraatriði háskólamanna á almennum markaði og fyrir dómnum liggja skýrar upplýsingar um dag- vinnulaun háskólamenntaðra ríki- starfsmanna. Hin sameiginlega nefhd hefur gætt þess að gagnsöfh- unin og svo úrvinnslan fari eftir öllum bestu vísindalegu aðferðum sem þekktar eru í þessum efnum. Þetta hefur gert baráttu BHMR sér- stæða. Þrátt fyrir almenna launa- leynd hefur tekist með dyggri aðstoð Hagstofu íslands að afla eftir vís- indalegum leiðum haldbærra gagna. Þessi staðreynd hefur gert mig bjart- sýnan um að kjaradómur mirni nú leiðrétta kjör háskólamanna í þjón- ustu ríkisins. Kröfur þjóðfélagsins Ég er sannfærður um að allur al- menningur áttar sig ekki á því hvaða kjör bíða háskólamanna í þjónustu ríkisins, ef til vill eftir langt fram- haldsnám. Sérhæft háskólamenntað hjúkrunarfólk með mikla ábyrgð á spítölum nær varla Bolungarvíkui'- samningum nema með mikilli yfir- vinnu. Sama gegnir um ýmsa aðra hópa. Lektor við Háskóla Islands fær í byrjunarlaun 32.072, og það yfir- leitt eftir 6 til 10 ára háskólanám. Það er staðreynd að þjóðin gerir í dag kröfur um betur menntaða há- skólamenn en áður hefúr þekkst, bæði til almennra starfa og til að stunda kennslu og hvers kyns vís- indarannsóknir til að búa í haginn fyrir framtíðina. Lág laun háskóla- manna hjá ríki í samanburði við kjör háskólamanna á almennum markaði og í samanburði við kjör háskólamanna erlendis hafa gert háskólamenntaða ríkisstarfsmenn á íslandi að láglaunastétt. Ef kjaradómur bregst nú er hætt við að þetta sé í síðasta skipti sem launabarátta verði rekin með skyn- samlegum hætti. Sennilega myndu þær raddir fá byr undir báða vængi sem vilja að samtökin grípi til verk- fallsvopnsins og væri það miður. Stefán B. Sigurðsson Niðuriægingartímabilið Flestir viðurkenna að núverandi ríkisstjóm hefur verið harðvíðtugri og illskeyttari gagnvart launafólki en nokkur ríkisstjóm sem við þekkj- um frá lýðveldisstofnun. Stjómin hóf feril sinn með því að afnema samn- ingsrétt verkalýðshreyfingar, afhema verðtryggingu á launin o.s. frv. Afleiðingamar urðu m.a. þær að á örskömmum tíma rýmuðu laun fólksins um tugi prósenta. Þessari kjaraskerðingu mætti launafólkið aftur með meiri vinnuþrælkun og aðrar félagslegar afleiðingar kjara- skerðingarinnar á líf fólksins í landinu vom geigvænlegar. Það þriggja ára skeið sem liðið er, mun lifa í endurminningunni sem eitt mesta niðurlægingartímabil is- lensks launafólks. Þar er ekki einungis grimmd ríkisstjómarinnar um að kenna, heldur ekki síður full- kominni uppgjöf verkalýðsforyst- unnar og pólitískri eymd stjómar- andstöðunnar á alþingi. Og saman' hafa þær haldist í hendur út stjóm- artímabilið uppgjöfin og eymdin - og aldrei jafhömurlegar í nekt sinni og einmitt nú. f stórum dráttum hefur verkalýðs- forystan ekki gert annað í kjara- samningum sem gerðir hafa verið á tímabilinu en að ffamlengja kjara- skerðinguna. Allir samningar frá því 1983 hafa gert ráð fyrir óbreyttum kaupmætti taxtakaups eftir kjara- skerðinguna miklu. Þannig hefur verkalýðsforystan kysst á vöndinn ár eftir ár. 1 rökréttu framhaldi og táknrænu tók hún upp á að gefa ráðherrum í ríkisstjóminni blóm. Ásmundur Stefánsson, Guðmund- ur J. Guðmundsson og Þröstur Ólafsson þrístimið sem stjómað hef- ur þessari „herför“ niðurlægingar- innar - er því miður bendlað við stjómmálaflokk sem hefði sam- kvæmt lögmálinu átt að standa fyrir því að fella ríkisstjómina, a.m.k. vera heill i stjómarandstöðu. En þetta þrístimi hefur, eins og flestum er nú að verða ljóst, stjómað Al- þýðubandalaginu í reynd á síðustu misserum. Þeim er að þakka þögnin á ögurstundum, þeim er að þakka sá klofningur sem verið hefur á milli fólks sem vill að Alþýðubandalagið móti sjálft sína stefhu í kjaramálum og þeirra sem sett hafa flokksforyst- una í pólitíska gíslingu. Ástæða er til að óttast - eða vona - að með tímanum fækki þeim prins- um sem hafa geð í sér til að leysa forystuna úr þeirri prísund sem hún hefur kallað yfir sig. En það má leita áfram á galleríi eymdarinnar - ef ekki við Áusturvöll þá í Flórída. Ríkisstjórn í sigtinu Ekki höfðu þeir örfáu sem mættu á fundi verkalýðsfélaga til að stað- festa síðustu kjarasamninga lengi notið lágra tolla af bílum þegar þeim var gert ljóst að í rauninni hefðu þeir ekki verið að samþykkja kjara- samninga. Verkalýðsforystan taldi nefnilega samningana ómarktæka og árangurslausa nema þeim fylgdi ný ríkisstjóm. Viðreisnarsjóm með tilbrigði, þ.e. ríkisstjóm Sjálfstæðis- flokksins, Alþýðuflokksins og Alþýðubandalagsins. Trúlega hefðu fleiri mætt á fimdina í verkalýðs- félögunum hefðu þeir rennt grun í að þar gæfi einstætt tækifæri til að greiða atkvæði um ríkisstjómar- munstur. í sjálfú sér er hér um pólitík að rseða sem er samkvæm sjálfri sér. Þeir sem sitja að völdum í verkalýðs- forystunni em þar fyrir eina alls- herjar pólitíska samtryggingu. Þar er auðvitað enginn munur gerður á Sjálfstæðisflokknum, Alþýðubanda- laginu og Alþýðuflokknum. Þar reka menn bara eina stefhu, að sitja og treysta völdin. Fyrir tveimur áratug- um gerðu allra flokka menn með sér samkomulag um að bjóða ekki fram í stéttarfélögum gegn þeim stjómum sem fyrir væm. Það þurfti ekki tvo áratugi til að þurrka út þann mun sem var á flokkunum í verkalýðs- forystunni. Hvaða munur er á Karli Steinari og Guðmundi J. Guðmunds- syni, Ásmundi Stefánssyni og Bimi KjaUariim Óskar Guðmundsson blaðamaður Þórhallssyni? Bjöm er aðeins skiln- ingsríkari í tali á kjör launafólks en Ásmundur, en í raun kennir lítils sem einskis áherslumunar. Þessir karlar hafa unað sér saman um það að sitja í valdastólnum og kvitta undir samninga - en viðræður fara fram í leynum. Þeir þekkja ekki annað vinnulag - og láta sér ekki detta í hug að fara eftir samþykktum ASÍ-þinga um hvemig standa skuli að málum. Og þessir karlar finna ekki þörfina á mannsæmandi laun- um brenna á sjálfum sér því þeir skammta sér sjálfir laun sem em ekkert í samræmi við launataxta sem þeir ætla öðrum að lifa eftir. Fyrir utan hlunnindi. Að standa í fæturna Auðvitað þarf fólk úr öllum flokk- um að vinna saman í verkalýðs- heryfingunni eins og annars staðar í okkar litla þjóðfélagi. En til að geta gert það þurfa flokkar og menn að geta staðið í fætuma. Þeir þurfa að hafa eigin stefriu að berjast fyrir - og síðan gætu þeir gert málamiðl- anir um hvað sem er - og það fyrir opnum tjöldum. En það er ekki raunin í íslenskri verkalýðshreyfingu. Enda er árang- urinn í samræmi við það. íslenska atvinnurekendavaldið hlær að eym- ingjadómnum, enda fært um að greiða margfalt hærri laun en það lætur verkalýðsforystuna skrifa upp á. Og nú er svo komið að launakerf- ið almennt í landinu er hrunið. Nokkur þúsund manna þurfa að lifa af taxtalaunum en þorri launafólks hefur aðrar aðferðir að fara eftir. Með vesaldómnum hefur atvinnu- rekendum verið falið aukið þjóð- félagslegt vald. En hvað er verkalýðshreyfing sem ekki semur um laun? Það er sjálfeagt að líta á málið útfrá markaðshliðinni - og segja sem svo að verkalýðsfélag hafi vinnuafl til sölu. Árangur verkalýðsforystu er svo mældur í samræmi við það verð sem henni tekst að semja um á vinnuafli fólksins sem er í félögun- um. Verðskrár (launataxtar) verka- lýðsforystunnar eru auðvitað ekki lengur í gildi. Atvinnurekendur hafa tekið sér valdið af því stefna verka- lýðsforystunnar bauð uppá það. Verkalýðshreyfing sem ekki semur lengur um launin og gefur ekki út marktæka verðskrá er ekki mikils virði. Verkalýðsforysta slíkrar hreyfingar á ekki mikið annað eftir en leggja upp laupana. í samræmi við tregðulögmálið mun hún hins vegar freista þess að hasla sér völl í pólitíkinni til að treysta það vald sem hún hefur í þjóðfélaginu - og reyna þannig að vinna upp getuleys- ið á faglega sviðinu. Þess vegna vilja þeir líka ráða ríkisstjóm og komast fleiri inná þing. Verkalýðsforystan hefur keyrt ís- lenska verkalýðshreyfingu, baráttu launafólks niðrí ótrúlega lágkúru Enda gefa nýjustu tíðindi tilefrd til að stinga uppá að í stað hagfræðing- anna verði ráðnir hlunnindarráðu- nautar inná suma kontóra verkalýðsfélaganna í Reykjavík. Oskar Guðmundsson „Enda gefa nýjustu tíðindi tileftii til að stinga uppá að í stað hagfr æðinganna verði ráðnir hlunnindaráðunautar inná suma kontóra..

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.