Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1986, Side 14
14
MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 1986.
Spumingin
Lesendur
Hefurðu farið til útlanda
í sumar?
Birgir Svan verkamaður.
Nei, ég hef ekki farið, það eru tíu
ár síðan ég fór síðast. Annars hefði
ég ekkert á móti styrk frá Albert
Guðmundssyni.
Rúnar Bragason verkamaður.
Nei, ég hef ekki farið og ég er ekki
að hugsa um að fara.
Stefán Arngrímsson kennari.
Nei, ég hef ekki gert það, ég ætla
ekki í sumar því ég fór í fyrrasumar
til Bandaríkjanna.
Hjördís Björnsdóttir bankastarfs-
maður.
Nei, ég hef ekki farið og ætla ekki
að fara.
Ólafur Jakobsson nemi.
Nei, ég hef ekki farið en ég fer til
Ítalíu í september.
Helgi Kristjánsson afgreiðslumaður.
Nei, ég hef ekki farið og ætla ekki
að fara bví és fór í fvrra til Englands.
„íslenski hesturinn er í raun ekkert sérstakur."
íslenskir
hestar
SH skrifar:
Er þetta hestatal síðustu daga ekki
komið út í öfgar. Hestamenn landsins
eru íyrir löngu búnir að sprengja sig
á að dásama íslenska hestinn og monta
sig af því að nú sé hann kominn á
einhveija merkissýningu.
Islenski hesturinn er í raim ekkert
sérstakur, það væri nær lagi að líkja
honum við pony hest. Satt að segja
lýsir þessi dásömun íslenskra hesta-
manna á íslenskum hestum þjóðinni
vel, hvað lítið sem við höfum fram að
færa þá er grobbað af því. Væri ekki
nær að gera sér grein fyrir því að grobb
getur farið í taugamar á fólki, íslend-
ingar þurfa að temja sér hógværð og
sér í lagi að hætta þessu hestatali.
Fjárfrekur
Faraldur
Óánægðir vinnufélagar á Reyðarfirði.
skrifa:
Hljómsveitin Faraldur fer nú yfir
landið og kemur víða við í samkomu-
húsum landsmanna.
Austfirðingar og Héraðsbúar urðu
heldur betur varir við Faraldinn í
buddunum sínum, þeir sem á annað
borð lögðu leið sína í Valaskjálf laug-
ardagskvöldið 28. júní. Er raunhæft
að borga 900 kr. fyrir 4 tíma dansleik
og takmörkuð skemmtiatriði sem sko-
tið var inn á milli laga? Húsið var
opnað kl. 10 og dansleikurinn átti að
hefjast kl. 11 og standa til þrjú. Hljóm-
sveitin byrjaði ekki að spila fyrr en
klukkan var langt gengin í 12 og síðan
voru teknar góðar pásur þar fyrir ut-
an. Þetta erum við, vinnufélagamir á
Reyðarfirði, óánægðir með.
Utlendingar
í óbyggðum
Reykvikingur skrifar
Hvemig er það, er enginn sem varar
útlendinga við hættum þeim sem gætu
orðið á vegi þeirra í óbýggðum lands-
ins?
Hvað eftir annað sé ég greinar í
blöðunum þess eðlis að útlendingar
hafi komist í hann krappan í óbyggð-
um landsins. Þetta em oft og einatt
Fransmenn í ævintýraleit og þeir hafa
ekki hundsvit á út í hvað þeir em að
fara.
Ég kem með þá hugmynd að prent-
aður verði bæklingur sem varar
útlendinga við hættum óbyggðanna.
Þennan bækling ætti svo að afhenda
þeim strax og þeir stíga út úr flugvél-
inni í Keflavík.
Gefið okkur
grið
Halldóra hringdi:
Alveg verð ég vitlaus þegar sin-
fóníutónleikar og fleira í þeim dúr
er flutt í ríkisútarpinu. Ég og fleiri
erum á milli tveggja elda. Mér
persónulega finnst ekkert gaman
að rás tvö. Þar em alltaf spiluð
sömu lögin aftur og aftur. Mér
finnst sem þeir hugsi lítið sem ekk-
ert um fólk á aldrinum 3(140 ára.
Svo em aðrar öfgar á rás 1. Þar
virðist ekkert vera spilað annað
en nútímatónlist og sígildar sin-
fóníur. Ég persónulega hef ekkert
gaman af slíku og bið útvarpið
vinsamlegast að gefa okkur grið
sem ekki höfúm gaman af sinfó-
níum. Af hveiju er ekki hægt að
spila bara eitthvað af tónlist með
Ragnari Bjamasyni og Hauki
Morthens? Þessir tónlistarmenn
vom upp á sitt besta þegar ég og
maðurinn minn vorum að slá okk-
ur upp og þetta er tónlist sem
kemur öllum í létt og gott skap.
Og er það ekki einmitt það sem
við þurfúm í önnum dagsins?
Bréfritari þakkar hlýlegt viðmót vagnstjóra.
Leið
2
Verkakona í Reykjavik skrifar
Ég vil þakka vagnstjórum leiðar
2 fyrir sérstaka kurteisi og varkár-
an akstur. Ég hef ferðast með leið
2 í og úr vinnu í u.þ.b. 5 ár og það
hefur ekki komið sá dagur sem
mér hefur verið sýnd ókurteisi.
Það er svo mikilvægt þegar maður
notar vagnana mikið að manni sé
sýnt hlýtt viðmót. Ég vinn erfiða
vinnu, fer að heiman í bítið á
morgnana og kem heim seint á
kvöldin og því svo mikilvægt að
dagurinn byiji og endi vel. Ég ít-
reka, vagnstjórar leiðar 2, þið eigið
heiður skilinn.
Gatan
er
enginn
leik-
völlur
Ágúst hringdi:
Mig langar að biðja foreldra að
brýna fyrir bömum sínum að vera
ekki að leika sér á götunni. Það
hafa ófá slys orðið þegar böm
hlaupa á eflir boltum eða öðrum
leikföngum og í veg fyrir bfla.
Það er til nóg af leikvöllum í
öllum hverfúm og þar ættu krakk-
amir að geta verið. Strákamir
ættu svo endilega að nota spar-
kvelli fyrir fótboltann. Þar em
mörk en aftur á móti engin slík á
umferðargötum.