Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1986, Page 16
16
MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 1986.
Iþróttir
Margir þýsku leikmannanna
of gamlir fyrir EM 1988?
mikið í húfi hjá Þjóðveijum |m keppnin fer fram í Þýskalandi
Eins og hefur komið fram áður voru
V-Þjóðveijar mjög ánægðir með
ffammistöðu sinna manna í heims-
meistarakeppninni. Annað sætið í
keppninni var meira en bjartsýnustu
menn höfðu þorað að vona. Nú er hins
vegar líklegt að verulegar breytingar
verði á landsliðshóp Þjóðveija. Margir
af þeim leikmönnum, sem voru i eldl-
ínunni í Mexíkó, eru of gamlir til að
geta verið inni í myndinni hjá Franz
Beckenbauer fyrir næstu stórátök.
Það verður svo sannarlega mikið í
húfi fyrir Þjóðveija á Evrópumótinu
1988 - mótið fer nefriilega fram í
Þýskalandi og öll v-þýska þjóðin mun
án efa krefjast þess að heimamenn
sigri. Margur Þjóðverjinn er orðinn
langeygur eftir verðlaunum en síðasti
stórsigur Þjóðveija var í Evrópu-
keppninni á Ítalíu 1980 - að vera sífellt
í öðru sæti er ekki nóg fyrir þessa
metnaðarfullu þjóð.
Nýtt lið hjá Beckenbauer
Annað sætið í Mexíkó var ekki síst
mikilvægt fyrir Beckenbauer en með
því keypti hann sér fi-est sem mun
sjálfsagt endast honum fram yfir
næstu keppni. En þó að hann hafi
mikið úrval leikmanna steðja ýmis
vandamál að honum. Hann hefur sjálf-
ur talað um mikla lægð í þýskri
knattspymu eftir 1974 eða ffá því að
hann hætti að leika þar!
Nú mun Beckenbauer þurfa að glíma
við sama vandamál og margir þjálfarar
á undan honum. Margir landsliðs-
mannanna leika erlendis og getur
orðið erfitt að samræma það áætlun-
um landsliðsþjálfarans. Þetta er að
vísu vandamál sem margir landsliðs-
þjálfarar hafa þurft að glíma við og
gengið ágætlega að leysa samanber
árangur Pionteks með danska lands-
liðið en flestir leikmenn þess leika
utan Danmerkur
Eftir leikinn við Argentínumenn til-
kynntu þeir Hans-Peter Briegel, Felix
Magath, Ditmar Jakobs og Dieter
Höness að þeir hefðu leikið sinn síð-
asta leik. Beckenbauer hefur tvö ár
til að prófa og finna nýja leikmenn í
staðinn fyrir þá.
Hann hefúr þegar tilkynnt að þeir
Littbarski, Karl-Heinz Föster, Lothar
Matthaeus og Rudi Völler verði kjam-
inn í ffamtíðarliði Þjóðverja. „Þeir em
iiú á hátindi ferils síns og verða aðal-
mennimir í nýju liði Þjóðverja," sagði
Beckenbauer. Hann bætti því við að
hann vonaðist til þess að Rummenigge
yrði áffam með í liðinu en eins og
kunnugt er hefúr hann tilkynnt að
hann sé hættur með landsliðinu. Bec-
kenbauer vonast þó til að geta talið
honum hughvarf.
Þá sagðist Beckenbauer treysta á
að Toni Schumacher verði með liðinu
áffam en hann sýndi í Mexíkó að hann
er einn besti markvörður heims og
ætti að eiga mörg ár eftir enn með
landsliðinu. Annan leikmann, sem
Beckenbauer vill án efa hafa í lands-
liðinu, er hins vegar ekki hægt að
treysta á. Það er vandræðabamið
Bemd Schuster. Þrátt fyrir óumdeil-
anlega hæfileika hefur hann lítið sem
ekkert leikið með landsliðinu síðan
hann sló í gegn í Evrópumeistara-
keppninni 1980. Er þar um að kenna
furðulegu skaplyndi Schusters. Er því
líklegt að Beckenbauer verði að leita
annað eftir leikstjómanda á miðjuna.
-SMJ
• Franz Beckenbauer verður að leiða þýska liðið til sigurs á Evrópumeistara-
mótinu í Þýskalandi 1988.
■ • Morten Olsen.
| Olsen til
j FC Kölnar
■ Hinn ffábæri fyrirliði danska landsliðsins,
I Morten Olsen, hefur nú undirritað eins árs
“ samning við þýska liðið Köln. Samningur-
I inn gildir til eins árs en Olsen er nú orðinn
- 37 ára og á ekki langt eftir i atvinnu-
I mennskunni. Hann lék að vísu fiábærlega
■ í Mexíkó og gaf ekkert eftir þeim sem yngri
I vom. Hann hafði frjálsa sölu ffá Anderlecht
■ og fær því alla söluupphæðina sjálfur. Ný-
| lega hafði Olsen tilkynnt að hann væri að
| hugsa um að hætta knattspymunni og snúa
I til sinna fymi starfa en hann er menntaður
I lyfjafræðingur. En nú mun hann ætla að
■ reyna eitt ár enn fyrir sér í atvinnumenns-
I kunni. -SMJ
Góðurtími
hjáAgli
I Egill Eiðsson, hlauparinn
■ kunni í UlA, kcppti sl. fóstudag
I í 400 m hlaupi á frjálsíþróttamóti
■ í Bonn.Hannhljópvegalengdina
■ á 48,44 sek. en á best 48,15 sek.
I frá 1984. Besti árangur í ár á
* vegalengdinni er þessi.
I 1. Oddur Sigurðsson, KR,.46,66
■ 2. Aðalst. Bemharðsson, KR,
| ........................48,20
| 3. Egill Eiðsson, UÍA....48,44
I 4. ErUngur Jóhannss.,UMSK,
I ........................48,50
ÓU/hsím
I Fjórir keppa
{ á HM í Aþenu
Heimsmeistarakeppni ungl-
I inga í fijálsum íþróttum verður
_ háð í Aþenu í Grikklandi 16.-19.
I júlí. Hefst sem sagt á miðvikudag
■ í næstu viku. Fjórir íslendingar
I verða meðal keppenda á mótinu.
I Guðrún Amardóttir, UBK, Guð-
■ björg Svansdóttir, tR, Jóhann
I Omarsson, ÍR, og Steinn Jó-
^Jiannsson, KR.
HSKoglR hlutu flesta
íslandsmeistaratitla
- á 60. meistaramótinu í ftjálsíþróttum
Héraðssambandið Skarphéðinn,
HSK, og íþróttafélag Reykjvíkur,ÍR,
hlutu flesta íslandsmeistara á 60.
meistaramótinu í ffjálsum íþróttum,
eða sjö hvort félag. Mótinu lauk í blíð-
skaparveðri á mánudagskvöld, allt
annað og betra en um helgina. Þá var
keppt í fimm greinum.
Jón Diðriksson, FH, varð íslands-
meistari í 3.000 m hindrunarhlaupi á
9:27,47 mín. og var því langt frá ís-
landsmeti sínu, 8:49,58 mín. Hörku-
keppni var um annað sætið. Bragi
Sigurðsson, Armanni, varð annar á
9:49,0 mín. en Ágúst Þorsteinsson,
UMSB, sekúndubroti á eftir, 9:49,1
mín.
Þórarinn Hannesson, HSK, varð ís-
landsmeistari í fimmtarþraut. Hlaut
3107 stig. Félagi hans, Auðunn Guð-
jónsson, varð annar með 3003 stig.
Martha Emstdóttir, Armanni, hafði
mikla yfirburði í 3.000 m hlaupi
kvenna. Varð meistari á 9:53,6 mín.
Steinunn Jónsdóttir, Á, önnur á 11:03,
1 mín. Keppendur fimm.
Keppnin í 4x400 m boðhlaupi karla
var mjög spennandi og timi sigursveit-
arinnar, UMSK, sá besti sem ísl.
félagssveit hefur náð í 30 ár. Það var
mjög óvænt á lokasprettinum að Guð-
mundur Sigurðsson, UMSK, fór ffam
úr Aðalsteini Bemharðssyni, KR.
Sveit UMSK hljóp á 3:24,4 mín. en auk
Guðmundar vom í sveitinni þeir Sig-
uijón Valmundsson, Einar Gunnars-
son og Hannes Hraihkelsson. Sveit
KR varð önnur á 3:25,2 mín. Sveit ÍR
þriðja á 3:27,6 sek. og þar vakti góður
lokasprettur Jóns Leó Ríkharðssonar
mikla athygli. Sveit Ármanns varð
fjórða á 3:41,5 mín. og B-sveit ÍR
fimmta á 3:42,0 mín.
Sveit HSK varð íslandsmeistari í
4x400 m boðhlaupi kvenna. Hljóp á
4:03,0 mín. í sveitinni hlupu Linda
Larsen, Þórdís Gísladóttir, Birgitta
Guðjónsdóttir og Ingibjörg fvarsdóttir.
Sveit ÍR varð önnur á 4:05,4 mín. og
þar hljóp Oddný Ámadóttir loka-
sprettinn á 54,6 sek. Sveit Ármanns
varð þriðja á 4:12,7 mín.
Smolarektil
Frankfurt
Pólski landsliðsmaðurinn Wlodzimiorz
Smolarek hefúr gengið til liðs við v-þýska
liðið Eintracht Frankfurt. Forráðamaður
Frankfúrt, sem tilkynnti þetta, vildi ekki
gefa upp hve mikið þeir hefðu borgað fyrir
Smolarek. Samningurinn er til tveggja ára
og samkvæmt pólska blaðinu Przeglad
Sportowy mun kaupverðið vera tæpar 18
miljónir kr. og rennur það til Widzew Ixxfz
sem Smolarek hefúr leikið með fram að
þessu.
Smolarek er skæður sóknarmaður og
skoraði eina mark Pólveija á HM þegar
þeir sigmðu Portúgali, 1-0. -SMJ
Enskir urðu
ekki ríkir
- á HM í Mexíko
„Ég hefði getað
stokkið enn hærra“
-sagði Sergei Bubka sem setti heimsmet í stangarstökki, 6,01 m
„Ég hefði getað stokkið hærra í dag
en það var engin þörf á því,“ sagði
Sovétmaðurinn Sergei Bubka í gær-
kvöldi eftir að hann hafði sett nýtt
heimsmet í stangarstökki á Friðarleik-
unum í Moskvu. Bubka stökk 6,01
metra en hann átti sjálfúr eldra metið
sem var 6 metrar sléttir.
Þar með tókst Bubka að efna lof-
orðið sem hann hafði gefið í síðustu
viku en þá lofaði hann að bæta heims-
metið á Friðarleikunum sem hann
setti í París í júlí í fyrra.
Sergei Bubka vann mjög ömggan
sigur í stangarstökkinu. Næsti maður
var landi hans, Rodion Gataullin, en
hann vippaði sér yfir 5,80 metra en
komst ekki hærra. Bubka var hinn
ömggasti þegar ljóst varð að hann
hafði möguleika á að setja heimsmetið
og stökk yfir 6,01 metra í fyrstu til-
raun. í þriðja sæti í stangarstökkinu
varð Earl Bell frá Bandaríkjunum en
hann komst yfir 5,75 metra.
Tvöfaldur sovéskur sigur
Sovétmenn unnu tvöfaldan sigur í
1500 metra hlaupi karla. Pavel Yakov-
lev sigraði á góðum tíma, 3:39,% mín.
en Igor Lotorev varð annar á 3:40,18
mín. Þriðji varð Steven Scott, Banda-
ríkjunum, á 3:40,31 mín.
• Sovétmenn halda enn forystu sinni
í keppninni um flest verðlaun á leik-'
unum. Þeir hafa hlotið 27 gull, 34 silfur
og 25 brons. Bandaríkjamenn koma
næstir með 25 gull, 21 silfur og 27
brons. Þessar tvær þjóðir em í alger-
um sérflokki á leikunum. Rúmenar em
í þriðja sæti með 6 gull, 2 silfúr og 3
brons. _gg
Ensku leikmennimir, sem vom í enska
landsliðshópnum í heimsmeistarakeppninni I
í Mexíkó, urðu ekki ríkir á HM. Fengu þó I
gott kaup fyrir þá tæpu tvo mánuði, sem fór I
í undirbúning og keppni eða tæp 10 þúsimd I
sterlingspund hver. í hópnum vom 22 leik-
menn og allir fengu það sama, um 600 |
þúsund krónur íslenskar.
Ef þeir hefðu orðið heimsmeistarar heföi '
hlutur hvers orðið 20 þúsund sterlingspund, I
ein milljón og 260 þúsund krónur. England ^
féll út í átta liða úrslitum á HM fyrir Arg-
entínu á hinu fræga, ólöglega marki
Maradona. Sigur í þeim leik hefði fært
ensku ieikmönnunum 11 þúsund sterlings-
pund í hlut á HM og fyrir sigur í undanúi--
slitum hefði hver fengið 14 þúsund
sterlingspund. -hsím
, 54,26 hjá Helga Þór
I Húnvetningurinn Helgi Þór Helgason,
| USAH, náði sínum þesta árangri í kringlu-
| kasti í ár nýlega á móti á Blönduósi. Kastaði
I 54,26 m. Hann átti ógilt kast um 55 og hálf-
I anmetra.í fyrra átti Helgi Þórbest 54,40 m.
■ -ÖU
Bm wmm mma ■ nau wmm mmm wmmm wwm mm wmm mi