Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1986, Page 17
MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 1986.
17**
Torfason heldur uppteknum
hætti - Fram í 8-liða úrslit
- Fram sigraði Fylki, 0-1, í mjólkurbikamum á malarvellinum í Árhæ
„Auðvitað erum við fegnir að vera
búnir að klára þennan leik og vinna
sigur. Þessi leikur var í líkingu við
það sem ég átti von á,“ sagði Ásgeir
Elíasson, þjálfari Fram, eftir að Fram
hafði slegið Fylki út úr bikarkeppn-
inni í knattspymu á Fylkisvelli í
gærkvöldi. Leikur liðanna var í 16-liða
úrslitunum og lokatölur 0-1 Fram í
• Guðmundur Torfason sést hér spyrna knettinum i áttina að marki Fylkis eftir að markvörðurinn hafði misst hann
frá sér.
• ....og hér er knötturinn í þann veginn að fara inn fyrir marklínuna og sigur Fram var tryggður. DV-myndir Brynjar Gauti
vil. Og að sjálfeögðu var það marka-
maskínan Guðmundur Torfason sem
skoraði sigurmarkið í leiknum.
Til að byrja með sóttu Framarar
mun meira og flestir áttu eflaust von
á því að topplið 1. deildar myndi kaf-
færa andstæðinga sína strax í byrjun.
En svo fór ekki og Fylkismenn sem
eru í efeta sæti í öðrum riðli 3. deildar
náðu að halda marki sínu hreinu í
fyrri hálfleik og staðan 0-0.
í síðari hálfleik sóttu Framarar mun
meira en markið lét bíða eftir sér.
Loks kom þó að því að þeir skoruðu.
Steinn Guðjónsson gaf þá fasta send-
ingu fyrir markið. Markvörður Fylkis
hélt ekki knettinum sem hrökk fyrir
fætur Guðmundar Torfasonar sem
skoraði af öryggi úr þröngu færi.
Framarar fengu mýmörg tækifæri til
að bæta við mörkum en þau nýttust
ekki í þetta skipti. Litlu munaði þó
að Fylkismenn, undir stjóm Marteins
Geirssonar, næðu að jafna metin rétt
fyrir leikslok er Gunnar Orrason, fyrr-
um Framari, skaut háum bolta að
marki Fram. Friðrik Friðriksson
markvörður átti misheppnað úthlaup
og Þorsteini Þorsteinssyni tókst með
miklum naumindum að bjarga á
marklínunni.
Torfason í feiknalegu formi
Guðmundur Torfason er svo sannar-
lega í formi þessa dagana. Hann
skorar í hveijum einasta leik og nú
er svo komið að það telst frétt ef hann
skorar ekki. Virðist Guðmundur bera
höfuð og herðar yfir aðra sóknarleik-
menn hér á landi um þessar mundir.
Það var greinilegt á leik Fram-liðs-
ins í gærkvöldi að það hefur ekki
leikið á malarvelli frá því að liðið lék
í 2. deild fyrir tveimur árum. Þrátt
fyrir það brá fyrir skemmtilegum köfl-
um í leik íiðsins og Framarar hefðu
með góðri nýtingu marktækifæra átt
að geta skorað átta tii níu mörk.
Hetjuleg barátta Fylkismanna
Þrátt fyrir að leikmenn Fylkis hafi
átt við ofurefli að etja að þessu sinni
á flestum sviðum knattspyrnunnar
geta þeir vel við úrslitin unað. Þrátt
fyrir að úrslitin gefi ekki rétta mynd
af leik liðanna eru þau góð fyrir lið í
3. deild. Leikmenn Fylkis gerðu sitt
besta og komu á óvart. -SK
OrmaiT
frá í 8
■ ■
VllíllV
Ormarr Örlygsson, bakvörður {
Fram, mun að öllum líkindum verða
frá æfingum og keppni í knattspymu
næstu vikur og jafiivel allt að tveim-
ur mánuðum.
Ormarr meiddist illa á ökla á æf-
ingu með Fram á laugardag og hefúr
verið í sérstökum umbúðum síðan.
Þær verða teknar af fætinum í dag
og þá kemur í ljós hversu alvarleg
meiðslin eru. Fjarvera Ormarrs get-
ur veikt Framliðið nokkuð þar eð
• Ormarr Örlygsson.
hann er sterkasti hægri bakvörður-
inn í herbúðum Framara í dag.
JSKj
Mikil bikarstemmn-
ing á Siglufirði
- þegar Víkingur vann KS, 1-2
Víkingar tryggðu sér áframhaldandi
þátttökurétt í mjólkurbikarkeppni
KSI í gærkvöldi er þeir unnu góðan
sigur á KS á Siglufirði. Leik liðanna
í 16-liða úrslitunum lauk með eins
marks sigri Víkings, 1-2. Víkingar eru
þar með komnir í 8-liða úrslitin.
Mikil bikarstemmning var á Siglu-
firði. Víkingar fengu óskabyrjun er
Gunnar Öm Gunnarsson skoraði með
langskoti strax á 4. mínútu. Heima-
menn börðust af krafti og þegar fimm
minútur voru eftir af fyrri hálfleik^
jafnaði Bjöm Ingimarsson úr víta-
spymu fyrir KS.
Gríðarleg barátta var hjá leikmönn-
um beggja liða í síðari hálfleiknum en
þegar fimmtán mínútur vom til leiks-
loka tókst Víkingum að tryggja sig í
8-liða úrslitin. Bjöm Bjartmarz skor-
aði þá með skalla eftir homspymu.
-SK
Lim 09 kitti fra
SKÚLAGATA 30
MJÓLKURBIKARKEPPNI
KR - ÞÓR
Laugardalsvelli í kvöld kl. 20.
adidas
Stljum TÖLVUPAPPÍR
ÍÍJlFORMPRENT
Hvarfisgötu 78, límar 25960 ^ 25568.
EsJGROHE
v