Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1986, Side 25
MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 1986.
25
Sandkom
þjónustu bænda sem blaða-
fulltrúi. Hann verðurþví að
flytja sig nær Bændahöllinni
þar sem hann á að hafa aðset-
ur. Og þannig vill til að Signý
er einmitt eiginkona Ólafs og
mun sjálfsagt fylgja með suður
yfirheiðar.
Ef þetta reynist rétt verður
bæði sjónvarp og útvarp að
fara að skygnast eftir nýjum
fréttamönnum.
Veiðisaga
- Þú varst að veiða í gær,
ekki satt?
- Jú.
- Beit nokkur á hjá þér?
- Ég held nú það. Ég fékk einn
á öngulinn, sem var svo stór
að mér var hréint ómögulegt
að koma honum upp í bátinn.
- Þú segir ekki?
- Og áður en ég vissi af kippti
hann svo harkalega í að ég
féll útbyrðis.
- Þú blotnaðir auðvitað?
- Nei, ég féll á bakið á laxin-
um.
Únnurfiski-
saga
Það fór betur fyrir kaup-
manni einum á ísafirði er
hann renndi fyrir lax í Laug-
ardalsá fyrir nokkru. Vest-
firska fréttablaðið skýrir frá
því að hann hafi sett í stóran
fisk. Sá var ekki á því að láta
hremma sig og sleit sig lausan.
Kaupmaðurinn lét ekki
deigan síga og hélt ótrauður
áfram. Ekki leið á föngu þar
til annar beit á. Eftir tilheyr-
andi viðureign við laxinn
tókst honum að koma honum
á þurrt land. Þegar hann fór
að líta á gripinn sá hann hvar
gimisspotti lafði út úr laxin-
um. Við nánari eftirgrennslan
kom í ljós að þama var kom-
inn vinur hann frá fyrri
viðureigninni. Og sagan segir
að laxinn hafi vegið 20 pund.
Ásmundarsatur.
Arkitektar í
slæmu máli
Eins og kunnugt er festi
Arkitektafélag íslands kaup á
Ásmundarsal fyrir nokkrum
árum og em nú höfuðbæki-
stöðvar félagsins þar. Húsið
er nú í mikilli niðumíðslu og
lítur vægast sagt ekki vel út
að utan. f fyrra óskuðu borg-
aryfirvöld eftir því að arki-
tektarinir gerðu bragarbót á
þessu og líklegt þykir að þessi
áminning verði endurtekin nú
á afmælisárinu. Það þykir
skjóta skökku við að arkitekt-
ar geti ekki haldið hús svo vel
fari. Eðlilegt sé að þeir sýni
gott fordæmi í þessum málum.
Nú hafa þeir hins vegar
komist að því að gera þurfi
eitthvað í þessu máli. Sett hef-
ur verið í gang fjársöfnun
meðal félaganna og stefnt er
að því að hressa upp á Ás-
mundarsal svo um munar.
Umsjón:
Arnar Páll Hauksson
Sigfús Jónsson
Bæjarstjórará
hlaupum
Um þessar mundir er verið
að ráða nýja bæjar- og sveitar-
Bjarni Stefánsson.
stjóra víða um land. Ekki
verður betur séð en starfi þessi
sé nokkuð eftirsóttur.
Á Akureyri var t.d. Sigfús
Jónsson ráðinn bæjarstjóri og
á Eskifirði Bjami Stefánsson.
Þessir tveir eiga það sameig-
inlegt að hafa verið fræknir
hlauparar. Sigfús var einn af
ff emstu langhlaupurum okkar
og Bjarni hljóp skemmri vega-
lengdir. Bjami þótti á sínum
tíma mjög efnilegur. Hann
náði góðum árangri í 400
metra hlaupi á ólympíuleik-
unum í Múnchen 1972. Hann
komst í milliriðil og hljóp á
46,76, sem var þá fslandsmet.
Ekki vitum við hvemig
þessi fótfimi nýtist þessum
stjómm en án efa er gott fyrir
þá að vera snara í snúningum.
Affréttamönn-
um á Akureyri
Við skýrðum nýlega frá því
að Signý Pálsdóttir, fyrrver-
andi leikhússtjóri á Akureyri,
hefði verið ráðin sem frétta-
maður útvarps þar í bæ. Nú
höfum við fregnað að líklega
verði ekkert úr þessum ráða-
hag. Höfuðástæðan fyrir því
er sú að Ólafur Torfason,
fréttamaður sjónvarps, hefur
verið ráðinn til upplýsinga-
Ólafur Torfason.
dv_________________Merming
Skálholtstónleikar
Sumartónleikar i Skálholtskirkju 5. júli.
Flytjendur: Manuela Wiesler og Einar
Grétar Sveinbjörnsson.
Fyrri tónleikar Wilhelm Friedemann Bach:
Dúó i F-dúr; Johann Sebastian Bach: Par-
títa i a-moll fyrír einleiksflautu; Carl Philip
Emanuel Bach: Dúó i G-dúr.
Seinni tónleikar: Wilhelm Friedemann
Bach: Dúó i e-moll og Dúó í f-moll; Johann
Sebastian Bach: Partita i g-moll fyrír ein-
leiksfiölu; Carí Philip Emanuel Bach:
Sónata í a-moll fyrir einleiksflautu.
Sumartónleikar í Skálholti eru nú
haldnir ellefta árið í röð. Á hátíðar-
árinu í fyrra helguðust þeir tilefrium
þeim sem árið gaf og upprunahljóð-
færin fengu að njóta sín í öllu sínu
veldi. Á fyrstu tónleikum þessa árs
var líkt og haldið væri til baka.
Ekki í neikvæðum skilningi, nei
þvert á móti. Manuela var komin
aftur. Nú, eins og í fyrra, voru leikn-
ir tvennir tónleikar á laugardeginum
og þeir síðari endurteknir á sunnu-
degi.
Misvægi
Leikinn hófu þau Manuela og Ein-
ar Grétar á Dúói eftir Wilhelm
Friedemann Bach, en á dagskrá voru
eingöngu verk eftir þá feðgana, Jo-
hann Sebastian, Carl Philip
Emanuel og Wilhelm Friedemann
Bach. Það skyggði töluvert á annars
góðan leik að flautan hljómaði mun
sterkar en fiðlan. Það var líkt og
Einar héldi aftur af sér og leikur
hans verkaði bitminni en gera mátti
ráð fyrir. Ég get mér til að þama
hafi heyrð Skálholtsdómsins átt ein-
hvem hlut að máli - að hjá flytjend-
unum hafi það hljómað í meira
jafhvægi, en þó skýrir það ekki allt,
því þetta átti eftir að breytast.
Loks kom það
Síðan lék Manuela einleikspartít-
una í a-moll eftir Johann Sebastian
Bach. Það var hreinn snilldarleikur.
Tónlist
Eyjólfur Melsted
Fyrri tónleikunum lauk svo með
Dúói í G-dúr eftir Carl Philip
Emanuel og var það með sömu um-
merkjum og fyrsta verkið.
Manuela Wiesler.
Síðari tónleikamir hófust með
Dúói í e-moll eftir Wilhelm Friede-
mann. Enn var fiðlan um of í
bakgmnni og dró það úr ánægjunni
yfir leik sem annars bauð upp á svo
margt fallegt og skemmtilegt. En svo
kom að Partítu Johanns Sebastians
fyrir einleiksfiðlu og þá tók Einar
Grétar heldur betur við sér. Nú
strauk hann þétt og lét sinn fagra
tón fylla það stórkostlega hljómhús
sem Skálholtsdómur er. Aftur lék
svo Manuela ein og brilleraði í þetta
sinn á Sónötu í a-moll eftir Carl
Philip Emanuel.
Sifelld framfðr
Tónleikunum lauk með Dúói í
f-moll eftir Wilhelm Friedemann og
nú kom allt það sem upp á hafði
vantað framan af. Loksins hljómuðu
bæði hljóðfærin í jafrivægi og þá
skerptist heldur betur bitið í leikn-
um. Betra seint en aldrei, en hefði
gjaman mátt koma fyrr þar eð svo
frábærir listamenn áttu í hlut. En
svona getur eitt atriði skemmt mikið
fyrir. Þeim mun meiri var líka án-
ægjan þegar allt komst í lag, en allra
best þótti mér þó að fá enn eitt tæki-
færi til að hlusta á Manuelu, sem
alltaf hefúr eitthvað nýtt og ferskt
fram að færa í leik sínum, svo að
manni finnst hún alltaf betri en síð-
ast, svo fúrðulegt sem það kann að
þykja.
Því miður sé ég fram á að komast
ekki á fleiri Skálholtstónleika þetta
sumarið. En af dagskrá að ráða þyk-
ir . mér sem óhætt muni að lofa
tónlistarhátíð ekki síðri en verið
hefur um áratugar skeið.
EM.
Frá smáauglýsingadeild DV
Vegna mikils álags á símakerfi okkar
milli kl. 21 og 22 biðjum við auglýsendur
vinsamlega um að hringja fyrr á kvöldin
ef mögulegt er. Hringið í síma 27022.
HESTAÞING SLEIPNIS
0G SMÁRA 1986
verður haldið á Murneyri 19. og 20. júlí. Keppt verður í
A og B flokki gæðinga, unglingaflokki 13-15 ára og 12
ára og yngri
150 metra skeið 350 metra stökk
250 metra skeið 800 metra stökk
250 metra stökk 300 metra brokk
Jafnframt verður 150 metra skeið og 250 metra stökk
sem eingöngu er ætlað félagsmönnum Sleipnis og Smára
sem taka ekki þátt í öðrum hlaupagreinum mótsins. Tek-
ið verður á móti skráningu í símum 99-5749 og 99-2138.
Skráningu lýkur sunnudaginn 13. júlí kl. 14.
Nefndin.
RANGE ROVER
Range Rover árg. 1982, 3ja dyra, grár, beinskiptur,
4ra gíra, ekinn 43 þús. km. Mjög fallegur. Verð 850 þús.
TÖGGURHR
UMBOÐ FYRIR SAAB OG SEAT
Bíldshöfða 16, símar 681530 og 83104.
fi HAPPDRÆTTI SJÁLFSBJARGAR
Pi DREGIÐ 4. JÚLl 1986 Volvo bifreið 745 71128 Bifreið að eigin vali á 500 þús. 20198 48477 101654 108802 Sólarlandaferðir á 30 þús. 3537 37138 49725 79101 90757
9912 37691 52622 80305 91989
14868 42232 55787 81901 99728
20452 43079 59263 82352 105135
26113 47636 67881 83734 116374
36961 49102 73869 87493 116639
3136 Vöruúttekt á 20 þús. 29895 49341 71871 95382
3387 31020 52488 73179 99507
4114 35584 53290 73433 100038
5880 37143 54752 75129 100527
10745 37631 55646 75163 104930
13007 40774 55996 76142 109625
16498 41082 57712 76194 109949
19157 42664 58982 77665 110272
20670 44325 61809 81027 110566
21211 45291 68029 84528 112007
21849 46824 68526 84955 113445
22051 47761 69343 91335 116878
25737 47857 70859 93571 119849