Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1986, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1986, Blaðsíða 28
28 Sviðsljós Ólyginn sagði.. Bill Cosby, bandaríski grínleikarinn, er víst sú sjónvarpsstjarna sem flestar konur telja ímynd hins eina og sanna fyrirmyndareiginmanns. Þetta kom fram í könnun meðal banda- rískra sjónvarpsáhorfenda þar sem spurt var um allt milli himins og jarðar. i öðru sæti sem fyrir- myndareiginmaður kom John Forsythe (Blake Carrington). Sarah Ferguson virðist, að sögn kunnugra, ráða mun betur við átroðning press- unnar en Diana prinsessa hér á árum áður. Hún skrapp um dag- inn í vikufrí ásamt vinkonu sinni, Florence Belmondo, til Antigua. Þegar þær vinkonurnar skruppu inn á krá, í þeim tilgangi að fá sér eitthvað í svanginn, var húsið yfir- fullt af fréttamönnum sem voru að fylgjast með henni. Sarah sendi þeim blóm á hvert borð en sagðist því miður ekki hafa efni á kampavíninu líka. Blaðamennirnir slógu þá saman og sendu henni flösku af dýrasta kampavíni húss- ins og síðan var skálað fyrir prinsessunni. Grace Jones er víst þekkt fyrir flest annað en feimni. Hún leikur nú í nýrri kvik- mynd, Vamp, þar sem hún er í hlutverki nektardansvampíru. Hún á þó að hafa fleira utan á sér en höggtennurnar engöngu þó ekki sé það mikið. Við töku á erf- iðu atriði klæðist Grace aðeins 3 fatabútum og þrátt fyrir þessa fatafæð trufluðu fötin á einhvern hátt upptökurnar. Eftir 5 klukku- stunda tilgangslausa vinnu kallaði framleiðandinn Donald Borchers í gríni: „Grace, farðu bara úr föt- unum það þýðir greinilega ekki að hafa þig í þeim." Honum þrá vist heldur í brún því leikkonan svipti sig klæðum án þess að hika. Því næst gekk hún að Borchers og sagðist kímin gera allt fyrir framleiðandann. MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 1986. Aldarafmæli Landsbanka íslands Þann 1. júlí síðastliðinn var liðin ein öld síðan fyrsti banki á íslandi tók til starfa. í þó daga voru íslend- ingar orðnir langeygir eftir banka, því þótt hér væru sparisjóðir þá vantaði banka sem bætt gæti úr skorti landsmanna ó gjaldmiðli og lánsfé. Danski þjóðbankinn hafði þvertekið fyrir að hér mætti reka útibú á arðbæran máta. Að lokum fundu menn bankanum form og hann tók til starfa. 1 fyrstu var hann til húsa við Bakkastíg, í húsi Sigurðar Kristjánssonar bóksala, og var opinn tvisvar í viku, þriðju- daga og föstudaga, tvo tíma í senn. Starfsmenn á þessu frumstigi voru þrír: bókari, gjaldkeri og banka- stjóri. Unnu þeir störf sín í hjá- verkum með annarri vinnu og þótti þetta ágæt aukavinna. í dag eru starfsmennimir hins vegar orðnir um 1200. Fyrstu 25 árin sem bank- inn starfaði unnu þar eingöngu karlmenn, en árið 1912 tók fyrsta konan til starfa, Sigríður Boga- dóttir. í dag eru hins vegar kvenmenn meirihlutinn af starfs- fólkinu og hefur svo verið um alllangt skeið. Margir komu í afmælisveisl- una Afinælisveisla Landsbankans stóð í heilan dag og má segja að afmælisbamið hafi svo sannarlega staðist tímans tönn, var hið hress- asta. Öllum er vildu var boðið að koma og þiggja góðgerðir og þáðu Margs konar persónur komu i bankann í ýmsum erindagjöröum og skemmtu allir sér hið besta. margir. Eingöngu í aðalbankann er talið að um 10.000 manns hafi komið, en á venjulegum „fyrsta í mánuði“ koma um 3000 manns. Inni í bönkunum úði og grúði af margs konar persónum í ýmsum erindagjörðum. Sumir komu til að skipta við bankann, aðrir komu til að skipta við bankann og fá sér í svanginn og enn aðrir komu ein- göngu til að fá sér í svanginn. í bankanum voru veisluborð hlaðin kræsingum og um sali gengu stúlk- ur til beina og buðu gestum upp ó forláta feitmeti sem kallast kon- fekt. Allir í eins fötum! „Sjóðu það eru allir í eins fötum,“hrópaði lítið barn uppyfir sig er það leit yfir afgreiðsluborðið. Og mikið rétt, starfsmenn bankans höfðu verið færðir í einkennis- búning. Karlmennirnir í grátt og hvítt, en kvenfólkið fékk skarlats- rauðan búning og hvíta blússu. Var hér um skemmtilegt og þarft fram- tak að ræða og þarf nú enginn að óttast að þekkja ekki starfsmenn- ina frá viðskiptavinum. Margt fleira var sér til gamans gert, lúðrasveit lék fyrir utan bankann, farið var i skrúðgöngu með merki bankans í fararbroddi og tveir starfemenn klæddust um aldargömlum fötum. Dagurinn tókst hið besta og hótíðarhöldin settu mikinn svip á bæjarlífið Skrúðgangan þrammar áfram með merki bankans í fararbroddi. Herrey’s fjölskyldan gliðnar í sundur Skilnaðurinn skekur Svíþjóð íslenskir aðdáendur Evróvision söngvakeppninnar muna sjálfsagt ílestir eftir hinum súkkulaðisætu Herrey’s bræðrum. Þeir bræður sigr- uðu í keppninni 1984 fyrir hönd Svía með laginu Diggiló Diggilei. Strók- amir hafa verið mjög vinsælir í Svíþjóð og reyndar hefur öll fjöl- skyldan verið í sviðsljósinu. Hefur samheldni verið eitt af aðalsmerkjum hennar og hafa sænskir fjölmiðlar oft kallað hana, „fyrirmyndarfjöl- skylduna". En nú virðist sem fyrir- myndarljóminn sé tekinn að fölna og kemur það Svíum alveg í opna skjöldu. Hinn 65 ára gamli Willie Herrey, höfuð fjölskyldunnar, hefur lýst því opinberlega yfir að hann ætli að skilja við konu sína, Gerd Herrey, 52 ára. Þau hafa verið gift í 34 ár og eiga sjö börn saman. Hefur verið einmana í langan tíma Willie Herrey er orðinn þreyttur á leiðinda sögusögnum og segir sér nauðugur einn kostur að leiðrétta þær og segja sannleikann. „Orðróm- Bræðurnir geysivinsælu, láta skilnaðinn ekkert á sig fá. Herry’s fjölskyldan meðan allt lék í lyndi. ur er um að ég hafi verið ótrúr en ég vil í eitt skipti fyrir öll lýsa því yfir að slíkt er ósvífin þvæla og þvættingur," segir Willie Herrey. Hann segir síðasta hálfa árið hafa verið eins og martröð. „Ég átti í per- sónulegum vandamálum auk þess sem við Gerd höfum búið aðskilin hvort frá öðm í töluverðan tíma. Ég í Svíþjóð og Danmörku en hún í Los Angeles," heldur faðirinn áfram. Hann segist hafa verið mjög einmana og því leitað eftir félagsskap. „Ég ó marga kunningja, bæði karlmenn og konur, en það hefur ekki haft fram- hjáhald í för með sér,“ segir Willie. Skilnaðurinn óþægilegur vegna trúmála Skilnaðurinn er óþægilegri fyrir Herrey’s fjölskylduna heldur en hinn venjulega Svía af trúarástæðum. Þau era mormónatrúar og þar er heilag- leiki hjónabandsins í hávegum hafður. Samt sem áður ætlar fjöl- skyldufaðirinn að taka af skarið en segist gera það dapur í bragði. Hann segir að það komi oft fyrir að mann- eskjur fjarlægist hver aðra og það hafi gerst í þeirra tilfelli. Hann vonar einungis innilega að skilnaðurinn komi ekki til með að bitna á bömun- um. Hættir sem framkvæmdastjóri tríósins Willie Herrey mun nú láta af störf- um sem framkvæmdastjóri Herrey’s bræðratríósins. „Ég vona að þetta komi ekki til með að skemma neitt fyrir strákunum en ég hef í langan tíma efast um að rétt sé að faðir þeirra sé um leið umboðsmaður," segir hann að lokum. Ólíklegt er þó að þeir bræður lóti skilnaðinn neitt á sig fó. Þó þeir hafi ekki ráðið nýjan framkvæmda- stjóra era þeir enn á uppleið í Svíþjóð. Þeir vonast eftir að geta gert það enn betra í framtíðinni og segjast alltaf vera að vaxa sem tón- listarmenn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.