Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1986, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1986, Page 29
MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 1986. 29 Sviðsljós Lúðrasveitin lék fyrir utan bankann, vegfarendum til ómældrar ánægju. Boðið var upp á forláta feitmeti, svonefnt konfekt. þennan dag. Ekki skemmdi veðrið heldur fyrir því það var hið besta og voru veðurguðimir þannig einnig í hátíðarskapi. Landsbank- inn á eflaust eftir að standa í a.m.k. önnur hundrað ár og er vonandi að þegar haldið verður upp á þau tímamót verði það gert á jafn- skemmtilegan hátt og nú þar sem allir hrífast með. Vaknað við fótatak Ýmislegt er dæmalaust í henni veröld og sí og æ er verið að finna upp hin mestu þurftartól, öllum í hag. Að utan berast þær fregnir að til séu þeir menn sem hreinlega hafi myndað mótefni gegn hinum ýmsu hringingum sem vekjaraklukkur láta út úr sér. Þessi manngerð vaknar því ekki við venju- lega vekjara og er því hættara en öðrum að sofa yfir sig. Nú hafa mætir menn úti í heimi fundið upp hjálpartæki þeim til handa. Þetta eru vekjara- klukkur sem stappa niður fótunum, já fótunum, á tilsettum tíma. Leikur víst allt á reiðiskjálfi og ef menn sofa það af sér þá þarf jarðskjálfta til að koma þeim á lappir. Klukkumar seljast víst vel því margir virðast álíta þær betri tímagæslutæki heldur en þessar hefðbundnu vekjaraklukkur. Fyrir þá sem hafa áhuga skal tekið fram að útsöluverð mun nema um 1.400 krónum. Vekjaraklukkan sem vekur þiq með fótataki. Hraðamet í húsbyggingum? Hveragerði hefur löngum verið þekkt fyrir heitt vatn, grænmeti, apa og Tívolí. Staðurinn hefúr ve- rið vinsæll viðkomustaður hjá íjölskyldum í sunnudagsbíltúmum og ávallt hefur verið þar mikið um ferðamenn. Þrátt fyrir að stöðugur straumur ferðamanna hafi löngum legið til Hveragerðis mun hann að öllum líkindum stóraukast á næst- unni. Þar hefur verið reist hið glæsilegasta hótel, Hótel Örk, sem rúmar 120 gesti. Eigandi „Arkar- innar“ er Helgi Þór Jónsson og er hótelið hið nýtískulegasta. Þar eru ráðstefnusalir, kaffitería og heilsu- ræktaraðstaða, bæði innanhúss og utan. Samt sem áður em ekki allir möguleikar fullnýttir því enn hefur ekki að fullu verið gengið frá bygg- ingunni né landsvæðinu í kring. Bygging hússins hefur sennilega verið hraðamet því ekki var hafist handa við bygginguna fyrr en á haustmánuðum 1985. Er greinilegt að ekki hefur verið kastað til hönd- unum og má búast við að enn meira líf færist í Hveragerði í framtíðinni. Helgi Þór Jónsson og eiginkona hans, Sólveig Sigurgeirsdóttir, aðstoða dóttur sina, Ágústu, við að klippa á vígsluborðann. Eitt hinna vistlegu hótelherberja „Arkarinnar". Fjöldi gesta var við opnunina en þrátt fyrir þaö var „hátt til lofts og vitt tii veggja". Ólyginn sagði.. Catherine Oxenberg, leikkona og fyrrverandi fyrirsæta, er mjög fegin að hún fékk hlut- verk Amöndu í Dynasty þáttun- um. Telur hún feril sinn sem leikkona hafa bjargað sér úr fyrir- sætubransanum. Fer hún ekki leynt með skoðun sína á þeim bransa og segir að sem Ijós- myndafyrirsæta sértu ekkert annað en kjötbiti sem Ijósmyndar- arnir ráðskist með af vild. Diana Ross gekk nýlega frá samningi við bandariska sjónvarpsfyrirtækið ABC. Á Diana að sjá um tvo þætti sem hvor um sig á að standa 1 eina klukkustund. Diana er gest- gjafinn og fær að velja gesti og viðmælendur sína sjálf. Fyrir þetta smáviðvik fær söngkonan aðeins 80 milljónir króna eða litlar 40 milljónir á tímann. Don Johnson er nú staddur í Florida í góðu yfir- læti. Hann heldur til í bát sinum sem hann fékk gefins frá framleið- anda bátanna. Ástæðan fyrir þessari höfðinglegu gjöf er sú að þátur sem þessi er notaður í hin- um geysivinsælu sjónvarpsþátt- um „Miami Vice". Eftir að þættirnir hófu göngu sína hefur salan á bátunum margfaldast og er þetta því einungis þakklætis- vottur til Johnsons fyrir óbeina auglýsingu, eða þannig.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.