Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1986, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1986, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 1986. Úflönd_________________________________n Evrópskt gagneldflaugakerfi byggt á stjömustríðstækni Natóríki vilja draga úr ógn af völdum skammdrægra eidflauga Sovétmanna Sérfræðingar Atlantshaísbanda- lagsins kanna nú tillögur um gagneldflaugakerfi er staðsett yrði í Evrópu og að miklu leyti grundvall- að á tækniþekkingu er þróast hefin- við undirbúning geimvamaáætlunar Bandaríkjamanna, svonefhdrar stjömustríðsáætlunar. Haft er eftir stjómarerindrekum í höíuðstöðvum Atlantshafsbanda- lagsins í Brussel að töluverður ágreiningur ríki um nauðsyn áætl- unarinnar á meðal aðildarríkja bandalagsins, er telji sum að Atl- antshafsbandalaginu stafi ekki nógu mikil ógn af skammdrægum eld- flaugum Sovétmanna, er vopnaðar em hefðbundnum sprengjuoddum, til að réttlæta umfang og kostnað af slíku gagneldflaugakerfi. Vestur-Þjóðverjar áhuga- samir Haft er eftir stjómarerindrekunum að mestur áhugi ríki um nýju áætl- unina á meðal Vestur-Þjóðverja. Vestur-Þýskaland, er yrði helsti vettvangur stríðsátaka í hefðbundnu stríði austurs og vesturs, heftir að undanfómu lagt aukna áherslu á þróun gagneldflaugakerfis á meðal ríkja Atlantshafsbandalagsins, er myndi meðal annars verða vöm gegn skammdrægum eldflaugum Sovétmanna af gerðunum SS-21, SS-22 og SS-23, sem nú em staðsettar í Austur-Þýskalandi og Tékkóslóv- akíu. Hemaðarsérfræðingar telja einnig að sérfræðingar á sviði geimvamaá- ætlunar Bandaríkjanna sjái ávinn- ing í því að auka áhuga og þátttöku Evrópuríkja á þeirri hátækni er geimvamaáætlun Bandaríkjanna byggist á. Evrópsk fyrirtæki á sviði hátækni- iðnaðar hafa staðið í eigin rann- sóknum á tækninýjungum er tengjast geimvamaáætluninni og hafa þau sýnt mikinn áhuga á hug- myndum um þróun evrópsks gagn- eldflaugakerfis. Enginn vafi leikur heldur á afetöðu hershöfðingja Atlantshafebanda- lagsins, er ekki em í neinum vafa um ógnina af sovéskum eldflaugum í Evrópu og sýnt hafa mikinn áhuga, á hugmyndum um evrópst gagneld- flaugakerfi. Rogers og Woerner sammála Bemard Rogers, yfirhershöfðingi Atlantshafebandalagsins í Evrópu, segir að hemaðarsérfræðingar í áætlunamefnd NATÓ muni brátt leggja fram tillögur um langtímaá- ætlanir á sviði eldflaugavama fyrir herfræðinefiid bandalagsins. Ennfremur er hafi; eftir stjómarer- indrekum innan höfuðstöðva Atl- antshafebandalagsins í Brussel að Bemard Rogers og Manfred Woem- er, vamarmálaráðherra Vestur- Þýskalands, séu sammála um að í umræðunni um staðsetningu meðal- drægra kjamorkuflauga Sovét- manna í Evrópu hafi hættunni af skammdrægum eldflaugum Sovét- manna, sem beint er að Vestur- Evrópu, verið of lítill gaumur gefinn. Talsmenn Atlantshafebandalags- ins segja að skammdrægar flaugar Sovétmanna geti borið sprengiodda, með kjamorkusprengjum, efnavopn- um eða hefðbundnum sprengihleðsl- um og að eitt af meginmarkmiðum bandalagsins á næstunni sé að auka vamarmátt Vestur-Evrópuríkja gegn slíkri hugsanlegri alkheijar eldflaugaárás, er beint yrði gegn lyk- ikkotmörkum í Evrópu og ætlað að lama vamir Atlantshafebandalags- ins fyrir innrás hersveita Varsjár- bandalagsins. Yfirherstjóm Atlantshafebanda- lagsins í Evrópu hefur þegar lagt til að undirbúningur verði hafinn að gagneldflaugakerfi í álfunni er hannað yrði á grundvelli þeirrar tækniþekkingar er þegar hefur verið þróuð við undirbúning geimvamaá- ætlunar Bandaríkjastjómar. örar tækniframfarir í tillögum yfirherstjómarinnar er gert ráð fyrir að gagneldflaugakerfið verði byggt upp á nýjungum á sviði Umsjón: Hannes Heimisson leysigeklavopna, en framfarir í þró- un slíkra vopna hafa tekið stökk- breytingum undanfarin ár. Tengsl hinnar fyrirhuguðu vam- aráætlunar við geimvamaáætlun Bandaríkjanna hafa gefið henni nafiigiftir eins og geimvamaáætlun Evrópu eða evrópska stjörnustríðsá- ætlunin, þrátt fyrir að í drögum gagneldflaugakerfisins sé hvergi gert ráð fyrir neinum vamarbúnaði í geimnum. Árásarflaugar þær, sem gagneldflaugakerfinu er ætlað að veijast, fara að auki aðeins að htlu Ieyti út fyrir gufuhvolfið á ferli sín- um frá skotstað til áætlaðs skot- marks. Fjölmörg evrópsk fyrirtæki á sviði hátækni hafa þegar hafið harðvítuga samkeppni sín á milli um samninga við stjómvöld um þátttöku í upp- byggingu gagneldflaugakerfisins. Má þar meðal annars nefiia frönsku fyrirtækin Aerospatiale, Thomson og Matra, auk breskra fyrirtækja og vestur-þýskra. Ágreiningur um mikilvægi En iðnjöfrar og hershöfðingjar virðast enn nokkuð á undan áætlun- ardeild Atlantshafebandalagsins í undirbúningi og skipulagningu gagneldflaugakerfisins. Forsvarsmenn áætlunardeildar bandalagsins vilja fyrst gera það upp við sig hvort nógu mikil ógn stafi af skammdrægum eldflaugum Sovét- manna til að réttlæta umfang nýs vamarkerfis er kosta myndi óhemju fjármagn og ef svo væri, hvort ekki væru þá til kostnaðarminni leiðir til að mæta ógninni. Sérfræðingar Atlantshafebanda- lagsins eru sammála um að skamm- drægar flaugar Sovétmanna hitti skotmörk sín mun nákvæmar nú en fyrir fimm árum og séu því hættu- legri fyrir vikið. En sömu sérfræð- ingar segja aftur á móti að skyndiárás með skammdrægum eld- flaugum ein saman teljist ekki lengur eins árangursrík af herfræð- ingum og fyrr hafi verið álitið og því hafi dregið úr líkum á slíkri árás. Margir hemaðarsérfræðingar hafa að auki fullyrt að til séu mun ódýr- ari og engu árangursminni leiðir til að endurbæta loftvamir Vestur- Evrópu, leiðir sem þróaðar verði út frá þeirri tæknikunnáttu sem þegar er til staðar. „Sú grundvallarspuming, er við verðum að svara á næstu sex til m'u mánuðum, er sú hvort það sé þess virði fyrir Sovétmenn að beita skammdrægum eldflaugum sínum í stríði þar sem kjamorkuvopnum er ekki beitt,“ er haft eftir embættis- manni Atlantshafebandalagsins í aðalstöðvunum í Brussel. „Margir eru sannfærðir um að það sé ekki þess virði,“ bætti hann við. Það sem talið er að dragi enn úr líkunum á að Atlantshafebandalagið sameinist um nýtt gagneldflauga- kerfi em rótgrónar efasemdir sumra aðildarríkja vegna geimvamaáætl- unar Bandaríkjanna. Má í því sambandi minna á Danmörku, Nor- eg og Holland, sem sérfræðingar NATÓ telja líklegt að snúist gegn hvers konar sameiginlegri áætlun Atlantshafebandalagsins er tengsl hafi við geimvamaáætlun Banda- ríkjanna. Of kostnaðarsamt? Talið er aftur á móti fullvíst að yfirherstjóm bandalagsins sé al- mennt hliðholl hugmyndum um gagneldflaugakerfið og haft er eftir háttsettum manni innan yfirher- stjómarinnar að líklegast verði gefið grænt ljós á uppsetningu kerfisins innan tveggja ára og að það verði tekið í fulla notkun eigi síðar en um aldamót. Aðrir embættismenn NATÓ em ekki eins bjartsýnir. „Allir em sammála um nauðsyn öflugri loftvama. En það má alls ekki ganga að þvi sem öraggum hlut að bandalagið tileinki sér stjömu- stríðstækni við þau áform. Ríki Atlantshafebandalagsins em langt frá því að vera sannfærð um að það sé þess virði að takast á hendur svo kostnaðarsamar áætlanir," sagði annar embættismaður í aðalstöðv- unum í Brussel er taldi hverfandi líkur á að gagneldflaugakerfið yrði að vemleika. Yfirhershöfðingjar AUantshafsbandalagsins hafa mikinn óhuga á þvi að styrkja loftvamir bandalagsins i Vestur-Evrópu meö þróun nýs gagneld- flaugakerfis er staðsett yrði i Evrópu og byggt yrði upp ó hliöstæðri tækni og geimvamaáætlun Bandarfkjanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.