Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1986, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1986, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 1986. 11 Viðtalið Á ennþá met í langstökki og 100 metra hlaupi Stefán Skjaldarson, skattstjóri Vesturlandsumdæmis. Stefán Skjaldarson heitir nýráðinn skattstjóri Vesturlandsumdæmis. Hann fæddist 9. september 1956 á Si- glufirði og dvaldist þar sín fyrstu 3 æviár. Þaðan flutti Stefán í Búðardal. „Búðardalur er venjulegt sveitaþorp, þar er engin útgerð eða sjór og því er þetta að mestu landbúnaðarþorp. Reyndar man ég helst eftir því hvað var alltaf kalt og hvass þar enda ligg- ur þorpið tiltölulega opið fyrir norðan- átt. Sjálfsagt verða einhverjir ekki sáttir við þessi ummæli," sagði Stefán. Hann lýsir sér sem prakkara í bam- æsku en þó án þess að hafa verið með einhver skammarstrik. „Ég var í sveit flest sumur þama rétt hjá, í Kvisthaga í Miðdalahreppi. Þar vom aðallega kýr og sinnti ég öllum almennum sveitastörfum í kringum skepnumar eins og að sækja, reka og mjólka. Einnig vom á bænum hestar, mér til mikillar ánægju,“ sagði Stefan. Hestamennska áhugamál númer 1, 2, 3 og 4 „Hestamennska hefur verið mitt að- aláhugamál frá því ég var smástrákur og mest af mínum frístundum farið í hana. Pabbi var mikill hestamaður og fékk ég áhugann í gegnum hann. Núna á ég sjálfur 9 hesta og þetta er feikilega skemmtilegt áhugamál," sagði Stefán. Sambýliskona Stefáns, Ingibjörg Eggertsdóttir, er að hans sögn engu minni hestaáhugamann- eskja enda ættuð úr Dölunum. „Lærði mikið af því að vera í Versló“ Stefán lauk skyldunámi í skólanum í Búðardal en tók landspróf í ungl- ingaskólanum á Siglufirði. „Mér þótti fyrst í stað skemmtilegast að læra stærðfræði ó þessum árum en það breyttist fljótt og komst þá íslenskan í efista sætið. Annars voru þessi ár eitt allsheijar hafari og maður spekúleraði í mörgu öðru en skóla. Ég hef senni- lega hvorki talist þægur né prúður nemandi en þó án þess að fa sérstaka skömm í hattinn. Mér hefur líka alltaf lynt vel við mína kennara," sagði Stef- án. Að loknu landsprófi lá leið Stefáns í Verslunarskóla Islands. Hann lauk verslunarprófi og fór í hagfræðideild. „Ég lærði mikið af því að vera í Versló. Skólinn er mjög góður og þetta var skemmtilegur tími. Það sem ég man einnig vel eftir á þessum árum var að engin námsgrein var beinlínis leiðin- leg. íslenskan var áfram uppáhaldið enda man ég vel eftir íslenskukennar- anum, Þórhalli Guttormssyni, sem var mjög skemmtilegur í tímum. Valdimar Hergeirsson yfirkennari er mér einnig minnisstæður, röggsamur og góður kennari og mjög fróður. Sú saga er fræg af honum að hann skrifi með hægri hendinni en þurrki jafnóðum út með þeirri vinstri. Að minnsta kosti var erfitt að hafa við honum ef maður vissi ekki hvað hann var að skrifa," sagði Stefán. Stefán fylgdist með félagslífinu en sat ekki í neinum nefndum. Hann var þó í kómum eitt árið sem söng þó syrpu af lögum eftir Simon og Garfun- kel á Nemendamótinu. Hann útskrif- aðist 1976 og lá þá leiðin í Háskólann. Hafði áhuga á tölvunarfræði „Við vorum tveir sem vorum mikið saman, ég og Sigurður Pálmi Sigurðs- son sem nú er löggiltur endurskoð- andi. Við höfðum áhuga á þvi að fara í tölvunarfræði og kynntum okkur hana. Ég fékk nóg af lýsingunni en hann reyndi fyrir sér en sprakk eftir smátíma. Leið mín lá því í lögfræði,“ sagði Stefán. Honum er minnisstætt stressið sem ríkir fyrstu árin enda heldur lítill hóp- ur áfram. „Menn gera lítið annað en að lesa í lögfræðinni, þó að kannski sé hægt að vinna með öðm háskóla- námi þá er það af og frá í lögfræði.“ Enda segist hann lítið hafa gert annað en að lesa. „Mér fannst stúdentapólit- íkin leiðinleg og jafhvel mannskemm- andi. Þetta var mestmegnis skítkast manna á milli. Ef þetta em æfingabúð- ir fyrir verðandi pólitíkusa em þær slæmar,“ sagði Stefán. Veiðifélagið Agnúinn hf. Stefán tók sér þó ýmislégt fyrir hendur á háskólaárunum og meðal annars byrjaði hann á því að leika sér í körfubolta. „Ég var þá í bekk með körfuboltamönnum sem kenndu okk- ur og síðan hef ég dútlað við þetta af og til,“ segir Stefón. Fleira var brallað á þessum árum. „Ég kynntist Friðrik Stefánssyni sem var frumkvöðull að Veiðifélaginu Agnúanum hf. sem við stofriuðum nokkrir félagamir. Friðrik er veiði- maður af guðs náð og kveikti í manni veiðibakteríuna. Við flytjum meðal annars inn fluguhnýtingarefhi og hnýtum okkar flugur sjálfir,“ sagði Stefán. Hann segist þó komast alltof sjaldan í veiði. Áhugamaður um allar íþróttir Stefán er áhugamaður um allar íþróttir. „Ég hef samt ekki tekið þátt í neinu nema frjálsum íþróttum og keppti þó á héraðsmótum í Dalasýslu. Einnig er ég í fótbolta í hádeginu." Upp úr honum tekst þó að veiða það að hann hafi verið meira en slarkfær í frjálsum íþróttum hér á árum áður, að minnsta kosti stendur ennþá met hans í 100 metra hlaupi og langstökki. Ánægður með Akranes Síðasta ár hefur verið viðburðaríkt fyrir Stefán. Hann starfaði hjá Skatt- stofunni í Reykjavík þar til í septemb- er í fyrra. Þá fluttist hann til Akraness og opnaði lögmannsstofu og nú er hann orðinn skattstjóri Vesturlands- umdæmis. „Staðurinn hér hefur reynst mér vel og ég kann mjög vel við fólk- ið. Ég átti von á þvi að það tæki tíma að komast inn í svona lítið samfélag en ég hef ekkert orðið var við slíkt," segir Stefán. Hann segist ekki hafa önnur fram- tíðaráform en að skila starfi sínu vel af sér. „Mitt mottó hefur alltaf verið að gera hlutina vel og ekki gefast upp og hætta við hólfnað verk,“ segir Stef- án Skjaldarson. JFJ ©ite) Gabriel HÖGGDEYFAR I MIKLU ÚRVALI SKEIFUNNI 5A, SIMI: 91-8 47 88 FF Éq vildi q|aman komast fklipu...! FF sagði harðfiskurinn... N Ý VERÐLÆKKUN: „húti kostar ekki nema svo sem eins og tvœr krónur núna" Vatrmi Bílasprautun TRANSPOWER tOFT KNÚNAR DRAGHNOÐS TENGUR, V MJÖG GOTT VERÐ UTANHÚS MÁLNING SEM DUGAR VEL KÓPftL-DÝRÓTEX hleyptir raka auðveldlega í gegnum sig. Mjög gott verðrunar- og lútarþol og rakagegnstreymi. KÓPAL-DÝRÓTEX dugar vel. HVl Hks-* ÓSA/SIA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.