Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1986, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1986, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 1986. Jóhanna Sigurbjörnsdóttir, Grettisgötu 90, Reykjavík, lést 2. ágúst síðastliðinn. Hún var fædd 10. maí 1902, dóttir hjónanna Jakobínu Bjarnadóttur og Sigurbjöms Þor- steinssonar. Jóhanna giftist Haraldi Björnssyni árið 1931 og eignuðust þau fjögur börn. Útförin fer fram í dag, þriðjudaginn 12. ágúst, kl. 13.30 frá Fossvogskirkju. Kristjana Jónsdóttir, Víðihvammi 14, Kópavogi, verður jarðsett frá Dómkirkjunni 13. ágúst kl. 10.30. Hörður Magnússon, frá Stykkis- hólmi, Hjaltabakka 2, verður jarðs- unginn í Fossvogi í dag, þriðjudag- inn 12. ágúst, kl. 10.30. Happdrætti Happdrætti handknatt- leiksdeildar Fram Dregið hefur verið í happdrætti hand- knattleiksdeildar Fram. Vinningsnúmer eru: 1 2216 2 1987 3 3694 4 2629 5 1174 6 1588 7 4425 8 1489 9 3312 10 2150 Þökkum stuðninginn. Handknattleiksdeild Fram. Tapað fundið Peningaveski tapaöist Svart seðlaveski tapaðist á leið frá Mos- fellssveit til Akraness. Finnandi vinsam- legast hafí samband í síma 93-1761 á Akranesi. Fundarlaun. Dökkbrún læða týnd Dökkbrún læða með örsmáum gulleitum dílum og ljósan depil undir trýni, tapaðist frá Hlíðarbyggð 31, Garðabæ, fyrir 8-10 dögum. Þeir sem hafa orðið varir við hana vinsamlegast hafi samband í síma 656195. ökuskírteini fannst Fyrir hálfum mánuði fannst ökuskírteini í Hagkaupi, Skeifunni. Eigandinn, Svava Stefánsdóttir, getur vitjað þess þar. Andlát Rannveig Ingimundardóttir, Víðimel 66, Reykjavík, lést 3. ágúst síðastliðinn. Hún var fædd 29. des- ember 1911, dóttir Önnu Maríu Lúðvíksdóttur og Ingimundar Sveinssonar. Árið 1934 giftist hún Sigfúsi Bergmann Bjarnasyni og eignuðust þau fjögur böm. Eigin- maður Rannveigar stofnaði fyrir- tækið Heklu hf. og átti Rannveig mikinn þátt í stjórnun fyrirtækisins í gegnum árin. Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, þriðjudaginn 12. ágúst, kl. 13.30. Áslaug Ragna Jónsdóttir, Víði- grund 1, Akranesi, lést 3. ágúst síðastliðinn. Hún var fædd 28. ágúst 1951. Áslaug giftist Guðmundi Smára Guðmundssyni 1973 og eignuðust þau tvo syni. Jarðarförin fer fram frá Akraneskirkju í dag, þriðjudaginn 12. ágúst, kl. 14.30. Guðbjörg Vilhjálmsdóttir, Skeið- arvogi 22, andaðist í Borgarspítalan- um 8. ágúst. Örn Valdimarsson framkvæmda- stjóri, Logalandi 25, verður jarð- sunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 13. ágúst kl. 15.00. Jóhanna Vilhelmína Jónatans- dóttir, er lést á heimili sínu, Trönuhólum 16, 30. júlí síðastliðinn, verður jarðsungin frá Langholts- kirkju í dag, þriðjudaginn 12. ágúst, kl. 15.00. Aðalfundur N.T. umboðið hf., Akureyri, heldur aðalfund fyrir árið 1985 að Hótel Varðborg þriðjudaginn 26.8. 1986 kl. 20.00. Venju- leg aðalfundarstörf, önnur mál og kaffiveitingar. Stjórnin. Reykjavíkurblöðrurnar fyrirliggjandi Heildverslun Eiríks Ketilssonar, Vatnsstíg 3, símar 23472 og 19155. Útvarp - sjónvarp Guðrún Anna Magnúsdottir, nemi i auglýsingateiknun: „Kæri mig ekki um að hlusta á sinfoníur í amstri dagsins“ Ég missti af fréttunum í sjónvarp- inu í gær en yfirleitt horfi ég alltaf á þær. Þær eru nauðsynlegur þáttur í daglegu lífi. Þó finnst mér oft á tíðum óþarflega mikið um endur- tekningar milli fréttatíma. Ef maður heyrir sjöfréttimar í útvarpinu heyr- ir maður alveg það sama í sjónvarps- fréttunum. Annars finnst mér fréttir í sjónvarpi og útvarpi yfir höfuð ágætar. Eg tek þó sjónvarpið fram yfir útvarpið en finnst þó fréttaskýr- ingaþættimir eftir útvarpsfréttimar oft sérstaklega góðir. í gærkvöldi horfði ég svolítið á poppkom og finnst mér þessir þættir hafa verið skemmtilegir. Þeir hafa þó þynnst út upp á síðkastið og virð- ast stjómendur hafa orðir uppiskroppa með góð myndbönd. Brandaramir hjá þeim hafa verið skemmtilegir en ég er sammála því að það sé kannski tími til kominn að fá einhverja nýja til að sjá um þáttinn. Á íþróttir horfi ég sjaldan því mér finnst vera alltof mikið af fótbolta í þeim. Það mætti sýna meira frá öðrum íþróttum, til dæmis frjálsum. Ég horfði ekki á myndina um Bláskegg í gærkvöldi því það komu gestir og ég slökkti á tækinu. f útvarpi hlusta ég aðallega á rás tvö. Ég hef ekki útvarp í vinnunni en hlusta á fimmtudagskvöldum og um helgar. Á rás eitt hef ég gaman af fimmtudagsleikritunum og út- varpssögum. Einnig finnst mér morgunútvarpið mjög skemmtilegt og hlusta ég alltaf á það við morgun- verðarborðið og á leið í vinnuna. í heild finnst mér þó of mikill drungi yfir rás eitt. Mér finnst gott að hafa útvarp til að hressa mann við með skemmtilegum lögum og líflegu efni. Ég kæri mig ekki um að hlusta á sinfóníur í útvarpinu. Maður þarf að vera í sérstöku stemmningarskapi til þess og það er maður ekki við daglegt amstur. Eg er almennt nokkuð ánægð með ríkisfjölmiðlana en tel þó þörf á fjöl- miðli sem er ekki ríkisrekinn. Það væri til dæmis gott að geta skipt um rás í sjónvarpinu þegar eitthvað leiðinlegt er á skjánum. Kartöfluverðið lækkar i dag „Ég skil ekki hvaða fyrirgangur þetta er með of hátt verð á kartöflum. Þetta er sjötti dagurinn sem við seljum nýuppteknar kartöflur. Fyrsta vikan er alltaf langdýrust. Verðið lækkar í dag. Við erum aðeins með premier enn sem komið er og hann kostar 53 kr. í heildsölu, pakkaður í eins kg poka sem gæti verið 63,60 kr. út úr búð,“ sagði Jón Magnússon hjá Þykkvabæjar- kartöflum í samtali við DV í morgun. Ólafur Sveinsson hjá Ágæti sagðist ekki skilja hvaðan Neytendasamtökin hefðu sínar tölur, sem þau hefðu gefið fjölmiðlum upp, en þær væru alrang- ar. Premierinn kostar hjá Ágæti 50 kr. í heildsölu í dag, 12. ágúst, en kost- aði í fyrra þann sama dag 48,50 kr. Það er 3% verðhækkun á milli ára. Svanhildur Ámadóttir hjá Eggert Kristjánssyni sagði að verðið á premi- emum hjá þeim væri óbreytt, 63 kr., og gullaugað á 75 kr. í heildsölu en allar kartöflur vom uppseldar í bili og beðið eftir nýrri sendingu. Þegar hún kemur tökum við ákvörðun um verðið, sagði Svanhildur. Bananar hf. em eingöngu með inn- fluttar kartöflur, það er bökunarkart- öflur sem leyfilegt er að flytja inn og kosta þær 43 kr. í heildsölu. -A.BJ. Greenpeace hugsar málið „Engin ákvörðun hefur verið tekin um aðgerðir gegn íslendingum," sagði Alan Pickaver á aðalskrifstofu Green- peacesamtakanna í London í morgun. „Að vísu em ekki nema nokkrir dagar liðnir frá því málin fóm í þann farveg sem þau em í nú. Við erum ennþá að hugsa málið.“ Pickaver sagðist vera að bíða eftir því að geta haft samband við félaga sína í Bandaríkjunum til að fá upplýs- ingar um viðræður sem þar hafa farið fram milli náttúmvemdarsamtaka um hvemig mótmæla eigi áframhaldandi hvalveiðum íslendinga. Þær fréttir hafa borist að fjögur eða fimm fjöl- menn náttúruvemdarsamtök f Banda- ríkjunum, þeirra á meðal Greenpeace- samtökin, ætli að beita sér gegn því að fólk kaupi íslenskar fiskafúrðir. Pickaver sagði að hugsanlegum að- gerðum Greenpeace yrði ekki beint gegn íslendingum sérstaklega heldur yrðu þær liður í samræmdri áætlun er miðaði að því að stöðva allar hval- veiðar hverju nafni sem þær nefndust. -EA Tilkyimingar Kvenfélag Bústaðasóknar Konur úr Kvenfélagi Bústaðasóknar hafa ákveðið að fara í ferðalag laugardaginn 23. ágúst. Farið verður um uppsveitir Ár- nessýslu. Upplýsingar gefa, Björg s:33439 og Lára s:35575. AErnæli 80 ára er í dag Amfríöur Vil- hjálmsdóttir, Hólmgarði 56, Reykjavík. Hún er að heiman. Norðuriönd styðja hvalveiðar íslendinga Steingrímur Hermannsson forsæt- isráðherra situr nú fund forsætisráð- herra Norðurlanda í Danmörku. Óskaði hann eftir stuðningi Norður- landa við hvalveiðar Islendinga í vísindaskyni og við því að hvalveiðar verði hafnar í atvinnuskyni 1990 undir vísindalegu eftirliti. Fengu íslendingar einróma stuðning alfra Norðurland- anna í þessu efni auk þess sem forsætisráðherramir lýstu því yfir að afskipti einnar þjóðar af þessu máli væri óþolandi, þessi mál ætti að af- greiða innan Alþjóðahvalveiðiráðsins en ekki á milli einstakra þjóða. Meginumræðuefnið á fundinum snerist þó um sameiginlegar viðskipta- þvinganir Norðurlanda gegn Suður- Afríku. Var ákveðið að Danir tækju málið upp hjá Öryggisráði Sameinuðu Þjóðanna og ákvarðanir um frekari viðbrögð biðu árangurs af niðurstöðu þessarar leiðar. Lokaniðurstaðan var sú að menn töldu æskilegt að löndin yrðu samstíga í þessu máli. -JFJ Ungir jafnaðarmenn: Skora á formennina í kappræður Samband ungra jafnaðarmarma hefúr skorað á Jón Baldvin Hannib- alsson, formann Alþýðuflokksins, og Svavar Gestsson, formann Alþýðu- bandalagsins, að mæta til kappræðna á Þingvöllum um næstu helgi þegar ungliðamir fara þangað í sumarferð ásamt Æskulýðsfylkingu Alþýðu- bandalagsins. Efhi kappræðunnar verður: „Tilraunir Alþýðuflokksins og annarra vinstri flokka til samfylking- ar og samstarfs á árum áður.“ í frétt sem SUJ sendi frá sér í gær segir: „Það mikla moldviðri, sem þyrlað hefur ve- rið upp vegna fyrirhugaðrar ferðar fer því ekki til einskis." -EA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.