Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1986, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1986, Síða 25
ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 1986. 25 dv Sandkorn Það er fjör í fótboltanum. Glaður Valsari Áhangendur Fram urðu hroðalega svekktir eftir leik- inn í íslandsmótinu í fyrra- kvöld. Þá sigraði Valur Framarana með eins marks mun og skilur nú aðeins eitt stig liðin að í baráttunni. Eins og nærri má geta urðu sannir Valsaðdáendur ofsa- kátir og réðu sér ekki á leið- inni heim. Það gerðist til dæmis á Reykjaveginum að lögreglan tók ökumann einn fyrir of hraðan akstur eftir leikinn. Sá hentist áfram á blússandi ferð, rétt eins og hann væri að sækja ljósmóð- ur, þegar löggan tók í taum- ana. Og skýringin sem maðurinn gaf á þessu aksturs- lagi var allra góðra gjalda verð: „Ég varð bara svo ofsaglað- ur þegar Valur vann Fram að ég gaf rækilega í.“ Svo það var kannski eins gott að markamunurinn í leiknum varð ekki meiri. Hrækti réttindunum Úr því að verið er að fjasa um fótbolta er ekki úr vegi að minnast aðeins á leik Reynis í Sandgerði og Stjömunnar úr Garðabæ sem fram fór á dögunum í Sandgerði. Þegar dómarinn blés til leiksloka gekk einn fylgdar- manna Stjömunnar að öðrum línuverði leiksins og hafði uppi athugasemdir um ákveð- in atriði í leiknum. Línuvörð- urinn sagði að honum kæmi þetta hreint ekki við. Þá varð maðurinn, sem nýlega erkom- inn með dómararéttindi, svo illur að hann skyrpti framan í línuvörðinn. Hafa þessir mannasiðir dómarans unga verið færðir á skýrslu og á hann nú yfir höfði sér svipt- ingu. Það má því segja að hann hafi hrækt réttindunum í þess orðs fyllstu merkingu. Skotinn Angus Rollo er hrlf- Inn afíslenska „bjórnum ÚFF-veiði- félagið í nýútkominni Viku er skondið viðtal við Skotann Angus Rollo sem skemmt hef- ur gestum veitingahússins Fógetans nokkrum sinnum. Rollo þessi kveðst hafa tekið ástfóstri við Island. Þá munu einhverjir íslendingar hafa tekið ástfóstri við hann því hann hefur meðal annars ver- ið tekinn inn í „það allra helgasta, Útgerðarfélag Fó- getans, sem er veiðiklúbbur nokkurra félaga.“ Til þess að komast inn í umræddan veiðiklúbb verða útvaldir að ganga í gegnum leynilegar seremóníur, svona eins og tíðkast hjá frímúrur- um og fleiri gildum samtökum. Ekki vildi Skotinn segja frá seremóníunum hjá ÚFF þrátt fyrir suðið í blaðamanninum en viðtalinu lauk hann með þessum orðum: „Ég elska þjórinn hér - já, líklega er það hann sem ég heillast mest af í sambandi við landið." Og manninum var fúlasta alvara... Menn geta hæglega ruglast á bílum hafl þelr verlð elns og þeytispjöld um al/an bæ i' hellan dag. Skiptum númer Það gengur sjaldnast þrautalaust að koma bíl í gegnum skoðun, svo ekki sé nú talað um ef þarf að umskrá hann í leiðinni. Þetta fékk roskinn Reyk- víkingur að reyna á dögunum. Hann hafði fest kaup á hörku- góðum bíl með S-númeri. Og nú þurfti að umskrá vagninn og láta bifreiðaeftirlitið leggja blessun sína yfir hann. En þegar bíleigandinn fór að kynna sér málið kom í ljós að þetta var meira verk en hann hugði í fyrstu. Það þurfti að sendast eftirskjölum og pappírum út og suður og fljótt á litið virtist sú söfnun vera að minnsta kosti dagsverk. Okkar maður lét þó ekki deigan síga en spanaði fram og til baka um bæinn eftir plöggunum. Þegar því var loks lokið var þotið upp í bif- reiðaeftirlittil að umskrá. Þar var bíleigandanum tilkynnt að hann þyrfti sjálfur að skrúfa númerin af bíl sínum og skila þeim inn. Hann rauk út, klyfjaður verkfærum og kolruglaður orðinn af snatt- inu og fór að naga númerin af bílnum. Eftirlanga mæðu ' tókst honum að ná númera- plötunni af að framan og sneri sér þá strax að númerinu að aftan. Þá bar að annan mann sem hafði skotist inn í bif- reiðaeftirlit einhverra erinda og hann spurði okkar mann hæversklega: „Hvað ert þú að gera, maður minn?“ „Ég er að skrúfa númerin af bílnum og umskrá hann.“ „Ne-ei,“ sagði hinn þá með enn meiri hægð, „þó ekki minn bíl.“ Miklibær Vestmannaeyingar eru frægir fyrir að uppnefna hver annan. Oft eru nafngiftimar skringilega skemmtilegar en meiða engan. En það em fleiri en Eyjabú- ar sem geta sýnt á sér þessa hlið. Keflvikingar hafa nú tekið upp á því að kalla Vog- ana Miklabæ. Er þessi nafn- gift til komin vegna þess að V ogabúar þy kj a duglegir við framkvæmdir i plássinu og mun harðari í þeim efnum en nágrannasveitarfélögin. Oddvitinn í Vogunum fær líka sinn skerf af kímnigáfu Keflvíkinga. Hann gengur nefnilega undir nafninu „Odd- uríMiklabæ." Umsjón: Jóhanna S. Slgþórsdóttlr Dræm veiði á grásleppu Regína Thorarensen, DV, Gjögii Grásleppuveiði var lítil hjá smátrill- um í Ámeshreppi. Að sögn Gurrn- steins, kaupfélagsstjóra hjá Kaupfé- lagi Strandamanna, Norðurfirði, fékk kaupfélagið 180 tunnur í fyrra en að- eins 40 í vor. Það sjá allir hversu mikið áfall og tekjumissir þetta er fyrir bændur og búalið á þessum afskekkta stað. Á Gjögri eru tveir menn á sinni trill- unni hvor. Þeir verka sín hrogn sjálfir og selja Steinavör. Þeir fengu núna 10-12 tunnur hvor. í fyrra fengu þeir 38-40. Væri ekki heillaráð að ungu menn- imir á Gjögri keyptu nú 20 tonna bát eins og Lýður Hallbergsson Djúpuvík sem á einn slíkan og fékk 85 tunnur af fullverkuðum hrognum í vor því stærri bátamir geta sótt lengra. Lýður er með tvo menn á bátnum með sér og verkuðu þeir hrognin og allt sjálfir. Trillueigendur í Ameshreppi kenna veðráttu um litla veiði. Og svo var ísinn hér í algleymingi og netin fyllt- ust af þara jafnóðum og þau komust í sjó og eyðilögðust mörg þeirra. En Ólafur Axelsson missti net undir ís, eina trossu. Hér er dásamlegt veður og hefúr verið síðustu daga. Þar áður var drep- andi kuldi enda ís allsráðandi og þoka í marga daga. Sytvain Barrette (Dómkirkjan i Reykjavík, 10. ágúst kl. 17. 00: Sylvain Barrette lék orgelverk eftir Muffat, Bach, Brahms, Franck og Buxte- hude) Kanadamaðurinn Barrette tók fyrstu einkunn bæði í orgel- og sem- balleik frá konservatoríinu í Quebec, nam einnig við Concordia Univers- ity í Montreal, og hefúr nýlokið prófi ftú Tónlistarháskólanum í Vín. Það er áreiðanlega meinhollt að leika bæði á orgel og sembal. Sem- ballinn hefur skýra snertingu (ly- klamir smella niður) og getur gefið mönnum skýrara slag á orgelið, því óákveðin snerting orgelhljómborðs- ins getur leitt til nokkurs óskýrleika í leiknum. Þá hafa bæði hljóðfærin svipaðar aðferðir til áherslu og setn- ingamyndana. Hvorugt getur mismunað nótum með missterku slagi, allar nótur em jafiiar að styrk. Til að fá skýrar útlínur í tónlistina verður því að beita svokölluðum agógískum, eða lagrænum, áhersl- um. Þeim er til dæmis náð með örlítilli lengingu áherslunótna, með öndunarhiki, með því að hraða eða hægj a á hendingum o.s.frv. Allt þetta verður þó að vera svo vel gert að það ýti undir, en trufli ekki eðlilegt flæði tónlistarinnar. Hjá Barrette fengu menn að heyra hvemig hægt er að leika af miklum tilfinningahita án þess að skýrleik- anum sé nokkum tíma fómað, og lagrænar áherslur vom afbragðsvel unnar, einkum í barrokkverkunum þar sem þær em helst notaðar. Er skemmst frá því að segja að tónleik- amir vom hinir ánægjulegustu, mikil tónlist, mikið líf. Efnisskráin var vel valin, með markvissa stíg- andi, og mér virtist gætt að tónteg- undarsambandi verkanna, sem er ágætt þegar ekki er klappað ó milli verka. Fyrst lék hann Tokkötu efitir Muf- fat, en flestir orgeltónleikar byrja á tokkötu. Hún spennti á manni eyrun fyrir hlustun Tríósónötu f G-dúr (BWV530) eftir Bach. Tríósónatan var líflega leikin í hröðu köflunum, og ekki veigraði Barrette sér við hörðum hendingum í fótspilinu. I hinum fræga Lento kafla heyrðist túlkun sem virðist vera að komast í Tónlist Atli Ingólfsson tísku í leik barrokkverka, en ég heyrði fyrst hjá sellóleikaranum Anner Bylshmer. Til að vera í jafri- vægi þarf tónlist að anda, og venju- lega gera menn málhvíldir, misjafnlega langar, eftir hendingar. Téð túlkun byggist hins vegar á því að láta hvert frum anda, þ.e. því andaktuga andartaki sem venjulega er á milli setninga er dreift yfir setn- ingamar sjáKar. Áhrifin em ekki meiri slökun, heldur upphafning hinna smáu byggingarþátta sem em og skýrt kveðnir. Þegar leikurinn tekst vel er hlustunin óviðjafnanleg reynsla, einkum í hægum köflum, eins og Lentoinu. (Ég hefði viljað þakka Anton Webem það að við gerðum okkur þannig grein fyrir mætti þagnarinnar.) í rómantík Jóhannesar Brahms víkur öðmvísi við um hendingamót- un. Hljómræni þátturinn er þar orðinn svo ríkur að ekki er viðeig- andi að draga lagfrumin fram sem meginstoðir verkanna. Enda söðlaði okkar maður bara um og sýndi á sér allt aðra hlið í kóralforspilunum þremur eftir Brahms. César Franck samdi þrjá kórala fyrir orgel dánarár sitt, 1890. Bar- rette lék þann fyrsta, í E-dúr. Bæði hjá Brahms og Franck heyrist hvað barrokkættuð form eins og kórallinn henta vel til rómantísks spuna. Franck notar kóralhugmyndina sem einskonar þrástef sem gengur gegn- um alls kyns ummyndanir. Menn hafa sagt um Franck að stundum gefi hann ódýr svör við erfiðum spumingum, það finnst mér ekki í kóralnum. Barrette lék hann á þaul- hugsaðan en mjög rómantískan hátt. Styrkleikar voru vandlega skipu- lagðir og hápunkturinn í lokin sannfærandi. Kóralpartítu Dietrichs Buxtehu- des hefði ef til vill mátt leika með meiri ró, hún rann framhjá sprikl- andi af lífi. Síðast lék Barrette Prelúdíu í fís moll eftir sama. Það var glæsilegur endir, og í fyrsta skipti heyrði ég klukkuslátt orgels- ins, sem hófst í síðustu töktum verksins og hringdi það út. Því setti ég nafii þessa unga orgel- leikara í fyrirsögn að þannig kann nafíiið að verða mönnum minnis- stæðara. Það er ekki ótrúlegt að þeir sem fylgjast með orgeltónlist eigi eftir að heyra það síðar, kannski í glæstu samhengi. Styttist óðum í afmælið Óðum styttist í afmæli Reykjavikurborgar þann 18. ágúst. Víða um borgina eru framkvæmdir fyrir afmælið og ekki síst við Amarhól þar sem sjálf hátiðar- dagskráin fer fram. Handan Kalkofnsvegar, beint á móti hólnum hans Ingólfs, er verið að smíða gríðarlega stórt svið sem á að vera vettvangur hátiðardag- skrárinnar á hólnum, auk þess sem þar verða rokktónleikar og djasstónleikar. -JFJ Mikil ánægja með kirkjutónleika Regína Hiorarensen, DV, Gjögri: Ég hef ferðast talsvert um hreppinn hér og hitt þar af leiðandi fólk að máli. Állir þeir sem fóru í Ámeskirkju 3. ágúst sl. og hafa vit á tónlist em mjög ánægðir yfir komu listafólksins Guðmundar H. Guðmundssonar org- anista og hjónanna Guðnýjar Guðmundsdóttur fiðluleikara og Gunnars Kvaran sellóleikara. Lista- fólkið spilaði við fjölmenna messu í Ámeskirkju 3. ágúst eins og áður sagði. Því fannst mikið til um að leika í hinni 136 ára gömlu kirkju sem er með elstu timburkirkjum landsins. Að sögn Guðnýjar er hljómburðurinn þar alveg frábær þótt lágt sé undir loft og stutt á milli veggja. Er þó listakonan vön stórum kirkjum úti í hinum stóra heimi þar sem hún hefur leikið á fiðlu sína. Fólkið var alveg heillað af því að hlusta á listafólkið. Segjast þeir sem ekkert vit hafa á hinni tilkomumiklu list hafa fengið hellu fyrir eyrun og séu með hana enn. Organistinn var Guðmundur H. Guðmundsson fiá Kjörvogi hér í hreppi en hann er nú organisti í Vest- mannaeyjum. Listahjónin dvöldust í flottum sumarbústað sem Kjörvogs- systkinin eiga hér í hreppi. Hólmfríður Guimarsdóttir var ein af fjölmörgum gestum í kirkjunni þegar umræddir tónleikar fóru fram. Skrýddi hún kirkjuna með villtum blómum sem kirkjugestir voru einnig mjög hrifnii af. Nýr svertarstjóri í Skútustaðahreppi Rnnur Balduisscn, DV, Mývaínssveit Jón Pétur Líndal, skrifstofiistjóri Blönduóshrepps, hefiir verið ráðinn sveitarstjóri í Skútustaðahreppi. Hann mun taka við af Amaldi Bjamasyni sem gengt hefur starfinu í um það bil 6 ár. Þá hefúr Úlfar Sæmundsson ve- rið ráðinn hreppsráðsmaður en það er starfsmaður áhaldahúss hreppsins, umsjónarmaður hitaveitu og fleira. Hann mun taka við af Kristni Gunn- arssyni. Skiptin munu fara fram um næstu mánaðarmót.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.