Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1986, Page 27

Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1986, Page 27
ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 1986. 27 Sviðsljós Siávarmaxíms vatni ausið Fyrir nokkru birtist hér á Sviðs- ljóssíðum frósögn af heimsókn hins fljótandi Maxím’s Pierre Cardins til Vesturheims vegna endurgerðar Frelsisstyttunnar. Rétt fyrir þó ferð var skipið vatni ausið - eða réttara sagt kampavíni - og um þá athöfn sá Stefanía prinsessa af Mónakó. Mónakóhöfn var pökkuð skipum og bátum þegar athöfnin fór fram og áhorfendur flykktust að úr öllum áttum. Á hárréttum tíma kom Stef- anía prinsessa að á sportbílnum sínum íklædd hvítum bleiserjakka, gallabuxum og röndóttum bol, smellti flöskunni fagmannlega í skipsskrokkinn og viðstaddir fögn- uðu ákaft. Mónakóprinsessan er enginn við- vaningur í faginu og segja jóakimar í innsta hring að furstaíjölskyldan verði að teljast ein verðmætasta fast- eign ríkisins. Frægð þeirra og athafnir laðar til sín ótalda ferða- menn og eignir á staðnum stórhækka í verði - ár frá ári. Jettsettið kaupir íbúðir og hús þarna í stórum stíl og haft er eftir einum þeirra að almenn velmegun hafi leitt til þess að þeir Stefania skirir haffarið Maxim’s - væntaniega með maximskampavíni. riku og frægu geta óhræddir skreytt að eiga árásir á hættu. Og því íjölgar bankamönnum og gömlum Mónakó- sig gullmálmi og eðalsteinum án þess óðum íjáðum íbúum á staðnum, aðli til óblandinnar ánægju. Snill- ingur með stál- taugar Frökenin á meðfylgjandi mynd er aðeins fjórtán ára, heitir Midori og þykir upprenn- andi fiðlusnillingur með ein- stakar stáltaugar. Hún var að spila Serenade Leonard Bern- steins með Boston Symphony Orchestra fyrir nokkrum vikum þegar e - strengurinn í fiðlunni brast. Það haggaði Midori ekki hið minnsta, heldur sneri hún sér rólega til stjórnandans - sem var Bernstein sjálfur - og fékk Stradivariusinn hans lán- aðan á staðnum. Þegar e - strengur þeirrar fiðlu fór líka fékk hún lánaðan Guadaganini og lauk verkinu á þriðju fiðl- unni. „ Þetta var farið að ganga svo vel hjá mér,“ sagði Mido. i eftir leikinn. „ Mér líkar þetta verk sérlega vel og ég vildi alls ekki hætta leiknum og eyði- leggja þannig allt saman.“ Diönudoppur á Ascot Ný bóla hefur gripið um sig meðal heldra liðsins í Bretaveldi og breiðist óðfluga út meðal almennings. Allt kemur þetta til af klæðaburði Diönu prinsessu sem mætti alsett doppum á nokkrar opinberar athafnir. Nú er svo komið að enginn sem teljast vill maður með mönnum þorir að láta sjá sig doppulausan ó almannafæri. Meðíylgjandi myndir sýna gesti á síðustu Ascotveðreiðum og þar gætti eðla liðið þess á hárfínan máta að falla inn í myndina á alla vegu. Haftarnir eru æfíð áberandi á Ascotveðreiðunum og núna bættust doppur i hópinn. Kjólarnir voru meira og minna doppóttir. Elísabet drottning gætir hófs á öllum sviðum. Hún mætti fremur dröfnótt en doppótt. * •* . * . • * ♦ - - . * / Mismunandi stærðir og litir en áþekkt yfirbragð. Fergie lét sig ekki vanta og var vendilega doppuð. Ólyginn sagði... Reza Pahlavi sem telur sjálfan sig sjálfgef- inn ríkisarfa í íran og hinn eina löglega þjóöhöfðingja eftir lát föður síns gekk í hjónaband á dögunum. Hin væntanlega keisaraynja í ír- an er Yasmine Etemade Amini og þau hittust fyrst á flugvellinum í Washington. Vegna ástandsins á heima- vígstöðvum brúðgumans var fyrirhugaðri hjónavígslu haldið vandlega leyndri af ótta við hryðjuverkamenn. Gordon Thomson á Dynastyþáttunum líf sitt að launa. Hann hafði ákveð- ið að svipta sig lífi vegna þess að ekkert gekk honum í haginn - enginn hafði minnsta áhuga á honum sem leikara árum saman. Gordon keypti líftryggingu, gerði erfðaskrá þar sem hann arfleiddi móður sína og kærustuna síðustu tutt- ugu árin að góssinu til helminga eftir sinn dag og tók síðan til við að velja á milli hinna ýmsu aðferða við síðasta handverkið. Af rælni varð honum litið yfir smáa letrið í líftryggingarskilmál- unum og sá þar að hann varð að tóra minnst tvö ár í viðbót til þess að einhverjir aurar fengjust greiddir eftir andlátið. Til þess að hafa eitthvað fyrir stafni þessi tvö ár gekkst hann undir reynslutökur í næstu kvik- myndaverum og stóð skyndilega uppi með hlut- verk Adams Carrington í Dynasty. Nú hellist yfir Gor- don frægð og auðæfi og hann hefur ekkert á móti því að lesa vandlega smáa letrið í öllum þeim samningum sem að honum verða réttir í framtíðinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.