Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1986, Page 5
FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1986.
5
Fréttir
Fómaði manni og
bauð jafntefli
- Kasparov kom á óvart í biðskákinni í Leningrad
Biðstaðan í 21. skákinni í heims-
meistaraeinvíginu í Leningrad þótti
jafnteflisleg en búist var við því að
Karpov myndi tefla til þrautar í gær
og reyna að kreista fram vinning.
Framhald skákarinnar kom því mjög
á óvart.
Kasparov neitaði að beygja sig. Eftir
að leiknir höfðu verið fimm leikir af
biðskákinni fómaði hann manni og
bauð jafiitefli um leið.
Taflmennska Kasparovs kom
Karpov sýnilega á óvart en hann
þekktist jafriteflisboðið eftir að hafa
fullvissað sig um það að ekki leyndist
vinningur í stöðunni.
Staðan í einvíginu er þá jöfh, hvor
hefur hlotið 10,5 vinninga. Karpov
þarf að vinna eina af þeim þrem skák-
um sem eftir em, að því tilskyldu að
hinum ljúki með jafhtefli. Kasparov
heldur heimsmeistaratitlinum falli
vinningar jafht.
I dag verður 22. skákin tefld og hef-
ur Kasparov hvítt.
Einvíginu lýkur á miðvikudag.
Þannig tefldist 21. skákin frá bið-
stöðunni:
41.-Bb5 +
Biðleikurinn. Kasparov hefur upp-
hugsað hættulegt firamhald sem
hleypir lífi í taflið.
42.Kc3 Ra4+ 43.Kd2 c4
Nú er svartur tilbúinn að bæta víg-
stöðu sína með Kd6-c5-d4.
44.e5+! fxe5 45.Re4+ Ke6!
Og bauð jafhtefli um leið! Þetta er
skemmtilegur leikur. Eftir 46.Bxa4
Bxa4 47.Rc5+ Kf5 48.Rxa4 exf4
49.gxf4 Kxf4 hafa þeir félagar komist
að því að svörtu peðin séu jafhokar
hvíta riddarans. Eftir 50.Rc3 g5
51.hxg5 hxg5 52.Rb5 a6 53.Rd6 g4
54.Rxc4 g3 55.Ke2 Ke4 lýkur skákinni
með jafntefli og sömuleiðis eftir 50.Rb2
Kg4 51.Rxc4 Kxh4 52.Ke3 Kg3 53.Re5
h5 o.s.frv., svo tvö dæmi séu tekin.
-JLÁ
„Tek enga
afstööu
- segir dómsmáiaráðherra um kröfu Ragnars
„Ég tek enga afstöðu til þessara
tilmæla. Ríkissaksóknari er sjálf-
stæður aðili og það er hans mál
hvað hann gerir,“ sagði Jón Helga-
son dómsmálaráðherra í samtali
við DV er hann var spurður hvort
hann tæki afstöðu til kröfu Ragn-
ars Kjartanssonar, fyrrverandi
forstjóra Hafskips, um að Hall-
varður Einvarðsson ríkissaksókn-
ari víki sæti í Hafekipsmálinu þar
sem hann stjómaði rannsókn þess
hjá RLR á sínum tíma.
Kröfu þessa setti Ragnar fram í
framhaldi af greinargerð sinni um
rannsókn Hafskipsmélsins. -FRI
Prófkjör sjatfstæðismanna í Reykjavík:
TVeir berjast um
fyrsta sætið
Tveir menn berjast opinberlega um
fyrsta sætið í væntanlegu prófkjöri
sjálfstæðismanna í Reykjavík. Það
eru Albert Guðmundsson og Friðrik
Sophusson.
DV hafði samband við allnokkra
frambjóðendur flokksins í Reykjavik
og spurði þá hvort þeir bæðu stuðn-
ingsmenn sína að setja sig í fyrsta
sæti. Aðeins þeir tveir fyrmefndu
svöruðu því játandi.
Albert Guðmundsson sagði: „Ég
hvet mína stuðningsmenn til að setja
mig í fyrsta sætið. Ég er fyrsti þing-
maður Reykvíkinga og ég ætla að
vera það áfram.“
Friðrik Sophusson sagði: „Já, ég
stefhi á fyrsta sætið, en hitt er þó
aðalatriðið að sjálfstæðismenn raði
þannig á listann að hann verði sem
sigurstranglegastur í komandi al-
þingiskosningum."
-KÞ
Opið til kl. 20
í kvöld
Leiðin liggur til okkar
í verslanamiðstöð
vesturbæiar.
Opið frá
kl. 9-16
laugardag
Matvörumarkaður 1. hæð - Rafdeild 2. hæð
Húsgagnadeild 2. og 3. hæð -
Gjafa- og búsáhaldadeild 2. hæð -
Ritfangadeild 2. hæð - Munið JL-grillið
Sérverslanir í JL-portinu
Munið barnagæsluna 2. hæð -
opið kl. 14-20 föstudaga
og 9-16 laugardaga
JIS
KORT
JIS
'Á A ▲ A A A
2 d L- D d 33' . ^
_ UJ Lú 31 G uifiJ Q.QO.Ll 35'
D3
, LJ i— ^ »
■lUMIÍ'+UUItltJUkil *IH
Jón Loftsson hf. — .
Hringbraut 121 Simi 10600