Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1986, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1986, Blaðsíða 26
38 FÖSTUDAGUR 3. OKTÖBER 1986. Menning Noirænir tónlistardagar: Blandaðir kammertónleikar Norrænir tónlistardagar. Tónleikar í Langholtskirkju 30. september á vegum Kammersveitar Reykjavíkur, Blásar- akvintetts Reykjavíkur og Musica Nova. Stjómandi: Miklós Maros. Efnisskrá: Herbert H. Ágústsson: Kvintett; Anders Nilson: Reflecöons; Ame Mellnás: Piéces Fugitives; Jan Sandström: Formant v Mirrors. Ekkert lát er á Norrænum tónlistar- dögum í henni Reykjavík. Konsert upp á hvem dag og stundum fleiri en einn. Bara að botninn detti ekki úr öllu saman að tyllidögunum liðnum og svo fari sem í vetur sem leið að ekki heyr- ist norrænt lag, hvað þá heldur heilt tónverk sem því nafni mætti nefria, í nokkra mánuði. En er á meðan er og ekki skal það lastað sem vel er gert þótt það dembist svo rausnarlega yfir mann þessa dagana að næstum þyki manni of mikið í senn. Hins ber þó líka að geta að tónleikamir hafa allir Herbert H. Ágústsson tónskáld. verið af betra taginu og gera sitt til að halda uppi háum staðli í tónlistar- lífinu. Úrvalsverk handa úrvalssveit Umræddir tónleikar hófust með frumflutningi á Kvintett Herberts H. Ágústssonar, sem hann samdi sérstak- lega fyrir flytjenduma, úrvalssveitina Blásarakvintett Reykjavíkur. Aldrei held ég að Herbert hafi fyrr þorað í tónsmíðum sínum að leyfa hljómsveit- armanninum, homistanum í sér, að koma jafh óhindrað fram. Útkoman er líka vel skapað samleiksverk þar sem homið, hið tigna, er látið vera miðpunkturinn sem allt snýst um. Eins konar sól og hin hljóðfærin í hlutverk- um reikistjamanna. En líkt og í sólkerfinu stendur ljómi hvers ein- staks stimis í skini hins. Þetta var úrvalsverk handa úrvalssveit. í. Urval ÚRVAL - OKTÓBERHEFTIÐ ER KOMIÐ Á BLAÐSÖLUSTAÐI ÚRVAL LESTRAREFNIS VIÐ ALLRA HÆFI MEÐAL EFNIS í OKTÓBERHEFTINU MÁ NEFNA: VAR ÞETTA ÞAÐ SEM KOM FYRIR DÍNÓSÁRANA? Vísindamenn hallast nú að þvi að þróunin hafi ekki verið sígandi, heldur í stökkbreytingum af ástæðum sem beinlínis komu úr heiðskíru lofti! AÐ HAGNAST Á HRYÐJUVERKUM Hér er niöurstaöa höfundarins sú aö umfáng hryöjuverka í heiminum stafi fyrst og fremst af því aö ákveðin ríld beiti þeim óbeint sem baráttutæki og önnur ríki taki ekki mannlega á móti af því að þau gætu skaðast á því fjárhagslega. NOKKRAR SPURNINGAR UM SPIK Varpað er fram nokkrum spumingum um líkamsfitu, svo þér gefist kostur á að kanna þekkingu þína á því fyrirbæri. Kannski getur þú slakað af þér einu eða tveimur kfióum aöeins með aukinni þekkingu. BÖRNIN MÍN GEGNA MÉR EKKI! Þessa staðhæfingu má fremur kalla viðlag en kvæði og hér skortir ekkert á að foreldrakór- inn taki undix. Hér segja nokkrir foreldrar frá reynslu sinni og uppældisfræðingur svarar. - Fyrir utan þetta eru 16 aðrir titlar í heftinu og allt stendiu þetta vel undir slagorðinu: Fræðandi, fjöl- breytt, fyndið. Náðu þér í októberheftið núna - vertu ÚRVALS lesandi! ÚRVAL, TÍMARIT FYRIR ALLA Tónlist Eyjólfur Melsted Mannsröddin og hin hljóðfærin Reflections eftir Anders Nilson, em ákaflega sérstætt og sérkennilegt verk. Þær em Septett samsettur af sópranrödd, flautu, klarínettu og strengjakvartett. Andstætt því sem venjulega gerist er mannsröddin ekki nema að sáralitlu leyti í einleikshlut- verki. Eiginlega ekkert fremur en hin hljóðfærin því hér er henni fyrst og fremst beitt sem hljóðfæri á mjög svo svipaðan hátt og hinum sex. Sömu sögu er um textann að segja. Hann stendur ekki að neinu leyti utan við, heldur verður nánast hluti tónala efiii- viðarins, eða einn uppbyggjandi þátta, án sérstöðu. Og við flutninginn var valinn maður í hverju rúmi. Myndir af farfuglum dregnar í tónum Þvi næst komu Piéces fugitives eftir Ame Mellnás. Fimm smámyndir fyrir hljóðfærin fimm (sem verkið leika) segir Ame Mellnás sjálfur. Myndir af farfuglum dregnar í tónum. Hermitón- list í hæsta gæðaflokki og þar ekki valin sú leið að líkja eftir hljóðum fuglanna, heldur reynt að finna tákn- mál hreyfingarinnar. Og hvílikt táknmál sem Ame Mellnás býr yfir. Það mátti bókstaflega heyra máfinn svífa á síðustu tónunum, sem segir um leið að flutningurinn hafi verið í sam- ræmi við inntak verksins. Margslunginn yfirtónavefur Síðasta verkið var Formant Mirrors eftir Jan Sandström. Segir höfundur að verkið sé eiginlega spegill yfirtóna og það er sko síður en svo verið að spara yfirtónana, eða flaututóna, strengjanna í þessu verki. Raunar held ég að það verði að teljast sérlega áhættusamt að skrifa svo margsl- ungna yfirtóna alls strengjaliðsins, einkanlega eins og höfundur beitti þeim í lokin. Það er ekki á færi nema góðra einstaklinga og vel samþjálfaðs hðs að skila slíku jaihvel og hér var gert. Flauta og klarínetta gegndu bindingarhlutverki, svona eins og hom vom látin gera í hljómsveitum á klassíska tímabilinu og ofan á allt bættist svo einstök smekkvísi og ör- yggi söngs Ilonu Maros. Og með því lauk þessum frábæm blönduðu kam- mertónleikum. EM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.